Lögberg - 19.08.1948, Blaðsíða 3

Lögberg - 19.08.1948, Blaðsíða 3
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 19. ÁGÚST, 1948 3 Arskýrsla forseta . . . Nýtízku gleriðnaður (Frh. af hls. 2) gerðu vel að minnast elliheimilisins að Mountain, sérstak- lega nú er það er aðeins herzlumunurinn að það geti tekið til starfa. Leggjumst allir á eitt. Laun presta vorra kann einhver að segja að séu einkamál safnaðanna og prestsins; en ég vildi vekja athygli þingsins hér vegna þess að ekki mun fjarri að launakjör presta okk- ar hafi nú síðari árin, alveg sérstaklega orðið óviðunanleg. Dýrtíðin er að sjálfsögðu ein af fleiri orsökum, að hann, sem vér teljum Guðs starfsmann öðrum fremur meðal vor, hefir skort jafnvel margt það sem nauðsynlegt er til lífs- framfæris. Vakandi söfnuðir annara kirkjudeilda höfðu jafnvel talsvert fyrir stríðið byrjað að auka laun presta sinna; áttu um það þingsamþyktir er hvöttu söfnuði til þess “að vera minnuga þeirra er gera Drottins verk meðal yðar”. Sumir presta okkar líða í þögn; af kristilegri hógværð biðja þeir ekki um hækkun, og þögnina skilur söfnuðurinn, viljandi eða óviljandi, sem að hér sé ekkert athugavert. Ef þögnin getur sparað peninga, þá er bezt að þegja. Látum okkur svara sjálfum oss spurningum sem þessum: “Hefir presturinn minn fengið launahækkun sem svarar til auk- innar dýrtíðar?” “ Hefir hver ein verðhækkun á nauðsynj- um fært prestsfjölskylduna feti nær fátækrastofnuninni”. Það er ekki nóg að hugsa og þegja, heldur að hugsa og gjöra svo eitthvað. Eg legg þetta fram fyrir ykkur í allri einlægni og kærleika. Sameiginlegt starf vort með United. Lutheran Church in America, mætti segja að væri aðeins það, að leggja saman við þá kristnu bræður vora, þær kærleiksgjafir — voluntary benevolence, — sem vér ekki œtlumst til að nota sjálfum oss til handa heima í söfnuðum vorum. “The Income Objective”, er það sem aðal-kirkjuheildin — við þar með taldir, — sér fyrirfram að þarf til þess að starfið haldist við. Við gefum til þessa. Við hvetjum sjálfa okkur með því að setja okkur takmark að ná. Það, að ég gef svona mikið þetta ár, gefur engum rétt. til þess að segja að ég skuldi honum sömu gjöf, sömu upphæð, næsta ár. Þannig er ómögulegt að heimfæra neinum söfnuði eða gefanda, the “Income objective” til skuldar. En það var ekki einstakling eða söfnuð fyrir þeirri samvizku tilfinningu og kristnum drengskapar-hug, að gera eins vel og áður í þessu tilliti, ef Guð hefir blessað hann svo sem áður. Það er milli þín og guðs jafnan, hvort þú gefur nokkuð til eflingar starfi kirkjunnar út á við. Þetta ár hafa fimm söfnuðir náð hug- sjóninni um gjöf til sameiginlegs starfs, og fjórir þeirra gefið meira en hugsjónin hvatti þá til. Hér er gull-fallegt dæmi sett. Þetta geta söfnuðir okkar. Eg veit að fleiri af okkar söfnuðum geta fetað í fótspor þessara safnaða. Krist- innar samvizku okkar vegna, þurfum við að gera betur. — “Sýnið mér trú yðar af verkunum”, sagði Frelsarinn. Reyn- um að gjöra betur. Kristindómurinn getur frelsað heiminn, ef vér gefum honum vængina til að fljúga til endimarka jarðarinnar. — Pasters’ Memorial Fund hefir aukist lítið á árinu. Virðist sem að eftir slíkum sjóði sé ekki munað nema hvatning og sérstök viðleitni sé gjörð til þess að fá gjafir í sjóðinn. En minna má á að $5000.00 eru markmið sem var sett og að ennþá hafa aðeins $819.00 komið í sjóðinn. “Endurminningin er svo glögg”, um þá sem með oss hafa