Lögberg - 06.07.1950, Blaðsíða 3

Lögberg - 06.07.1950, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. JÚLÍ, 1950 3 Tuttugu flugferðir vestur yfir Grænlandsjöku! i sumar Business and Professional Cards RÖDD GUÐS. (Lausleg endursögn úr sænsku) ÞAÐ VAR UM VETUR. Eg gekk krókóttan skógarstíg, sem ég hafði víst aldrei gengið áður. Samt sem áður kom hann mér kunnuglega fyrir sjónir. Mér fannst ég kannast við hvern krók og hverja beygju. Skyldi ég annars hafa einhvern tíma gengið þennan stíg áður? Það hefir þá verið að sumarlagi fyr- ir mörgum árum. — Það var kalt í veðri, en kyrrt. Heiðbjart- ur, kaldur vetrardagur. Þegar ég hafði gengið all-langa leið, bar mig að lágum skógarkofa, er stóð þar í bjarkaskjóli. Fyrst á- leit ég, að kofinn væri mann- laus, en svo sá ég brátt, að úr reykháfnum rauk. Þar hlaut því einhver að búa. Já, alveg rétt. Hér býr hann. Eiríkur gamli í kofanum. Auðvitað. Eg leit inn. Hann sat á bekk framan við eld- stæðið. Hrukkótt andlit. Ógreitt hár. En svipurinn bjartur og góðlegur. „Jæja, svo menn eru þá hér á skemmti göngu,“ sagði hann íbygginn, þegar við höfð- um heilsazt. „Eg lagði leið mína af tilviljun hingað,“ svaraði ég. „Og svo leiztu inn til gamla mannsins, góða mín.“ Hann þú- aði mig, þó að við hefðum aldrei fyr sézt. Mér lá við að móðgast. ,Eg rakst hingað af tilviljun,“ sagði ég afsakandi. En Eiríkur gamli hristi höfuðið og sagði með alvöruþunga: „Nei, það skeður ekkert af tilviljun. Það er ein- hver tilgangur með flestu, — jú, öllu.“ „Ekki öllu,“ andmælti ég. „Jú, það er eitthvað um- hverfis okkur eða innra með okkur, sem stýrir gangi vorum. eitthvað gott, en stundum eitt- hvað vont. Ólík öfl berjast um okkur,“ mælti gamli maðurinn. „Máske,“ skaut ég inn í. „Meinið er, að við gefum þessu svo lítinn gaum,“ bætti Eiríkur við. „Við álpumst svo oft áfram í blindni. Til allrar óhamingju gefum við okkur ekki tómstund til að hlusta eftir röddunum, sem tala í sálunni. Ef við gjörðum það, færi margt öðruvísi en það gjör- ir- „Farðu í þessa átt,“ segir ein rÖddin. „Komdu hingað,“ segir önnur. Þannig hefst barátta inn- ra með okkur og úrslitin eru undir því komin, hvort við hlýð- um rödd vonzkunnar eða góð- leikans." „Samvizku sinni á sér- hver að hlýða,“ svaraði ég. „Menn segja það,“ varð Eiríki að orði. „En rödd Guðs á sérhver maður að hlýða og henni einni. Og rödd Guðs er skýr, og þarf því enginn að efast um hana.“ Eg laut höfði til samþykkis. Mér fannst ég skilja, hvað hann átti við. „Guð er allsstaðar,“ hélt hann áfram. „Hann er í blómun- um, skýjunum og hið innra með okkur. Guð er í alheimsgeimi °g Guð er í sjálfum oss. Bara, að við gættum þess sem vera bæri!“ Mér fannst ég verða að gjöra þessa athugasemd: „Að ég rakst hingað inn var þó einskær tilviljun og á ekkert skylt við innri köllun.“ Eiríkur leit alvar- ioga á mig og segir svo með mikilli áherzlu: „Ertu nú alveg viss um það? Verið gæti, að ein- hver þurfi á hjálp þinni að halda hér á slóðum og það hafi eftir allt saman verið Guð, sem stýrði göngu þinni hingað.“ Eg gat varla varizt brosi og mælti: „Hér er að minnsta kosti engum að hjálpa.“ „Jú, ég þarfnast hjálp- ar þinnar,“ mælti Eiríkur alvar- iega, „Svo er mál með vexti, að snemma í morgu^ vatzt annar fóturinn illa undir mér. Það kom mér reglulega illa. Eg er matar- íaus hér í kofanum, en ætlaði mér í kaupstað í dag. Nú kemst ég ekki spannarlengd hjálpar- faust. Eg get aðeins setið þar sem ég er kominn og beðið. Stundum líða heilir dagar — já, jafnvel vikur — án þess að hér heri gest að garði. Fyrst greip ^big sár kvíði, er ég hugsaði út | það. En brátt breyttist kvíð- irm í trúnaðartraust. Eg vissi Sem var, að Guði myndi kunn- ugt um, hvernig komið væri fyr- lr mér, og að hann myndi ekki bregðast mér. Það leið heldur eigi á löngu þangað til ég heyrði rödd hans mæla: „Vertu óhrædd ur, Eiríkur í kofanum, þér verð- ur bráðum hjálpað.