Lögberg - 06.01.1949, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. JANOAR, 1949
3
NOKKUR MINNINGARORÐ UM
Bertel Högna Gunnlögsson
prófessor, Dr. Phil.
"—Og dökni Væringi í suðrænni sól . '
ber hann sinni, undir skinni, sem norðrið ól,
og minnlst að heima er lífs — trúar lindin.'
(E.B.)
ÍSLENDINGAR HAFA löngum víðföru'lir verið, útþráin er
þeim í blóðið borin. Til forna hlaut þorvaldur Konráðsson auknefn-
ið “hinn víðförli”, bar hann það nafn með fullum rétti eftir því
er fornar sagnir frá herma. ---------------——
Á hjá liðnum öldufh og enn
þann dag í dag, hefir margur ís-
lendingur átt rétt til hins sama
au'knefnis. Hér langar mig að
minnast að nokkru eins slíks
manns, sem eins og Þorvaldur
forðum, bar hróður íslands víða
um lönd, sakir óvenjulegrar
fræðslu og lærdóms er hann
hafði aflað sér; en mætti þeim
örlögum, eins og margir þeir er
langdvölum lifa með erlendum
þjóðum að vera að mestu
gleymdur samtíðarfólki á ætt-
jörð sinni. Nærri full 30 ár eru
nú hjáliðin síðan hann lagðist
til hinztu hvíldar; er að eðlileg-
leikum hljótt um minningu hans.
Tiltölulega mun lítið hafa verið
um hann ritað heima á ættjörð-
inni, að því er ég bezt til veit,
hefi ég þó gert mér nokkurt far
að kynnast því en áragurslaust.
Heimildir þær sem ég styðst við
er aðalega ágæt og ítarleg grein-
um Gunnlaögson sem birtist í
mánaðarritinu “Öldin”, í Winni-
peg, III árangur 12. desember
1895; er greinin sennilega eftir
þáverandi ritstjóra þess tímarits
Eggert Johannsson; uppistaðan í
æfisögu hans er þar all-ítarlega
rakin. Einnig í Marz og Maí hefti
“Nýs Kirkjublaðs,” er studdist
við upplýsingar sem séra Matt-
hias Jochumsson lét ritinu í té
úr bréfi frá Gunnlögson. Einnig
styðst ég við sagnir um hann, er
Dr. Phli O. A. Tingelstad, (þá
^pr^stur í Seattle) sagði mér; svo
byggi ég á heimsókn minni til
hans 1811, — og á bréfum er
hann reit mér á árunum 1911—
1912. Vona ég að þessi mín ófull-
komna tilraun að minnast þessa
serkennilega manns mætti
hýetja einhvem mér færari til
að rita rækilega um þennan
sannmerka fræðimann og ágæta
son Islands, er unni landi sínu
og þjóð æfilangt, og kynti ís-
land meðal mentamanna samtíð-
ar sinnar víða um heim, flestum
öðrum fremur — þó langt sé til
leitað.
Bertel Högni Gunnlögsson var
fæddur í Reykjavík 29 maí 1839.
Sonur Stefáns land- og bæjar-
fógeta Gunnlögssonar Þórðar-
sonár presta á Hallormsstað
Högnasonar. Móðir Bertels en
fyrri kona Stefáns var Ragnhild-
ur dóttir Benidikts yfirdómara
Gröndals. Bertel og Benedikt
Gröndal skáld og listamaður
voru því systra synir; Mælt er
að Bertel væri fyrsta bamið er
hlaut skím í skírnarfonti þeim,
er hinn frægi listamaður Albert
Thorvaldsen gaf dómkirkjunni í
Reykjavík, bar Bertel því nafn
hans. — í “Annál 19 aldar,” eftir
séra Pétur Guðmundson skáld og
Grímseyjarprest er sagt að Ragn-
hildur móðir Bertels dæi 1840,
eða rúmu ári eftir að hann fædd-
ist.
Á efri árum sínum átti Bertel
bréfaskifti við séra Matthías
Jochumsson skáld. Þar minnist
hann á bernskuár sín í Reykja-
vík; ánægjuna af að skauta á
tjörninni á tunglskinsbjörtum
vetrarkvöldum, og synda bæði í
sjónum og laugunum. Þá segist
hann einnig hafa lesið allar ís-
lendingasögurnar, er hann ávalt
síðan í minni bar. En einmana
segist hann hafa verið — Sökn-
uðurinn yfir móðurmissi virðist
að hafa mótað bernskár hans.
Þetta áminsta bréf séra Matt-
híasar birtist svo í “Nýju Kirkju-
blaði,” í marz hefti ritsins 1913
— Þar getur Bertel þess að síð-
asta sumarið sem hann var á Is-
landi 1851, var hann í smásveina
þjónustu á þjóðfundinum á þing-
völlum; ber frásögnin það með
sér hve hrifinn hann var af Jóni
Sigurðsyni og framkomu hans
þar.