svo lengi lifað og starfað en kallaðir voru til hinstu hvíldar. Á það vildi ég minna okkur öll, að til hinstu hvíldar hafa gengið á þessu ári 2 ágætis konur sem líf sitt og starf höfðu alveg sérstaklega tengt við okkar kirkjufélagsstarf. Er þar fyrst að nefna Heiðursmeðlim kirkjufélagsins, ekkjufrú Erika Thorlakson. Hún andaðist í Seattle, Wash., í fyrstu viku nóvembers s. 1. haust. Jarðarför hennar fór fram í Sel- kirk, Manitoba 11. nóvember 1947, að viðstöddu fjölmenni ástvina og kristinna vina. Persónulegt líf hennar, ásamt gjöf hennar til kristins mannfélags og kirkju, sem eru börn þessarar ágætiskonu, börn, sem hafa um alt verið stórvirk 1 félagsskap vorum, minningin um hana, mun lengi vara meðal okkar og blessa okkar kirkju og kristni. Guð blessi. minningu hennar. Þá vjldi ég og minnast þess að það hjarta, sem sló svo viðkvæmt gagnvart þeim öldnu, skildi svo vel þörf þeirra er að lífskvöldi voru komnir, fórnaði þreki sínu og sálargáfu “gömlu börnunum”, það hjarta sló hinsta sinni 9. janúar 1948. Þá var þreytunni létt af, er hjúkrunarkonan, fyrrum heimilismóðir að Betel, flutti heim til hinna eilífu landa. Þá risu að fótskör guðs margar bænir frá brjóstum “barn- anna á Betel”, að blessa minning hennar, er hún var af englum borinn upp stigann, í faðm Drottins. Guð blessi minning hennar. Þannig hefi ég viljað benda ykkur á hve með guðs mætti vér getum sigrað; hversu starf vort, er vér höfum bundist félagsböndum um, megi þroskast; megum vér í öllu okkar starfi finna það heilaga köllun að lifa fyrir aðra, í hugsun og athöfn allri. Biðjum svo með skáldinu: “Send mér eld í anda eilífðar úr heimi. Drottinn. Lífs af lindum ljós þitt til mín streymi. Grafist gamlar sorgir gleymist dagsins mæða. Sé mín þrá og sigur, sókn til þinna hæða”. — E.M.J. — . E. H. Fáfnis. Glerið á eftir að vinna ný lönd, vegna þess að það brennur ekki, fúnar ekki og er mesti ein- angrarinn, sem til er. í framtíð- inni verða hús byggð úr gler- steini og gler notað í húsgögn. Tæknin hefir gert kleift að fara öðruvísi með glerið en fyrr á öldum. Það má saga það eins og tré, vinda það upp eins og ull og vefa það eins og silki, nota það í öngultauma. Glerið, sem brezkir vísindamenn geta búið til núna er svo sterkt að það má leggja það á ís (Jg hella á það bráðnu blýi án þess að það springi, og það er hægt að nota það í pressujárn. Vegna þess að tveimur efnum i lenti saman hjá Fönikíumönn- um fyrir 3300 árum, getur fólk nú haft glugga í húsunum sín- um og geta kíkt á stjörnurnar og tunglið og skoðað sóttkveikjur, og nú er hægt að byggja heil hús úr gleri og jafnvel vefa fatnað úr gleri. Bretar eru farnir að vefa úr hárfínum glerþræði. Úr einni únsu af gleri er hægt að gera 483 kílómetra langan þráð, sem er fimm sinnum fíngerðari en mannshár en samt sterkari en stál, brennur ekki og brotnar ekki og er bezti einangrari í heimi. Glerþráður þykir einkar hent- ugur í gluggatjöld vegna þess að hann getur ekki brunnið, en lít- ur út eins.og silki. Hann er mjúk- ur og áferðarfallegur og er því notaður í hálsbindi karla og í brúðarkjóla, kvenhatta og skó. Og það er hægt að lita hann alla- vega litan, svo að hann sómir sér vel í fatnaði. Ekki er hægt að nota nema úr- vals gler í glerþráðinn. Sérstök hráefni eru brædd og látin storkna í baunir. Þær eru brædd ar á ný og er hægt að teygja 160 kílómetra langan þráð úr hverri baun. En þráðurinn er til margra annara hluta nytsamlegur. Úr honum er gerð