Lögberg - 04.05.1950, Qupperneq 1
PHONE 21374
V>"e
Clea'aeTS
* Ltt^^jfl ST-° A Complele
Cleaning
Instilution
63. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 4. M A í, 1950
PHONE 21374
ClettUcTS
ndercTS
a Complete
Cleaning
Institution
NÚMER 18
Jóseph B. Skaptason fyrrum
umsjónarmaður fiskiveiðo
J. B. Skaplason
Síðastliðinn fimtudag lézt að
heimili sínu 378 Maryland Street
hér í borginni, Jóseph B. Skapta-
son 76 ára að aldri, mikilhæfur
maður, er mjög hafði komið við
sögu íslendinga í þessu landi
vegna hæfileika sinna og marg-
þættrar starfsemi.
Mr. Skaptason kom ungur til
þessa lands af Islandi, en ruddi
sér brátt hér braut til mikils
frama; hann starfaði í þjónustu
sambandsstjórnar og fyikis-
stjórnarinnar í Manitoba í ná-
lega fjörutíu ár, og var jafnan
kunnur að nákvæmni og skyldu-
rækni í embættisfærslu sinni;
hann var um langt skeið yfir-
umsjónarmaður fiskiveiða í
þessu fylki fyrir hönd sambands-
stjórnar, og eins eftir að fylkið
fékk í hendur sínar endurheimt
náttúrufríðinda sinna; h a n n
gegndi foringjaembætti í fyrri
heimsstyrjöldinni með kafteins-
tign, og á þeim vettvangi sem
annars staðar naut hann óskipts
traust.
Mr. Skaptason var mikill mað-
ur að vallarsýn og höfðinglegur
í framgöngu, frábærlega ástúð-
legur heimilisfaðir og gleðimað-
ur í hópi vina sinna; hann lætur
eftir sig ekkju, frú Jóhönnu
Guðrúnu, mikilhæfa ágætis-
konu, ásamt þrem dætrum, Mrs.
N. K. Stevens á Gimli, Mrs. H.
C. Dalman í Fort William og
Mrs. A. F. Wilson í Winnipeg,
svo og einn bróður, Mr. H. B.
Skaptason í Winnipeg og eina
systur, Mrs. Fred Johnson að
Gardar, North Dakota.
Útför þessa merka samferða-
manns fór fram frá Sambands-
kirkjunni í þessari borg á laug-
ardaginn var að viðstöddu miklu
fjölmenni undir umsjón Bardals.
Þeir séra Philip M. Pétursson og
séra Eyjólfur J. Melan fluttu
kveðjumál.
Úr borg og bygð
Þjóðræknisdeildin Frón þakk-
ar innilega þeim Dr. Rúnólfi
Marteinssyni, Eiríki Davíðssyni
°g Mrs. Th. Olson, fyrir bækur
og tímarit, er þau gáfu bóka-
safni deildarinnar.
Fyrir hönd Þjóðræknisdeildar-
innar Frón
J- Johnson, 735 Home Street
bókavörður.
■ír
Laugardaginn, 8. apríl, andað-
ist Jensína Guðmundína Ólafs-
dóttir, að heimili sínu , að Hecla,
Man., í Mikley. Banamein henn-
ar var hjartabilun. Hún var
fædd 16. sept, 1875, á ísafirði,
á íslandi. Kom til Canda árið
1914, dvaldi eitthvað í Winnipeg,
síðan að, Hnausum, en lengst af
í Mikley.
Hún skilur eftir tvo syni, Egg-
ert og Sigurgeir, og eiga þeir
heima í Prince Rupert í British
Columbia.
Séra Rúnólfur Marteinsson
flutti kveðjumálin í kirkju og
grafreit Mikleyjar-safnaðar, við
góða aðsókn og góða aðstoð
fólksins þar í bygð.
Alt bar vott um vinarþel hmn-
ar framliðnu, enda hafði hún
með góðri framkomu til orða og
verka, áunnið sér velvild þeirra,
sem hana þektu. Hún var hug-
ljúf, velvirk og stefnuföst í því,
sem gott var. Sterka fórnarlund
hafði hún gagnvart drengjum
sínum.
☆
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund sinn, þriðjudaginn
9. maí að heimili Mrs. Paul Sig-
unrdson, 134 Niagara St. Fundur
inn byrjar kl. 8 e. h.
' ☆
FUNDUR í Stúkunni Heklu
I.O.G.T. í kvöld, (fimtudag).
