Lögberg - 07.07.1949, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINM, 7. JÚLÍ 1949.
7
l
Jörðin getur framfieytt
Framhald af 3. síðu.
aðrar líftegundir. Allt á þetta
sinn undirstöðuþátt í fæðingu,
vexti, dauða, rotnun og endur-
fæðingu, og þess vegna grund-
völlur að heilbrigðri járðrækt,
því að án þessa verður jarðveg-
urinn ófrjór og líflaus.
Þegar þessi aðferð fór að bera
árangur, fór að hægjast um. Því
að þegar jarðvegurinn fór að ná
sér, drakk hann í sig alla vætu
og þá var ekki lengur hætt við
uppblæstri. Og nú gefa margir
akrarnir miklu meira heldur en
þeir hafa nokkru sinní áður gert.
Uppsprettur í landinu hafa
aukist um helming eða ferfalt
að vatnsmagni síðan jarðvegur-
inn hlaut sæmilega umhirðu.
Margar uppsprettulindir, sem
áður þornuðu á sumrin, renna nú
allan ársins hring. Þar sem allt
að 85% af regnvatninu fór áður
til spillis og streymdi burt á
hálfum sólarhring og skolaði
með sér mörgum smálestum af
jarðvegi, þar drekkur nú jörðin
í sig allt regnið.
Með því að rækta belgjurtir,
sem hafa langar rætur er standa
djúpt, og stórgert gras eins og
alf-alfa, þá notum við eigi aðeins
efsta jarðlagið eins og bændur
hafa gert öldum saman, heldur
seilumst við hálfu dýpra í jörð.
Fólkið á Malabar og fénaður-
inn lifir nú ekki á því, sem hægt
er að pína út úr efsta jarðlaginu,
heldur á gróðri, sem sækir nær-
ingu sína niður í hin óþrjótandi
næringarefni, sem eru djúpt í
jökulöldunni. Árangurinn kem
ur í ljós í betra heilsufari og
kjarki, svo að gróðri, kvikfé og
mönnum er ekki jafn hætt við
sjúkdómum og áður. Og sumir
akrarnir gefa nú af sér 1500
falda uppskeru við það sem áður
var.
Skóglendurnar á Malabar voru
áður notaðar til hagagöngu fyr-
ir nautgripi, sem átu allan ný-
græðinginn svo við lá að skóg-
urinn eyddist með öllu. Nú renna
þarna upp dýrmæt tré, svo sem
eik, hnottré, askur, mösur, birki
o. s. frv. og sum trén hafa vaxið
30 fet á tíu árum.
Nú renna silfurtærir lækir
um landið og aldrei verður tjón
að vatnavöxtum. Silungur hefir
á þessum árum aukist 15 falt í
lækjunum og veiðin hefir auk-
ist tífalt.
Að endingu skal ég taka það
fram að eins og við höfum farið
með þetta land, eins má fara
með hundruð miljóna ekra af
landi hér í Bandaríkjunum,
landi, sem annað hvort gefur lít
ið af sér eða er í eyði. Og ef
hugsað verður um að hlynna að
því, landi, eins og við höfum gert
hjá okkur, þá mun það hafa ó-
metanlega þýðingu fyrir þjóð-
ina alla, hvort heldur er litið á
það frá fjárhagslegu sjónarmiði
eða frá því sjónarmiði að afla
nægilegrar fæðu.
(Lesbók MbL)
Sjónvarpinu fer fram
/
Hálf öld er liðin síðan Camille
Flammarion, hinn mikli sjáandi
óorðinna hluta skrifaði bók sína
um „Heimsendi“, sem gerist ein
hverntíma í framtíðinni. Hann
talaði þar um „Telefonscopi“ og
á þar við tæki, sem hægt er að
sjá og heyra hluti í fjarlægð
með — útvarp og sjónvarp í
einu — svo að hægt sé að sjá
og heyra samstundis það sem
gerist í öðrum löndum, leikhús-
sýningu í Chicago eða París og
innbornar dansmeyjar á Ceylon
eða Havaji. En Flammárion
gerði ekki ráð fyrir að þetta
tæki kæmist í notkun fyrr en á
50. öld. — Framfarirnar urðu
hraðskreiðari en hahn gerði ráð
fyrir, þv( að nú er sjónvarp
komið um allan heim og sjón-
vai|p sem óðast að ryðja sér til
rúms — aðeins hálfri öld síðar
en hugsmíðar Flammarions urðu
til.
En þetta var að vísu ekki hug-
smíð ein. Flammarion byggði líka
á ýmsum staðreyndum, sem þá
voru til. Fyrsti grundvöllurinn
að sjónvarpinu var lagður fyrir
60 árum, er írskur verkfræðing-
ur uppgötvaði að sólarljósið hefir
áhrif á rafleiðslur úr selénmálmi
og að straymorkan óx þegar sól-
in skein á leiðslurnar. Á þessu
hálmstrái byggðu vísindin fyrstu
' von sína um sjónvarp og voru nú
'gerðar ýmsar tilraunir, sem þó
háru ekki árangur. Það var ekki
íyrr en „foto-elektriska cellan“
íannst, sem þessu fór að skila á-
fram. Eftir 1920 tókst Englend-
'ngnum Baird og Ameríkumann-
inum Jenkins að þokast í rétta
att,
án þess að hvor vissi af öðr-
Urn. Myndirnar sem þeir gátu
Sent voru grófgerðar og óskýrar
°g aðferðir þeirra eru ekki not-
aðar lengur. En samt lögðu þeir
þann grundvöll, sem byggt hefir
verið á síðan.
Til þess að gefa'ofurlitla hug-
mynd um þær framfarir, sem orð
hafa síðan Baird og Jenkins
utvörpuðu fyrstu myndum sínum
ma nefna, að myndanetið, sem
þoir höfðu var með 30—60 línu
þéttleika en nú eru myndir send-
ar með 525 línu þéttleika á sama
fleti. Þetta er gífurlegur munur
°g þó er enn unnið að því að
gera myndirnar fíngerðari. Með
uýrri aðferð, svonefndri „Image
^rthicone System“ er hægt að
§era myndirnar þúsund sinnum
sterkari en áður og þar af leið-
andi skýrari.
Baird sýndi sjónvarp sitt 1930
í London. Myndirnar sáust að
vísu en það skorti mikið á að
þær væru góðar. Það var engin
furða þó að sjónvarpið yrði ekki
vinsælt, eins og það var þá.
En síðustu tvö árin fyrir stríð
var fyrir alvöru farið að bæta
sjónvarpið og efnafólk í Englandi
og Ameríku fór að kaupa sér
sjónvarpstæki. Krýning Georgs
Bretakonungs árið 1937 var sýnd
í sjónvarpi og tókst það svo vel,
að blaðadómurum kom saman um
að nú hefði sjónvarpið slitið
barnsskónum. En þó mundu enn
líða nokkur ár þangað til það
yrði fullþroska, sögðu þeir.
Gífurlegar fjárhæðir hafa far
ið í tilraunirnar með sjónvarp-
ið. 1 Bandaríkjunum er talið að
sjónvarpsfélögin hafi eytt yfir
20 milljón dollurum í tilraunir
síðustu tuttugu ár, og B.B.C.
(brezka útvarpið) ver stórum
fjárhæðum til þess á hverju ári.
Sjónvarpið fullkamnaðist mjög
á stríðsárunum, en jafnframt
tóku tilraunirnar nú nýja stefnu
sem höfðu í för með sér að
nauðsynlegt var að taka í notk-
un ný ag mjög dýr áhöld, það
er radarlækið, sem á sökina á
þessu. Það uppgötvaðist sem sé,
að ákveðin tegund af radar er
ágætlega fallin til þess að nota
við sjónvarp með mikilli bylgju
tíðni og það opnar marga mögu
leika: Fleiri sjónvarpsstöðvar,
skýrari myndir og litmyndir.
En það er dýrt gaman að út-
varpa. Og þegar félögin í Ame-
ríku fóru að taka upp nýju að-
ferðirnar fór allt í bál og brand
milli þeirra. Nú hefir verið
byrjað að senda myndir með
lágri bylgjutíðni og árangurinn
er betri en nokkurntíma áður.
En ef breytt er um sendiaðferð
enn á ný má búast við að þetta
tefji mjög fyrir útbreiðslu sjón
varpsins. Því að hver vill kaupa
viðtæki fyrir aðferðina, sem nú
er notuð, ef hann veit að ný og
betri aðferð, sem krefst annara
tækja, er í uppsiglingu. Deil-
unni milli hinna nýju útvarps-
félaga Bandaríkjanna lauk með
því að þau skiptust í tvo flokka.
Annar flokkurinn notar gömlu
aðferðirnar og myndar í hvítu
og svörtu, en hinn reynir að
senda út myndir í eðlilegum
litum.
