Lögberg - 18.08.1949, Page 1
PKONE 21374
Ltot
,V*o'te
/-•io.a'fteirS
^oSS8®
*• ndereTS
S A Complele
Cleaning
Insliíulion
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 18. ÁGÚST, 1949
?KONE 21374 _ A
*-'cteaneTS A Complete Cleaning ; Institution
NÚMER 33
hjón eiga gullbrúðkaup að Lundar
FRÚ VILBORG GUTTORMSSON og V. J. GUTTORMSSON
Fyrstu þingkosningar í Þýzkalandi
síðan 1933, er Hitler kom til valda
Stórmerk
Síðastliðinn sunnudag
mátti svo að orði
kveða að allar götur
lægi til Lundar, en þá
um daginn var minnst
gullbrúðkaups þeirra
Vigfúsar J. Guttorms
sonar skálds og frúar
hans Vilborgar, er
langvistum hafa dval-
ið í því byggðarlagi
við góðan orðstír og
haft með höndum
giftudrjúga forustu
um mannfélagsmál;
svo er mælt, að um
700 manns muni hafa
tekið þátt í þessum
sérstæða mannfagn-
aði, og er slíkt talandi
vottur um traust og ástsældir
gullbrúðhjónanna í héraði.
Heimir Thorgrímsson hafði
með höndum veizlustjórn, en
ræðumenn voru séra Rúnólfur
Marteinsson, séra Philip M.
Pétursson, Paul Reykdal, Mrs.
J. F. Kristjánsson, B. E. John-
son, A. V. Olson, G. J. Guttorms
son, Kári Byron, Mrs. A. E.
Hackland, Gavin Wellis, A. S.
Bardal, Skúli Sigfússon, Chris
Haldórson, D. J. Líndal og Dr.
P. Guttormsson. Kvæði voru les-
in eftir Dr. Sigurð Júl. Jóhann-
esson, Ágúst Magnússon, Sigurð
Hólm og Ármann Björnson í
Vancouver. Einsöngva sungu
Óli Hjartarson, Mrs. G. Finn-
bogason og Miss Inga Bjarnason.
Öll börn gullbrúðhjónanna, 6
að tölu, voru viðstödd þetta
virðulega háíiðahald, en þau eru
Dr. P. Guttormson, Watrous,
Sask., John Guttormson Lund-
ar, Mrs. O. F. Eyjólfsson,
Lundar, Miss Fredrika Guttörm-
son, Winnipeg, Mrs. J. H. Mac-
farquar Toronto, og Dr. W. J.
Guttormson, Kamloops, B. C.
Fimmtán barnabörn voru einnig
viðstödd.
Sægur mikill samfagnaðar-
skeyta barst gullbrúðhjónunum
úr Canada og Bandaríkjunum,
þar á meðal bréfleg kveðja frá
Dr. Beck. Einnig bárust þeim
margar og verðmætar gjafir frá
vinum og sifjaliði. —
Brúðguminn hefir ort allmikið
strenghlýrra ljóða og hann hefir
haft mikla forustu um söngmál
innan vébanda byggðarlags síns,
en frú Vilborg, sál hússins, verið
verndarengill heimilisins og
varpað frá sér mildum bjarma
út um samfélag sitt.
Það er hverju byggðarlagi
mikill ávinningur, að eiga inn-
an takmarka sinna önnur eins
forustuhjón eins og Vigfús skáld
og frú Vilborgu.
María og George
Ostlund komin
María og George Östlund
komu hingað frá New York með
Geysi síðast. Með þeim er Pétur
sonur þeirra. Þau hjónin eru í
sumarfríi og er Morgunblaðið
spurði Maríu hvort hún hefði í
hyggju að syngja fyrir Reyk-
víkinga að þessu sinni, svaraði
hún: „Við erum í sumarfríi“.
George hefir mikil viðskipti
við ísland sem kunnugt er og
hefir komið oft hingað til lands
undanfarna mánuði.
Mbl. 21. júlí
Síðastliðinn sunnudag fóru
fram í Vestur-Þýzkalandi, sem
nú er orðið að lýðríki saman-
settu af ellefu fylkjum, almenn-
ar kosningar til sambandsþings;
á kjörskrá voru um þrjátíu milj-
ónir kjósenda og af þeim mann
fjölda greiddu tuttugu og fjórar
miljónir manna og kvenna at-
kvæði; í hinu nýja þjóðþingi
Vestur-Þýzkalands eiga 402
þingmenn sæti. Mest þingfylgi
hlaut hinn svonefndi Kristni
Demokrata-flokkur, en næstur
honum varð flokkur hægfara
jafnaðarmanna og má því nokk-
urn veginn víst telja, að þessir
tveiu. fl^kar myndi samsteypu-
stjórn.
Kommúnistar sættu hinum
gífurlegustu hrakförum og
fengu einungis 6 af hundraði
greiddra atkvæða. Þótt kosning
ar þessar væru sóttar af nokkru
kappi, fóru þær yfir höfuð frið-
samlega fram.
Ný sendiráðsbygging
1 ráði er að ameríska sendi-
ráðið hér, láti reisa sendiráðs-
byggingu á lóðinni Fríkirkju-
vegur 11, en það er stóra lóðin
sunnan Bindindishallarinnar.
Á fundi byggingarnefndar
bæjarins, er haldinn var fyrir
nokkrum dögum, var lagt fram
afrit af uppdráttum af fyrirhug-
aðri sendiráðsbyggingu. — Mbl.
Ný bók eftir Á. Óla
„Blárra tinda blessað land“
heitir ný bók, sem komin er út
eftir Árna Óla blaðamann.
Bregður hann þar upp skyndi-
myndum af því, sem fyrir augu
og eyru ber á ferðalagi um land-
ið, eins og hann kemst sjálfur
að orði.
Árni Óla er fyrir löngu orðinn
þjóðkunnur maður fyrir ritstörf
sín, og hafa þó ferðalýsingar
hans og frásagnir einkum þótt
frábærlega skrifaðar.
„Blárra tinda blessað land“ er
nokkurs konar framhald af bók
Árna „Landið er fagurt og frítt“,
sem kom út 1944. Sú bók hlaut
miklar vinsældir, seldist upp á
skömmum tíma og er nú ófáan-
leg. Má búast við að svo verði
einnig með þessa bók.
Bókin er í tíu aðalköflum og
bera þeir þessi nöfn: Á næstu
grösum, Ferð um Snæfellsnes,
Frá Dölum og Ströndum, Frá
Vestfjörðum, Ferð um Skafta-
fellssýslu, Frá Siglufirði, Sess-
elja í Skógum, Elsta mannvirki
á Islandi, Kapellan á Voðmúla-
stöðum, Skátamót á Þingvöllum
og Að lokum.
Bókin er prýdd fjölda mynda
efninu til skýringar. Hún er yfir
330 blaðsíður að stærð, og vönd-
uð að frágangi. Bókfellsútgáfan
gefur bókina út.
Aðalsteinn Kristjánsson
14. apríl, 1878 — 14. júlí, 1949
Þig, drenginn við Hörgána, dreymdi það jlest,
sem dró þig til framandi landa.
1 umhverfi breyttu þú blómgaðist mest,
í borginni nyrðra þitt starfsríki sézt
eins lengi og steinarnir standa.
Með einhuga kepni í æskunnar móð
og aldrei að breyta um né hopa,
þú ótrauður gekst þína ákveðnu slóð,
en undan þér samtíð gróf meira en hún hlóð,
sem spinnur vorn lífdaga lopa.
í bókunum þínum þú bregður upp mynd
með bjartsýni og athyglisgáfu
af Jankanna musterum: mannaðri synd —
af mönnunum beztu, sem hæst klifu tind, —
en landarnir svefnþungu ei sáu. «
Svo þökkin var goldin með þögninni mest,
sem þreytir hvern starfsríkan anda.
Og leiðirnar skildu. — Þér blessaðist bezt,
að búa þars Kyrrahaf speglandi sézt,
í sólskini suðvestur stranda.
Og nú ertu signaður svefninum þeim,
er sigrar í eilífa liði.
Og velkominn sértu til Winnipeg heim.
Hjá vildustu ættmönnum hvílir þú tveim
í eilifum allsherjar friði.
Þ.Þ.Þ.
HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON:
Feðgar á ferð
Ég gekk með þér, vinur, á vori
um vegleysu brattan stig.
Svo leikandi léttur á fæti
þú lékst þér í skriðum
og hoppaðir kringum mig.
Ó, æska, ég öfunda þig.
En stirður við brattann ég barðist
og brjóstið varð þungt og mótt.
Ég veit að þig gat ekki grunað,
hve gangan var erfið
og hversu ég mæddist skjótt
og mönnunum förlast fljótt.
Ég horfði á brúnina hœstu, „
sem heiðsólin glampaði á,
og vildi ekki láta þig vita,
hve vonlaust mér sýndist
að klífa brekkuna þá,
sem ofan í urðina lá.
En það var þó allt eins og ekkert
hjá ógnþrungnum sannindum þeim,
er fann ég í fyrsta sinni
að fjör minnar æsku var glatað.-
Mig langaði heim, —
úr glitrandi öræfageim.
Stórkostleg vegagerð
fyrirhuguð
Þær fregnir bárust frá Ottawa
þann 10. þ. m., að sambands-
stjórn sé staðráðin í að hefja
lagningu þjóðvegarins cana-
díska næsta vor, og löggjöf þar
að lútandi verði lögð fyrir næsta
þing, sem kemur saman þann
15. september næstkomandi;
ráðgert er að verkinu og kostn-
aðinum, sem það hefir í för með
sér, verði jafnað niður á fimm
ár; stjórnin mun nú vera í þann
veginn að gera stjórnum hinna
einstöku fylkja aðvart um þessa
fyrirætlan sína, því að þær
verða að standa straum af á-
kveðnum hluta kostnaðarins;
svo telst til, að kostnaðurinn við
þetta mikla vegarbákn hlaupi
upp á fjögur hundruð milj. doll-
ara. Framlag sambandsstjórnar
til lagningar veginum, mun
nema tvö hundruð miljónum
dollara; vegurinn verður nálega
fimm þúsund mílur á lengd.
Kjörinn forseti
Ó, sonur minn, sérðu ekki tindinn?
Þú, sigrar, ef gengurðu beint.
Og það hefði ég brotist í bernsku,
þó brött væri skriðan,
ef aðeins ég hefði reynt.
— Ó, vinur, ég sá það of seint.
Alþýðubl.
Giftingarafmœlis minnst
Á þessu sumri áttu þau Valen-
tínus Valgardsson og Þórunn
kona hans tuttugu og fimm ára
giftingarafmæli. — Þau hafa öll
þau ár búið í Moose Jaw, Sask.
þar sem Valentínus er kennari
við Moose Jaw Collegiate, en
hafa oftast á hverju sumri heim-
sótt Mikley ásamt börnum sín-
um því þar er frú Þórunn
frændmörg og öll fjölskyldan
mjög vinsæl.
fram veitingar og fólk skemmti
sér við söng og samtal fram eftir
kveldinu.
Sonur þeirra hjóna, Norman,
og eldri dóttir þeirra, Kristine,
ásamt manni hennar Stan
Walter og tveim börnum voru
viðstödd. Yngri dóttir þeirra,
Margrét Avis var við nám við
Saskatoon háskólann og gat því
ekki verið viðstödd.
Samkvæmt fregnum frá Stras
bourg hinn 11. þ. m., hefir Paul
Henry Spaak, fyrrum utanríkis-
ráðherra belgísku þjóðarinnar,
verið kjörinn forseti hins fyrsta
ráðgefandi þings Bandaríkja
Norðurálfunnar, sem sýnist að
vera fyrir alvöru í uppsiglingu.
Winston Churchill fyrrum for-
sætisráðherra Breta mælti með
kjöri Spaaks, og var hann kos-
inn í einu hljóði af fulltrúum
þeirra tólf þjóða, er þingið sóttu;
kosnir voru á fundi þessum eða
þingi, hvort heldur sem menn
vilja kalla það, fjórir varafor-
setar, þeir Layton lávarður fyrir
hönd Breta, Francois de Ment-
hon af hálfu Frakka, Stefano
Jacini frá ítalíu og Ole Bjoern
Kraft fyrir hönd Danmerkur.
Þessa áfanga í lífi þeirra var
minnst á þriðjudaginn 9. ágúst
með því að nánustu skyldmenni
og venzlafólk á eyjunni gerðu
þeim óvænta heimsókn. Helgi
K. Tómasson hafði orð fyrir gest
um, minntist tryggðar silfur-
brúðhjónanna við byggðina, árn
aði þeim heilla og afhenti þeim
minjagjöf fyrir hönd gestanna.
Ingibjörg Jónsson, systir silfur-
brúðarinnar, mælti og nokkur
orð til heiðursgestanna.
Frú Sigþóra Tómasson af-
henti frú Þórunni fagra gull-
nælu, sem kvenfélagið „Und-
ina“ hafði gefið Margréti sálugu
Tómasson á afmæli hennar 9.
ágúst 1913 — hún var þá sú eina
á lífi af stofnendum kvenfélags-
ins. Bað frú Sigþóra silfurbrúð-
urina að eiga næluna og geyma
í minningu um ömmu sína og í
minningu um þennan vinafund,
sem bar upp á sama dag og af-
mælisveizla ömmu hennar fyrir
36 árum.
Silfurbrúðhjónin þökkuðu
með hlýjum orðum þessa vina-
lieimsókn og alla vinsemd í
þeirra garð. Voru síðan bornar
Nýtt ráðhús
Nú er svo komið, að bæjar-
stjórnin í Winnipeg hefir fallist
á að kaupa lóð undir hið væntan
lega ráðhús borgarinnar; hefir
verið mælt með því að kaupa
landsvæðið milli Spence og
Balmoral stræta við Portage
Avenue, þar sem nú stendur
Wesley College. Kaupverðið
mun nema sjö hundruð þúsund-
um dollara.
A förum til íslands í næstu viku
Þeir feðgar Kristinn Guðna-
son verksmiðjueigandi og Har-
old sonur hans í San Francisco,
Kristinn Guðnason
Harold Guðnason
leggja af stað í skemmtiferð til
íslands þann 22. þ. m., og munu
dvelja rúman mánaðartíma á
gamla Fróni. Kristinn er stofn-
andi og aðalframkvæmdastjóri
kvenkjólaverksmiðjunnar um-
fangsmiklu og víðkunnu, Alice
of Californía, en Harold sonur
hans á sæti í framkvæmdanefnd
fyrirtækisins.
Kristinn Guðnason gefur sig
jafnframt mikið að andlegum
málum og hefir unnið mikið að
útbreiðslu Biblíunar í Norður-
Ameríku og eins á íslandi; hann
sendi ritstjóra Lögbergs nú í vik
unni eintak af Jóhannesar guð-
spjalli á ensku og íslenzku, sem
Gideons Biblíufélagið gaf út,
einkar laglegt að frágangi.
Þeir Guðnasonfeðgar ætla að
hafa með sér til íslands 15 hundr
uð eintök af áminnstu guð-
spjalli til ókeypis útbýtingar í
landinu. Kristinn bað þess getið,
að þeir, sem vildu eignast þessa
nýju útgáfu Jóhannesar guð-
spjalls gætu fengið ókeypis ein-
tak með því að skrifa Gideons
International, 212 B, Superior
Street, Chicago, Illinois, U.S.A.
#
Ennfremur lét hann þess getið,
að íslenzkir prestar gætu fengið
10 eintök hver hjá áminnstu
Gideonsfélagi.
Kristinn hafði góð orð um að
senda Lögbergi línu, er þeir
feðgar kæmu vestur úr Islands-
förinni.