“ Nokkru síðar leizt þú svo inn til mín. Eg átti von á þér eða öðrum. Og geturðu nú haldið því fram í al- vöru, að þig hafi borið hingað af tómri tilviljun?“ „Nei,“ svar- aði ég; „Það lítur út fyrir, að einhver hafi verið í ráðum með mér.“ „Já, það er vissulega satt,“ mælti Eiríkur. „Rödd Guðs hlýddirðu, að ósjálfráðu þó.“ Eg' gerði að meiðslum gamla mannsins til bráðabirgða og skipti nesti mínu milli okkar. Svo sneri ég aftur til bæjarins og lét vita, hvernig komið væri fyrir houm. Eg gekk sömu leið til baka, en nú fannst mér allt breytt. Eg hafði lifað ógleyman- lega stund. Eg hafði þreifað á, að skemmtiganga, sem stofnað var til án nokkurs sérstaks til- gangs af minni hálfu, var not- uð til að vinna vissum manni hjálp, þegar honum lá á. Er þessu ætíð svona farið? Stýrir hulin hönd hverju feti voru? Vissulega. — En hve samtalið við Eirík gamla bregður björtu ljósi yfir margt! Hann hefir sjálfur — að því er sýnist — lifað einn í kofa sínum í mörg ár. En — hefir hann verið einn? Nei! Hann hefir lifað í innilegu samfélagi við Guð. Heyrt rödd hans í sinni eigin sál. Treyst for- sjón hans og tekið svo öllu, sem honum bar að höndum án kvíða og möglunar. Er þessu svona far- ið um oss hin, er lifum í fjöl- menninu? Hve mörg af oss hlusta á Guðsröddina, sem stýr- ir oss í straumi lífsins? Héðinn frá Svalbarði. Aðalfundur Eimskipafélagsins AÐALFUNDUR Eimskipafé- lags íslands var haldinn í Eim- skipafélagshúsinu á laugardag- inn var, og voru þar mættir full- trúar, er fóru ifteð umboð rösk- lega þriðjungs hluthafa. Setti formaður félagsins, Eggert Claessen, fundinn, en fundar- stjóri var Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóri og fundarritari Tómas Jónson, borgarritari. Áður en gengið var til dag- skrár ávarpaði formaður félags- ins Árna Eggertsson lögmann frá Winnipeg og minntist starfs hans og föður hans, en hann þakkaði ávarp formanns, bar fram árnaðaróskir, þakkaði þann sóma er honum konu hans og dóttur hafði verið sýndur með heimboðinu og færði að lokum kveðju Ásmund- ar P. Jóhannssonar frá Winni- peg- Síðan flutti formður skýrslu um hag félagsins og fram- kvæmdir þess á liðnu ári, en gjaldkeri, Halldór Kr. Þorsteins- son, lagði fram reikninga. Úr stjórninni áttu að ganga Eggert Claessen, Guðmundur Ásbjörnsson, Richard Thors og Ásmundur P. Jóhannsson, en voru allir endurkjörnir. Guðmundur Vilhjálmsson hef- ir nú veitt félaginu forstöðu í tuttugu ár, og var þess minnzt á fundinum. —Alþbl. 13. júní Kennsla í íslenzku í Uppsölum Háskólinn í Uppsölum hefir veitt 5 þús. sænskar kr. til íslenzkukennslu við Uppsala- háskóla á næsta vetri. Hefir Jón A. Jónsson norrænufræðingur verið ráðinn til kennslunnar og mun hann flytja fyrirlestar um íslenzka tungu og ísl. bókmennt- ir við háskólan nen auk þess kenna norrænufræðingum nú- tíma íslenzku. Norrænufræðing- ar við Uppsalaháskóla eru á ann- að hundrað. —Tíminn, 7. júní Loftleiðir flyija 100 smálesiir af vörum iil franska vísindaleið angursins þar SAMNINGAR HAFA nýlega tekizt um það milli flugfé- lagsins Loftleiðir h.f. og frönsku leiðangursmannanna, sem vinna nú að rannsóknum á Grænlandi, að Loftleiðir flytji í sumar 100 tonn af varningi og vistum upp á Grænlandsjökla. Flutningar þessir munu hefjast núna um miðjan júnímánuð, og ferðirnar verða um tuttugu talsins. Eins og kunnugt er hefur franskur vísindaleiðangur unnið að rannsóknum nú að undan- förnu í bækistöðvum á Græn- landsjöklum. Hófust þær vorið 1948 og er áætlað að þeim verði lokið 