Það er ennþá erfitt að senda
út myndir með litum. Bein send
ing af atburðum er nær ófram-
kvæmanleg, og þarf að taka lit-
filmu af atburðinum fyrst og
senda hann svo áfram. En Sjón-
varp á svörtu og hvítu er ekki
heldur fullkomið. Myndirnar
oft ljótar og ójafnar og sýni-
flöturinn á viðtækinu lítill. Samt
er þetta orðið miklu betra en
fyrir stríð. Eitt félagið hefir
sent út verðlista yfir viðtæki
með 15x15, 20x26 og 40x60 cm.
myndfleti. Þau kosta frá 700 til
3000 kr.
En þegar fram í sækir mun
ekki verða um að ræða neitt
„annaðhvort — eða“ að því er
litfilmuna eða svart-hvítt snert-
ir. Það mun fara á sömu leið
og með kvikmyndina að báðar að
ferðirnar verða notaðar jöfnum
höndum. Sum verkefnin hæfa
betur svörtu og hvítu, en önnur
iitum, og svart-hvítt gefur á-
valt skarpari myndir, auk þess
sem það er miklu ódýrara. Venju
leg sjónvarps-senditæki kosta
um 400.000 dollara, en litmynda
senditækin tvöfalt meira. Og
þess ber að gæta að félagið verð
ur að hafa margar sendistöðvar
til endurvarps, því að sama
stöðin dregur sjaldnast nema
50 kílómetra.
Eins og sjá má af þessum töl-
um er stofnkostnaður sjónvarps
allmikill. Og kostnaðurinn við
dagskrárnar verður alltaf tals-
vert meiri en við tal- og tón-
sendingar, þó að Ameríkumenn
telji að hver klukkutími venju-
legra útvarpssendinga kosti 5—
10 þúsund dollara í þóknun til
þeirra, sem aðstoða. Þess eru
dæmi að sjónvarpssendingar
hafa kostað 30.000 dollara á
klukkustund, og þegar þess er
gætt að útvarpið er 12 tíma á
dag verða þetta ekki smáræðis
útgjöld.
Þróun sjónvarpsins getur haft
gerbreytandi áhrif á margt.
Hugsum okkur t. d. hve ódýrt
verður að leigja kvikmynd, sem
hefir verið notuð fyrir sjón-
varp.
En hvernig ná amerísku sjón-
varpsfélögin í peninga, sem
þau þarfnast?
í Bandaríkjunum er nefnilega
ekkert afnotagjald. Félögin „lifa
á“ því að selja viðtæki — og
tíma. Amerísku útvarpsfélögin
selja stóru verzlunarhúsunum
tíma til að auglýsa vörur sínar
í útvarpinu. Sjónvarpið er í
flestum tilfellum ennþá betra
auglýsingatæki en tónvarpið, og
auglýsendur vilja borga hátt
verð fyrir að nota það. Segjum
t. d. að sjónvarpsstöð hafi 200,-
000 viðtæki. Þá kostar það aug-
lýsandann ekki nema nokkur
cent að komast í samband við
hvern einstakan viðtakanda í
nokkrar mínútur, þó að hann
verði að borga háa upphæð fyr-
ir. Það er einnig sennilegt að
leikhús og aðrir skemmtistaðir
vi'lji kaupa sjónvarpssendingar
til að auglýsa það, sem á boð-
stólnum er, fólk sem t. d. sér
glefsu úr leikriti í sjónvarpi fer
í leikhúsið til að sjá leikinn
allan.
Tillögur hafa komið fram um
að ríkið taki við öllum sjón-
varpsfélögunum í Bandaríkjun-
um og hver sá, sem viðtæki hef-
ir skuli greiða afnotagjald, eins
og tíókast um útvarp í flestum
löndum. En það er svo að sjá
sem Bandaríkjamenn kæri sig
ekki um þetta. Það eru iðju-
höldarnir — viðtækjasmiðjurn-
ar — sem hafa kostað tilraun-
irnar, og þeir vilja líka njóta á-
vaxtanna. Og ef til vill er það
líka heilbrigðara að hafa mörg
félög, sem keppa hvert við ann-
að, en eitt félag undir ríkiseft-
irliti. En í flestum öðrum lönd-
um verður sjónvarpið vitanlega
ríkisstofnun.
Margt kemur til greina við
samningu sjónvarpsdagskrár.
Þar varðar miklu að finna réttu
hlutföllin milli ýmissa efnis-
greina, hvort heldur er skemmti
efni eða menningarlegt. Og að
finna efni, sem hentar til að
sýna það í sjónvarpi! Hvaða
efni er það? Eiginlega er ekki
skorið úr því ennþá — það er
á tilraunastigi eins og sjónvarp-
ið sjálft. En þó hafa verið dregn
ar upp nokkrar meginlínur fyr-
ir efni sjónvarpsdagskránna.
