Lögberg - 04.05.1950, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 4. M A í, 1950
FRÁ BLAINE, WASHINGTON
Síðastliðinn 16. apríl mun
mörgum í Blaine verða minnis-
stæður, og sérstaklega þeim, sem
elliheimilinu unna, þann dag
var mikill mannsöfnuður að
Stafholti, enda hafði verið mik-
ill undirbúningur, sérstaklega af
nefnd, sem samanstóð af öllum
konum forstöðunefndarmanna,
sem allir eiga sína konuna hver,
en ekki fleiri, þar að auki var
kvennarrefricC&ém samanstendur
af 3 konum frá Unitara kven-
félaginu, 3 frá Lúterska kvenfé-
laginu eldra, og 3 konum sem
hvorugu félaginu tilheyra, einn-
ig forstöðukona heimilisins og
hennar vinnufólk, þar að auki
voru nokkrar sjálfboðakonur,
svo að alls hafa verið um tutt-
ugu og fimm konur, sem allar
unnu af kappi við að veita
talsvert á fjórða hundrað manns,
sem veizluna sátu, og allir fengu
nógan og góðan mat. Mun þetta
hafa verið langfjölmennasta
veizla, sem hér hefir verið hald-
in um langt skeið.
Um 60 manns komu frá Seat-
Ég kaupi
hæzta verði gamla íslenzka
munl, svo sejn t6baksd6str og
pontur. hornspæni, ötskornar
brtkur, einkum af Austurlanill,
yg væri p& aaskllegt. ef unt væri,
?erð yrCl greln fyrir aidrl mun-
inna og hverjlr hefCu smfCaO þA
HALLDÖR M. SWAN,
912 Jexaie Avenue,
Winnipey - Simi 44 958
tle og álíka margt frá Belling-
ham.
Máltíðinni var lokið kl. 3.30
e. h. og þá hófst skemtiskráin.
Forseti, Einar Símonarson byrj-
aði skemtiskrána með lipurri
ræðu. Bauð alla velkomna, og
kvaðst vona að allir væru ánægð
ir með það sem af væri, og þakk
aði öllum fyrir komuna og þátt-
töku þeirra í að gera stundina
sem ánægjulegasta. Skýrði hann
frá að þessi samfundur væri til
að hrinda af stað fjársöfnun til
að fullgjöra heimilið, eins og
það var upprunalega fyrirhugað
af þeim Stoneson’s bræðrum,
með því að á þessu ári yrðu
byggðir báðir vængirnir sem áð-
ur hefðu verið eftirskildir og
þegar þeir væru fullgjörðir
mundi heimilið hýsa 54 vist-
menn, þetta myndi kosta tals-
verða fjárupphæð, en þetta yrði
líka í síðasta sinn, sem farið væri
fram á fjártillög. Þegar þessum
viðauka væri lokið mundi nefnd
in ekki hugsa til frekari bygg-
inga, að minsta kosti í nokkur
ár.
Þá söng Mrs. Loryaine Crist-
ianson og einnig síðar á skemti-
skráinni. Var henni vel tekið af
öllum og hennar fögru rödd.
Hún er tengdadóttir Sig. Her-
mans Christianson, bygginga-
Itobortani fo US?
/\ ™/Q\
" HaÍP/. \
fes-
TisnsfBusmess
is yoi/RBusmssf
. . . vegna þess að þær miljónir, sem
ferðamenn eyða í Manitoba, er ÖLLUM
í hag beinlínis eða óbeinlínis.
Ár út og ár inn, en þó einkum í ferða-
þjónustu vikunni frá 1. maí til 8. skuluð
þér gera alt, sem í valdi yðar stendur til
að auka ferðamannastrauminn til Mani-
toba. Bjóðið vinum yðar að heimsækja
Manitoba, og takið þannig á móti ferða-
mönnum í Manitoba, að þeir þrái aðra
heimsókn.
BUREAU OF TRAVEL AND PUBLICITY
DEPARTMENT OF INDUSTRY AND COMMERCE
Legislative Bujlding - Winnipeg. Manitoba
Ný
Landbúnaðar-gögn
Borgið fyrir þau með ódýru
Sveita-bœnda láni
borganlegt með þægilegum skilmálum
lán til allskonar nauðsynlegra jarðabóta fæst nú
hjá öllum útibúum Royal Bank of Canada. Færið
yður þetta rýmilega boð í nyt til aukinnar fram-
leiðslu og þægilegra viðurværis. Nýjar byggingar,
umbætur, viðgerðir og margskonar annað koma
undir þennan lið.
LEIÐIÐ RAFORKUNA
HEIM. Fáið aukin lífs-
þægindi fyrir yCur og fjöl-
skylduna. Þér getiC
borgaC fyrir þessi þægindi
meC aCstoC hins 6dýra
sveitabænda-láns. KomiC
tll viCtals viC oss.
THE
ROYAL
BANK
OF CANADA
meistara í Seattle, sem er einn af
starfsnefndarmönnum Heimilis-
ins.
Þá var næstur herra Hallur E.
Magnússon, forseti „Vestra“ í
Seattle. Afhenti hann $100.00 frá
Vestra í byggingarsjóð, talaði
nokkur örfandi orð. Allir kann-
ast við Hall og er hann prýði-
lega máli farinn, bæði í bundnu
og óbundnu máli, svo las hann
kvæði það, sem hér fylgir, og
vona ég að þú herra ritstjóri
birtir hvorutveggja.
Næst flutti séra Harold Sig-
mar ræðu. Lagði hann aðal á-
herzluna á skyldur barnanna til
foreldranna, og var það stutt en
góð ræða.
Fáar eða engar samkomur
hafa verið haldnar hér í Blaine
meðal íslendinga, þar sem Mrs.
Ninna Stevens hafi ekki verið,
og enn var hún á skemtiskránni,
og ávalt vekur hún gleði hjá á-
heyrendunum, bæði með sinni
fögru rödd og góða íslenzka
framburði, og ekki sízt með sínu
ljúfa viðmóti.
Mrs. Emily Magnússon Reed
annaðist undirspil við alla
söngva á þessari samkomu, enda
er hún verkinu vaxin.
Mrs. Jón Magnússon, frá
Seattle, færði heimilinu $100.00
frá Kvenfélaginu Eining, og er
það sjötta hundraðið, sem það
félag hefir lagt í þennan sjóð;
talaði hún mörg vingjarnleg orð
til Stafholts.
Næst var kallað á séra G. P.
Johnson, sem nú er búsettur í
Bellingham. Mælti hann af hrifn
ing, fyrir heimilismálunum,
enda hefir hann margt sporið
stigið fyrir það frá því fyrsta.
Hann messar einu sinni í hverj-
um mánuði að Stafholti á ís-
lenzku og kona hans veitir góð-
gæti með kaffinu, öllu messu-
fólki eftir messu og er það alt
gefið.
Séra Albert Kristjánsson vaf
næstur. Mæltist honum vel að
vanda, þó nú eigi hann við örð-
ugleika að stríða, hvað sjónina
snertir, en ekki varð það honum
til fyrirstöðu. Aðalkjarni ræðu
hans var: „Trúin er dauð án
verkanna". Trú að verki, starf-
andi trú. Hér skal þess líka get-
ið, að séra Albert messar að
Stafholti einu sinni í hverjum
mánuði, og er það gjöf frá hon-
um.
Þá var lesið bréf frá lúterska
kvenfélaginu „Líkn“ í Blaine,
með loforði um $100.00 til bygg-
ingarsjóðs og er það sjötta
hundraðið frá því félagi til Staf-
holts.
