Lögberg - 28.07.1949, Blaðsíða 1

Lögberg - 28.07.1949, Blaðsíða 1
Grænlandsknörrinn Greiti þessi, sem fjallar um endalok íslendingabyggðar d Grœnlandi sökum þess að siglingar þangað Iqgðust niður, er eftir norskan frœðimann, Axel Artzen, og birtist nýlega í ,fArbeiderbladet“ í Oslo. Langt vestur í hafi voru bændalýðveldin tvö, ísland og Græn- lands, sem norskum konungum hafði ekki heppnazt að leggja undir sig. En þegar sendimaður páfans, Vilhjálmur af Sabína, kom til Björgvinjar árið 1246, til þess að krýna Hákon Hákonarson, notaði konungur tækifærið til að vekja áhuga páfastólsins á því máli. Og kirkjan hafði heldur ekkert á móti því, að láta veraldleg mál til sín taka. Kardínálinn samdi bréf og lét senda það til sögueyjarinn- Það er ótilhlýðilegt, ritaði I ar. hann, að til sé þjóð, sem engum biskups yfir Grænlandi. En eigi konungi lýtur, og svo bauð hann íslendingum að ganga Hákoni konungi á hönd. Samskonar bréf var samið og sent með Ólafi, sem nýlega hafði verið vígður til að síður mættu valdakröfur konungs mótspyrnu. Það heppn- aðist ekki fyrr en 15 árum seinna að fá íslendinga og Grænlendinga til að játast yfir- Always Ask Your Grocer for "Butter Nut Bread" RICH AS BUTTER — SWEET AS NUT “Canadas Finest Loaf " PHONE 37144 CANADA BREAD CO., LIMITED FRANK HANNIBAL, Manager PIES - D'NUTS - ROLLS - RECEPTION CAKES ráð Norðegskonungs. Þetta gerðist 289 árum síðar en Eiríkur rauði festi byggð sína á Grænlandi. Það hafði ekki ver- ið algerlega í eyði áður en hann kom, víða sáust merki manna- byggðar, húsarústir, verkfæri og litlir skinnbátar. Loftslagið hafði verið hlýrra en nú er, áíðustu aldirnar fyrir komu Eiríks rauða, svo að frumbyggjar höfðu-hall- að sér norður á bóginn eftir vest- ur- og austurströndinni. Leið því á löngu áður en landnámsmenn- irnir komust í kynni við græn- lenzku skrælingjana. Það varð ekki fyrr en loftslagið tók aftur að kólna og kuldinn rak þá suð- ur eftir á ný. Kristni var lögleidd á Græn- landi um sama leyti og á Islandi, en það valt á ýmsu með prests- verkin fyrstu hundrað árin. í Eiríks sögu rauða er frá því skýrt, að settur hafi verið í graf- ir hinna dauðu staur, sem náði frá líkinu og upp úr jörðinni. Þegar presturinn kom að lokum til að jarðsyngja, var staurinn dreginn upp og vígðu vatni hellt niður í holuna. En það gat skipt árum áður en presturinn kom. Nokkuð breyttist þetta til batn- aðar, þegar settur var erkibisk- uppstóll í Noregi og erkibiskup þar gat sjálfur skipað biskupa. Fyrsti biskupinn yfir Grænlandi, Arnaldur, fékk vígslu og sigldi þangað árið 1124. Hann var dug- legur og stjórnsamur biskup, reisti kirkjur, menntaði presta, enda varð biskup landsins bæði geistlegur og veraldlegur höfð- ingi þess, Smám saman höfðu myndazt tvö byggðarlög á Græn- landi, Eystri byggð og Vestri byggð. Lágu þau bæði nálægt suðurodda landsins. En land- námsmennirnir komu frá löggja- farríki, og með lögum skyldi land byggja, svo sem föng voru á. Þeir, sem dæmdir voru í út- legð, leituðu hælis á óbyggðum svæðum og mynduðu margir úti- legumanna flokka, ásamt stroku- þrælum, og herjuðu á byggðir og veiðistöðvar. Er sagt frá því í Flóamanna sögu, að Þorgils Orrabeins fóstri réðist á slíkan flokk og eyddi honum að mestu. Veiði varx mikil í landinu. Höfðingjar höfðu menn við veiðiskap allt norður á 75. breiddargráðu, að Norðursetri, sem nú heitir Kingingtorsuak. í vörðu þar nyrðra hefur fundizt rúnasteinn, og segir þar frá veiði- flokki, sem þarna var um 1100. Selskinn voru flutt út, skinn af hvítabjörnum og hreindýrum, rostungstennur, svarðreipi og hvítir fálkar, sem seldir voru háu verði í Evrópu. í byggðunum var sauðfjárbúskapur allmikill, svo að hægt var stundum að flytja út smjör og ost. Þegar velgengni var mest, voru 16 kirkjur á Grænlandi, 12 í Vestri byggð og 4 í Eystri byggð. Þá