Lögberg - 07.07.1949, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. JÚLÍ 1949.
5
\l I < VM VI
KVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
25. ÁRSÞING
Bandalags Lúterskra kvenna
FRAMHALD.
Skemmtifundir þingsins voru þrír, allir vel sóttir. Þessar kon-
ur fluttu erindi: Mrs. Ingibjörg Jónsson frá Winnipeg, flutti er-
indi sem hún nefndi: „Blikmyndir úr sögu Mikleyjar", sem 'gaf
yfirlit yfir landnám eyjunnar, og svo sögu íbúanna síðan, sér-
staklega hvað trúarlíf og lifnaðarhætti snerti. Mrs. Jónsson, sem
var fædd og uppalin í Mikley, skýrði frá ýmsum bernskuminning-
um sínum, sem köstuðu raun-
1 7 prestaköll á landinu óveitt
verublæ á frásagnir hennar. Er-
indið var sérstaklega tímabært,
þar sem flestar okkar voru
staddar á eyjunni í fyrsta skipti,
og vorum við allar hrifnar af
því.
Mrs. Ingibjörg J. Ólajsson,
talaði um „Verksvið kvenna“,
sem er aðallega á heimilinu og
svo í hinni kristilegu kirkju,
þar sem verksvið þeirra stækk-
ar árlega. „Kristur viðurkenndi
viðleitni kvenna. Kirkjan kallar
til sameiginlegra bæna og
starfa — konur skulu halda
merkinu hátt og byggja á traust
um grundvelli fyrir komandi
kynslóðir“. Erindið var áhrifa-
mikil prédikun, sem er sönnun
þess að kvenfólk getur prédik-
að!
Mrs. Þjóðbjörg Henrickson,
hafði fyrir umtalsefni, „Luther-
an Camp Niwawka“, sem er
nálægt Gettysburg, Pennsyl-
vania. Hún dvaldi í þessum
camp í fyrrasumar sem boðs-
gestur U. L. C. A. Hún lýsti um-
hverfinu og svo kennsluaðferð-
um í leiðtogastarfinu þar. Til-
gangur Dr. Hadwin Fisher,
stofnanda þessara sumarbúða
fyrir kristið leiðtogastarf, var
þrefaldur, að uppgötva leiðtoga
hæfileika, að veita tilsögn í leið
togastarfi og svo að tengja það
við hina kristnu kirkju. Mrs.
Henrickson kom með margar
hugmyndir, sem voru íhugaðar
á þinginu í sambandi við Sun-
rise Camp. Erindið var fallega
samið og vekjandi.
Önnur atriði á skemmtiskrá
voru:
Söngflokkur bygðarinnar, sem
söng mörg lög undir forustu org
anistans, Mrs. Kristínar Jeffer-
son; quartette — Mildred og
Mabel Gossen, Wilhelm Helga-
son og Gordon Magnússon;
framsögn — Melvin Williams;
tvísöngur Wesley og Jerry Doll,
sem spiluðu undir á mandólín;
einsöngur — Mrs. S. Sigurgeirs-
son; tvísöngur — Marlene Jón-
asson og Cynthia Paulson;
framsögn — Ingibjörg Doll.
Mrs. Jefferson aðstoðaði við all
an sönginn.
Að lokinni skemmtiskránni
síðasta kvöldið veittu byggðar
konur öllum samkomugestun-
um kaffi, og þar var Bandalag-
inu afhent stór afmæliskaka,
Prýðilega falleg með 24 kertum
á, frá kvenfélaginu „Undina“, í
tilefni af 24. afmæli bandalags-
ins. Mrs. S. Sigurgeirsson talaði
fyrir þessari gjöf. Mrs. Guðrún
A. Erlendson þakkaði Mikleyj-
arkonum fyrir yndislegar við-
tökur og framúrskarandi gest-
risni.
Áður en lagt var af stað heim
ieiðis á föstudaginn, þá afhenti
Mrs. Anna Magnússon gjöf til
Mrs. I. J. ólafsson í tilefni af
Mmælisdegi hennar, 17. ' júní,
íyrir hönd allra þingfulltrú-
^nna. Helgi Tómasson frá Hecla
avarpaði einnig Mrs. Ólafsson,
en hann hafði eitt sinn dvalið á
heimili hennar. Mrs. Ólafsson
Þakkaði gjöfina og hlýju orðin.