Aðalliðirnir eru þættir frá
fjölleikahúsum, íburðarmiklum
revyum, tízkusýningar, leikrit
og fréttamyndir. Þessar frétta-
myndir eru teknar úr sjónvarps-
bílunum, líkt og fréttakvik-
myndir. Talið er að um 30% af
sjónvarpsefninu sé tekið utan
útvarpssalanna. Líka hefir sumt
efni, t. d. fyrirlestrar, verið
sent út samtímis í tón- og sjón-
varpi.
Fjöldinn allur af sérfræðing-
um gerir tilraunir með dagskrár
og safnar skýrslum um hvernig
hlustendum líkar hver einstak-
ur liður. Stundum er áraiigur-
inn allur annar en búist var við.
Leikrit, sem vakið hafa fögnuð
í leikhúsinu og gengið þar mán-
uðum saman, verða að engu hjá
sjónvarpsáhorfendunum, þó að
allt hafi verið búið seem bezt í
haginn og leikendurnir séu
frægir. Hins vegar vekur stund
um alveg óþekktur listamaður
fögnuð í dagskrárlið, sem dag-
skrárstjórinn hefir varla þorað
að sýna.
Hinar svokölluðu „features“
— stuttar lýsingar á ákveðnu
efni, eru mjög vinsælar í sjón-
varpinu.
Framtíðarmöguleikar sjón-
varpsins eru takmarkalausir.
Áhorfandinn kemst í svo náið
samband við það sem er að ger-
ast, er hann fær persónurnar
sjálfar inn í stofuna til sín.
Hann kynnist fólkinu miklu
betur, en hægt er _að gera af
röddinni einni.
Áhorfandinn er miklu bundn-
ari sjónvarpinu en tónvarpinu.
Hann hugsar ekki um annað á
meðan, eins og tónvarpshlust-
endur gera. Öll athygli hans er
bundin við sendinguna meðan
hún stendur yfir. Listamaður-
inn á því miklu hægara með að
afla sér vinsælda í sjónvarpi en
tónvarpi. .
Það er hægt að gera sér 1 hug-
sjónvarpið muni hafa í framtíð-
arlund hve ómetanlega þýðingu
inni sem kennslutæki. Ásamt
tónvarpinu getur það ekki síst
stuðlað að því að kynna fjarlæg
lönd og siði og auka víðsýnl.
Það er sannleikur, sem Confu-
cius sagði: „Ein mynd er meira
virði en þúsund orð“.
1 New York eru sjónvarps-
tæki komin í marga skóla, og 30
nýir skólar, sem eru í smíðum,
fá allir sjónvarpstæki. — Alls
eru 37 sjónvarps-sendistöðvar í
Bandaríkjunum, og leyfi hefir
verið veitt fyrir 87 nýjum, sem
munu taka til starfa þá og þeg-
ar. Hins vegar liggja fyrir um-
sóknir um 300 ný leyfi, sem ekki
hafa verið veitt, og sýnir þetta
hve mikla trú menn hafa á fram
tíð sjónvarpsins í Bandaríkjun-
um.
(Fálkinn)
Minni Islands
Flutt á Iðavelli 18. júní 1949.
Svífur minn hugur heim
Hljótt yfir öldugeim,
Unz honum birtist þar eyland í sænum:
Háfjöll með hvítar brár,
Heiðar með vötn og ár,
Dunandi fossar í dölunum grænum.
Hátt yfir heiðaland
Hraunið og breiðan sand,
Fannhvítur jökullinn ber sína bungu,
Sólin má þíða þann,
Þegar hún bræðir hann
Steypast til sjávarins straumvötnin þungu.
Víða um hœðarheim
Hveranna sé ég eim,
Lækina smáu og lindimar tæru,
Finn ég þar fjallagrös,
Fer út á klettasnös,
Lít yfir brekkur með blómunum kæru.
Utar um sjónarsvið
Sveitir mér blasa við,
Grœn eru túnin og gróandi engi:
Lóan á hólum hlœr,
Háleggja spóinn fjær
Vellur í mýrunum Ijóðin sín lengi.
Lít ég til himins hátt,
Horfi um loftið blátt,
Flugdreka mikinn ég sé þar á svifi;
Hverfa að hafnarbæ
Heim yfir djúpan sœ,
Hugrákkir flugmenn í hamfara drifi.
Fótvissir fara menn
Fjalla í göngur enn,
Fjárleitin er þeirra fornaldar siður,
Fráir um fjallalönd
Ferðast að efstu rónd,
Reka þeir hjarðir að réttunum niður.
Sjómanna sé ég lið
Sœkja á fiskimið,
Vélknúnum skipum þeir stýra frá ströndum,
Yðjan er orðin greið
Út yfir höfin breið
Sigla með farma að fjarlœgum löndum.
Tengi ég bróðurband:
Betur við sólarland,
Þjóðina góðu sem þar er að starfa,
Andans við orkulind
Er hún nú fyrirmynd:
Smáþjóðin fjölhœfa, frjálsa og djarfa.
Böðvar H. Jakobsson.
Rit Matthíasar
Jochumssonar
ísafoldarprentsmiðja h.f. er í
þann veginn að hefja heildarút-
gáfu af ritum Matthíasar Joc-
humssonar, í bundnu máli og
óbundnu, og mun fyrsta bindið
koma út að áliðnu komanda
sumri. Verður, eins og skyldugt
er, allt gert til þess að útgáfan
verði sem rækilegast af hendi
leeyst og að sem fæst verði út
undan af því, er þar á að réttu
leyti að koma. Er þegar allmik-
ið efni komið, sem ekki er í hin-
um fyrri útgáfum, og tals-
vert mun án efa bætast við enn
þá í þeirri leit, sem nú er verið
að framkvæma. Þó mun efa-
laust meira eða minna verða út-
undan nema til komi góðviljuð
aðstoð þjóðarinnar í heild. Mun
og mörgum góðum manni vera
það ljúft, að leggja fram sitt
liðsinni svo að þessum konungi
í ríki andans megi verða sýnd
svipuð ræktarsemi af hendi
þjóðarhans eins og aðrar þjóðir
sýna minningu hinna mestu og
beztu sinna manna. Það eru því
vinsamleg tilmæli mín til allra
þeirra, er undir höndum hafa
eitthvað það, er að gagni mætti
koma við útgáfuna, hvort held-
ur eru bréf eða Ijóð, að þeir
láni það til afnota, frumrit ef
þess er kostur, en ella nákvæm-
ar afskriftir. Má senda allt slíkt
annaðhvort til mín undirritaðs
eða til sonar skáldsins, Magnús-
ar Matthíassonar, Túngötu 5,
Reykjavík. Mun allra slíkra
gagna verða vandlega gætt og
þau á sínum tíma endursend
þeim er lánað hafa, nema þeir
geri sjálfir þær ráðstafanir að
afhenda skuli Landsbókasafni.
Sömuleiðis mundu með þökk-
um þegnar hverskonar upplýs-
ingar og fróðleikur, er ætla má
að gagni mætti koma við útgáfu
ljóða eða bréfa, svo að slíkt
verði notað við athugasemdir
þær og skýringar, sem gerðar
verða við textana. Alveg sér-
staklega er til þess mælzt, að
aðstandendur, ættmenn eða
venzlamenn þeirra, er Matthías
kvað eftir, vildu senda svo ítar-
lega greinargerð, sem kostur er
á, um þá hina sömu, ef ekki er
alveg augljóst, að auðvelt muni
vera að afla þeirra upplýsinga.
Það er svo um mjög mörg af
hinum mikla sæg tækifæris-
kvæða, er Matthías kvað, að
enda þótt sjálf nöfnin séu kunn,
þá getur nú reynzt hartnær eða
með öllu ómögulegt að vita við
hvern átt er. Útgefandi er litlu
nær þó að við kvæðið standi
„Jón Jónsson d. 1872“ eða „G.
Jónsdóttir d. 1881“ eða eftir
„eftir barn“. Þetta á ekki við
um erfiljóðin ein heldur og ýms
önnur tækifæriskvæði og tæki-
færisvísur. En úti á meðal fólks
ins mun í langflestum tilfellum
enn vera einhver, sem að meira
eða minna leyti getur látið í té
gagnlegar upplýsingar. Menn
mega ekki draga sig í hlé fyrir
það, að þeim finnist það vera
of fátæklegt, sem þeir geta lagt
til málanna. Lítilfjörleg bend-
ing getur oft og einatt einmitt
vísað á réttu leiðina.
Með fyrirfram þökk til allra
þeirra, er við þessum tilmælum
verða og sýna þar með minn-
ingu Matthíasar Jochumssonar
ræktarsemi — stundum máske
um leið minningu látinna ná-
unga sinna.
Reykjavík, 24. marz 1949
f.h. ísafoldarprentsmiðju h. f„
Gunnar Einarsson
The Swan Manufacturing Co.
Cor. ALEXANDF.R and EIJ.EN
Phone 22 041
Halldór «M. Swan eigandi
Heimili: 912 Jessle Ave — 46 958