Lögberg - 06.07.1950, Blaðsíða 1
PHONE 21374
u«^e
, w r
re« ^foB^-06
A Complele
Cleaning
Inslilulion
63. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. JÚLÍ, 1950
PHONE 21374
l/Ound A Complele
Cleaning
fnslitulion
NÚMER 27
Kveðjur fró Vestur-íslendingi
í heimsókn ó íslandi
Ásmundur P. Jóhannsson
Verður hólfóttræður ó morgun
Túngötu 7. Reykjavík,
23. júní, 1950. ’
Kæri Einar Páll:
Eg skrifaði þér á bréfspjald,
en fannst það ekki nóg, ég er
svo lukkulegur og ánægður hér,
að ég má til að segja þér frá því.
Til að byrja með þá líkaði mér
ágætlega að ferðast með flugvél,
betra farartæki getur ekki hugs-
ast, og ferðin gekk ágætlega, góð
umönnun af flugmanna hálfu og
góðir ferðafélagar. Þegar til
Keflavíkur kom kl. 3 að morgni
Fyrrum róðherra
látinn
Hon. James A. Glen
Á þriðjudaginn í fyrri viku
lézt að heimili sínu í Ottawa
Hon. James A. Glen fyrrum for-
seti í neðri málstofu sambands-
þingsins og síðar náttúrufríð-
indaráðherra, nálega stjötíu og
þriggja ára að aldri; hann flutt-
ist ungur hingað til lands frá
Skotlandi og hóf snemma nám
við Manitobaháskólann, og lauk
þar fullnaðarprófi í lögum með
hárri einkunn. Mr. Glen stund-
aði lengi málafærslustörf í bæn-
um Rossell hér í fylkinu, og naut
hvarvetna mikilla vinsælda og
trausts; hann hafði verið veill á
heilsu tvö síðustu ár ævinnar.
Útför Mr Glens fór fram í
Ottawa á föstudaginn að við-
stöddum fjölda þingmanna og
annara samferðamanna; meðal
heiðurslíkmanna voru þeir nú-
verandi forsætisráðherra, Mr.
St. Laurent, og fyrrum forsætis-
ráðherra, Mr. MacKenzie King.
Öryggi ó
þjóðvegum
Dómsmálaráðuneytið í Mani-
toba, sem jafnframt hefir um-
sjón með umferðareglum á bíl-
vegum innan vébanda Manitoba-
fylkis, hefir tekið sér fyrir hend-
Ur víðtæka fræðslustarfsemi
varðandi öryggi á bílvegum
fylkisins; frumkvæði að þessu
átti hinn nýlátni dómsmálaráð-
herra Manitobastjórnar, Hon. J.
O. McLenaghen, en honum til
aðstoðar var R. B. Baillie, yfir-
Umsjónarmaður með umferða-
reglum bílvega og þar að lút-
andi öryggisráðstöfunum.
Það er hörmulegt til þess að
vita, hve bílslys hafa orðið mörg
um manninum að bana í fylkinu
a undanförnum tímum, og hve
fala þeirra hefir gífurlega hækk-
að, sem sætt hafa margháttuð-
Um örkumlum; tíðum stafar
sh'kt af ógætni manna, og þar af
leiðandi verður það aldrei of
°ft brýnt fyrir þeim, sem aka
hílum, að gæta fylztu varúðar,
eigi aðeins sjálfs sín vegna held-
Ur og engu síður vegna hinna,
Sem um þjóðvegi ferðast um
sömu mundir.
þ. 15. júní, var dimm þoka yfir
öllu landinu, aðeins eitt fjall
stóð upp úr, líklega Snæfells
Jökull; þá kvað Dr. Sveinn
Björnsson:
Huldi þoka þylác og grá
þúsund mílna hafið,
undir henni Islandi lá
eins og dautt og grafið.
Vorum við þarna á sveimi ofar
skýjum og þoku í einn klt. og
var okkur þungt í skapi, svo
þegar Kapteinninn sagði okkur
að nú sneri hann til Prestwick
á Skotlandi — annars átti flugan
að fara beint til Oslo frá Kefla-
vík — þá kvað Sveinn:
Þennan endi á okkar túr
ekki í Gander spáðum
á Skotaströnd við skýjum úr
skyndilending náðum.
En svo leið okkur vel á Skot-
landi þessa þrjá daga sem við
vorum þar, Skotarnir eru skraf-
hreifnir og þægilegir, og við fór-
um víða um, sáum fæðingarstað
Burns og sveitina þar sem hann
vann að plægingu, og fórum til
Glasgow og Edinborgar. Eg var
þar í tvo daga, á gamlan ná-
granna þar frá Eriksdale, sem
ég hafði ánægju af að heim-
sækja.