^rs- Þjóðbjörg Henrickson tal
aði byggðarbúanna og þakk-
aði gestrisnina.
Síðan lögðum við af stað
eim með margar ljúfar endur-
minningar frá Mikley í huga,
aem seint munu gleymast. Við
ófðum góða ferð heim og vor-
Um aiiar hæstánægðar með þing
Frú Fjóla Gray
ið, dvölina í Mikley og ferða-
lagið.
í lok þingsins fóru fram kosn-
ingar. Mrs. Fjóla Gray frá
Winnipeg, var kosinn forseti í
stað Mrs. I. J. Ólafsson, sem
sagði af sér embættinu eftir tíu
ára starf. Mrs. Gray hefir starf-
að mikið í bandalaginu, sem
varaforseti þess um skeið, og
sem forstöðukona og ritari sum-
arbústaðanefndarinnar. Hún af-
kastaði miklu í sambandi við
byggingu Sunrise Camp og síðan
við starfrækslu hans. Það má
segja að hún hafi verið önnur
hönd Mrs. Ólafsson við starfið
í s.l. fimm ár, og er nú komið
að henni að taka við stjórn
Bandalags Lúterskra kvenna —
hún er vel fær um að bera þá
ábyrgð — við óskum henni til
lukku með embættið.
Mrs. Helga Guttormsson frá
Winnipeg, tók við skrifaraem-
bættinu af Miss Lilju Guttorms
son, sem sagði af sér eftir átta
ára starf sem ritari félagsins.
Mrs. Helga Guttormsson er vel
hæf kona og hefir mikla reynslu
í þess konar starfi.
Kosnar voru í önnur embætti
og nefndir sem hér segir:
Heiðursforseti til lífstíðar. —
Mrs. Ingunn Marteinsson.
Heiðursmeðlimir: —
Mrs. Hansína Ólson, Mrs.
Sigrún Thorgrímsson, Mrs. Ingi
ríður Jónsson, Mrs. Helga
Bjarnason, Mrs. Stefanía Sig-
urðsson, Mrs. Stefanía Leo, Mrs.
Rannveig Sigbjörnsson, Mrs.
Guðrún Brynjólfsson.
Fyrrv. forseti Mrs. Ingibjörg
J. Ólafsson, Selkirk. Forseti Mrs.
Fjóla Gray, Winnipeg. Vara-
forsetar Mrs. Guðrún A. Erlend-
son, Arborg og Mrs. Elizabeth
Bjarnason, Langruth. Skrifari
Mrs. Helga Guttormsson, Winni
peg. B.v. skrifari Mrs. Clara
Finnsson, Winnipeg. Féhirðir
Mrs. Rósa . Jóhannsson, Winni-
peg. Vara-féhirðir Mrs. Halldóra
Bjarnason, Winnipeg.
Meðráðanefnd: Mrs. Margrét
Stephensen, Winnipeg. Mrs.
Margrét Bardal, Winnipeg. Mrs.
Sena Anderson, Baldur. Mrs.
Sigríður Bjerring, Winnipeg.
Mrs. J. Sigurðsson, Selkirk.
Útgáfunefnd Árdísar: Aðal-
ritstjóri Mrs. Ingibjörg J. Ólafs-
son, Selkirk. Aðstoðarritstjórar
Mrs. Þjóðbjörg Henrickson,
Winnipeg og Miss Lilja M. Gutt
ormsson, Winnipeg. Ráðskona
Mrs. Inga Gillies, Winnipeg. Að-
stoðarráðskona Mrs. Flóra Ben
son, Winnipeg. Mrs. Guðrún A.
Erlendsson, Arborg Man. Mrs.
Sarah Childerhose, Selkirk,
Prestastéttin rœðir áhuga- og
hagsmunamáí á Synodus
Synodus, hin árlega presta-
stefna íslenzku þjóðkirkjunnar,
hófst með guðsþjónustu í Dóm
kirkjunni þriðjudaginn 21 júní
kl. 13,30. Prédikun flutti þar
séra Jósef prófastur Jónsson að
Setbergi, og lagði hann út af
orðunum: „Ég fyrirverð mig
ekki fyrir fagnaðarerindið“. —
Altarisþjónustu annaðist herra
biskupinn, séra Sigurgeir Sig-
urðsson. Svo sem venja er, voru
synodusprestar til altaris.
