Lögberg - 28.07.1949, Qupperneq 6
22
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 28. JÚLÍ. 1949
Aðalfundur Prestafélags Islands
Aðalfundur Prestafélags ís-
lands var haldinn 20. þ. m. í
Háskóla íslands, þar sem virð-
ist vítt til veggja og hátt til lofts,
eins og vera ber í slíkri stofnun.
Formaður Prestafélagsins
hinn vinsæli og ötuli prófessor
séra Ásmundur Guðmundsson,
hélt snjalla og ágæta ræðu til
prestanna, sem þar voru saman
komnir.
Lagði hann höfuðáherzlu á
það, — eins og allt starf hans
vitnar um, — að kirkja íslands
verði einhuga og samtaka.
Máske lýsir það séra Ásmundi
prófessor betur en margt annað,
að það er sami frjálshugurinn og
sama trúareinlægnin, sem þar er
fyrir, eins og þá, er við dáðumst
mest að ræðum hans, — og hlust
uðum og hugsuðum.
Það var ekki að öllu ósvipað
og þá er frændi hans, sr. Páll
Sigurðsson í Gaulverjabæ pré-
dikaði. Aldrei syfjaði æsku Is-
lands undir þeim ræðum.
Þá voru haldnar tvær ræður
um sálarlíf manna, — sjúkt og
heilbrigt, af þeim sr. Jakob Jóns
syni, presti í Hallgrímssókn í
Reykjavík, og dr. med. Helga
Tómassyni, yfirlækni á Klepps-
spítala. — voru báðar ræður
þessar ræður voru hinar merk-
ustu og ættu sem fyrst að kom
ast til þeirra, sem ekki voru þar
til staðar. Vonandi sendir Presta
The
LISGAR
Þar sem góðhugurinn ríkir.
óskar Islendingum góðs gengis og að sextugasti þjóð-
minningardagur þeirra á Gimli 1. ágúst 1949 verði
ánægjulegur.
H. PAULEY, ráðsmaður
SELKIRK
MANITOBA
Amaðaróskir
til íslendinga
á þjóðminníngardegi
þeirra að Gimli
1. ágúst 1 949.
Félaginu, sem býr til Kingfisher
netin kunnu og ágætu, og hefir
fullnægt kvöðum og leyst vanda-
mál fiskimanna að því er fiski-
net snertir um allan heim í ná-
lega 300 ár.
SÍMI 928 211
Gundry Pymore
THORVALDUR R. THORVALDSSON, ráSsmaður
60 Vicloria Slreet
WINNIPEG MANITOBA
félag Islands frá sér í riti sínu
jafn gagnmerkar athuganir og
fram koma í þessum ræðum.
Fundurinn var fjölsóttur og
lýsti miklum áhuga á verkefn-
um kirkjunnar.
Eins og vant er, var mest at-
hygli veitt hinum ungu prestum
kirkjunnar. Þeir voru allmargir
á fundi þessum, — en létu ekki
svo mjög til sín taka.
En það verður að segjast eins
og oss finnst vera: „að það er
varla hægt fyrir kirkju vora í
landinu, ef hún á ekki þjóna,
sem skilja kenningu hennar og
tilgang til hlítar“.
Því miður virðist, sem svo sé
að verða, að ungir starfsmenn
ísl. kirkjunnar, séu að varpa
allri áhyggju á það, sem áður
var, — en vilja sem minnst um
verðleika sjálfra sín og hæfi-
leika hugsa. Þetta er hættulegt
fyrir boðun kirkjunnar. — Kirkj
an verður að ala upp unga menn,
sem er nákvæmlega sama um
það, hvort fjöldinn er með þeim
eða ekki. — En um leið, — svo
örugglega höndlaða af Jesú
Kristi sjálfum, að þeir geti sagt
eins og postuli hans:
„Það er ekki lengur ég, sem
lifi, heldur lifir Kristur í mér“.
Það er þetta takmark, sem
þjóð vor þarf að keppa að, að
það sé Kristur, sem lifir í henni.
En þá verðum við að hugsa hátt
og kasta mörgum fordómum
burt. Og það er það, sem félag
presta á íslandi vill gera.
Það er ótrúlegur þróttur sem
sést, er prestar koma saman. En
enginn veit hver áhrif verða, er
beztu og einlægustu menn guðs
trúarinar leggjast á eitt.
Aðalfundurinn var einlæg
hvöt og óbrigðull skilningur í
hjartanu um það, hvað guðsríki
er.
Fundinum lauk með ávarpi
formanns, sr. Ásmundar Guð-
mundssonar prófessors. Hvatti
hann presta landsins, sem mætt
ir voru lögeggjan til að vinna
fyrir kirkjuvora. Séra Ásm. pró-
fessor er nú á tímum vissulega
einn af starfhæfustu og skiln-
ingsbeztu þjónum kirkjunnar.
Fundarmaður
TÍMINN, 24. júní
Kosningar í Danmörku í haust
Framhald af bls. 18
Jajnaðarmenn hafa orðið að
gefa eftir
Sem minnihluta stjórn hafa
danskir jafnðarmenn orðið að
gefa eftir, eða leggja algjörlega
á hilluna, mörg af stefnumálum
sínum. Og það er langt frá að
stjórnin sé örugg í sessi. Einnig
af þessum ástæðum vilja jafn-
aðarmenn freista að treysta fylgi
sitt og auka þingmannatölu í
nýjum kosningum, þótt ekki séu
neinar líkur til, að flokkurinn nái
meiri hluta aðstöðu.
Auk þess eru stórmál í upp-
siglingu og hörð gagnrýni á
stjórnina væntanleg, einkum í
sambandi við verslunar- skömt-
unar- og landvarnamálin.
Landvarnamálin
Með þátttöku sinni í Atlants-
hafsbandalaginu hafa Danir
skuldbundið sig til að koma
landvörnum sínum í betra horf,
en þær eru nú. Forystumenn
jafnaðarmanna kúventu í land-
varnamálnum í vetur. — Hans
Hedtoft forsætisráðherra var í
fyrstu á móti því, að Danir
gengju í Atlantshafsbandalagið
og gerði alt, sem í hans valdi stóð
til þess að koma á varnarbanda-
lagi Norðurlanda. Þegar það mis-
tókst sneri hann og flokksmenn
hans við blaðinu og hlutu enda
stuðning meginþorra dönsku
þjóðarinnar, einkum eftir að af-
staða Norðmanna varð kunn til
Atlantshafsbandalagsins.
Landvarnanefnd situr nú á
rökstólum og er búist við tillög
um frá henni með haustinu. Nú
rísa miklar deilur í því sambandi.
Aðalstuðningsflokkur stjórnar-
innar, radikali flokkurinn, hefir
frá upphafi verið andvígur hvers
konar hervæðingu og er það enn.
íslenzkir Byggingameistarar Velja
TEN-TEST i allar sínar byggingar
Þessi Insulating Board skara fram úr að gæðum
Seld og notuð um allan heim —
Fyrir nýjar byggingar, svo og til aðgerða eða
endurnýjunar fullnægir TEN-TEST svo
mörgum kröfum, að til stórra hagsmuna verð
ur notagildi þess og verð ávalt eins og vera
ber. Og Vegna þess að það kemur í stað ann-
ara efna, er ávalt um aukasparnað að ræða.
TEN-TEST hefir margfaldan tilgang sem
Insulating Board. Það veitir vörn fyrir ofhita
eða kulda, og tryggir jöfn þægindi hvernig
sem viðrar. Þessar auðmeðförnu plötur
tryggja skjótan árangur og lækka innsetn-
ingarverð.
HLÝJAR
SKREYTIR
ENDURNÝJAR
TEN-TEST
í sumarheimilum eða borgarbýlum, skrif-
stofum, fjölmennisíbúðum, útvarpsstöðvum,
samkomusölum og hótelum, tryggir TEN-
TEST lífsþægindi, útilokun hávaða og fylgir
yfirleitt fyrirmælum ströngustu byggingar-
listar.
Útbreiðsla og notkun um allan heim gegnum
viðurkennda viðskiptamiðlara, er trygging
yðar fyrir skjótri, persónulegri afgreiðslu.
Ráðgist við næsta TEN-TEST umboðsmann,
eða skrifið oss eftir upplýsingum.
LÆKKAR
KOSTNAÐ
VIÐ HITUN
insulating Wall Board
INTERNATIONAL FIBER BOARD LIMITED, OTTAWA
Wcstern Distributors ArmStrOIlg DÍStrlbutorS Ltd. WINNIPEG, MANITOBA
Og þótt vinstri menn, hægri
flokkurinn og Rets forbundet að-
hyltust víðtækar landvarnaráð-
stafanir, þá er ekki þar með sagt,
að þessir flokkar styddu land-
varnatillögur núverandi stjórn-
ar.
Landvarnamálið gæti því hæg-
lega orðið stjórn jafnaðarmanna
óþægur Ijár í þúfu.
