Lögberg - 28.07.1949, Qupperneq 2
18
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. JÚLÍ. 1949
Kosningar í Danmörku í haust
Ejtir ÍVAR GUÐMUNDSSON
Suður-Slésvíkurmálið svonefnda er enn mesta hitamálið meðal
danskra stjórnmálamanna. Afstaða Knud Kristinsens og vinstri-
manna (bændaflokksins) varð stjórn hans að falli í ársbyrjun
1948 og nú virðist, sem þetta sama mál geti valdið þingrofi og nýj
um kosningum í Danmörku þegar á þessu sumri, eða í haust.
Þjóðþing Dana kemur saman
til sumarfunda þann 21. júní.
Fulltrúar frá öllum stjórnmála
flokkunum, að kommúnistum
undanteknum, hafa undanfarnar
vikur setið á ráðstefnum til þess
að reyna að komast að samkomu-
lagi um sameiginlega afstöðu
flokkanna í Suður-Slésvíkurmál-
inu. En svo mikið ber á milli,
að sára litlar líkar eru taldar til
samkomulags áður en þing kem-
ur saman.
Deilt um leiðir að sama marki
Suður-Slésvíkurmálið hefur
verið mesta vandamál stjórn-
málaflokkanna dönsku frá því
stríðinu lauk. Þó eru danskir
stjónmálamenn sammála um
aðalatriðin í málinu, en þau eru
í stuttu máli þessi:
1) Að Dönum beri að styðja að
því, að Suður-Slésvíkurbúar fái
fullkomið skoðanafrelsi, réttihdi
til að lifa sínu eigin mennmgar-
5. S. Keenora
Regular Excursions to Norway House
THE SELKIRK NAVIGATION CO. LTD.
Redwood Ave.. Winnipeg PHONE 55 100
lífi og ákveða stjórnmálalega
framtíð sína.
2) Að Suður-Slésvíkurbúar fái
sjálfsákvörðunarrétt með þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
3) Að flóttamannavandamálið
verði leyst á viðunandi hátt.
í Suður-Slésvík búa um 350,-
000 manns, en álíka margir flótta
menn frá öðrum héruðum Þýska
lands eru þar búsettir nú og er
það hið mesta vandamál héraðs-
ins ,sem enn hefur ekki tekist að
leysa.
Núverandi ríkisstjórn Dan-
merkur, sem er minnihlutastjórn
jafnaðarmanna vill bíða átekta í
Suður-Slésvíkurmálinu. Sömu
skoðunar eru radikalir. En
vinstri flokkurinn hefur viljað
láta skríða til skarar þegar í stað
og hefur borið fram kröfu um,
að þjóðaratkvæðagreiðsla fari
fram meðal heimamanna í Suður
Slésvík um hvort þeir vilji sam-
einast Danmörku, eða verða á-
fram hluti af Þýskalandi. Flótta-
mannavandamálið sé leyst þegar
í stað.
Vinstri menn hafa jafnvel
gengið svo langt, að krefjast
þess, að þjóðaratkvæðagreiðsla
fari fram í Danmörku um hvort
Suður-Slésvík skuli sameinuð
Danmörku. Stefna vinstrimanna
er að nokkru studd af íhalds-
mönnum og smáflokknum Rets-
forbundet.
Loks hefur komið fram krafa
um, að Danir beiti sér fyrir því,
að í friðarsamningunum við
Þjóverja verði sett ákvæði um,
að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli
fara fram innan ákveðins tíma í
Suður-Slésvík um framtíð hér-
aðsins.
Jajnvel Slésvíkurbúar andvígir
danskri þjóðaratkvœðagreiðslu
Jafnvel Suður-Slésvíkurbúar
sjálfir, sem annars eru hlyntir
að héraðið sameinist Danmörku,
eru andvígir því, að þjóðarat-
kvæðagreiðsla fari fram um
málið í Danmörku. Þeir þykjast
vita, að slík atkvæðagreiðsla geti
ekki farið nema á einn veg, að
danska þjóðin hafni að taka á sig
slíka ábyrgð. — Vinstrimenn
standa einir að kröfunni um
danska þjóðaratkvæðagreiðslu í
málinu. En haldi þeir fast við þá
kröfu sína, fer ekki hjá því að
efna verði til nýrra þingkosn-
inga.
Meðal almennings í Danmörku
verður ekki vart mikils áhuga
fyrir þessu máli, en flestir eru
þeirrar skoðnuar, að það sé hæp-
inn gróði fyrir Dani, að Slésvík
verði innlimuð í danska ríkið.
Með því myndi aðeins skapast
nýtt vandamál þýsks minnihluta
í Danmörku. Einskonar „Sudet-
enhérað“, eins og í Danmörku og
Tékkóslóvakíu eftir fyrri heims-
styrjöldina.
Sumarþingið er venjulega
BEZTU ARNAÐARÓSKIR
til Islendinga á sextiu ára þjóðminningardegi
þeirra á Gimli 1. ágúst 1 949
GIMLI MOTORS LIMITED
Verzlar með
CHEVEROLET, PONTIAC, BUICK og OLDSMOBILE bifreiðar
og CHEVEROLET og G. M. C. vörubifreiðar.
Allar tegundir aj akuryrkju verkjærum.
CLETRAC CRAWLER TRACTORS
WESTINGHOUSE ELECTRICAL APPLIANCES
Fljót ajgreiðsla, Vingjarnlegt viðmót.
GIMLI MOTORS Liniited
G. S. MARTIN, jorstjóri
CENTRE STREET SÍMI NO. 23. GIMLI MANITOBA
stutt og var ráðgert að það sæti
ekki nema til fyrstu daganna í
júlí. En vegna þessa máls gætu
fundir dregist á langinn, því bú-
ist er við hörðum umræðum.
Einkum ef umræður yrðu upp-
haf að kosningabaráttu.
Stjórnin vill gjarna kosningar
Jafnaðarmannastjórnin danska
mun ekki hafa neitt á móti því
að efnt verði til nýrra kosninga
á þessu ári. Þó er talið líklegt,
að reynt verði að komast hjá
sumarkosningum. Vitað er að
þátttaka yrði lítil í kosningum,
sem fram færu á miðju sumri,
vegna sumarferðalaga almenn-
ings. Er því líklegt, að reynt
verði að draga kosningar fram á
haust.
Landsþing danskra jafnaðar-
manna kemur saman þann 2.
sept. og má búast við að það tæki
færi verði notað til þess, að
ákveðna stefnu flokksins og bar-
áttumál í kosningunum.
Aðalástæðan fyrir því, að
jafnðarmenn vilja fá kosningar
nú er sú, að þeir telja sig örugga
um fylkisaukningu.
Fylgishrun kommúnista
Vitað er að kommúnistar hafa
tapað miklu fylgi með þjóðinni.
Hófst fylgishrun þeirra fyrir al-
vöru með valdaráninu í Tékko-
slóvakíu í febrúar 1948, en síð-
an hefir afstaða kommúnista í
Danmörku til alþjóðamála verið
sú sama sem kommúnista annara
landa, auðsveipt þýlyndi við
Moskva. Við síðustu kosningar
töpuðu danskir kommúnistar
helming þingmanna í þjóð þing-
inu og hafa nú aðeins 9 þing-
menn. Er talið víst, að þeir
myndu tapa að minsta kosti
þremur þingmönnum til viðbót-
ar ef til kosninga kæmi á þessu
ári.
íhaldsmenn hafa heldur ekki
neitt á móti kosningum, þar sem
einnig þeir telja sér hafa aukist
fyigí-
Og jafnvel vinstri menn vilja
vinna til að fá úr því skorið með
kosningum, hverju fylgi afstaða
þeirra á að fagna með þjóðinni,
þótt þeir viti ,að þeir muni tapa
7 þingsætum, vegna breyttrar
kjördæmaskipunar með hlutfalls
lega sama atkvæðamagni og þeir
fengu í síðustu kosningum.
Framhald á bls. 22
VERUM SAMTAKA
Beztu óskir til íslendinga á
sextugustu þjóðminningarhátíð
þeirra á Gimli 1. ágúst 1949.
FRED BUCKLE
Þegar þér þurjið á „TAXI“ að halda þá símið til
SARGENT TAXI Ltd.
SIMI 722 401 WINNIPEG
For the Best
In Bedding . . .
GLOBE
• BEDS
• SPRINGS
• MATTRESSES
• DAVENPORTS AND CHAIRS
• CONTINENTAL BEDS
• COMFORTERS
• BEDSPREADS
• PILLOWS AND CUSHIONS
GLOBE BEDDING
COMPANY LIMITEO
WINNIPEG CALGARY
etc.
Bluenose Fishing Nets and Twines
Leads and Floals
Float Varnish
Kop-R-Deal Net Preservative
Netting Needles
Ice Jiggers
Ice Chisels and Needle Bars
Lead Openers
Rubber Clothing
Rope
Pyrene Fire Extinguishers and Refills
Marine Hardware
Marine Paints
G. E. Radios
Kuhls Boat Glues, Cemenls, Seam Fillers.
Woollen and Cotton Shirts
Overalls and Smocks
Wool Pants
Parkas
Leather Jackets
Park - Hannesson LtcL
Largest Distributors of Commercial Fishing
Equipment in Western Canada.
55 Arthur Street WINNIPEG, MAN.
10228-98th St. EDMONTON. ALTA.