Að lokinni guðsþjónustu var
hlé til kl. 16,15, en þá söfnuð-
ust synodusprestar saman 1
kapellu Háskólans til guðrækn-
isstundar. Hófst sú athöfn með
samleik á fiðlu og orgel, og léku
þar þeir Þórarinn Guðmunds-
son, fiðluleikari, og Páll Kr.
Pálsson, orgelleikari. Að því
loknu las herra biskupinn ritn-
ingarkafla og flutti bæn, en
prestar sungu fyrsta og síðasta
erindi sálmsins „Vor Guð er
borg á bjargi traust“. Þá ávarp-
aði biskupinn prestastefnuna og
bauð prestana velkomna. Ræddi
biskupinn um viðhorf prests til
safnaðar og safnaðar til presta,
og hvatti han nprestana til auk-
inna starfa. í lok ræðu sinnar
sendi hann kveðjur sínar og
prestanna heim til safnaðanna.
Að því loknu hóf biskupinn
lestur ársskýrslu sinnar og fer
hér á eftir útdráttur úr henni.
Breytingar á starfsliði kirkjunn-
unnar hafa verið venju fremur
litlar á árinu. Enginn þjónandi
prestur hefir látist. En úr hópi
fyrrverandi presta hafa tveir
horfið, þeir séra Einar Thorla-
cius, fyrrum prestur í Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd o§ Vigfús
Þórðarson fyrrum prestur í Ey-
dölum. Þá hefir ein prestsekkja
látist á árinu, frú Sigurlaug
Björg Árnadóttir Knudsen,
ekkja séra Ludvigs Knudsen,
er síðast var prestur að Breiða-
bólsstað í Vesturhópi. Ennfrem
ur andaðist á synodusárinu ein
prestskona, frú Sigurlína Guðný
Sigurjónsdóttir, kona séra Þor-
geirs Jónssonar, Eskifirði. Fund
armenn vottuðu hinum látnu
virðingu sína og aðstandendum
samúð sína með því að rísa úr
sætum.
Einn þjónandi prestur hefir
látið af embætti á árinu, séra
Magnús Már Lárusson, prest-
Man. Mrs. Elizabeth Bjarnason,
Langruth.
Board of Directors — Sunrise
Camp. Séra Egill H. Fáfnis,
North Dakota. Dr. E. Johnson,
Selkirk, Mr. S. O. Bjerring,
Winnipeg, Mr. S. Pálmason,
Winnipeg Beach, Mrs. C. Thor-
steinsson, Baldur, Mrs. Anna
Magnússon, Selkirk, Mrs. Thór
dís Thompson, Riverton, Séra
B. A. Bjarnason, Arborg.
Einnig voru kosin í stað
tveggja sem var veitt lausn úr
embætti, þau Mrs. Ingibjörg J.
Ólafsson og Dr. F. E. Scribner,
Gimli.
Eignanefnd Mrs. Sigríður
Bjerring og Mrs. Sarah Childer-
hose.
Bókasafnsnefnd. Mrs. Marg-
aret. Scribner, Gimli, Mrs. Sig-
þóra Tómasson, Hecla og Mrs.
Ingunn Fjeldsted, Arborg.
Sunnudagaskólanefnd Mrs.
Elizabeth Bjarnason, Mrs. S.
Sigurgeirsson og Mrs. Anna
Skaptason, Winnipeg.
Hannyrðanefnd Mrs. Soffia
Wathne, Winnipeg, Mrs. Val-
gerður Hallgrímsson, Cypress
River, og Mrs. J. Hannesson,
Langruth.
Kosnar voru sem fulltrúar
bandalagsins á kirkjuþingið,
sem er nýafstaðið, þær Mrs.
Þjóðbjörg Henrickson og Mrs.
S. Sigurgeirsson.
Virðingarfyllst,
Lilja Guttormsson
skrijari
ur að Skútustöðum. Séra Magn-
ús hefir tvo undanfarna vetur
gegnt kepnslustörfum við guð-
fræðideild Háskólans í forföll-
um próf. Magnúsar Jónssonar.