Stefán landfógeti fór af landi
burt til Danmerkur haustið 1851;
er ég ófróður um tildrög til þess;
en skilst að hann lifði þaðanaf í
Kaupmannahöfn við þröngan
kost. Bertel hóf þar strax nám á
latínuskóla, en mun ekki hafa
fundið sig þar heima; bar hann
æfilangt fremur þungan hug til
Dana. Tveimur árum eftir kom-
una til Danmerkur fer hann svo
einn síns liðs, þá á 15 ári til
Rómaborgar til náms. Sýnir
þetta þróttmikla lund hans og
útþrá. Séra Þórhallur Bjarnar-
son getur þess til, að þessa suð-
ur-göngu færi hann á vegum
katólsku kirkjunnar; er á þeim
árum lagði mikla áhrezlu á að
fá unga efnilega Islendinga til
náms á skálum sínum. Mig skort-
ir öll gögn til að fara frekar út
í þetta mál, en læt tilgátu Þór-
hallar biskups fylgja hér með,
sem er alls ekki ólíkleg eða fjærri
sanni.
í Rómaborg stundaði Bertel
nám í 6 ár, eða til vorsins 1859.
Þá fór hann til íslands og dvaldi
þar sumarlangt. Um haustið fór
hann til Edinborgar a Skotlandi
og dvaldi þar um hríð. Þar kynt-
ist hann Dr. Bichnell, lærðum og
frægum vísindamanni, og fyrir
hans meðalgöngu komst hann í
kynni við ýmsa stórhöfðingja.
Dönsk tunga og bókmentir voru
þá í miklum hávegum meðal
Breta, sökum tlivonandi tengda
prins of Wales við Danakonung.
Þótti það mjög svo móðins að
læra eitthvað í danskri tungu, og
nutu enda önnur norðurlanda-
mál þar einnig góðs af. Af þessu
leiddi að Bertel, þá rétt tvítúgur
og ný útskrifaður stúdent, fékk
mjög ákjósanlega kennarastöðu.
Meðal nemenda hans þann vetur
er sagt að væri ein af dætrum
Victoríu drotningar, Helen Aug-
ústa Victoría, er síðar giftist
Frederick Christian, prinsi af
Schlesvig-Holstein.
Vorið 1860 bauð Dr: Bichnell
honum að fylgjast með sér í ferð
um Austurlönd, og þáði hann það
boð með glöðu geði. Feruðuðust
þeir um Grikkland, Litlu Asíu,
Arabíu og Egyptaland. Fór
Gunnlögsson svo til Neapel, og
hóf þar brátt háskólanám, er
hann stundað iaf miklu kappi.
Aðalnámsgreinar hans úoru
Austurlandamál, einkum Sansk-
rít og Persneska og samanburð-
ar málfræði. Hlaut hann fyrstu
einkunn í þessum námsgreinum;
vann þó fyrir sér að öllu leyti
meðan á námi stóð. Kenslustörf-
um hélt hann áfram í Neapel til
ársins 1868. Á þessum árum hóf
hann einnig annan aðalþátrt æfi-
starfs síns; Þýðingar merkra rita
úr erlendum málum á Itölsku; en
þýðingar bóka og rita varð ann-
að aðal æfistarf hans, lengst æf-
innar þaðan. —
Um áramótin 1868—1869 fór
Bertel til Lundúha og settist þar
að. Þar átti hann marga víni,
suma mjög háttstandandi við
hirðina og í þjóðfélaginu; einn-
ig átti hann vini í hópi manna,
er frægir voru í bókmenta heim-
inum. — Fróðlegt væri að rann-
saka þetta nokkru nánar, þó ekki
hafi ég tök á því. — Það er verk-
efni fyrir sérfræðing. Bertel
dvelur í Lundúnum fram að 1880,
mun þetta hafa verði blómatíð
æfi hans, og ,hann notið betri
lífsaðstöðu, en fyr eða síðar.
Hann stundaði ritstörf og rita
þýðingar, en kendi ávalt öðrum
þræði. — Tungumálaþekking
hans var svo víðfeðm og óvenju-
leg, að fá slík dæmi munu mega
fyrir finnast. Að eðlilegleikum
var mikið úrval lærðra manna
samansafnað á Bretlandi um
þessar mundir víðsvegar að
komnir — sem jafnan, — hinn
einmana íslenzki fræðimaður
vakti aðdáun og eftirtekt fyrir
víðfeðma mentun á mörgum
sviðum.
Á sviði Austurlapdamálanna
mun hann hafa átt fáa sina líka.
(Frh. af bls. 2)
legra framkvæmda heima, minn-
ist ég þess sérstaklega, að miklir
erfiðleikar voru á útvegun á vél-
um og efni til hitaveitunnar í
Reykjavík. Slíkur varningur var
gulli dýrmætari á stríðsárunum,
þegair hernaðarfrmaleiðslan varð
að ganga fyrir öllu. Við vorum
einnig sérstaklega óheppnir, þar
sem tveim skipum var sökkt á
leið til íslands, er bæði höfðu
innan borðs mikið af vörum
handa hitaveitunni. Hér voru
einnig keyptar á stríðsárunum
vélar til virkjunar á Soginu fyrir
Reykjavík, á Laxá fyrir Akur-
eyri og efni til rafveitanna til
Keflavíkur, Eyrarbakka og
Stokkseyrar. Allt komst þetta
heim, þótt seint gengi og erfitt
reyndist að útvega 'efnið.
Ennfremur má geta þess,
að sumarið 1944 k e y p t i
sendiráðið af flotastjóm Banda-
ríkjanna einn Grumman flug-
bát fyrir Loftleiðir h.f., og ári
síðar annan fyrir Flugfélag ís-
lands.
Eins og að líkum lætur, hefur
sendiráðið reynt að greiða fyrir
Íslendingum, sem hingað hafa
komið, t.d. um útvegun á hótel-
plássi, leiðbeiningar um ferða-
lög um landið, kaup farseðla og
fleira slíkt. Eftir að við höfðum
misst bæði farþegaskipin okkar,
‘Goðafoss” og “Dettifoss”, voru
engin farþegaskip í förum til Is-
lands. Þá voru engar almennar
flugferðir til landsins, en her-
stjórn Bandaríkjanna reyndist
okkur þá hjálpleg og flutti á ár-
unum 1945 og 1946 samtals um
330 Islendinga heim með flug-
vélum sínum. Engin leið önnur
var þá fær til að koma þessu
fólki heim. Öll stríðsárin kom
fjöldi íslenzkra stúdenta til náms
og dreifðist um öll Bandaríkin.
Það varð þá hlutsýipti sendiráðs-
ins að útvega námsfólkinu skóla-
vist og aðstoða það síðan á ýms-
Um 1880 er það að hann fer til
Vesturheims og sezt að í Chi-
cago. — Ungur prestur er ég
kyntist á dvalarárum mínum í
Seattle, Rev. O. A. Tingelstad,
(síðar dr. phil, og merkur skóla-
maður) sem var hrifinn af þess-
um aldraða fræðimanni sagði
mér að tildrög til Ameríkufarar
hans frá Lundúnum hefði verið
þau, að bókaútgefendur í Chi-
cago hefðu ákvarðað að gefa út
vísindaleg lögfræðisrit frönsk, á
ensku. Þeim hefði verið bent á
Bertel sem hinn hæfasta mann
fáanlegan til þess starfs. Mun
hann hafa lokið því starfi á dval-
arárunum í Chicago. — Einnig
sagði dr. Tingelstad mér að hann
hefði oft haldið námsskeið fyrir
tungumálakennara við Chicago
háskólann og aðra háskóla; eink-
um í Sanskrít og Persnesku. —
Arið 1883 fluttist Bertel vestur
að Kyrrahafi og settist að í Ta-
coma borg, í Washingtonríki.
Tildrög til vesturfarar hans voru
þau að hann réðist sem kennari í
tungumálum á skóla, er Meþód-
ista kirkjan starfrækti þar, og
mig minnir að héti Pacific Uni-
versity. Þar kendi hann um hríð,
en mun ekki hafa sætt sig als-
kostar við andrúmsloft það er
þar ríkti. 1 áminstri grein í “Öld-
inni”, er um það farið þessum
orðum. “Gunnlögsson þolir alt
betur en þröngsýni og fanatism-
us, í hverju sem er, — og er hann
sá að um tvent einungis var að
tefla: hverfa frá skólanum eða
fullnægja öllum kröfum þröng-
sýnnar skólastjórnar, var hann
ekki lengi að hugsa sig um hvað
gera skyldi. Hann yfirgaf skól-
ann, þótt aldurhniginn og þrevtt-
ur væri orðinp, og tók að nýju að
ryðja sér braut um frumskóg
mannfélagsins á vesturströnd
Ameríku. Hann tók enn að kenna
og rita og innan skamms hafði
hann dregið til sin mentafúsan
nemendaflokk, sem ár frá ári
(Frh. á bls. 7)
an hátt. Árið 1942 kom sendiráð-
ið 50 íslenzkum stúdentum fyrir
við háskóla hér, og árið 1945 66
stúdentum. Um tíma annaðist
sendiráðið fjárhald fyrir margt
af námsfólkinu. Á_ stríðsárunum
komu hingað margir sjúklingar,
og kom sendiráðið þeim fyrir á
sjúkrahúsum og gréiddi fyirir
þeim. #
Þegar sendiráðið var stofnað,
var aðeins ein ræðismannsskrif-
stofa í Bandaríkjunum, sem sé
aðalræðismannskrifstofan í New
York, sem launaður maður veitti
forstöðu. I Kanada var einnig ein
ræðismannsskrifstofa, •• í Winni-
peg, og var ræðismannsstarfið
þar ólaunað. Það hefur verið
hlutverk sendiráðsins að velja
góða menn til að gæta íslenzkra
hagsmuna víðsvegar um Band%-
ríkir> og Kanada. Við höfum nú
ágætis menn sem ólaunaða ræð-
ismenn á þessum 9töðum í
Bandaríkjunum: Baltimore, Bos-
ton, Chicago, Grand Forks Los
Angeles, Minneapolis, New
York, Philadelphia, Portland,
San Francisco og Seattle. Sú
breyting hefur orðið á um ræð-
ismannsskrifstofuna í New York
að ekki þótti ástæða til þess að
hafa þar launaðan mann, og er
því ræðismannsstarfið í New
York nú ólaunað. í Kanada höf-
um við ræðismenn í Halfax, Tor-
onto, Vancouver og Winnipeg, og
ennfremur höfum við ræðismann
á Nýfundnalandi. Einnig höfum
við ræðismann á Kúba, í Mexico
og á tveim stöðum í Brasilíu.
Allar þessar ræðismannsskrif-
stofur standa í sambandi við
sendiráðið. Við höfum verið sér-
staklega heppnir með að fá
marga ágætismenn af íslenzkum
ættum í þessar stöður og má nú
sega, að vegurinn um Vestur-
heim sé víðsvegar vel varðaður
til fyrirgreiðslu íslendinga.
Niðurl. í næsta hefti.
Störf íslenzka sendiráðsins . . .
Business and Professional Cards
SELKIfiK METAL PRCÐUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeining, ný uppfynding, sparar eldivið, heldur hita. KELLY SVEINSSON .Simi 54 358, 187 Sutherland Ave., Winnipeg. JOHN A. HlLLSMAN, M.D., Ch. M. 627 Medical Arts. Bldg. Office 99 349 Home 403 288
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg Phone 94 624 PHONE 87493 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 7 VINBORG APT8. 594 Agnes St. Viötalstimi 3—6 eftlr hádegl
Office Ph. 95 668 Res. 404 319
N0RMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B.
Barrister, Solieitor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Offlce hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Offlce 26 — Res. 230
Office Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Manitoba Fisheries
WTNNIPEG, MAN.
T. BerconHtch, framkv.stj.
Verzla t heildsölu me6 nýjan og
frosinn flsk.
303 OWENA STREET
Skrifst.sími 25 355 Heima 56 462
--------------------------1
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlceknar
406 TORONTO GEN. TRUST8
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
PHONE 96 952 WINNIPBJG
DR. A. V. JOHNSON
Dentiat
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Dr. Charles R. Oke
TannlceknW
For Appolntments Phone #4 #08
Offiee Hours 9—6
404 TORONTO GEN TRUSTS
BUILDINO
283 PORTAGB AVE.
Winnipeg, Man.
Taislmi 96 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
BérfrceOlngur i augna, eyma, nef
og kverka ajúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 til 6.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
BérfrœOingur ( augna, eyrna,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusimi 93 851
Heimasíml 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
F61k getur pantaO meOul og
annaö meö p6sU.
Flj6t afgreiOsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur likkistur og annast um Ot-
farir. Allur útbúnaOUr sá bezti.
Ennfromur selur hann állskonar
minnlsvarOa og legsteina.
Skrifstofu talsimi 27 324
Heimilis talslmi 26 444
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Ph. 96 441
4
PHONE 94 981
H. J. H. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
219 McINTYRE BLOCK
Winnipegv Canada
Phone 49 469
Radio Service Speciallsts
ELECTRONIC LABS.
B. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST„ WINNIPEG
SARGENT TAXI
Phone 76 001
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
Fasteignasalar. Ledgja hús. Ct-
vega peningalán og eldsábyrgö.
bifreiöaábyrgö, o. s. frv.
PHONE 97 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrceOimgar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Sfml 98 291
GUNDRY PYMORE
Limited
Britlsh Quality Fish Netttng
58 VICTORIA ST„ WINNIPE3G
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDBON
íour patronage will be appreclated
C A N A D I A N FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fraeh
and Frozen Flsh.
311 CMAMBBRS STREET
Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
G. F. Jonasson, Pree. & Man. Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SlMI 95 22T
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
Bus. Phone 27 989 Bes. Phone 36 1S1 J
Rovaizos Flower Shop
Our Speclalties
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mrs. S. J. Rovatzos, Proprietreee
Formerly Robinson & Co.
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANTTOBA