Lögberg - 28.04.1949, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. APRlL, 1949
Keflavíkurbátur er með mestan afla
á vetrarvertíðinni í 45 róðrum
Yfirlit um gang vertíÖarinnar frá L.í.tJ.
í yfirliti um vertíðina, er Mbl. barst í gærkvöldi frá Lands-
sambandi íslenzkra útvegsmanna segir m.a., frá því að aflahæsti
línubáturinn á vertíðinni sé frá Keflavík. Hann er með 420 smál,
í 19 sjóferðum, en þaðan hafa bátar einnig farið í flesta róða. Fæstir
róðarar á vertíðinni eru frá Stokkseyri, Eyrarbakka og Þorláks-
höfn, en þaðan hafa þeir 15 bátar, sem stunda sjósókn, aðeins farið
8 sjóferðir, frá því, að vertíð hófst.
Ur borg og bygð
The Junior Ladies Aid of the
First Lutheran Church, Victor
Street, will hold the Annual
Spring Tea, Wednesday, May 4th
from 2:30 to 5:30 and from 7:30
to 10:30 p.m. in the Church
Parlor.
Mrs. K. G. Finnsson, president
and Mrs. V. J. Eylands will re-
ceive, with the general conven-
ors Mrs. V. Jonasson and Mr. T.
Stone.
Table Captains are Mrs. J. W.
Swanson, Mrs. W. H. Olson, Mrs.
E. Richardson and Mrs. A. Egg-
ertson.
Homecooking: Mrs. G. S. Eby,
Mrs. R. Broadfoot and Mrs. M.
Sigurdson.
Plants and white elephant
booth: Mrs. F. Thordarson, Mrs.
W. R. Pottruff.
Handicraft: Mrs. J. Thordar-
son, Mrs. J. Crow.
Mrs. A. Blondal and Mrs. G. F.
Jonasson will be in charge of a
display of articles from Iceland
loaned by the pastor and family.
♦
Jón Sigurdson Chapter IODE
will hold its next meeting at the
home of Mrs. J. B. Skaptason 378
Maryland Street, on Tuesday
evening May 3rd., at 8:00 o’clock.
♦
Þriðjudaginn þ, 12 þ.m. lézt
í Calder, Saskatchewan Ásgeir
Jónsson á níræðisaldri. Hann var
ættaður úr Húnavatnssýslu.
Hann var jarðsunginn þ, 14. í
grafreit Lögbergssafnaðar, af sr.
S. S. Christopherson. Hann skil-
ur eftir mörg börn uppkomin.
♦
Unglingar af íslenzkum uppr-
una í Selkirk, er Gunnar Erlend-
son píanókennari hefir æft í
söng, efna til skemtisamkomu í
hinu íslenzka samkomuhúsi bæj-
arins á fimtudagskvöidið þann
5. maí næstkomandi; söngkensla
þessi hefir farið fram undir for-
ustu þjóðræknisdeildarinnar
Brúin í Selkir. Samkoman hefst
kl. 8:00. Þess er vænst að forseti
þjóðræknisfélagsins, séra Philip
Pétursson, taki þátt í samkom-
unni.
♦
Guðmundur Grímsson héraðs-
réttardómari frá Rugby, North
Dakota, var staddur í borginni
ásamt frú sinni seinni part vik-
unnar, sem leið. Eins og áður
hefir verið skýrt frá, heimsækja
þau hjón ísland í sumar sem
boðsgestir íslenzku ríkisstjórnar-
innar og munu fljúga frá' New
York í lok júnímánaðar.
4-
Dr. P. H. T. Thorlakson kom
heim síðastliðinn mánudag af
þingi Amerískra skurðlækna,
sem haldið var í borginni St.
Louis; hann var vikutíma í
ferðalaginu; skömmu áður hafði
hann setið læknaþing í Edmon-
ton; á báðum stöðum flutti Dr.
Thorlakson fyrirlestra um
læknavísindi.