Tveir guðfræðikandidatar hafa
tekið vígslu á árinu, séra Andrés
Ólafsson til Staðar í Steingríms
firði og séra Þórarinn Jónasson
Þór, settur prestur í Staðar-
prestakalli á Reykjanesi. Biskup
þakkaði séra Magnúsi störfin og
bauð hina nýju presta velkomna
til starfs. Þá gat biskup einnig
um prestaskiptin, er séra Eirík-
ur Brynjólfsson á Útskálum fór
til Winnipeg og gegndi prests-
störfum þar í stað séra Valdi-
mars Eylands, er gegndi störf-
um séra Eiríks á Útskálum.
Þakkaði hann séra Valdimar
störf hans hér og bauð séra Ei-
rík velkominn heim og þakkaði
störf hans vestra.
Óveitt prestaköll.
Biskup gat þess að 17 presta-
köll væru óveitt. Er sú tala
nokkuð há, þar sem prestaköll
landsins eru aðeins 112 að tölu.
I fjórum þessara prestakalla
eru settir prestar og líklegt er,
að fljótlega komi prestur í það
fimmta. Ber þess einnig að geta
að ein guðfræðinemi, Gísli Kol-
beins, er ráðinn til aðstoðar-
þjónustu í Austur-Skaftafells-
prófastsdæmi, en þar er presta-
fæðin tilfinnanlegust. Og senni-
lega mun annar guðfræðinemi
verða ráðinn á næstunni til að-
stoðarþjónustu annars staðar.
Horfur munu nú vera batnandi
um það að prestar fáist á næst-
unni í eitthvað af hinum ó-
veittu köllum, þar sem nemend-
um guðfræðideildarinnar fer nú
fjölgandi.
Byggingar.
Á þessu ári hefir lítið verið
um byggingar nýrra kirkna. í
Reykjavík hefir verið haldið á-
fram byggingu Laugarnes-
kirkju og verður hún væntan-
lega vígð í haust.
Neðri hæð kórbyggingar Hall
grímskirkju á Skólavörðuhæð
var lokið á árinu og hún vígð
og tekin í notkun 5. des s.l. Bæt
ir það að nokkru úr brýnni þörf
safnaðarins, en vonandi verður
byggingu haldið áfram, þar til
hin volduga og mikla bygging
verður fullgerð.
Þá var lokið byggingu útfarar
kapellu og bálstofu í Fossvogs-
kirkjugarði og var hún vígð af
vígslubiskupi dr. Bjarna Jóns-
syni 31. júlí s.l. Meiri háttar að-
gerðir hafa farið fram á ýmsum
eldri kirkjum, svo sem Bessa-
staðakirkju á Álftanesi, Staf-
holtskirkju, Mælifellskirkju og
Mosfellskirkju í Grímsnesi Þá
var og sett nýtt eirþak á Dóm-
kirkjuna í Reykjavík og gert
við hana á ýmsan hátt.
Þá er lokið smíði þriggja
prestsseturshúsa, á Desjamýri,
í Ólafsvík og í Hallgrímspresta-
kalli í Reykjavík. En í smíðum
eru fjögur slík hús, sem vænt-
anlega verður lokið við á þessu
ári. Nokkru fé hefir einnig verið
varið til aðgerða á eldri prests-
setrum. Eins og nú standa sakir
má segja að af 115 prestssetrum
séu 80 ýmist góðar eða sæmi-
legar byggingar. En á hinum 30
eru ýmist engar eða algerlega
qfullnægjandi byggingar, og
verður að sækja það fast, á kom
andi árum að ráða bót á því.
Kirkjuleg löggjöf.
Á þessu ári hafa engar breyt-
ingar orðið á löggjöf varðandi
kirkjuna svo teljandi sé. Á síð-
ustu prestsstefnu var allmikið
ræt um kirkjuþing, og frum-
varp um það sent prestum lands
ins til umsagnar. Yfirgnæfandi
meirihluti þeirra, er svör sendu
voru fylgjandi því. Síðan var
frumvarpið sent kirkjuráði og
var samþykkt þar með smávægi
legum breytingum. Síðan var
það sent kirkjumálaráðuneyt-
inu með ósk um að það léti
leggja það fyrir Alþingi. En þar
sem þá var liðið allmjög á þing
tímann, varð málið ekki sent
Alþingi nú, en verður yæntan-
lega lagt fyrir næsta þing.
Skálholtsstaður.
Kirkjumálaráðherra skipaði 5
manna nefnd til að gera tillög-
ur um endurreisn Skálholts-
staðar. í nefndinni eiga sæti auk
biskups séra Sigurbjörn Einars
son, dósent, Björn Þórðarson,
dr. jur., Steingr. Steinþórsson,
búnaðarmálastjóri og Þorsteinn
Sigurðsson, bóndi, Vatnsleysu.
Nefndin hefir orðið sammála
um að leggja til að Skálholt
verði aðsetursstaður vígslubisk-
ups hins forna Skálholtsbiskups
dæmis, og þar verði endurreist
dómkirkja og biskupsbústaður,
og sé þeim framkvæmdum lokið
fyrir árið 1956, en þá eru 9 aldir
liðnar frá því að Skálholt varð
biskupssetur. Mál þetta verður
síðar rætt á prestastefnunni.
Fjárveitingar til kirkjumála.
Á fjárlögum yfirstandandi árs
er veitt til bygginga nýrra
prestsseturshúsa 700 þús. krón-
um, og er það allmikið lægri
upphæð en árið áður. Til að-
gerða á prestsseturshúsum eldri
eru veittar 250 þús og til úti-
húsa á prestssetrum 200 þús.
kr. Samtals eru allar fjárveit-
ingar til kirkjumála rúmar 4
milljónir króna eða tæplega
11%% af heildarútgjöldum rík
isins. Slík fjárveiting er á allan
hátt ónóg og háir mjög allri
kirkjulegri starfsemi.
Söngmál.
Sigurður Birkis söngmála-
stjóri hefir stofnað 9 kirkjukóra
á árinu og munu þá kirkjukór-
arnir alls vera 133. Söngskóli
þjóðkirkjunnar starfaði í vetur
í Reykjavík frá 1. nóv. til 1. maí.
Þar var einkum kent orgelspil,
söngur og söngstjórn. Skóli
þessi hefir aðeins eina kennslu-
stofu til umráða og stendur hon
um það mjög fyrir þrifum. Mjög
erfiðlega gekk að útvega kirkj-
unum hljóðfæri á styrjaldarár-
unum, en nú er ráðin á því nokk
ur bót. Á árunum 1945—48 hafa
verið flutt inn hljóðfæri í 26
kirkjur, þar af þrjú vönduð
píanóorgel, í Bessastaða- og
Eyrarbakkakirkjur og í kapellu
Háskólans.
Kirkjuþing.
I júní og júlí mán. var háð
hið svonefnda Lambethþing í
Englandi, að tilhlutan erkibisk-
upsins í Kantaraborg. Þessi þing
hafa verið háð 10. hvert ár síð-
an 1867. Biskup íslands sat
þetta þing ásamt 330 öðrum
biskupum. Ennfremur var háð
fjölmennt kirkjuþing í Amster-
dam í Hollandi á s.l. hausti og
sóttu það fulltrúar frá 150
kirkjudeildum. Fyrir hönd ís-
lands mætti þar séra Jakob
Jónsson.
Visitaziur.
Á síðastliðnu sumri visiteraði
biskupinn Vestmannaeyjar og
Dalaprófastsdæmi og messaði í
öllum kirkjunum ásamt sókn-
arprestunum. Voru ferðir þess-
ar yfirleitt mjög ánægjulegar
og kirkjusókn góð.
Félagsstarfsemi.
— Bókaútgáfa.
Aðalfundur Prestafélags Is-
lands var haldinn 23.—24. júní
s.l. í Reykjavík. Þá hafa einnig
deildir Prestafélagsins út um
landið verið starfandi og hald-
ið sína fundi heima í héruðuq-
um. K.F.U.M. og K. í Reykja-
vík áttu bæði 50 ára afmæli á
þessu ári og var þess minst með
hátíðarsamkomum í samkomu-
húsi félaganna hér í Rvík.
Útgáfu Kirkjublaðsins og
Kirkjuritsins hefir verið hagað
líkt og á undanförnum árum.