þurftu Grænlendingar að flytja inn járn, kornmat og tim- bur til skipa- og húsagerðar. Og það var til þess að tryggja sér þessar nauðsynjar, sem þeir gengust inn á það 1261, að gjalda Noregskonungi skatt. Þar móti skyldi konungur skyldugur til þess að sjá um innflutning til landsins. Minnst einu sinni á sumri hverju skyldi „knörinn“, kaup skipið, sigla á Grænland. Tók konungur sér brátt einokun á innflutningnum, og sú einok- unarverzlun varð ein helzta or- sök þess, að byggð norrænna manna á Grænlandi leið undir lok. Fátt eitt er vitað um líf og sögu Grænlendinga, en 10 árum eftir að þeir gengu Noregskonungi á hönd bar nokkuð á því, að þeir þrjózkuðust við að gjalda skatt- inn. Lyciander segir, að biskup- inn hafi viljað fá herlið til þess að lækka rostann í hinum brot- legu, en ekki er víst, hvort Mag- nús konungur lagabætir lét að vilja hans. Sjaldan er um skræl- ingja getið fyrsta mannsaldur- inn; sögurnar segja frá einstök- um samfundum og árekstrum milli þeirra og Grænlendinga, en á öndverðri 14. öld lítur út fyrir að Grænlendingar hafi verið orðnir óttaslegnir. Prestar þar gerðu út leiðangur, sem skyldi leita uppi heimkynni skrælingja. Var tilgangurinn annað hvort að Sincere Congratulations To the Icelandic People assembled on the 60th Anniversary of their national day at Gimli lst August, 1949. From the RURAL MUNICIPALITY OF ARGYLE MANITOB A INNILEGAR KVEÐJUR Til Isiendinga hvarvetna . . . Þér hafið rœkilega stutt að viðgangi vorum, alt frá upphafi vorra vega 1914, er vér höfðum aðeins tvo menn í þjónustu vorri, og fram til þessa dags, 1948, er vér höfnum nú tvær prýðilegar verzlanir og 21 innanbúðar þjóna, er allir eru reiðubúnir og fúsir að veita yður þjónustu. Sargent Pharmacy Limited PRESCRIPTION SPECIALISTS K. G. Harman - R. L. Harman • SARGENT AVENUE OG TORONTO STREET Winnipeg. Manitoba drepa þá ellegar snúa þeim til kristinnar trúar því að kirkjan lagði blátt bann við samneyti við heiðingja. Leiðangursmenn kom- ust norður fyrir Norðursetur og fundu ýmsa flakkandi Eskimóa, en annar varð ekki árangur af þeirri för. Verzlunin við Grænland var farin að minnka, þegar á stjórn- arárum Magnúsar lagabætis, sök- um einokunarinnar, enda voru settir á háir hafnartollar og bönn til að koma í veg fyrir verzlun einstaklinga. En þar við bættist, að norski flotinn stóðst ekki samkeppni við Englendinga, Hollendinga og þýzka Hansa- kaupmenn. Norsku skúturnar voru átakanlega úreltar; þær voru af gerð víkingaskipanna fornu, flatbotnaðar með hliðar- stýri, allsæmilegar, í hernaði, en óbrúklegar sem kaupskip. Norð- menn fylgdust ekki með tíman- um, og auk þess voru konungar Noregs um þessar mundir önn- um kafnir við ýmis verkefni nærlendis og höfðu lítinn áhuga á þessari fjarlægu nýlendu. Grænlandsknörrinn sást ekki við strendur Grænlands svo árum skipti og kornflutningarnir brugðust. Nýlendan var ekki gleymd, en 13. og 14. öldin voru tímabil umróts og breytinga, og Grænland lá utan alfaravegar. Sögurnar verða fáorðar um það, einungis íslenzkir annálar skýra Framhald á bls. 21 ANDERSON BROS. Um leið og við óskum íslendingum til heilla og hamingju á sextíu ára þjóðminningardags afmæli þeirra. Þá viljum við minna Argyle íslend inga og aðra á, að okkur er enn að hitta á sama stað, og við erum enn sem fyrr reiðubúnir að annast þarfir þeirra að því er FORD BIFREIÐAR SNERTIR. SELJA ÞEIM NÝJAR OG GJÖRA VIÐ ÞÆR GÖMLU. FIRESTONE TIRE, NORTH STAR BENZINE OG OLÍU. Páll og Snœbjörn Anderson Glenboro. Maniioba. Canada VERUM SAMTAKA Hamingjuóskir til íslendinga á sextíu ára afmæli þjóðminningardags þeirra á Gimli 1. ágúst 1949. frá T. W. Taylor Company, Limited Prenturum og bókbindurum STOFNSETT 1877 1 177 McDermoi Avenue WINNIPEG MANITOBA Bókband sem TAYLOR gerir er varanlegt!

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.