Lögberg - 07.07.1949, Qupperneq 1
PHONE 21374 • i
Ctea Gt A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21374
A Complete Cleaning Instiluiion
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 7. JÚLÍ 1949.
NÚMER 27
Á fimmtudagskvöldið í fyrri
viku kom hingað sunnan frá
New York þíanósnillingurinn
ungfrú Agnes Helga Sigurdson,
en þar hefir hún stundað nám í
list sinni af kappi miklu síðan
í haust; hún er nú farin norður
Sr. Kristinh Stefánsson
endurkosinn Stórtemplar
Á þingi Stórstúku Islands í
gær fór fram kosning fram-
kvæmdanefndar til jafnlengdar
næsta ár. Voru flestir endur-
kosnir í einu hljóði og ekki aðr-
ar breytingar en þær, að Felix
Guðmundsson, sem verið hefir
stórkanslari, gekk úr stjórninni,
og inn kom nýr maður, Indriði
Indriðason frá Fjalli.
Framkvæmdanefndin er nú
þannig skipuð: Séra Kristinn
Stefánsson St., Björn Magnús-
son docent Stk., frú Sigþrúður
Pétursdóttir Stvt., Jóhann Ögm.
Oddson Str., Bjarni Pétursson
verksmiðjustjóri Stg., frú Þóra
Jónsdóttir, Siglufirði, Stgut.,
Haraldur Norðdahl, tollvörður,
Stgl., Indriði Indriðason Stfr.,
Sigfús Sigurhjartarson alþm.,
Etkap., Gísli Sigurgeirsson, verk
stjóri, Hafnarfirði, Stfregnr.
Fyrrverandi Stórtemplar, sem
á sæti í fraipkvæmdanefnd, er
Friðrik Á. Brekkan rithöfund-
ur.
Þetta er í níunda sinn, að
Kristinn Stefánsson er kosinn
Stórtemplar. (Mbl. 25. júní)
Nýju skipi SÍS.
hleypt af stokkunum
Samband ísl. samvinnufélaga
á nú nýtt vöruflutningaskip í
smíðum í Svíþjóð. Er það diesel
skip, 2250 smál. d. w. að stærð.
Rúmmál þess er ca. 160 þús.
rúmfet, lengd milli stafna 289
fet og breidd 40 fet. Vél skips-
ins er 1600—2000 hestafla Polar-
Diesel, er knýr það fullhlaðið
ca. 13 mílur. Skipið ristir full-
fermt rúmlega 16 fet. Það er
smíðað hjá Sölvesborg Varvs-
och Rederi Aktiebolag í Sölves-
borg, eftir ströngustu kröfum
Lloyd’s, og er í alla staði mjög
vandað og glæsilegt.
Þessu nýja skipi var hleypt af
stokkunum þann 12. maí s.l. í
til Matlock við Winnipegvatn
til hálfsmánaðardvalar með for-
eldrum sínum og systrum.
Lögberg býður ungfrú Agnesi
Helgu innilega velkomna hingað
til heimahaga sinna.
hinu fegursta veðri. Frú Rann-
veig, kona Vilhjálms Þór for-
stjóra gaf skipinu nafn, og
skírði það „Arnarfell“.
(Mbl. 23. júní)
Karl B. Thorkelsson
Skipaður umsjónar-
maður með skólum
Sú frétt hefir Lögbergi nýver-
ið borizt, að mentamálaráðu-
neyti Manitobafylkis hafi skipað
Karl B. Thorkelsson umsjónar-
mann með skólum frá 1. ágúst
næstkomandi að telja; er þetta
hinum mörgu vinum hans ósegj
anlegt ánægjuefni.
Karl er einn þeirra mörgu,
er nám stunduðu við Jón Bjarna
son Academy, en hlaut seinna
Bachelor of Education menta-
stig; hann hefir um allmörg und
anfarin ár gegnt skólastjóraem-
bætti í bænum Morden hée í
fylkinu við hinn ágætasta orð-
stír. Karl er maður háttprúður
og vinfastur; hann hefir lagt
mikla rækt við íslenzka tungu
og íslenzkar menningarerfðir,
og orðið við það eins og svo
margir aðrir maður at meiri;
foreldrar hans voru Guðjón
Thorkelsson og Lilja Sesselja
Jónsdóttir Símonarsonar Skand
erberg, og er hún enn á lífi; þau
voru gefin saman í hjónaband
í Winnipeg, en námu skömmu
seinna land við Manitobavatn í
því byggðarlagi, sem gengur
undir nafninu Langruth.
Skógareldar í Mikley
Nokkra undanfarna daga
hafa alvarlegir skógareldar sorf
ið Mikley, og varð fólk í ýmiss
um tilfellum að yfirgefa heim-
ili sín vegna yfirvofandi hættu;
en nú skýrði útvarpið frá því á
þriðjudaginn? að lánast hefði að
hefta framrás eldlanna og að
mestu hættunni væri afstýrt.
Fundur í London
' Vegna hinna sívaxandi fjár-
hagserfiðleika brezku þjóðar-
innar, hefir stjórnin tekið þá
ákvörðun, að kveðja til fundar
við sig í London alla fjármála-
ráðherra hinna brezku sam-
bandsþjóða með það fyrir aug-
um, að ráða fram úr vandan-
um; fundurinn hefst 'um miðj-
an þennan mánuð. Stjórn Can-
ada hefir ákveðið að láta fjár-
málaráðherra sinn, Douglas
Abbott, sækja fundinn.
Verkfallsdeila leyst
Námumanna verkfallinu í bæn
um Asbestos í Quebeckfylki,
sem staðið hefir yfir síðan um
miðjan febr.armánuð síðastlið-
inn, er nú lokið; námumenn,
5000 að tölu. höfðu farið fram
á 15 centa kauphækkun á klukku
stund, þannig, að grunnkaup
þeirra yrði dollar; úrslit urðu
þau, að eigendur námanna,
Johns Manville-félagið, bauð að
lokum 10 centa hækkun á klukku
stund, og að þeirri málamiðlun
hafa '“>rkfallsraenn nú gengt^-
Einmuna blíða um land
Veður hefir á skammri stundu
skipast í lofti. í réttan hálfan
mánuð hafa óvenjuleg hlýindi
sett svip sinn á veðurfarið. Þenn
an tíma hafa um land allt skipst
á bjartir og heitir sólardagar og
mildir regndagar.
Afleiðing þessara skyndilegu
umskipta í veðurfarinu hefir
ekki látið á sér standa. Snjóana
hefir leyst og tún og hagar
grænkað og gróið. Horfir nú
víðast hvar vel með sprettu
enda þótt hið harða vor hafi
tafið mjög allan gróður.
Stórstúkan viil fá
áfengislækni og
fimm bindindisboða
Á Stórstúkuþinginu í gær var
til umræðu fjárhagsáætlun fyr-
ir næsta ár, og ennfremur tillög-
ur fastra nefnda.
Merkustu tillögurnar, sem
fram komu má telja þessar
tvær, og voru þær samþykktar
í einu hljóði:
„Stórstúkuþingið felur fram-
kvæmdanefnd að vinna að því
við Alþingi og ríkisstjórn að
skipaður verði sérstakur yfir-
maður áfengisvarna. Skal hann
vera læknir, sérmenntaður í
taugasjúkdómum og starf hans
og valdssvið hliðstætt og berkla
yfirlæknisins“.
„Stórstúkuþingið skorar á rík
isstjórnina að hlutast til um það
að framlag til bindindisstarf-
seminar verði aukið, svo að 5
menn geti starfað stöðugt að
bindindisboðun í landinu allt
árið um kring“.
(Mbl. 28. júní)
Uppeldismálaþingið
hófst í gœr
Uppeldismálaþing Sambands
íslenzkra barnakennara hófst í
gærmorgun. Formaður Sam-
bandsins, Ingimar Jóhannesson,
setti þingið, en því næst ávarp-
aði Bjarni Ásgeirsson ráðherra
þingheim nokkrum orðum.
í gær voru flutt tvö aðaler-
indi þingsins. Erindi dr. Matt-
híasar Jónassonar um mann-
gildi afbrotaunglinga og erindi
dr. Símonar Jóh. Ágústssonar
um störf og starfsskilyrði barna
verndarnefnda.
Eftir erindin urðu nokkrar
umræður um þau. Var að lokum
kosin 11 manna nefnd, er gera
skyldi tillögur með hliðsjón af
því sem fram kom í erindunum
tveim. Á þessi nefnd að skila
áliti áður en þingi líkur.
Síðdegis í gær skoðuðu þing-
fulltrúar afmælissýningu Hand-
íðaskólans.
(Morgunbl. 28. júní)
(Mbl. 28. júní)
Landnemar
Flutt á Iðavelli 18. júní 1949.
Á bökkum þessum brosir eggslétt jörð,
er blæ sinn fékk af landnemanna striti,
er stefndu saman hönd og hyggjuviti
og héldu um dyggðir íslands traustan vörð.
Og tungan varð þeim manndóms-messugjörð,
hver máttarstoð og þroskans áttaviti.
Að byggja traust var lögmál landnemans,
þó lúinn tíðum kœmi heim frá verki;
og átak hvert varð eilíft þroskamerki
í eldraun jafnt og sigurgöngu hans;
að helga lífiö lögum gróandans
varð Ijóðaþáttur skorinn út í berki.
Og það mun játað seint og síðar meir,
að synir stritsins lífið aðeins skilji,
að samstuðlaður manns og moldar vilji
sé máttarvald, sem aldrei þver né deyr;
að velli háldi aðeins einir þeir,
er óttist hvorki frost né sviftibylji.
Frá grónum leiðum leggur bjarmastaf,
er lýsa skal um aldir tvennum þjóðum,
og blessa mun i bænagerð og Ijóðum
jafnt björk í vestri og land við nyrzta haf.
Það bezta, sem að tsland okkur gaf
skal ávaxtað í þroskans sparisjóðum.
Einar P. Jónsson.
Lýkur meistaraprófi með heiðri
Einar I. Siggeirsson, sonur
Siggeirs Bjarnasonar og konu
hans Guðrúnar Guðjónsdóttur í
Reykjavík, er í fyrravor útskrif-
aðist með „Bachelor of Science“
mentastigi frá landbúnaðarhá-
skólanum (State College of
Agriculture) í Fargo, N.-Dakota,
lauk þann 6,‘júní s.l. meistara-
prófi (Master of Science) í land
búnaðarvísindum á sama há-
skóla, með ágætiseinkunn í öll
um námsgreinum.
Aðalnámsgrein hans var í
náttúrufræði, en sérgrein í
grasafræði. Fjallaði meistara-
prófsritgerð hans um tæknileg-
ar og stærðfræðilega’r mæling-
ar á fóðuruppskeru beiti- og af-
réttarlanda. Verður hún birt í
kunnum amerískum tímaritum í
þeim fræðum, fyrri hlutinn (
„Journal of Agronomy“, en
seinni hlutinn í „Journal of
Range Management“.
Einar hefir nýlega verið kjör-
inn félagsmaður í félaginu Phi
Kappa Phi, en þann heiður
hljóta þeir einir,' sem skarað
hafa fram úr ( námi sínu. Enn-
fremur hefir hann verið gerður
félagsmaður í „The American
Society of Agronomy“ og „The
American Society of Range
Management“, og er þar einnig
um mikla viðurkenningu að
ræða.
Hinum glæsilega námsferli
Einars hefi ég að öðru leyti lýst
nánar í grein minni um hann í
vestur-íslenku vikublöðunum og
„Tímanum“, er hann lauk námi
í fyrra, og verður það því eigi
frekar rakið að þessu sinni.
Eigi ætlar hann þó að láta
hér staðar numið á námsbraut-
inni, heldur hefir hann þegar
innritast til framhaldsnáms á
Landbúnaðarháskóla New York
ríkis í Ithaca New York, sem er
deild af hinum kunna háskóla,
Cornell University þar í borg.
Er það takmark Einars að ljúka
þar doktorsprófi í landbúnaðar-
fræðum, og bendir allt til þess,
að honum takist það á tilsettum
Frú Ástríður Eggertsdóttir
Sækir alþjóðafriðar-
þing kvenna
Dagana frá 17. til 24. júlí verð-
ur haldið alþjóðafriðarþing
kvenna í borginni Amsterdam í'
Hollandi; fyrir hönd Kvenrétt-
indafélags Islands sækir þing
þetta frú Ástríður Eggertsdóttir
úr Reykjavík, mikilhæf kona og
ágætlega máli farin; frú Ástríð-
ur er bróðurdóttir þjóðskálds-
ins Matthíasar Jochumssonar;
hún dvaldi um eitt skeið í Winni
peg en síðar í Seattle.
Frú Ástríður er gift Þórarni
Víkingi; sonur þeirra hjóna,
Arni Þór, starfar sem vélsetjari
hjá The Columbia Press Limited
hér í borginni.
Einar Siggeirsson
tíma, jafn ótrauður og hann hef-
ir revnzt á námsbrautinni.
Þegar hann nær því loka-
marki sínu, verður hann einnig
ágætlega undir það búinn að
vinna þjóð sinni gagn á sviði
landbúnaðarins, og er þess að
vær.ta, að honum veitist tæki-
færi til að notfæra sér í hennar
þágu ávexti víðtækrar skóla-
göngu sinnar og margháttaðrar
hagnýtrar reynslu. v
Richard Beck
Kolaverkfall í Ástralíu
Kolanámumenn í Ástralíu
hafa fyrir nokkru gert verkfall,
sem svo hefir haft örlagaríkar
afleiðingar að iðnaðarfram-
leiðsla þjóðarinnar hefir því
nær stöðvast með öllu; um
þetta leyti árs stendur yfir vetur
í Ástralíu, en nú eru kol svo
naumlega skömmtuð, að öldung
is ófullnægjandi er til upphit-
unar húsum og matarsuðu. í
Ástralíu situr að völdum verka-
mannastjórn; forsætisráðherr-
ann, Chifley, kennir kommún-
istum algerlega um verkfallið,
er hann telur hvorki meira né
minna en uppreist gegn ríkis-
valdinu.
»
Viðskiptasamningur viéf
Svíþjóð undirritaður
Undanfarnar vikur hafa átt
sér stað í Stokkhólmi viðræður
um viðskipti milli íslands og Sví
þjóðar og var hinn 16. þ. m. und
irritað samkomulag um við-
skipti landanna.
Svíar munu yeita innflutnings
leyfi fyrir saltsíld, sykursaltaðri
síld og kryddsíld frá tslandi í
samræmi við innflutningsáætl-
un sína um síld og innflutnings
leyfi fyrir öðrum íslenzkum vör
um, eins og hrognum og kjöti,
á sama hátt og undanfarin ár.
Innflutningsleyfi fyrir sænsk-
um vörum til íslands mundu
fara eftir því vörumagni er Sví
ar kaupa af íslendingum.
Af íslands hálfu tóku þátt í
samningaumleitununum Jón L.
Þórðarson, formaður Síldarút-
vegsnefndar, dr. Oddur Guð-
jónsson frá/ Fjárhagsráði, Er-
lendur Þorsteinsson framkv.stj.
og dr. Helgi P. Briem sendi-
fulltrúi, sem var formaður ís-
lenzku nefndarinnar.
(Mbl. 23. júní)
Verkfall
uppskipunarmanna á Bret-
landi hefir leitt til þess, að
stjórnin hefir kvatt herlið á vett
vang til að annast uppskipun á
þeim vörum, sem liggja fyrir
skemdum; í verkfalli þessu taka
þátt um átta þúsundir manna.