Þá má einnig geta um útgáfu
tímaritsins Víðförli, sem flutt
hefir greinar um trúmál og
kirkjuleg málefni, en ritstjóri
þess er séra Sigurbjörn Einars-
son dosent. — Þá hefir einnig
blaðið Bjarmi komið út með
svipuðum hætti og áður, og auk
þess hafa nokkrir prestar gefið
út safnaðarblöð. Þá ber að nefna
bók próf. Ásmundar Guðmunds
sonar, Fjallræðan og Orð Jesú
Krists, sem séra Þorvaldur Ja-
kobsson safnaði saman. Séra Sig
urður Pálsson í Hraungerði hef-
ir gefið út bænir. Dr. Árni Árna
son læknir bókina Þjóðleiðir til
heilla og hamingju. Og nýlega
er útkomin bók eftir séra Jakob
Jónsson, sem nefnist: í kirkju
og utan. Minnst var i Haukadal
í Biskupst. Ara prests Þorgils-
sonar, en 800 ár eru nú liðin
frá dauða hans.
Utanfarir.
Tveir prestar dvöldu að námi
erlendis s. 1. vetur, þeir séra
Guðm. Sveinsson á Hrauneyri
og séra Sigurður Kristjánsson,
ísafirði. Auk þess fóru ýmsir
aðrir prestar utan til styttri
dvalar.
Messur og altarisgestir.
Á árinu 1948 voru sungnar
3909 messur á öllu landinu og
eru það rúmt 100 fleiri en á
fyrra ári. Þar af eru almennar
kirkjuguðsþjón. 3182, barna-
guðsþjónustur 410 og aðrar guðs
þjónustur 317. Tala altarisgesta
mun hafa orðið 5996 og þó lík-
lega heldur fleiri.
í
Merkisafmœli.
Séra Einar Pálsson fyrrver-
andi prestur í Reykholti varð
áttræður 24. júlí. Séra Harald-
ur Þórarinsson síðast prestur í
Mjóafirði, varð áttræður 14. des.
Séra Vilhjálmur Briem, for-
stjóri Söfnunarsjóðs íslands,
varð áttræður 18. janúar. Séra
Ásgeir Ásgeirsson próf. varð
70 ára 22. sept. Séra Jón N. Jó-
hannesson varð 70 ára 6. okt.
Sama dag varð sextugur próf.
Ásmundur Guðmundsson. Þá
varð einnig sextugur 24. des.
séra Jósep Jónsson, prófastur,
á Setbergi. 50 ára urðu þeir séra
Páll Þorleifsson að Skinnastað
23. ág. og séra Sig. Einarsson á
Holti 29. okt. Biskup flutti þeim
öllum innilegar hafingjuóskir.
Að loknum lestri skýrslunnar
talaði biskup nokkrum orðum
til prestanna og endaði athöfn-
in með því að sungið var versið
Son Guðs ertu með sanni.
Fundur í hátíðasál Háskólans,
Eftir athöfnina í kapellunni
var fundur settur í hátíðasal
Háskólans. Biskup las þær kveðj
ur, er prestastefnunni höfðu bor
ist, frá séra Valdimar Eylands,
séra Finn Tuliníus, séra Jón-
mundi Halldórssyni, prófessor
Richard Beck og Sambandi ís-
lenzkra barnakennara. Séra Guð
mundur Sveinsson flutti kveðj-
ur frá prestafundi í Melby í
Danmörku og séra Eiríkur Bryn
jólfsson frá íslenzka söfnuðin-
um í Winnipeg.
Á fundinum lagði biskup
fram ýmsar skýrslur og tillög-
ur um styrkveitingar til aldr-
aðra presta og prestekkna. Þá
fóru einnig fram nefndarkosn-
ingar.
Um kvöldið kl. 8.30 flutti
vígslubiskup, séra Bjarni Jóns-
son, erindi fyrir almenning í
Dómkirkjunni. Erindið nefndi
hann: „I gær og í dag“, og va*
því útvarpað.
Annar dagur
prestastefnunnar.
Dagskráin hófst með morgun-
bænum í kapellunni og annað-
ist þær séra Árni Sigurðsson,
fríkirkjuprestur. Síðan hófst
fundur, þar sem fluttar voru
framsöguræður um höfuðmál
dagskrárinnar sálgæzlu. Frum-
mælendur voru þeir séra Þor-
steinn L. Jónsson í Söðulholti,
og Alfreð Gíslason, læknir. Voru
Framhald á bls. 8