Anna og Ingvar Goodman
sendu bréf og þar með $100.00,
hvað mikið þessi hjón eru búin
að leggja fram bæði í peningum
og mörgum verðmætum mun-
um verður ekki upptalið hér, en
þau gera flestum betur.
Þá lagði Hildigerður Thorlak-
son fram $100.00 og er það ekki
hennar fyrsta framlag.
Úr borg og bygð
The Dorcas Society of the
First Lutheran Church is pub-
lishing a Cook Book similar to
the well known edition publish-
ed some years ago by the Ladies’
Aids of this church. This attrac-
tive book of recipes which costs
$1.50 plus postage is expected to
be available by the first of May.
Advance orders are now being
received by:
Mrs. Margret McDonald,
11 Regal Ave.,
St. Vital, Manitoba.
Miss Jenny Olafson,
22 Fermor Avenue,
St. Vital, Manitoba.
Sam Holm sendi inn $100.00
eins og hún hefir gert oft áður.
Mr. Jónas Jónsson og kona
hans gáfu $112.00 ofan á alt það,
sem þau hafa áður gert.
Kallaði forseti þá fram, starfs-
nefndarmenn, sem ekki héldu
ræður. og voru það þeir, Jakob
Westford, T. B. Ásmundson, Jó-
hann Straumford, Harold Ög-
mundsson, Fred J. Frederickson
og Sig Hermann Christianson.
Síðast var kallað á þann, sem
þetta skrifar. Helzt gekk það
sem hann sagði út á að svara
spurningu sem oft er spurð af
innlendum:
Hvers vegna þurfa íslending-
ar að hafa heimili, sérstaklega
fyrir íslenzka fólkið, eru ekki
hérlendar stofnanir, sem ríkið
annast fullgóðar fyrir íslend-
inga eins og annað fólk? Og
sagði hann að svarið væri NEI,
, því að hérlendu elliheimilin
væru ekki fullunandi íslenzku
öldruðu fólki. Hérlenda fólkið
kynni ekki vísurnar og kvæðin,
sögurnar og þulurnar íslenzku.
Það kynni ekki að búa til mat,
sem landaðum líkaði: Skyr,
rúllupylsu, kjæfu, hagldabrauð,
, pönnukökur og svo margt fleira;
I og það kynni ekki einu sinni að
búa til almennilega kjötsúpu.
því það kynnu ekki aðrir en ís-
lendingar, þess vegna þyrftum
við að hafa gamalmennaheimil-
ið Stafholt; þar liði landanum
betur, og þess vegna verðum við
að leggja eitthvað í sölurnar svo
. að þetta megi takast.
Leggja ríflega í Byggingarsjóð
Siafholis nú sem fyrst!
Var svo samkomu þessari slit-
. ið, með þakklæti forseta til allra,
, sem veizluna sóttu, og sérstak-
lega til þeirra, sem tóku þátt í
skemtiskránni, og þá ekki sízt
öllum konunum, sem svo mikið
höfðu lagt á sig, og sem þeim,
eins og ævinlega, fór svo vel úr
, hendi.
Var svo sungið Eldgamla Isa-
fold og My County it is of Thee
og með því lauk þessum þætti
í 'sögu Stafholts, og voru allir
glaðir og ánægðir, ekki sízt vist-
menn.
Blaine, Wash., 29. apríl 1950
A. D.
SAMKOMA
LAUGARDAGSSKÓLA ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
verður haldin í
FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU,
Victor Street,
LAUGARDAGINN 6. MAÍ, KL. 8:00 E. H.
SKEMMTISKRÁ:
1. SKÓLAKÓRINN O, Canada; Ríðum
heim til Hóla; Litli Gimbill; Lóan í flokkum
flýgur; Sá ég spóa.
2. LEIKUR Velvakandi og bræður hans
3. HARMONÍKU og GÍTAR SAMSPIL June
Elliston og Florence Clemenson.