•f
Nýlega er komin til borgarinn-
ar Mr. Thorarinn Thorvardson
eftir all margra ára dvöl í höfuð-
stað íslands.
-f
Síðastliðinn sunnudag, 24.
apríl, voru þau Gunnlaugur Sig-
varður Ronald Howardson, frá
Lundar, og Inez Ruth Letroye, til
heimilis í Winnipeg, gefin saman
í hjónaband, af séra Rúnólfi
Marteinssyni, á heimili Mr. og
Mrs. Skúli A. Sigfússon, 822
Lipton St., hér í borg. Nokkur
hópur vina var viðstaddur. Heim-
ili þeirra er í Winnipeg.
-f
í lok fyrri viku voru hér í
borginni Mr. og Mrs. S. V.
Sigurðson og Mr. og Mrs. Stefán
Sigurðson frá Riverton, Dr. og
Mrs. Sveinn E. Bjömson frá Oak
River og Mr. og Mrs. G. J. Oleson
frá Glenboro.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylands.
Heimili 776 Vúnor Stréet. Simi
29017. —
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: Á ensku kl. 11:00 f.h.
Á íslenzku kl. 7:00 e.h. — Sunnu-
dagaskóli kl. 12:15 e.h. — Allir
æfinlega velkomnir.
-f
Arborg-Riverton Prestakall:
1. maí — Vidir, ensk messa, og
ársfundur kl. 2:00 e.h. Framnes,
messa kl. 8:30 e.h.
8. maí — Arborg, “Mothers’
Day” athöfn kl. 11:00 f.h. Geysir,
messa kl. 2:00 e.h.
Riverton, ensk messa kl. 8:00
e.h.
Tilvonandi fermingarbörn í
Geysir og Víðir eru beðin að gefa
sig fram við prestinn við fyrstu
hentugleika.
B. A. Bjarnason
f
Gimli Prestakall:
1. maí — Messa að Húsavick,
kl. 2:00 e.h.
Messa að Gimli, kl. 7:00 e.h.
Allir boðnir og velkomnir.
Skúli Sigurgeirson.
-f
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 1. maí — Ensk
messa kl. 11:00 árd. Sunnudaga-
skóli kl. 12:00.
íslenzk Messa kl. 7:00 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson
f
Argyfe Prestakall
Sunnudaginn 1. maí, 2. sunnu-
dag eftir páska.
Grund, kl. 2:00 e.h.
(íslenzk messa)
Baldur, kl. 7:00 e.h.
(íslenzk messa)
Sameinginlegur safnáða fund-
ur fyrir alla söfnuði Argyle
prestakalls í kirkju Frelsissafn-
aðar (Grund) sunnudaginn 1.
maí kl. 3:00 e.h. Þýðingarmikil
mál til umræðu sem alla söfn-
uðina varðar.
Áríðandi að sem flestir sæki
fundinn.
Séra Eric H. Sigmar
f
Sumarmálamessa í kirkju
Concordia safnaðar sd. fyrsta
maí kl. eitt eftir hádegi.
í yfirliti þessu, sem er hið
fróðlegasta, kemur fram, að nú
stunda veiðar með línu nær 200
fiskibátar.
Hér fer eftir yfirlit L.Í.Ú.
Reykjavík:
Þaðan stunda 10 bátar róðra
með lóðum og 20 með trolli.
Veður hafa verið válynd á ver-
tíðinni og sjósókn mjög erfið.
Róðrar eru því óvenjulega fáir,
það sem af er vertíð, eða mest
38 róðrar hjá bát og hiesti afli
um 290 tonn. Afli hefur verið
sæmilegur þar til síðasta hálfan
mánuð. Þann tíma hefur afli ver-
ið mjög rýr hjá lóðabátum og
trollbátum mjög misjafn og yfir-
leitt rýr.
Keflavík:
19 bátar stunda veiðar þaðan
með lóðum, 6 með netum og 5
með trolli. Auk þess leggja 9 bát-
ar frá öðrum vertöðvum upp afla
sinn í Keflavík. Afli hefur verið
góður, þegar gefið hefur á sjóinn,
þar til síðasta hálfan mánuð.
Loðnugöngu er kent um afla-
leysið og slæmu tíðarfari, en
vonir standa til að úr þessu ræt-
ist. Gæftir hafa verið mjög stirð-
ar á vertíðinni. Mesti afli hjá bát
er 420 tonn og flestir róðrar 45.
Sandgeröi:
Þaðan eru gerðir út 13 bátar
á lóðaveiðar. Veiði hefur verið
góð, en gætir mjög slæmar. —
Telja reyndir sjómenn að sjó-
sókn hafi verið stunduð með
meira harðfylgi á þessari vertíð
en tíðkast hefur undanfarin ár,
enda myndu róðrar hafa verið
aðeins örfáir, ef ekki hefði verið
hert sjósóknin.
Flestir róðrar hjá bát 37 og
mesti afli hjá bát er 250 tonn og
róðrafjöldi 20—25 róðrar.
Geröar:
7 bátar þaðan stunda lóðaveið-
ar og 1 trollveiðar. Afli var góð-
ur framan af vertíðinni, en þó
mjög misjafn. Mjög lélegur afli
hefur verið síðasta hálfan mánuð
og kennt um ógæftum og loðnu.
Vestmannaeyjar:
Þaðan eru gerðir út 33 bátar
á lóðaveiðar, 13 með troll og 12
með dragnót. Gæftir hafa verið
mjóg slæmar, en afli góður, þeg-
ar gefið hefur á sjó, þó hefur
mjög dregið úr afla síðasta hálf
an mánuð. Netveiði er ekki byrj-
uð enn, svo teljandi sé, enda
ekki kominn sá tími, sem þær
venjulega hefjast.
Flestir róðrar hjá bát eru 30
og mestur afli um 200 tonn.
Lifrarafli í Vestmannaeyjum
nam 15. þ.m. 413 tonnum. — Til
samanburðar má geta þess, að
á sama tíma undanfarin ár nam
lifraraflinn 1948 — 180 tonnum,
1947 — 371 tonni, ’46 — 415 tonn-
um og 1945 — 421 tonni.
Menn vona að vertíðin geti
orðið góð.
Stokkseyri, Eyrarabakki, og
Þórlákshöfn:
Frá þessum verstöðum stunda
15 bátar netaveiðar og 1 lóða-
veiðar. Afli hefur verið góður.
Farnir hafa verið 8 róðrar og
mesti afli á bát er um 60 tonn.
Gæftir hafa verið afleitar.
Hafnarfjörður:
Lóðaveiðar stunda 13 bátar, 3
eru með net og 2 með troll. Auk
þess stundar 1 bátur lóða veiðar
og siglir með aflann á breskan
markað.
Afli hefur verið góður þar til
síðasta hálfan mánuð. Gæftir
mjög slæmar. Aflahæsti bátur
hefur veitt um 300 tonn og
róðrafjöldi hjá bát er 30—40
róðrar.
Akranes:
Þaðan róa 18 bátar með lóðir.
Veiði hefur verið mjög misjöfn
og afar rýr síðustu 12—15 daga,
enda ógæftir miklar og lítið ver-
ið hægt að fara á sjó. Aflahæsti
bátur hefur farið 31 róður og
aflað um 300 tonn fiskjar.
Stykkishólmur:
6 bátar þaðan stunda lóða-
veiðar. Afli hefur verið mjög
sæmilegur, en misjafnari síðustu
10 daga. Farnir hafa verið 33
róðrar á vertíðinni, en gæftir
hafa verið slæmar og erfitt að
athafna sig á sjónum. Hæstur
afli á bát um 230 tonn.
Einn bátur veiðir og siglir með
afla sinn til sölu í Bretlandi.
Grundarfjörður:
4 bátar róða þaðan með lóðir.
Veiði hefur verið góð, en gæftir
afar stirðar. Flestir róðrar hjá
bát 30 og mesta veiði um 230
tonn.
Ólafsvík:
5 bátar gerðir út þaðan á lóða
veiðar. Veiði frekar rýr og gæft
ir slæmar. Hæsti bátur með um
200 tonna veiði í 30 róðrum.
Austfiröir:
Þar hefur afli verið góður,
þegar gefið hefur á sjó, þangað
til síðustu 12—15 daga að verið
hefur mjög tregt hjá lóðabátum.
Aftur á móti hafa trollbátar
veitt vel síðustu daga, sérstak-
lega fyrir sunrian Hornafjörð.
Gæftir hafa verið stirðar.
Eins og fram kemur í framan-
sögðu yfirliti, eru einkenni þess-
arar vertíðar það, sem af er,
stopular gæftir, slæm sjóveður
og fáir róðrar.
Aftur á móti virðast hafa ver-
ið miklar fiskgengdir á miðum,
þó ekki hafi notast af því, sem
skyldi vegna erfiðleika við sjó-
sóknina. Það virðist þó mega slá
HOUSE BUILDERS’
EXHIBITON
The Winnipeg House Builders’
Association being a non-profit
body, have undertaken in the
interest of home ownership and
house building, to stage an Exhi-
bition in the Civic Auditorium
starting at 12:30 a.m. April 25th
and continuing daily thereafter
from 10:30 .m. until 11:00 p.m.
and ending on April 30, 1949.
This Exhibition will feature
house building, by having a
skeleton house on the stage,
which, through various exposed
surfaces will permit the public
to see the house construction as
it should be, with the latest in
insulation, electrical wiring and
exterior coverings.
There will also be the very
latest, in all housing supplies and
furnishings, as well as booths for
information on Trade and Com-
merce, Loans, Mortagages, In-
surance and other interesting
Slysavarnarfélagi íslands hef-
ir borist kr. 1.000.00 minningar-
gjöf frá hjónunum Kristínu
Sveinbjarnardóttur og Ragnari
Guðmundssyni að Hrafnabjörg-
um, Arnarfirði, en gjöfin er til
minningar um son þeirra Ólaf
sem druknaði fyrir réttu árin
síðan 29. marz 1948, með þeim
hætti að hann tók út af togaran-
um Kára.
Hugmynd þeirra hjóna er að
mynda sérstakan sjóð, sem beri
nafnið “Minningarsjóður Ólafs
Ragnarssonar frá Hrafnabjörg-
um.”
Tilgangur sjóðsins er sá, að
veita viðurkeningu fyrir björgun
frá druknun, þegar menn falla
útbyrðis af skipnum, eða fyrir að
koma í veg fyrir. að dauðalsys
verið með slíkum hætti, svo sem
með því að finna upp tæki til að
ná í menn með sem, fallið hafa
útbyrðis og fljóta meðvitundar-
lausir um stund í nánd við skip-
ið eða skýtur upp sem snöggvast.
því föstu að vonir standi til að
þessi vertíð geti orðið sæmileg,
hvað aflabrögð snertir, ef veður
batnar fljótlega og fiskurinn
breytir ekki vana sínum á mið-
unum. Hin mikla loðnugengd,
sem yfirleitt hefur verið á mið-
unum undanfarið og spilt fyrir
veiði, er ekkert nýtt fyrirbrigði,
en gengur yfir, ef að vanda læt-
ur. Á þá veiðin að aukast aftur
svo alt geti farið vel.
Mbl. 26 marz.
and informative items. This is
the time to get all your housing
problems answered correctly.
This show has aroused intense
public interest, as housing today
is the main topic for discussion
and house hunting has become
our National outdoor sport.
The members of the Winnipeg
House Builders’ Association be-
ing “Community” minded and
definitely Housing “Conscious”,
are doing everything possible to
make this “The Show of a Life-
time” and to supply the public
generally with a view of the
latest advances in housing and
help to educate them, so they
will know just what a good
house should have for looks,
durability and home comfort.
Make a promise to visit this
Exhibition often, you will be
thoroughly delighted with the
very many interesting displays
and well entertained during
your visit. You may even get a
valuable door prize.
Þyrftu menn þá ekki að kasta sér
til sunds 1 tvísýnu til að reyna að
bjarga þeim er fallið hafa út.
Einnig mætti verðlauna þá
skipstjóra, sem sérstaka árvekni
sýna um líf manna sinna.
í fyrsta sinn verður veitt úr
sjóðnum 17. sept. 1957 á 30 ára
afmæli Ólafs.
Hjónin hugsa sér að bæta ár-
lega kr. 100.00 við sjóðinn meðan
þeirra nýtur við, en síðar vænta
þau að börn sín taki við og barna-
börn svo sjóðurinn mætti sívaxa
til blessunar þessu málefni.
Þau hjón telja að þessi tegund
slysa þurfi nú sérstakrar athug-
unar, við þegar skipin stækka og
verða öruggari að öllum útbún-
aði og þannig minni hætta á að
skipskaðar verði með öllu. Telja
þau áberandi hve nýliða á tog-
urum hefir oft hent þessi slys, en
Ragnar Guðmundsson segir þessi
slys sér hugstæðust fyrir þá sök,
að faðir hans druknaði á þennan
hátt og nú síðast Ólafur sonur
hans í fyrra.
Ragnar Guðmundsson bóndi á
Hrafnabjörgum er formaður
hinnar nýstofnuðu og fjölmennu
slysavarnardeildar “Vinarband-
ið” og þyir honum æskilegt að
sjóður þessi verði á einhvern
hátt tengdur þeirri deild, t.d.
þannig, að formaður hennar
hefði íhlutunarrétt um veitingu
úr sjóðnum eða ef til kæmi að
breytingar yrðu gerðar á skipu-
lagi hans. Tíminn 30. marz
S.S.C.
THE BRITISH POSTAGE STAMP
In the United Kingdom seven thousand million stamps are issued
annually. Face values vary between a half-penny and one pound.
Absolute uniformity of issued quality is the General Post Office’s
insurance against forgery; and the quality standard of this produc-
tion job may be judged by the high rarity value given by phila-
telists to imperfect samples. A block of 4d. stamps, on which some
were not perforated on three sides, was auctioned recently for £42.
A strip of twelve sixpennies printed on double paper is offered
currently for £500. Here stamps printed in continuous form for
making rolls are being dried in an air-conditioned room.
LAUGARDAGSSKÓLA SAMKOMA
í SAMBANDSKIRKJUNNI,
Laugardagskveldið, 30. apríl, kl. 8:00
SKEMTISKRÁ
1. ÁVARP FORSETA Sdlome Halldórsson
2. SÖNGUR Nú blikar viö sólarlag.
Ólafur reið með björgum fram.
3. TVÆR STUTTAR FRAMSAGNIR
4. STUTTUR LEIKUR Litla rauöa húsiö.
5. SÖNGUR .........................Stína.
6. TVÆR STUTTAR FRAMSAGNIR.
7. STUTTUR LEIKUR óskastundin.
8. MOTION SONG Dansi, dansi dúkkan mín.
9. FRAMSÖGN.
10. SÖNGUR .............Stóö ég út í tunglsljósi.
Bí, bí og blaka.
Frjálst er í fjallasál.
11. PIANO SOLO
12. STUTTUR LEIKUR ........Gimsteinahringurinn.
INNGANGUR 25 cent. Ókeypis fyrir börn innan 14 ára.
Sjóður stofnaður til að
verðlauna björgunarafrek
Vestfirzk hjón hafa gefið Slysavarnarfélaginu gjöf að upphæð
eitt þúsund króunr. Er ætlun þeira að með þessu fé verði stofnaður
sérstakur sjóður til að verðlauna með frækileg björgunarafrek.
Segir svo um þessa gjöf og sjóðsstofnun í fréttatilkynningu, sem
blaðinu hefir borizt frá Slysavarnarfélaginu: