Lögberg - 12.05.1949, Blaðsíða 1

Lögberg - 12.05.1949, Blaðsíða 1
PHONE 21374 teA A Complele Cleaning Instilulion 62. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 12. MAÍ, 1949 NÚMER 19 Or borg og bygð Mr. Leo Thorgeirson gullsmið- ur og skrautmunasali frá Kenora Ontario, var staddur í borginni í fyrri viku ásamt frú sinni; hann hefir dvalið í Kenora í átta ár og átt þar vinsældum að fagna; innan skamms ætlar Leo að bregða sér vestur til Wynyard í heimsókn til skyldmenna sinna; þaðan mun svo ferðinni heitið til Vancouver. Leo bað Lögebrg að flytja vin- um sínum í Kenora og Keewatin hugheilar þakkir fyrir ánægju- lega viðkynningu. Séra Egill H. Fáfnis prestur íslenzku safnaðanna í North Dakota og f o r s e t i lúterska kirkjufélagsins var staddur í borginni í fyrri viku. ■f Karl Júlíus Jónasson trésmíða- meistari, 610 Alverstone Street hér í borg, lézt síðafetliðinn fimtu dag; hann var ættaður úr Suður- þingeyjarsýslu, 65 ára að aldri; hann var alllengi búsettur í Arborg. Karl heitinn var hinn mesti dugnaðarmaður meðan heilsan leyfði; hann var einkar bókhneigður og fylgdist vel með straumum og stefnum í íslenzk- um bókmentum; hann lætur eft- ir sig eina dóttur barna, frú Hugrúnu Munday. Útför Karls fór fram frá Bardals á laugar- daginn að viðstöddum fjölmenn- um hóp vina. Séra Valdimar J. Eylands jarðsöng; á mánudaginn í sömu viku var kona Karls, eins og þegar hefir verið skýrt frá borin til moldar. HQN. JOSEPH T. THORSON Um undanfarnar nokkrar vikur hefir Hon. J. T. Thorson dómsforseti fjármálaréttarins í Canada, verið á ferðalagi um Vestur-landið í embættiserindum; hann hafði réttarhöld í Winnipeg, Calgary, Regina, Saskátoon, Victoria og Vancouv- er, en hélt heimleiðis síðastlðinn laugardag. Ritstjóri Lögbergs átti alllangt tal við Thorson nokkru áður en hann fór austur, en sá var ljóður á, að hann vildi að sem allra minst yrði haft eftir sér, því nú væri hann ekki lengur í hringiðu stjórnmálanna; en hann bað Lögberg að flytja vinum sínum kveðjur, og kvað sér leika hugur á að heimsækja íslenzku bygðarlögin á milli vatnanna áður en langt um liði. Thorson dómsforseti kvað sér það ósegjanlegt fagnaðar- efni, hve framkvæmdum varðandi stofnun kenslustóls í íslenzku við Manitobaháskólann miðaði vel áfram. KVEÐJA ÚR VESTRI Methúsalem Methúsalemsson á Bustarfelli sextugur Starf til heilla lýö og landi lifir meir en tugi sex. Upp úr sporum eljumannsins aldagróður fagur vex. Leggi fram um ár og aldir yl frá þínum veldisstól! Enginn hefir annar betur austfirskt setið höfuðból. Áður fyr í ýmsu veðri oft ég gisti bæinn þinn; þaðan oft í útlegðinni um mig hlýju streyma finn. Hyllikveðja heiðursmanni hljómi snjalt um óraveg; rétta boðleið berist milli Bustarfells og Winnipeg. EINAR P. JÓNSSON Merkur óðalsbóndi sextugur Þann 27 apríl síðastliðinn átti Methúsalem Methúsalemsson óðalsbóndi á Bustarfelli í Vopnafirði sextugs afmæli; hann er um alt hinn mæstasti maður, enda af góðum stofni kominn í báðar ættir; voru foreldrar hans þau merkishjónin Methúsalem Einars- son og Elín ólafsdóttir, er um langt skeið bjuggu við risnu mikla á hinu forfræga Bustarfells óðali. Afmælisbarnið á Bustarfelli á bróður í þessari borg, Halldór M. Swan verksmiðjueiganda, sem einnig er tengdur traustum böndum við fæðingarstað sinn, og í tilefni af sextugsafmæli bróður síns, lét Halldór gera gestabók forkunnarfagra, er hann sendi honum að gjöf frá sér og tveimur sytkinum, þeim Ólafi verzlunarmanni á Akur- eyri og frú Oddnýju í Ytri Hlíð í Vopnfirði; er gestabók þessi sérstæður minjagripur, er geym- ast mun fram í aldir. Forsíðu gestabókarinnar skrautritaði Gizzur Eliasson ásamt vísum Einar P. Jónssonar, sem í bókinni standa. í gestabókinni eru ágætar myndir af foreldrum afmælis- barnsins og því sjálfu og konu þess. SAMKOMA verður haldin miðvikud., 18. maí n.k., í lútersku kirkjunni í Arborg, Man., undir umsjón safnaðarnefndarinnar. S é r a Valdimar J. Eylands flytur þar skemtilegt og fróðlegt erindi um fsland. Gjafir í Skrúðvagnssjóðinn, (Float) 75 ára afmæli Winnipegborgar, 1949 Frá íslenzkum félögum: Þjóðræknisfélag fsl. í Vesturheimi $250.00 Skuld og Hekla, I.O.G.T. 250.00 íslendingad. nefndin 150.00 Icelandic Canadian Club 75.00 Jón Sigurðson Chapter 25.00 Sambandskirkjan 25.00 First Lutheran Church 25.00 SAMTALS $800.00 G. F. Jonasson $ 25.00 Bardal Funeral Home 25.00 Paul Bardal 15.00 Miss Sigurrós Vidal 5.00 Sigurþór Sigurðsson 5.00 Mrs. Albina Sigurðson 5.00 Björgúlfur Sveinson 5.00 Mrs. Elizabeth Polson 5.00 Mr. og Mrs. Guðmundur Stefánsson 5.00 Miss Hlaðagerður Kristjánsson 5.00 Sigurður Sigurbjörnson, Leslie 1.00 Mrs. R. K. G. Sigurbjörns- son, Leslie 1.00 SAMTALS $102.00 SAMTALS ALLS $902.00 We acknowledge with thanks receipt of the above contribu- tions; divided as they appear into two classifications: The response from our Ice- landic community organizations has been splendid, but that of individuals not as encouraging as it should be. Another $1000.00 at least is required and must come from individual contribu- tions BEFORE JUNE lst. Please send your contributions to David Björnsson, 702 Sargent Avenue. For the Finance Committee, PAUL BARDAL, Chairman Samgöngubanninu í Berlín létt af Nýr forsætisráðherra Þann 27. apríl síðastliðinn héldu Progresive Conservatives flokksþing í Toronto í því augna- miði að velja foringja, er taka skyldi við völdum í Ont. af Mr. Kennedy, er ófús var á að gefa kost á sér til flokksforustunnar, en hann hafði eins og kunnugt er, tekið við af Mr. Drew. Fyrir vali varð Leslie M. Frost, sem nú* hefir tekist á hendur stjórn- arforustuna; hann er ættaður frá Lindsay, þar sem hann um nokkurt skeið gaf sig að mála- færslustörfum; hann er 53 ára að aldri. Mr. Frost gengdi fjár- málaráðherraembætti í ráðuneyt um þeirra Drews og Kennedy’s. Er Mr. Kennedy lét af stjórn- arforustunni, tókst hann á hend- ur landbúnaðarráðherra embætt- ið í því hinu nýja ráðuneyti, sem Mr. Frost veitir forustu. FUNDUR Aðalnefndin, sem skipuð er fólki úr Islenzku félögunum í Winnipeg til þess að hafa umsjón með þátttöku íslendinga í 75 ára afmælishátíð Winnipegborgar, er beðin að sækja fund kl. 3:00 e.h. nœstkomandi sunnudag í Jóns Bjarnasonarskóla byggingunni á Home Street. Áríðandi er að allir meðlimir nefndarinnar sæki fundinn, því þá verður samþykt- ur uppdráttur skrúðvagnsins (float) og fjármálanefndin legg- ur fram skýrslu sína. Ennfremur verða þá kosnar aðrar nefndir, sem hafa framkvæmdir með höndum. Tíminn er orðin naum- ur og endanlegar ákvarðanir Þau mikilvægu tíðindi gerðust í fyrri viku, að tilkynt var sam- tímis frá Washington, London og París og Moskow, að þann 12. þ. m. yrði samgöngubanninu og að- flutningsbanninu, sem þröngvað hefir kosti Berlínarbúa í nálega ellefu mánuði, létt af; málaum- leitanir í þessa þótt höfðu staðið yfir um nokkurt skeið í Wash- ington af hálfu hlutaðeingandi stjórnarvalda; kom fregnin því í raun og veru fæstum á óvart; í sömu andránni var tilkynt að utanríkisráherrar Bretlands, Frakklands, Rússlands og Banda- ríkjanna, komi til fundar í París þann 23. yfirstandandi mánuð til þess að íhuga aðstæður Þýzka- lands í heild með hliðsjón af væntanlegum friðarsamningum við þýzku þjóðina og jafnframt mundu þar einnig verða teknir til yfirvegunar væntanlegir frið- arsamningar við Japan. Nú hefir samin verið stjórnar skrá fyrir fylkjasamband Vestur- þýskanlands, sem víst er talið að mjög bráðlega