4. LEIKUR Bjarndýrin þrjú
5. SKÓLAKÓRINN Kindur jarma í kofunum;
Krummi svaf í klettagjá; Pabbi.
6. LEIKUR Eggjakaupin
7. PÍANÓ SÓLÓ Ruth Horne
8. LEIKUR Bollalestur
9. VOCAL SÓLÓ Evelyn Thorvaldson
10. LEIKUR ....................Þyrnirós
11. ÁVARP Séra Philip M. Pétursson
12. SKÓLAKÓRINN Stóð ég út í tunglsljósi;
Þú bláfjallageimur; Frjálst er í fjallasal.
Samkomustjóri, Ingibjörg Jónsson; söngstjóri, Salome Hall-
dórsson; meðkennarar: Ragnhildur Guttormsson og Stefanía
Eyford; píanisti, Ruth Horne.
Aðgangur 25 cents, ókeypis fyrir börn innan 14 ára.
There’s no surer way to risk
a collision—plus legal liability
for damages—than to drive too
close to the car ahead. A good
rule is to stay two car lengths
hehind the car ahead for every
10 miles of speed you ar travel-
ing. Thus—30 miles an hour—
6 car lengths. 40—8 car lengths.
50—10 car lengths. Etc. Why not
read this rule to your entire
family?
Place Your Insurance with
J. J. SWANSON and CO. LTD.
308 Avenue Building,
Winnipeg, Manitoba.
☆
Howdy, Folks!
Put on your cowpoke regalia
and come prepared to kick up
your spurs and enjoy yourselves
Saturday night (May 6th) when
the Evening Alliance of the
Federated church collects all its
pardners for an evening of fun
in the church auditorium.
Spring round-up of entertain-
ment includes a Western rodeo,
tombola, spot dances, raffles,
games and stunts . . . all this and
a door prize too; Admission ten
cents.
☆
VEITIÐ ATHYGLI samkomu
barna og unglinga Laugardags-
skólans, sem er auglýst á öðrum
stað í blaðinu. Þau hafa, með
miklum áhuga, undirbúið þessa
alíslenzku skemtun og vænta
þess að fólk fjölmenni á sam-
komu þeirra og sýni þannig að
það meti viðleitni þeirra í þá átt
að læra íslenzkuna. — Bregðist
þeim ekki.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylanda.
Heimili 776 Victor Street. Sími
29017. —
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12:15 e. h.
☆
Árborg-Riverlon Preslakall
7. maí — Geysir, messa kl. 2
e. h. — Árborg, engin messa né
sunnudagaskóli vegna kirkju-
viðgerðar.
14. maí — Hnausa, messa kl. 2
e_ h. — Riverton, ensk messa kl.
8 e. h. B. A. Bjarnason
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 7. maí. —
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson
Kaupið
þennan
stóra
25c
PAKKA
AF
VINDL-
INGA
TÓBAKI
vegna
gæða
HEAR DR. A. H. S. GILLSON
President of the University of Manitoba
at a
CONCERT
in
LUNDAR, MANITOBA
on
Saturday Evening, May 13th# 1950
at 8.30 p.m.
The Following Part of the Programme Will Be In lcelandic:
Solos by Dorolhy Danielson and Mrs. Christie Thorsteinson
Recitations by Allan Howardson, Glady Sigurdson and
Leonard Danielson
A Chorus of Six Young Girls
The Male Voice Choir of Lundar will render Songs
Short addresses will be delivered by Miss Lillian Byron and
Dr. G. Paulson
Greetings will be extended by Reverend P. M. Petursson,
President of the Icelandic National League, and Dr. P. H. T.
Thorlakson, Chairman of the Executive Committee of the
Founders of the Chair in Icelandic Language and Literature
at the University of Manitoba.
The concert is sponsored by the I.undar Chapter of the Icelandic National
League. There is no admission charge but donations to the Chair in Icelandic
will be gladly accepted.
Luncheon Will Be Served After the Concert