Lögberg - 31.03.1949, Qupperneq 6
6
LÖGBERG, FIMTUDAGT.NN, 31. MARZ, 1949
Œttmaðurinn
Eftir
THOMAS DIXON, Jr.
Ben Cameron og menn hans hlógu,
skutu einu sinni af byssum sínum út í
loftið, húrruðu, sneru svo við og riðu
hvatlega heim að réttarsalnum. En þar
vildi enginn við þeim líta. Réttarskrifar-
inn lét þá alla lausa, gegn tryggingu
(Bail Bond) sem hann flýtti sér að út-
búa og skrifaði nöfn þeirra, sem honum
datt í hug þá í svipinn undir þau.
Stoneman sendi annað símskeyti
til Washington og Habeas Corpus lögin
voru numin úr gildi, og herlög ákveðin
í öllu ríkinu.
Stoneman stórreiddist út af þessari
meðhöndlun á ættmönnunum, en eink-
um viðtökunum sem þeir fengu hjá her-
mönnunum á árbakkanum, svo hann lét
senda eftir tveimur Negra herdeildum
til Columbia og lét þær standa á verði
við dómsmálahúsið.
Hann ásetti sér að brjóta á bakaft-
ur framsóknar eldinn sem kviknaður
var í huga og hjarta hvíta fólkisins hvað
sem það kostaði. Hann lét senda eftir
Bizzel til Cleveland, konu hans og
krökkum, og honum var fylgt til ráð-
hússins í Piedmont og settur inn í borg-
arstjóra stöðuna með tilstyrk sjöhundr-
uð hermanna. Stoneman lét Lynch
senda eftir þúsund negrum úr nærlyggj-
andi héruðum til þess að fylla hópinn
á alsherjar samkomu sem halda átti í
Piedmont. Hann lét festa upp auglýs-
ingar um allan bæjinn sem á vóru
prentuð persónréttar lögin og ákvæði
forseta um að Suður Carolína væri und-
ir valdi herlaganna.
Ben var í þunguskapi út af þessum
athöfnum. Hann fór nóttina eftir að
auglýsing þessi var fest upp, og heim-
sótti hvert einasta Den í héraðinu og
lagði strangt bann fyrir, að nokkur
“Klan”-félagi kæmi til Piedmont.
Ben Cameron hafði varast frá
fyrstu, að lenda í andstöðu við ríkis-
valdið. Það var áríðandi, að halda
mönnum hans frá, að aðhafast nokkuð
það, sem gæti eyðilagt fyrirætlanir
hans. Umram alt var honum ant um að
slægi ekki í íllt á milli mannanna sinna
og Stoneman.
Þegar Negra hópurinn kom, til
Piedmont sýndi hann undireins yfirgang
og íllkvittni, enda var til þess ætlast.
Þeir fóru í hópum um bæjinn, með ó-
látum og yfirlæti. Margir þeirra voru öl-
vaðir og þeir gengu þrír og þrír við hlið
eftir götunum og ýttu mönnum og kon-
um úr vegi og út á strætin.
Þeir mættu Phil, sem var á leiðinni
á gestgjafahúsið og ýttu honum útaf
gangstéttinni. Hann sagði ekki orð en
fór yi'ir .götuna keypti sér skammbyssu
og lét hana í vasa sinn. Phil var ekki
vinsæll á meðal Negranna, og tvisvar
hafði verið skotið á hann þegar hann
var seint á ferð frá myllunni og heim til
sín og fundur þessi sem faðir hans átti
að stjórna var honum ekki aðeins móti
skapi, heldur andsytggð, svo hann var í
vondu skapi.
Ræða Lynch á samkomunni var
djörf, beisk, og æsandi, og þegar henni
var lokið, fóru Negra hermennirnir frá
nærliggjandi héröðum sem voru orðnrir
ölvaðir tveir og tveir saman út í bæ til
að ílskast.
í lok ræðunnar kallaði Stoneman á
yfirmanninn yfir þessum hermönnum
og sagði: ‘‘Majór, ég vil að þessi fundur
sé yfirlýsing um yfirvald laganna og um
fullnæging á janfgildi allar manna undir
lögunum. Liðsmenn þínir eiga heimt-
ingu á samrétti við alla hvíta menn. Ég
hefi frétt, að máltíðir á gestgjafahúsinu
hafi staðið hermönnunum sem eru nið-
ur við ána til boða í allan dag endur -
gjaldslaust. Þeir eru að endurgjalda
kurteisina sem glæpamönnunum sem
sýndu þeim æfingaraar var sýnd. Sendu
tvo af Negra hermönnum þínum á gest-
gjafahúsið til kveldverðar, og sjáðum
um að veitt sé á þá. Ég vil að þetta sé til
eftirbreytni í ríkinu.
“Það er hættulegt fyrirtæki herra.”
Sagði Majórinn.
Stoneman gamli ýlgdi sig.
“Hefurðu skipan um að gjöra, eins
og ég skipa fyir.”
“Það hefi ég herra,” sagði herfor-
inginn og hneigði sig.
“Gjörðu þá það sem ég segi þér,”
sagði Stoneman stuttur í spuna.
Ben Cameron hafði verið heima
allan daginn, og tekið á móti fimtíu af
vestur ríkja hermönnunum, sem höfðu
sýnt honum vinsemd og inönnum hans.
Margrét, sem ásamt móður sinni hafði
staðið þessum hermönnum fyrir beina,
sat í borðstofunni ein við að borða, en
Phil beiö órólegur í setustofunni.
Gestirnir voru allir farnir, þegar að
tveir drukknir Negra hermenn komu
inn. Þeir gengu fyrst að vatnsílátinu og
fengu sér að drekka. Svo gengu þeir inn
í borðstofuna og settust sinn við hvora
hliðina á Margréti.
Hún reyndi að rísa á fætur, og sagði
reið:
“Hví dyrfist þið, svörtu dónar?”
Annar Negranna lagði handlegginn
yfir bakið á stólnum sem Margrét sat í,
leit framan í hana og sagði:
“Flýttu þér ekki svona mikið. Sittu
kyr og borðaðu með okkur.”
Margrét hljóðaði upp og reyndi að
rísa á fætur, en rétt í því kom Phil inn
í dyrnar á borðstofunni með skammbysu
í hendinni. Annar Negrinn skaut á hann,
en hitti ekik, en féll á næstu mínútunni
sjálfur dauður niður, en hinn stökk frá
borðinu og steypti sér út um glugga, á
borðsalnum, sem var opinn.
Margrét, leit upp, sá Phil og bróður
sinn í dyrunum og féll í öngvit.
Ben flýtti sér að koma Phil út um
bakdyr gestgjafahússins, og sagði hon-
um, að það eina sem hann gæti gjört,
væri að fara úr bænum undir eins.
. “Þú verður að fara! við getum ekki
átt það á hættu að allt fari hér í bál og
brand. Það er ómögulegt að vita hvað
fyrir kann að koma, ef uppþot yrði hér
nú, þá koma mínir menn úr öllum áttum
í bæjinn í nótt. Þú verður að fara, þang-
að til að kyrð kemst á hér aftur.”
“Ég fer ekki, ekki fet.” sagði Phil.
“Komi hvað sem koma vill. Ég er ekki
hræddur við það.”
“Nei, en ég er.” Svaraði Ben þessir
tvö hundruð Negrar eru vopnaðir og
undir áhrifum víns og yfirmenn þeirra
ráða ekkert við þá, og þeir geta lagt
hendur á þig — farðu — farðu! Þú verð-
ur að fara. Járnbrautarlestin fer eftir
fimtán mínútur.”
Ben hálf dróg og hálf bar Phil þang-
að sem hestar voru bundnir á bak við
gestgjafahúsið. Kom honum á bak og
stökk á bak öðrum sjálfur, og skildi ekki
við hann fyrri en hann var kominn inn
í járnbrautarlestina, sem var rétt í þann
veginn að leggja á stað norður. “Bíddu
í Charlotte þangað til ég síma þér.” Var
það síðasta sem Ben sagði við hann.
Ben fór á bak hesti sínum og reið til
McAllister, og fékk tvo af sonum hans til
að fara tafarlaust og tilkynna Cyclop’s
hinna tíu “Den” félaga að þeir skyldu
ekki sina neinum frétum sem berast
kynnu frá Piedmont, og sjá um, að allir
þeirra menn héldu sig burtu úr bænum
1 tvo daga.
Á heimleiðinni, mætti Ben fimm-
hundruö hvítum ríkishermönnum sem
tóku hann fastann. Negrinn sem komst
lífs af úr gestgjafahúsinu frá viðureign-
inni, hafði lagt eið út á, að það hefði ver-
ið Ben Cameron sem skaut Negrann í
gestgjafahúsinu. Á þrjátíu mínútum var
hann yfirheyrður, af málamyndar her-
rétti og dæmdur til dauða.
VII Kapítuli
SNARA VEIÐIMANNSINNS
Mikil var ánægja Stonemans gamla
yfir örlögum Ben Camerons. Dauða-
dómur hans mundi óumflýjanlega
skjóta mönnum hans skelk í bringu, og
aftaka hans að morgni kosningadagsins
sem var tveimur dögum seinna, myndi
breyta allri aðstöðu, bjarga ríkismálun-
um, og binda enda á, samband dóttir
hans og Ben Cameron, sem hann hataði.
Hann ásetti sér að sjá við hinu síð-
asta og eina lífstækifæri Ben Camer-
ons. Hann vissi að ættmennirnir, félag-
ar Ben mundu reyna að koma honum til
aðstoðar, og beita öllum brögðum, ær-
legum og órærlegum, að undanteknu
opinberu upphlaupi til að frelsa hann.
Hann var ekki viss um hollustu rík-
isdeildarinnar sem þar var í bænum, svo
hann afréð að fara undireins til Spart-
anburg og láta skipta á deildinni sem
þar var, og þeirri sem sat í Piedmont, og
þegar staðfestingin á dauðadóm Ben
Camerons kæmi frá höfuðstaðnum, fá
aftökna í hendur ókunnum manni, sem
enga meðaumkvun hefði með þeim
dæmda, eða vinum hans. Hann þekti
fyrirliða í Spartanburg deildinni, sem
til þessa versk vera vel fallinn hefnigj-
arnann mann sem einu sinni hafði verið
dæmdur af herrétti fyrir grmmd, og
hataði innilega alla hvíta menn í suður-
ríkjunum. Þessum manni ásetti Stone-
man sér að fela á hendur, eftirlit á, og
aftöku Ben Camerons.
Stoneman leigði sér par af ágætum
hlaupahestum, og hélt á stað eins hratt
og hestarnir komust, því bæði var hon-
um ant um að koma þessari fyrirætlan
sinni í framkvæmd, og svo óttaðist hann
dóttir sína, sem enn svaf, því þetta var
snemma morguns, og vissi ekkert um
það sem fyrir hafði komið, það var því
um að gjöra, að komast í burtu, áður
enn hún fengi fréttirnar, og áður en
hún gæti leitað til hans með vægðarbón.
Hann vissi, að hann mundi ekki
geta staðist að sjá hana hrygga og grát-
andi. Hann var sannfærður.um, að hún
mundi ekki fást neitt um fjærveru sína
fyr en dagur væri að kveldi kominn og
þá gæti hún ekki náð til sín.
Þegar Phil kom til Charlotte sá
hann hóp af fólki standa fyrir framan
skrifstofu blaðsins “Observer” og vera
að stara þar á auglýsingu, eð frétt sem
fest hafið verið upp, en fréttin var um
það sem fyrir hafði komið í Piedmont,
og hann varð bæði hryggur og reiður
þegar að hann sá, að Ben Cameron
hafði verið tekinn fastur fyrir verknað
sem hann hafði framið.