gangi í gildi; ekki eru Rússar sagðir að vera als- kosta ánœgðir með slíka ráð- stefnu. Utanríkisráðherra B r e t a , Ernest Bevin, var staddur í Berlín um síðustu helgi og kvaðst vongóður um, að fyrir- hugaður Parísarfundur gæti leitt til tvöhundruðára friðar. verða því að vera gerðar á þess- um fundi . Uppljjsinganefnd, Heimir Thorgrimsson„ Ingibjörg Jónsson. SAMKOMA TIL HEIÐURS ÖLDRUÐUM ÍSLEND- INGUM Hin árlega samkoma til heið- urs öldruðum Islendingum í Winnipeg, sem djáknanefnd Fyrsta lútesrka safnaðar sér um fyrir hönd safnaðarins, var hald- in í samkomusal kirkjunnar síð- astliðinn laugardag. Konurnar framreiddu ljúffenga “Turkey” máltíð og yfir 80 gestir sátu að borðum, þar að auk voru sendar máltíðir heim til 24 eldri manna og kvenna, er ekki treystu sér til að koma. Safnaðarmenn voru nefndinni hjálplegir við að koma máltíðunum til skila og að flytja fólkið til og frá, sem lengst átti að, eða erfitt átti með að kom- ast. Forseti djáknanefndar Árni G. Eggertson K.C. var samkomu- stjóri. Prestur safnaðarins séra Valdimar J. Eylands flutti hlýtt ávarp og skýrði jafnframt frá því að Halldór Haldórsson hefði nýlega gefið söfnuðinum hljóð- nematæki, sem geri mögulegt að endurvarpa messum heima hjá þeim, sem ekki geta sótt kirkju. Jóla og páskamessurnar voru teknar á slíkt tæki og gafst mörgum kostur á að hlusta á þær á þennan hátt. — Mrs. Eylands, sem var klædd hinum fallega íslenzka samkvæmisbún- ingi sínum, flutti kvæði. Mrs. Margrét Stephensen, ávarpaði gestina og mun hún flytja kveðj- ur frá þeim til séra Eiríks Brynjólfssonar og frú Guðrúnar, þegar hún fer til Islands í næsta mánuði. Einnig mun hún flytja kveðjur til fólksins á elliheimil- inu “Grund” Mrs. Unnur Simm- ons söng marga íslenzka söngva. Þetta var skemtilegt stund, rík af góðvild og gleði. í djúknanefndinni eru þessir: Árni G. Eggertson, K.C., Mrs. H. G. Henrickson, Miss Rannveig Bardal, Mrs. G. K. Stevenson, Mrs. Fred Thordarson, Fred Bjarnason, Mrs. Gerða Ólafsson, Mrs. Guðrún Magnússon, Hannes Hannesson og John Thordarson. Nefndin á þakkir skilið fyrir sitt fagra og góða starf. LEITAR ENDURKOSNINGAR RALPH MAYBANK Síðastliðinn mánudag var Ralph Maybank endurútnefndur sem frambjóðandi Liberal flokks- ins í Mið-Winnipeg kjördæminu hinu syðra við kosningar þær til sambandsþings, er fram fara þann 27. júní næstkomandi. Mr. Maybank hefir reynst nýtur og hollráður fulltrúi á sambandsþingi, og er alment tal- inn í hópi hinna áhrifamestu þingmanna úr Vestur-landinu; hann hefir um nokkur undanfar- inn ár verið aðstoðarmaður heil- brigðismálaráðherrans á sam- bandsþingi. VÍSUR TIL GUNNARS B. BJÖRNSONAR 24. apríl 1949 Eftir PÁLMA Það er Ijúft að leika sér, — leita á brautir þínar: Heill og sæll; Ég sendi þér, sumars óskir mínar. Sunnan yfir sjó og grund, siglir á bláum skýjum, , vors og æskú óska stund yfir vonum nýjum. Því skal láta léttann brag, leika sér við blœinn;. hreyfing hver og hjarta slag hrópi: — Góðan daginn! Þó að tímans hratt sé hljól, hjartað vonir gista, inn í blœinn sýng því sól sumardagsins fyrsta. Gráni hár á höfði þér, hjartað býr að sjóði, sem á skylt við alt sem er ungt, í vorsins Ijóði. Þó við stígum stig vor skamt, og stritin gerist þyngri: það er hægt að syngja samt söng með hinum yngri! Hvað sem trú þín tamdi þér, traustara verður sporið, þegar sumar blær þér ber boðorð sín — um vorið. Minninganna blíðu blak birtir vorsins skíma, þó enginn sigli aftur á bak inn í liðinn tíma. Enga lykkju leið vor á, lengi þó við munum, en gott er að njóta gleði frá gömlu minningunum. Elli tök þó verði vönd, við skulum “taka slaginn” og við sumar sólksins rönd sigla inn í daginn!

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.