☆
W. J. Líndal dómari kom heim
í lok fyrri viku úr ferðalagi aust-
ur til Ottawa og Montreal. Lín-
dal dómari sat í Ottawa fund í
alþjóðaatvinnunefnd Canada-
stjórnar.
☆
Laugardaginn þann 22. apríl
voru gefin saman í hjónaband,
af séra L. W. Koehley, í Em-
manuel Lutheran kirkjunni hér
í bæ, þau Kenneth Hallgrímur
Hallson og Dorothea Esther
Koss dóttir M. og Mrs. Frederick
Koss. Kenneth er sonur Mr. og
Mrs. Paul Hallson. Til aðstoðar
voru Mr. Baldur Daníelson,
frændi brúðgumans og Miss
Linda Hallson systir brúðgum-
ans. Blómmeyja var Miss Ada
Thorkelsson systurdóttir brúðar
innar. Veizla var setin að heim-
ili foreldra brúðarinnar.
Brúðhjónin fóru flugleiðis í
skemtiferð suður í Bandaríki, en
heimili þeirra verður í Winni-
peg-
☆
Mr. B. Eggertsson kaupmaður
að Vogar, Man, var staddur í
borginni í fyrri viku.
☆
The Jon Sigurdson Chapter
I O D E will hold their next
Miss Snjólaug Sigurdson
Það mun ekki ofmælt, að Miss
Snjólaug Sigurdson hrifi þús-
undir hlustenda með hinum lýr-
iska og fágaða píanóleik sínum
í Civic Auditorium hér í borg-
inni á laugardagskvöldið var, og
eins yfir útvarpið; tóntúlkun
hennar var yndisleg, streng-
mjúk og heillandi.
Miss Sigurdson hélt heimleiðis
austur til New York í gær, þar
sem hún enn stundar nám og
gefur sig við píanókenslu.
Oliver Bjornson
Teksfr á hendur
nýja sfröðu
H. L. MacKinnon Company
Limited, Winnipeg, kunngerir
formlega, að það hafi ráðið í
þjónustu sína Mr. Oliver Björn-
son sem söluumboðsmann nú
þegar; starf hans verður fyrst
um sinn falið í því, að annast
um sölu og útbreiðslu Melrose
vörutegunda í Winnipeg' og inn-
an héraðanna á milli vatnanna.
Meðan á síðasta stríði stóð
dvaldi Mr. Björnson austan við
haf í þjónustu konunglega cana-
díska flugliðsins; hann er syst-
ursonur Mrs. Fred Bjarnason, en
Mr. Bjarnason var um mörg ár
í þjónustu áminsts félags og
seldi við góðum árangri hinar
ágætu Melrose vörur, og er víð-
kunnur meðal íslendinga.
íl. L. MacKinnon Company
Ltd. framleiðir Meirose kaffi,
Melrose te, bökunarduft og
ljúffenga bökunardropa.
meeting in the New Head-
quarters in the Winnipeg Audi-
torium York St, entrance on
May 5th Friday evening at 8
o’clock. ,
Þeir Gestur Pálsson og J. K.
Johnson frá Mikley hafa dvalið
í borginni undanfarna daga.
☆
Mr. G. F. Jónasson forstjóri
Keystone Fisheries Limited er
nýlega kominn heim úr ferða-
lagi til New York og Motreal.
Fullveldi Viefr
Nam sfraðfesfr
AURIOL Frakklandsforseti
hefir nú undirritað lögin, sem
veita Viet Nam frelsi innan
franska bandalagsins, og er því
búizt við, að önnur ríki muni
innan skamms veita stjórn Bao
Dai viðurkenningu.
Bao Dai hefir sagt, að viður-
kénning Rússa á hinum komm-
únistísku uppreisnarmönnum í
landinu muni ekki verða þeim
til framdráttar þar. í London
hefir embættismaður utanríkis-
ráðuneytisins lýst undrun og
vanþóknun Breta á þeirri ákvörð
un Rússa að viðurkenna upp-
reisnarmennina sem 1 ö g 1 e g a
stjórn landsins.
Mófrfrökuveizla
Á miðvikudaginn 26. apríl
söfnuðust 65 — 70 konur saman
við miðdegisverð í Marlborugh
hóteli í tilefni heimsóknar frú
Bentínu Hallgrímsson og dóttur
hennar frú Þóru Fawdry. Frú
Bentína dvaldi vestan hafs með
manni sínum, séra Friðrik Hall-
grímssyni, um margra ára skeið,
er hann þjónaði Argyle söfnuð-
um. Er hún hinn mesti aufúsu-
gestur hinum mörgu vinum sín-
um hér.
Frú Lauga Jóhannesson var
samsætisstjóri; frú Lilja Ey-
lands flutti borðbæn; frú Mar-
grét Stephensen ávarpaði heið-
ursgestina. Frú Pearl Johnson
skemti með söng. Ennfremur
fluttu frú Ingibjörg Jónsson og
frú Fjóla Gray stutt ávörp.
Frú Flóra Benson og frú
Lauga Jóhannesson önnuðust
undirbúning þessa myndarlega
samsætis og höfðu þær beðið
séra • Valdimar J. Eylands að
taka myndir af því. Hann gerði
það, og ávarpaði einnig heiðurs-
gestina einkar hlýlega.
Að lokum þökkuðu þær mæðg
ur með fögrum orðum þá virð-
ingu og þá vinsemd, sem þeim
hefði verið auðsýnd með sam-
sætinu.
Kolbeinn S. Thordarson
Vararæðismaður
íslands lófrinn
Þann 27. apríl síðastliðinn lézt
að heimili sínu, 1645 — lOth
Avenue N. Seattle, hr. Kolbeinn
S. Thorðarson vararæðismaður
Islands fyrir Washingtonríkið,
fæddur að Hofsstöðum í Hálsa-
sveit í Borgarfjarðarsýslu árið
1872, mikilhæfur atgerfismaður;
hann starfrækti um langt skeið
prentsmiðju í Seattle og vegn-
aði vel; hann tók mikinn og
giftudrjúgan þátt í mannfélags-
málum, og var heilsteyptur vin-
ur vina sinna; ekkja Kolbeins,
frú Anna, er ættuð frá Einars-
stöðum í Reykjadal, merk kona
og mæt.
Þ e i m Kolbeini vararæðis-
manni og frú var haldið veglegt
gullbrúðkaupssamsæti í Seattle
fyrripart síðastliðins nóvemþer-
mánaðar og voru þar viðstödd
sjö börn þeirra af níu ásamt
fimtán barnabörnum.
Útför þessa mæta manns fór
fram 1. yfirstandandi mánaðar.
My Growing Boy
Oh he is mine for such a little while
To hold and oherish—all my very own—
I live beneath the shadow of his smile
And feel his beam of love on me alone.
His childhood days, and now as growing boy,
I shall more keenly live when I am old,
When precious moments of this living joy
Become too sacred ever to be told.
When I am strong enough to set him free
That he may seek the jewel I have found,
Will recitations of ivhat used to be
Soothe empty arms with echoes of a sound?
My love is not confined to tirnely grace,
But springs to life in every little face.
FREDA McDONALD
Jón J. Bíldfell óttræður
Jón J. Bíldfell
Á mánudaginn, 1. maí, varð
Jón J. Bíldfell, fyrrum ritstjóri
Lögbergs, fyrrverandi forseti
Þjóðræknisfélags íslendinga í
Vesturheimi, heiðursmeðlimur
þess, og núverandi skrifarl, átt-
ræður. Var afmælisins minnst
með borðhaldi á Moore’s veit-
ingahúsinu hér í borginni, kl.
12:30 þann dag. Var þetta gjört
að tilhlutun Þjóðræknisfélags-
ins, og undir stjórn forseta þess,
séra Philips M. Péturssonar. Við-
staddir voru og aðrir meðlimir
núverandi stjórnarnefndar, og
nokkrir fleiri vinir. Frú Bíldfell
var þar einnig, og Hrefna, dóttir
þeirra, Mrs. McRae, og maður
hennar, sem er einn af yfir-
mönnum Hudson’s Bay verzlun-
arinnar hér. Dr. Rúnólfur Mar-
teinsson mælti bænarorð um
leið og sezt var að borðum, en
séra Philip flutti aðalræðuna,
sem var ávarp til heiðursgests-
ins. Fór forsetinn maklegum og
hlýlegum orðum um starf Jóns
í þágu Þjóðræknisfélagsins, en
hann var einn af stofnendum
þess, og hefir lengst af síðan set-
ið í stjórnarnefnd og gegnt ýms-
.um embættum þess og ábyrgð-
arstörfum. I lok ræðu sinnar las
forsetinn heillaóskaskeyti til
heiðursgestsins frá Bíldfell
lækni, syni hans í Montreal, og
frá Ragnari lögmanni Johnson,
og konu hans í Toronto, og af-
henti honum síðan pennasam-
stæðu að gjöf frá Þjóðræknisfé-
laginu. Þá töluðu þeir séra
Valdimar J. Eylands, og Arin-
björn S. Bardal nokkur orð, og
svo að síðustu heiðursgesturinn
sjálfur.
Jón J. Bíldfell er fyrir löngu
þjóðkunnur maður með Islend-
ingum báðu megin hafsins, enda
hefir hann víða komið við, á rit-
vellinum, og sem starfsmaður
þjóðræknis- og kirkjumála. Aust
an hafs mun hans lengi minnst
sem eins af stofnendum Eim-
skipafélags íslands, en hann sat
Ásfrralíumaður
bæfrir heimsmefr
Furuhasi
Ástralíumaðurinn John Mars-
hall, sem nú stundar nám við
Yale-háskólann í Bandaríkjun-
um setti nýlega heimsmet í 400
m. og 440 yards sundi, frjálsri
aðferð.
Tími hans í 400 m. var 4:33,1
mín., en eldra metið, sem Japan-
inn Furuhasi átti var 4:33,3. 440
yards synti Marshall á 4:34,8 og
bætti sitt eigið met í þessari
grein.
Afrek hans gefur um 1200 stig
samkvæmt sundstigatöflunni.
Met þessi setti Marshall í keppni
milli nokkurra háskóla vestan
hafs. Auk sundsins var keppt í
ýmsum greinum frjálsíþrótta
og kastaði þar heimsmethafinn
Fuch 1751 m. í kúluvarpi. Dick,
Philips stökk 1,97 m. í hástökki
og 1000 yard hlaup vann Stolt-
mann á 2:16,6 mín.
stofnfundinn í umboði Vestur-
íslendinga, og fyrir þeirra hönd.
Um allmörg ár var hann svo
meðlimur í stjórnarnefnd Eim-
skipafélagsins. 1 viðurkenningar
skyni fyrir störf hans í þágu
heimaþjóðarinnar, sæmdi ríkis-
stjórn íslands hann Stórriddara-
krossi Fálkaorðunnar, árið 1939.
Mun Jón jafnan talinn framar-
lega í hópi athafna og áhrifa-
manna með íslendingum. Öll af-
skipti hans af almennum mál-
um hafa verið auðkennd af
hreinskilni, trúmennsku og
festu. Hann hefir notið og nýtur
enn, almenns trausts og vin-
sælda. Vinir hans í Vesturálfu
og víðar, munu ljúka upp einum
munni, nú á áttræðisafmæli
hans, þakka honum fyrir vel
unnin störf, og gefa honum þann
vitnisburð að hann hafi reynzt
farsæll maður, góður íslending-
ur og í öllu hinn bezti drengur.
V. J. E.
Dr. Richard Beck
Ársfundur Ameríska-
Norræna fræðafélagsins
(The Society for The Advance-
ment of Scandinavian Study)
verður haldinn í St. Olaf Col-
lege, Northfield, Minnesota,
föstudaginn og laugardaginn 5.
og 7. maí. Félag þetta vinnur,
eins og nafnið bendir til, að efl-
ingu og útbreiðslu norrænna
fræða í Vesturheimi og skipta
félagsmenn þess í Canada og
Bandaríkjunum nokkrum hundr
uðum.
Á ársfundinum flytja ýmsir
háskólakennarar erindi um Norð
urlandamál og bókmenntir og
kennslu í þeim fræðum. Meðal
annars flytur Prófessor Jess H.
Jackson, College of William and
Mary, erindi um Melkólfs sögu
og Salomons konungs, en hann
hefir lagt sérstaka rækt við ís-
lenzkar riddarasögur.
Einnig flytur dr. Richard
Beck, fyrrv. forseti félagsins, er-
indi um Hannes Hafstein („Hann
es Hafstein, Statesman and
Poet“). Hann flytur einnig ræðu
á allsherjar samkomu kennara
og nemenda St. Olaf College um
efnið „Lögeggjan samtíðarinn-
ar“ (The Challenge of Today),
erindi um íslenzkar nútíðar bók-
menntir fyrir nemendur skólans
í Norðurlandabókmenntum og
um ísland (The Republic of Ice-
land) fyrir nemendur í sagn-
fræðideild skólans.
Forseti félagsins er Dean J.
Jörgen Thompson, St. Olaf Col-
lege, ritari Norsk-Ameríska
Sögufélagsins, auk hans eiga
sæti í stjórnarnefndinni kennar-
ar í germönskum fræðum við
ýmsa ameríska háskóla, meðal
annara prófessorarnir Lee M.
Hollander, University of Texas,
A. B. Benson, Yale University,
og Joseph Alexis, University of
Nebraska, sem allir eru kunnir
fyrir áhuga sinn á íslenzkum
fræðum.