Hann flýtti sér á fund umboðs-
mansjárnbrautarinnar í Charlotte og
sagði honum hver hann væri, og söguna
um það sem komið hafði fyrir í Pied-
mont, eins og hún vár, og bað umboðs-
manninn um sérstaka lest til að komast
til baka. Umboðsmaðurinn, sem til-
heyrði ættmanna sambandinu, félst
ekki aðeins á, að gjöra það, heldur hófst
handa svo sköruglega að, innan klukku-
stundar hafði hann lestina tilbúna, og
auk þess tvo fólksflutningsvagna vel
skipaða með hraustum og einbeittum
mönnum, honum til fylgdar. Phil sagði
ekki orð. Spurði einkis. Hann vissi hvað
þetta meinti. Lestin stansaði í Gastonia
og Kings Mountain og í þeim bæjum
bættust hundrað menn í hópinn.
Það var farið að skyggja þegar lest-
in kom til Piedmont. Phil flýtti sér á
fund deildarstjórans, og kvaðst endilega
þurfa að ná tali af Ben Cameron.
“Til hvers herra?” spurði deildar-
stjórinn.
Phil, í þeirri von að deildarstjórinn
vissi ekkert um meiningamun föður síns
og sín, sagði:
“Ég hefi skipun um að fá játningu
frá fangnum, sem máske bjargaði lífi
hans, en sem er lykillinn að eyðilegging
‘Klu Klux Klan’ félagsins.”
Honum var undireins fylgt til fang-
ans, og varðmönnunum boðið að hverfa
frá, á meðan að á samtalinu stæði.
Þeir Phil og Ben skiftu um pláss, og
skitfu um föt, og Phil skrifaði föður sín-
um bréf þar sem hann sagði honum his-
purslaust frá því sem fyrir hafði komið
og bað hann að skerast í leikinn.
“Fáðu föður mínunl þetta bréf, og
ég verð komin héðan út á tveimur
klukkutímum.” sagði hann og rétti Ben
bréfið.
“Ég skal fara beint til hans.” svar-
aði Ben.
Varðmennirnir vöruðu sig ekki á
þessu bragði og þar sem mennirnir voru
eins líkir í sjón, og tvíburar, nema hvað
hárið á öðrum var ofurlítið ljósara, svo
Ben gekk út, án þess að á hann væri yrt,
og fór strax heim til Stoneman, en á
leiðinni þá mætti hann fimmhundruð
hermönnum sem höfðu komið með sér-
stakri járnbrautarlest frá Spartanburg.
Hann varð alveg hissa á þessu, svo hann
sneri við og eldri þá uns þeir stönsuðu við
fangelsið. Þeir stönsuðu fyrir framan
bygginguna, sem hann var ný farinn úr,
og yfirmaður þeirra afhenti deildarstjór-
anum í Piedmont, embættislegt bréf.
Verðinum var skift og hinir nýkomnu
hermenn röðuðu sér alt í kringum fang-
elsið.
Deildin í Piedmont hafði fengið skipun
símleiðis, um að flytja sig til Spartan-
burg og Ben heyrði trumbuslátt þeirra,
er fylkingin marséraði í gegnum bæinn,
á vagnstöðina.
Ben tróð sér í gegn um þyrpinguna
við fangelsið, og bað um að mega tala
við yfirmann nýju deildarinnar.
Svarið frá honum kom fljótt og á-
kveðið.
“Ég hefi verið varaður við öllum
lyga þvöttingi og brögðum sem fólk
þessa bæjar getur upp hugsað. Yfirmað-
ur dauðavaktarinnar leyfir ekkert sam-
tal við fangann, tekur ekki á móti nein-
num gestum, hlustar ekki á neinar
beiðnir, og leyfir ekki neitt samband
við fangann þar til búið er að taka hann
af lífi. Þú getur sagt þetta öllum að-
standendum hans.”
“En maðurinn sem þú ætlar að taka
af lífi er ekki rétti maðurinn, þú hefir
engann rétt til að lífláta hann,” sagði
Ben.
“Ég skal eiga það á hættu,” svar-
aði hinn snúðugt.
“Guð minn góður! stundi Ben í
hljóði. Gamla flónið hefir veitt son sinn
í neitið, sem hann ætlaði að flækja mig
í.
VIII Kapítuli
LÍFREIÐ
Þegar Ben fann hvorki Elsie né föð-
ur hennar heima fór hann heim til sín,
en gekk í skugga trjánna til þess að
vera viss um að hann þekktist ekki, þó
það væri ólíklegt, því svo var hann líkur
Phil, að nákvæmlega eftirtekt hefði
þurft til að þekkja þá í sundur, ekki síst
þar sem Ben var klæddur í Phils föt.
Þegar að han kom heim, fann hann
móðir sína og Elsie í svefnherbergi móð-
ur sinnar og hélt móðir hans Elsie grát-
andi í faðmi sínum.
Hann stansaði við dyrnar og hlust-
aði.
Aldrei hafði hann séð móður sína
fegurri — andlitið rólegt, gáfulegt og
lifandi, kórónað hári, sem farið var að
grána. Hún stóð róleg og tignarleg og
var að strjúka um hárið á stúlkunni
grátandi, sem hún hafði lært að elska
eins og sína eigin dóttir. Aðstaða henn-
ar endurspeglaði trúmensku og dygð
þá, sem hún hafði ummgengist mann
kona! Hún sildi að stríð var óumflýjan-
sinn, börn, og nágranna með. Hvílík
legt og barðist eins og hetja í gegn um
það, mitt í vonleysi negra valdsins, var
hún enn, spákonan, og andlegur leið-
togi tolksins, róleg, vongóð og örugg.
Hún hafði sniðið ‘Grand Dragon’ bún-
inginn handa síðasta syni sínum, og
saumað leynilega nótt og dag til að út-
búa menn hans. Og í gegnum alt þetta
var hún svift allri umhygju og ástúð
vandamann sinna, og þó var hin við-
kvæma móðurlund hennar þýða viðmót,
og framkoma öll, ótmóstaæðileg öllum
sem áhrif hennar náðu til fjær og nær.
“Ef hann deyr,” stundi Elsie upp,
með ekka, þá get ég aldrei fyrirgefið
sjálfri mér að ég skyldi ekki gefa mig á
vald hans algjörlega og berjast með
honum!”
“Hann er ekki dauður enn,” svar-
aði frú Cameron ákveðið.” Cameron
læknir er á ferðinni og menn elskhuga
þíns halda víst ekki kyrru fyrir í nótt —
þessir ungu fullhugar Suðurríkjanna,
sem bera lífið í höndum sér, með söng
á vörum, og fyrirlitning á dauða í
hjarta!”
“Þá vil ég fara með þeim.” Sagði
Elsie ákveðið og lyfti upp höfðinu.
Ben sté inn í herbergið og Elsie
hljóp fagnandi í fangið á honum. Frú
Cameron stóð stein þegjandi unz að
varir elskendanna mættust og sálir
þeirra sameinuðust, í sigri kærleikans.
“Hvernig gastu losnað svona
fljótt?” Spurði móðirin stillilega, og á
meðan höfuð Elsie lág enn upp við
brjóst hans.
“Það var Phil sem skaut óþokkann,
og ég flýtti mér að senda hann burt úr
bænum. Hann frétti um hvað fyrirkom
og kom til baka með sérstakri lest, tók
plássið mitt í fangelsinu og sendi mig
að sækja föður sinn. Það hefir verið skift
um varðmenn við fangelsið og það er
ómögulegt, að sjá hann, eða ná tali af
yfirmanninum.”
Elsie brá mjög við og fölnaði.
“Og faðir minn hefir falið sig, svo
að ég næði eki í hann — miskunsami
GUg — ef að Phil verður nú tekinn af
lífi----”
“Hann er ekki dauður enn,” sagði,
< Ben og lagði handleginn utanum Elsie.
En við verðum að bjarga honum, án
blóðsúthellingar, ef það er mögulegt.
Velferð okkar og allra getur verið undir
því komin. Að lenda í stríði við Banda-
. ríkja hermennina nú, gæti eyðilagt suð-
urríkin með öllu.”
“En þú ætlar að frelsa hann?”
Spurði Elsie og leit á Ben tárvotum aug-
um.
“Já, eða þá að falla með honum,”
svaraði Ben ákveðinn. “Hver er Marg-
rét?” spurði hann.
Framhald