Þykir ganga seint að afnema
höftin
Þriðja stærsta málið í dönsk-
um stjórnmálum en samt ekki
nauðsynlega það þriðja í röðinni,
eru kvartanir stjórnarand stæð-
inga um, að seint gangi að af-
nema höftin — skömtunina, inn-
flutningshöft og aðrar hömlur,
sem settar voru í stríðinu, eða
eftir það.
Það er rétt, að mikið hefir
verið aflétt síðustu mánuðina.
Skömtun afnumin á mörgum
nauðsynj avörum og innflutning-
ur allur frjálsari en hann var. Er
það fyrst og fremst Marshall að-
stoðinni að þakka, sem hefir
orðið Dönum til ómetanlegs
stuðnings og hjálpar til að reisa
við fjárhag þjóðarinnar. — En
háværar kröfur eru uppi um, að
það gangi óþarflega seint að af-
nema hömlurnar, og án efa verð-
ur það eitt af aðalárásarefnum
andstæðinga stjórnarinnar,
hvort, sem til kosninga dregur
eða ekki.
Fjárhagur Dana á traustum
grundvelli
En hvað, sem innanlandsdeil-
um milli stjórnmálaflokkanna
líður, þá er ekki hægt að neita
því, að fjárhagur Dana stendur
með _ blóma og er á traustum
grundvelli eins og er. Almenn-
ingi líður yfirleitt vel og viðreisn
in hefir gengið fljótar, en bjart-
sýnustu menn þorðu að gera sér
vonir um fyrst eftir styrjöldina.
Uppskeruhorfur eru góðar á
þessu sumri Aðaláhugamál
danskra stjórnmálamanna er að
afla þjóðinni meiri dollaratekna
fyrir afurðir. í þeim tilgangi fór
viðskiftamálaráðherrann vestur
um haf á dögunum. Ætlar hann
.m.a. að kynna sér möguleika á
smjörsölu til Bandaríkjanna. —
þjnnið er af kappi að markaðs-
öflun fyrir danska framleiðslu.
Áhrifaleysi kommúnista
tryggir vinnufrið
Áhrifaleysi kommúnista í Dan-
mörku tryggir vinnufriðinn þar
í landi. Atvinnuleysi er lítið og
danskir verkamenn hafa fengið
launauppbætur, sem samsvara
aukinni dýrtíð. — Framfærslu-
vísitalan er nú 181 stig, en var
107 stig 1939. Meðaltal launa var
árið 1939 kr. 1.43 á klukkustund,
en er nú kr. 2,86.
Framleiðslan hefir aukist jafn
og þétt og er vísitala framleiðsl-
unnar nú 135 miðað við 100 árið
1935 og 109 árið 1939.
Danskur almenningur fær nú
nauðsynjavörur, sem lengi hefir
skort. Má segja að verslanir all-
ar séu fullar af vörum. 1 stríð-
inu og fyrstu árin eftir stríð gat
almenningur lítið keypt og eyddi
þá fé sínu til skemtana. Þá voru
vetingahús öll yfirfull, en versl-
anir tómar. Nú hefir þetta snú-
ist við. Danir kjósa frekar að
kaupa sér nauðsynja hluti og
þægindi, en að eyða peningum
sínum í skemtanir ,enda bera
skemtistaðir þess merki. Einkum
kvarta veitinga menn yfir
dræmri aðsókn.
Danir eru sem kunnugt er iðin
og sparneytin þjóð, enda ein af
þeim Evrópuþjóðum, sem fljót-
ast hefir náð sér efitr erfiðleika
styr j aldaráranna.
Mbl. 19. júní.
Hagsýnt fólk situr jafnan
við þann eldinn sem bezt
brennur . . .
Af þessum ástæðum er
það, að viðskiptavinum
vorum fjölgar óðfluga
dag frá degi. Það kaupir
enginn köttinn í sekkn-
um, sem gerir sér það að
reglu, að verzla í
S//0P -Eaiy
STOPES LIMITED
Við samgleðjumst íslendingum á þjóðminn-
ingardegi þeirra á Gimli 1. ágúst 1949, og
þökkum góða við kynningu og vinsamleg
viðskipti þeirra, sem við höfum notið í lið-
inni tíð, og vonum að njóta í framtíðinni.
CAN/iCIAN
risti PCCDLCEKS LTD.
J. H. PAGE, forstjóri
N.W. CHAMBERS and HENRY
WINNIPEG SÍMI 86 651