Það voru með í ferðinni 4
stúdentar frá Reykjavík — 3
karlmenn og ein ung stúlka,
óskup inndæl, hún heitir Gyða.
—Samkvæmt ósk föður hennar
í Reyjavík, tók hún sér far heim
með m/s Hekla, sem þá var í
Glasgow ferðbúin til Rvíkur. Þá
kvað Sveinn:
Sem gyðja á guðastóli
hún Gyða er dásamleg,
skeytir ei heimsku hóli
en heldur áfram sinn veg.
Hvorki Ottó né Óli
elska' hana meir en ég.
Svo var send fluga með okkur
á sunnudags morgun j&nn 18.
og við náðum góðri lendingu í
Keflavík kl. 9 f.h. í inndælu
veðri; síðan hefir hver dagurinn
verið öðrum betri; allt leikur í
lyndi fyrir okkur, landið, sem
altaf hefir verið „fagurt og frítt“
hefir nú fengið nýja fegurð, því
hefir verið sýnd svo mikil rækt-
arsem i þessa áratugi síðustu,
smekklegar byggingar, blóma-
og grasgarðar, og ung tré sem
plantað hefir verið í þúsunda tali
um all borgina. Fólkið er frjáls-
Þann 12. júní síðastliðinn
lögðu af stað til íslands, þau
merkishjónin Ottó Kristjánsson
byggingarmeistari frá Gerald-
ton, Ont., og kona hans, frú Sig-
ríður Kristjánsson.
Mr. Kristjánsson kom ungur
til þessa lands og lagði fyrir sig
trésmíðar, ýmist í Winnipeg eða
Winnipegosis; en nú hefir hann
í allmörg undanfarin ár rekið
í stórum stíl bygingariðnað I fé-
lagi við son sinn og tengdabróð-
ur í bænum Geraldton í Ontario
legt, duglegt og elskulegt í við-
mótimóti, og vill allt gera til
þess að gera okkur vestan gest-
um heimsóknina ánægjulega svo
ekki verður betur áskosið. --
þætti vænt um að þú sendir mér
Lögberg hingað (og heim líka)
Eg skal borga fyrir það þegar ég
kem til baka til Winnipeg, og
sendu mér nú línu á bréf spjaldi.
Nú þykist ég vera búinn að bæta
fyrir skyssuna að vera að skrifa
þér á bréfspjaldi og á ensku þar
ofan í kaupið (eins og íslenzkan
væri ekki nógu góð.)
Með kærri kveðju til þín og
Ingibjargar,
Þinn einlœgur,
Ólafur Hallson, frá Eriksdale,
Manitoba.
Sig. Baldwinsson og Hallgrímur
Benediktson biðja að heilsa.
—Óli
Bandalag íslenzkra
skóta er 25 óra í dag
Bandalag íslenzkra skáta er
25 ára í dag. í því eru nú 44
kvenna- og drengjaskátafélög
með um 3500 félögum. Á þessum
aldarfjórðungi hefir bandalagið
leyst af höndum mörg verkefni.
Má þar nefna stórmál, eins og
stofnun og rekstur skátaskól-
anna að Úlfljótsvatni og sam-
einingu kvenna- og drengja-
skáta undir einni yfirstjórn 1944,
sem fylgzt er með af miklum á-
huga víða um heim.
Skátablaðið er málgagn banda
lagsins, og hefir það nú komið
út í fimmtán ár. Ennfremur gef-
ur bandalagið út Skátablaðið,
sem einkum er ætlað skátafor-
ingjum. I
Fyrstu stjórn bandalagsins
skipuðu Ársæll Gunnarsson,
Hendrik Thorarensen og Axel
V. Tulinus, sem var fyrsti skáta-
höfðinginn hér. Er stjórn bandaT
lagsins kosin til tveggja ára
nema skátahöfðinginn, sem kos-
inn er til lengri tíma.
Alþbl. 4. júní
Gefin saman í hjónaband í
Lútersku kirkjunni í Selkirk
þann 30. júní. Corp. Joseph
Spencer Hilliord Phillips, og
Anna Oliver, Selkirk. Brúðurin
er dóttir Mr. og Mrs. Guðmund-
ur Oliver, Selkirk, en brúðgum-
inn er af hérlendum ættum.
Fjölmenn veizla var setin í sam
komuhúsi Lúterska safnaðarins,
að giftingu afstaðinni. Ungu
hjónin setjast að í Winnipeg-
borg. — Sóknarprestur gifti.
fylki; þar hefir hann reist mörg
vegleg stórhýsi, svo sem póst-
húsið. Mr. Kristjánsson er ætt-
aður af Vestfjörðum, en á syst-
kyni í Reykjavík; hann er um
alt hinn mesti sæmdarmaður;
frú Sigríður er hin mesta dugn-
aðar og ágætiskona, hún er dótt-
ir þeirra Jóns Borgfjörð og konu
hans Guðrúnar í Árborg.
Þau Ottó og frú eiga mann-
vænleg börn, sem þau hafa kom-
ið til æðri menta.
Á fimtudaginn 7. þ. m. verður
Ásmundur P. Jóhannsson bygg-
ingameistari hálfáttræður; hann
er ættaður úr Miðfirði í Húna-
vatnssýslu; en með því að frá
uppruna hans og athafnalífi hef-
ir áður verið ýtarlega sagt í Lög-
bergi, verður því ekki frekar út
í þá sálma farið að sinni.
Ásmundur hefir um dagana
Fró Selkirk,
30 júní, 1950
Nú virðist voðinn af vatna-
vexti vera á enda sem betur
fer. Það er aðdáunarvert hvað
margir hafa lagt fram krafta
sína og fjármuni hinum nauð-
líðandi til hjálpar. Ekkert sann-
ar liðveizluna betur en eftirfar-
andi vísa Hjálmars frá Bólu:
„Víða til þess vott ég fann
þótt venjist oftar hinu.
Guð á margan gimstein þann,
sem glóir í mannsorpinu".
Sjaldan eða máske aldrei í
sögu þessa lands hefir almenn-
ingur sýnt og sannað betur, hvað
miklu er hægt að orka með ein-
lægum vilja. Ekki verður fram
hjá því gengið að margur er góð-
ur ef í raunir rekur. Hér í Sel-
kirk eru öll félög að safna fé til
hjálpar. Þjóðræknisdeildin sendi
25 dali fyrir nokkru síðan' og nú
er deildin að setja af stað arð-
berandi samkomu í stærsta sam-
komusal bæjarins.
Ég gat þess í síðustu línum, á
undan þessum, er ég skrifaði i
Lögberg, að ég hefði löngun til
að minnast á einstaka menn. Það
eru menn, sem að ég hefi per-
sónulega kynst og þekt í lengri
tíma. Einn af þessum mönnum
er Sigurður Goodman, formað-
ur fyrir Selkirk fiskifélagið. Það
félag hefir aðalstöð sína í Win-
nipeg. Sigurður er búinn að vera
þar yfirmaður í æði mörg ár.
Áður var hann í lögreglliði Sel-
kirkbæjar. Ennfremur hefir
hann gegnt áríðandi störfum í
Lúterska söfnuðinum í Selkirk
síðastliðin 22 ár, og lengi verið
gjaldkeri safnaðarins. Öll þessi
störf hefir Sigurður leyst af
hendi með mestu prýði og áreið-
anlegheitum. Kona Sigurðar er
mesta myndarkona, og heimili
þeirra fyrirmynd. Sigurður er
Húnvetningur að ætt.
Næsti maður, sem ég minnist á,
verið mikill málafylgjumaður,
staðið í fylkingarbrjósti og hlíft
sér lítt; fyrir þjóðræknismálum
okkar hefir hann barist eins og
hetja, og ann af alhug íslenzkri
tungu og íslenzkri þjóðmenn-
ingu.
Lögberg árnar afmælisbarn-
inu og fjölskyldu hans allra
hugsanlegra heilla.
er Borgfirðingur að ætt og upp-
runa, Jóhann Pétursson. Hann
er búinn að vinna fyrir bæinn í
28 ár. Nú er hann vatnsleiðslu-
stjóri bæjarins. Þrír verkfræð-
ingar hafa verið ráðnir hver eft-
ir annan til að ráða fyrir verk-
um bæjarins; nú eru þeir allir
farnir; altaf hefir Jóhanni verið
falin stjórn á bæjarverkunum,
þegar hinir hafa farið, og ætíð
hefir bærinn tekið verklegum
framförum, þegar Jóhann hefir
haft stjórnina með höndum.
Hann var lengi forseti Lúterska
safnaðarins. Ennfremur var
hann í byggingarnefnd kirkj-
unnar þegar hún var bygð. Hann
er mesta valmenni, og ekki er
kona hans síðri, hún er mesta
myndar- og ágætiskona. Synir
þeirra hjóna eru mestu skauta-
kappar bæjarins og hafa getið
sér hins bezta orðstírs, hvar
sem þeir hafa farið.
Þrándur í Gölu.
Útgerðarfélag
Akureyrar eykur
hlutafé sitf
Útgerðarfélag Akureyringa
h.f. hélt nýlega aðalfund með
hluthöfum í tilefni af fyrirhug-
uðum kaupum á nýjum togara.
Fundurinn var fjölsóttur og
samþykkti nær einróma að auka
hlutaféð eins og félagsstjórnin
bað um. Margir fundarmanna
skrifuðu sig fyrir fjárframlög-
um á fundinum.
Kaldbakur er kominn úr
þriðju veiðiför sinni fyrir Krossa
nesverksmiðjuna, og var skipið
með góðan afla.
Mjölvinnsla í Krossanesi geng
ur vel og veiða Akureyrartog-
ararnir þrír nú fyrir verksmiðj-
una. Alþbl. 1. júní
Mr. Hólmsteinn Dalmann
smiður frá Vancouver, kom
hingað til borgar á mánudaginn
á leið í heimsókn til móður sinn-
ar, sem búsett er á Lundar.
Fró Kóreustríðinu
Fréttir af vígstöðvunum í
Kóreu, eru svo þokukendar og
sundurleitar, að erfitt er að átta
sig á hvernig viðhorfi hernaðar-
ins þar um slóðir sé í raun og
veru farið; þó sýnist, enn sem
komið er, að herjum Rauðliða
hafi veitt nokkru betur, og að
því er síðast fréttist, eru fylk-
ingar þeirra smátt og smátt að
færa sig upp á skaftið suður á
bóginn, og eru að sögn, komnar
eitthvað um tuttugu mílur suð-
ur fyrir höfuðborg Suður-Kóreu,
Seoul. Norðanmenn flytja inn
jafnt og þétt skriðdreka frá
Mansjúríu, og margháttaðan
vígbúnað annara tegunda.
Bandaríkin hafa nú sent til
vígstöðvanna nokkurt fótgöngu-
lið og aukið flugvélakost sinn
að mun; amerísk og brezk her-
skip hafa sökt tólf vöruskipum
og vígasnekkjum Norðanmanna,
og gert önnur ónothæf.
Veðráttan í Kóreu hefir verið
óhagstæð upp á síðkastið, regn
og umhleypingar skiptst á, og
hefir það torveldað Bandaríkja-
mönnum flutninga í lofti frá
Japan.
Nú hefir stjórn Indlands boð-
ist til að gangast fyrir málamiðl-
un í Kóreu.
Mr. J. J. Swanson
Sjötugsafmæli
Þann 1. þ. m. átti Mr. J. J.
Swanson fésýslumaður og fast-
eignakaupmaður hér í börginni
sjötugsafmæli; hann hefir með
ráðdeild og reglusemi rekið fé-
sýslufyrirtækið J. J. Swanson &
Company, sem jafnt og þétt hef-
ir fært út kvíar við vaxandi orð-
stír og vinsældir.
Mr. Swanson hefir alla jafna
verið áhugasamur um mannfé-
lagsmál, hann hefir verið um
langt skeið einn af traustustu
máttarstólpum Fyrsta lúterska
safnaðar, gegnt árum saman fé-
hirðisstarfi fyrir elliheimilið
Betel, og tekið virkan þátt í
stjórnmálum, og hin síðari ár
hallast að stefnu C.C.F.-flokks-
ins; þá hefir Mr. Swanson einn-
ig um allmörg ár átt sæti í út-
gáfunefnd Lögbergs.
Mr. Swanson er maður félags-
lyndur og telur ekki eftir sér
nein spor í þjónustu hugðar-
mála sinna.
Lögberg árnar afmælisbarn-
inu og fjölskyldu heilla í bráð
og lengd.
Sunrise Camp News
Sunnudaginn 9. júlí kl. 2 e. h.
verður messað á ensku í Mem-
orial Hall. Söngflokkur ungling-
anna annast sönginn, en séra E.
H. Fáfnis, Dean, skólans og for-
seti Kirkjufélagsins prédikar.
Þriðjudagskvöldið 11. júlí kl.
8 (Standard Time) verður loka-
samkoma elzta flokksins í Camp.
Foreldrar gætu þá glatt börn
sín og notið skemtunarinnar.
Einnig eru allir velkomnir. öll
kvöld eru heimsóknarkvöld í
Camp.
Oító Kristjánsson — Frú Sigríður Kistjánsson
Dvelja ó íslandi um þessar mundir