glerull, sem virð- ist svipuð bómull að sjá, en með silkigljáa. Hún er notuð sem stopp í hús og einangrari utan um pípur. Glerullin hefir líka þann kost að hún leiðir ekki hljóð, og er því ágætur einangr- ari gegn því. í nýjum húsum í Englandi, sem eru með glerull milli lofta, heyrist ekki þó barið sé með hamri á gólfið uppi yfir manni. Og glerullina má líka nota til þess að sía öll óhrein- indi úr loftinu. Er hún sett á vír- grindur, sem látnar eru í opna glugga og komast þá engin ó- hreindi inn þó að moldrok sé úti. Fast gler er nú farið að nota í steina til að byggja hús úr. Þar getur birtan borist gegnum alla veggi. Þessir glersteinar eru af- ar sterkir en ódýrir og léttir í sér. Einskonar glernegling bind- ur þá saman, svo að engan nagla þarf í húsið. Og til innanhússnota er nú hægt að fá ýmiskonar áhöld úr gleri. Borðbúnaður úr gleri var dýr áður og vildi brotna. — Nú hefir fundis járnlaus glersandur í Skotlandi, sem hægt er að vinna úr algerlega gagnsætt gler, sem er miklu sterkara og fallegra en sést hefir áður. Og svo gler sem þolir hita. — Eigendur “glerhúsa” framtíðar- innar munu sjóða matinn í gler- ofnum og steikja egg á gler- pönnum, hita upp stofurnar með miðstöðvarofnum úr gleri og brýna rakvélarblöðin sín með glerbrýnum og spila á gler- píanó. — Bretum hefir líka tekist að framleiða nýja tegund af gler- augum, sem hlífa augunum við ofbirtu, því að glerin varna skaðlegu geislunum að komast að augunum. Þessi gleraugu má bæði nota sem sólgleraugu og eins handa þeim, sem vinna við sterka birtu, svo sem logsuðu- mönnum. Það eru infrarauðu geislarnir en ekki birtan sjálf, sem meiða augun. Og nú er farið að selja gleraugu, sem loka þessa geisla úti. Glervökvi er notaður til að verja hitavatnspípur ryði og glerþráður til að sauma saman sár. Og glerkveikir í lampa brenna ekki en gera sama gagn og gömlu kveikirnir. Fálkinn. Þakklœti Við, sem skrifum nöfn okkar undir þessar línur, erum í svo stórri þakklætisskuld, að okkur langar til að biðja Winnipeg ís- lenzku blöðin, að flytja nokkur þakklætisorð til þeirra mörgu vina, sem mintust fimmtíu ára giftingarafmælis okkar, þann ellefta júlí síðastliðinn og gjörðu það með þeim myndarskap, vel- vild og alúð, eins og séra. H. E. Joh.nson hefir greinilega útlistað í sínum fréttagreinum. Við þökkum af alhug, alla þá velvild sem okkur var sýnd; með ræðum, kvæðum, unaðsrík- um söng, heillaóskum og verð- mætum gjöfum, og alla þá marg breytilegu fyrirhöfn og kostnað. Við verðum sérstaklega að minn- ast þess að oddviti, skrifari, og meðráðamenn Coldwell sveitar, voru forgöngumenn og stjórn- endur á þessu fjölmenna gleði- móti, svo að þar er stærsta þakk- lætisskuldin; en fleiri hundruð, bæði menn og konur, tóku svo mikinn og stóran þátt í þessum vinahótum, að við kunnum ekki að þakka sem vera ber, og biðj- um því gjafarann allra góðra hluta og hugsana, að launa fyr- ir okkur, og gefa ykkur öllum þátttakendum, sem dveljið fjær og nær, hin beztu lífsins gæði, og framtíðar vellíðan. Ragnheiður og Ágúst Magnússon. Gamalmennin trúa öllu, mið- aldra efa allt, en unglingarnir vita allt. — Ocar Wilde. TIL MR. og MRS. ÁGÚST MAGNÚSSON á 50 ára giftingarafmæli þeirra Flutt 11. júlí 1948 KAUPENDUR LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU Á ISLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað. Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON Mávahlíð 37, Reykjavík. Heilladísir hálfa öld hafa verndað ykkur bæði margvísleg hin góðu gjöld goldið hafa þúsundföld daga og nætur hyltu höld heilnæm kendu lífsins fræði heilladísir hálfa öld hafa leitt og verndað bæði. Þakka ykkur viljum við verkin miklu, trygð og gæði með oss strídduð hlið við hlið heilla málum veittuð lið Efla frið og fagran sið fýsti ykkur jafnan bæði. Biðja Drottinn viljum við veita ykkur eilíf gæði. V. J. Guttormsson. Business and Professional Cards SELKIRK NETAL PRODUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeining, ný uppfynding, sparar eldiviö, heldur hita. KEI/L.Y SVEINSSON Sími 54 358. 187 Sutherland Ave., Winnipeg. JOHN A. HILLSMAN, M.D., Ch. M. 627 Medical Arts. Bldg. Office-99 349 Home-403 233 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg PHONE 87493 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 7 VINBORG APTS. 594 Agnes St. ViOtalstími 3—5 eftir hádegri Office Ph. 95 668 Res. 404 319 NORMAN S. BERGMAN, B.A..LL.B. Barrlster, Solicitor, etc. 617 Mclntyre Block WINNIPEG CANADA DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office hra. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Rea. 230 Also ÍELDSTE^l TENTH ST. BRANOON 447 Poriage Ave. Winnipeg Offlce Phone Res Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.at). Verzla I heildsölu meö nýjan og frosinn fisk. 303 OWENA STREET Skrifst.sftni 25 355 Heima 66 462 Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 96 952 WINNIPEG DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Dr. Charles R. Oke Tannlæknir For Appointments Phone 94 908 Office Hours 9—6 404 TORONTO QEN. TRUSTS BUILDINO 283 PORTAOE AVE. Winnipeg, Man. Ta'isími 95 826 Heimilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN SérfrœOingur i augna, eyrna, nej v og kverka sjúkdómum. 209 Medlcal Arts Bldg. Stofutfmi: 2.00 til 5.00 e. h. SARGENT TAXI • PHONE 34 556 For Quick ReHahle Service DR. ROBERT BLACK SérfræOingur i augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofusfmi 93 851 Heimasfmi 403 794 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPQ. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgö. bifreiöaábyrgö. o. s. frv. PHONE 97 638 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. íslenzkur lyfsali Fólk getur pantaC meóul og annaÓ með póstl. Fljót afgreiðsla. * Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrœOingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BO. Portage og Garry St. Slmi 98 291 A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur líkkistur og annast um Ot- farlr. Allur útbúnaöur sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsfmi 27 324 Helmilis talsfmi 26 444 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST„ WINNIPEO Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDBON Your patronage will be apprecfated Geo. R. Waldren, M. D. Physician and Surgeon Cavalier, N. D. Office Phone 96. House 108. CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Fraeh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 PHONE 94 981 H. J. H. PALMASON and Company Chartered Accountants 219 Mc INTYRE BLOCK Winnipeg1, Canada Q. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr.' Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH Phone 49 469 Radlo Service Speciallsts ELECTRONIC LABS. H. TBORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equlpment System. 130 OSBORNE ST„ WINNIPEG '

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.