1951. Tilgangurinn með þeim er mjög margbrotinn, m. a. að rannsaka áhrif Grænlands- jökuls á veðurfar og kanna fjöll- in undirjökulhettunni. Þetta rannsóknarstarf, sem kostað er af frönskum stjórnarvöldum, er að nokkru leyti tvíþætt, því ann- ar leiðangur undir sömu yfir- stjórn, hefur bækistöðvar á Adéliélandi, eigi alllangt frá suðurskautinu. Yfirmaður þessa rannsóknar- starfs er franski vísindamaður- inn Poul-Emile Victor, sem er arftaki og lærisveinn dr. Char- cot’s og fór 1 fyrsta rannsóknar- leiðangur sinn til Grænlands undir handleiðslu hans, þá 25 ára að aldri, en síðan hefur hann eingöngu unnið að svipuðum eða skyldum störfum og er nú heimskunnur. Holræsagerð er nær til vatnasvæðis á stærð við Reykjavík innan Hring- brautar. LOKIÐ ER AÐ mestu fyrri áfanga í mestu holræsagerð hér á landi, en það er lagning holræsis frá sjó allt upp að Þvottalaugum eða 1156 metra. Vatnasvæði Laugardals, er þessi holræsagerð nær til, er um 256 ha, og er það sambæri- legt við allt vantasvæði gömlu Reykjavíkur þ. e. innan Hring- brautar. 3000 lítrar á mín Hafist var handa með verk þetta um miðjan júní fyrra og nú má heita að verkinu sé lok- ið og aðeins eftir að slétta land, þar sem holræsin hafa ver- ið lögð. — Þvermál pípanna í aðalæð er 1.40 m. og getur sú leiðsla flutt 3000 lítra á sekúndu. Leiðslan er sett saman úr metra löngum pípum úr járnbentri steinsteypu, en þær eru fram- leiddar hjá Pípugerð Reykjavík- ur. — Þyngd hverrar pípu er 1800 kg. Hliðarleiðslur Beggja megin við aðalæð eru lagðar 12” pípur, sem ekki eru þéttar um samskeytin og flytja þær jarðvatn sem safnast sam- an. Sjálf aðalæðin er vatnsþétt. Þar sem aðalæðin gengur fram í sjó hjá Kirkjusandi er steypt utan um hana til varnar sjávar- gangi. Tíu brunnar er á aðalæð til þess að hægt sé að komast niður í hana til eftirlits. Á hlið- arleiðslum eru einnig brunnar með 100. metra millibili. Þríþætiur lilgangur Með þessari holræsagerð er það fyrst og fremst unnið að setja lækinn, sem rann eftir Laugardalnum í stokk, en í hann var leitt allt skólp og ann- ar óþverri frá byggðinni í daln- um. í öðru lagi þjónar holræsa- gerð þessi því augnamiði að ræsa fram væntanlegt íþrótta- svæði og þurrka það, en vinna þar er þegar hafin. 1 þriðja lagi, ef holræsagerðinni verðu hald- Hingað til lands kom Poul- Emile Victor 22. apríl í fyrra, og voru þá í fylgd með honum 35 vísinda- og aðstoðarmenn, en héðan fóru þeir til Grænlands, tóku land á vesturströndinni, þar sem nú heitir síðan Victors- höfn, og selfluttu þaðan varning alla leið inn á miðja Grænlands- jökla. Átta vísindamenn höfðu vetursestu í bækistöðvunum, sem settar voru upp þar, en hinir héldu heimleiðis í fyrra- haust. Poul-Emile Victor kom aftur hér við í vor, er hann var á leið til Grænlands og skýrði þá frá ýmsu athyglisverðu, auk árangs- ins af vísindarannsóknunum sjálfum, m.a. einangrunarefni því, sem notað er í hús leiðang- ursmanna, er veldur því, að inni er oft allt að 20 stiga hiti þótt gaddur sé úti. Héðan fór hann svo áleiðis til Grænlands og komst eftir nokkra hrakninga enn til Victorshafnar, og er hann nú að leggja þaðan af stað upp á jökulröndina. Tveir áfanga- staðir eru á leiðinni til aðal- stöðvarinnar, sem er, eins og fyrr segir, inni á miðjum jökl- inum á 72- grðu n. br. og 41. gráðu v. 1. í 850 mílna fjarlægð frá norðurpólnum. Enda þótt þetta sé fyrsti Grænlándsleiðangurinn, sem notar að verulegu leyti vélknú- in farartæki, þá eru örðugleik- arnir á að koma vistum og öðr- um nauðsynjum frá ströndinni inn á jökulinn, svo gífurlegir, að ákveðið var að flytja um 100 tonn loftleiðis héðan frá Islandi og varpa þeim úr flugvélum, sumu úr 10—15 metra hæð, en öðru í fallhlífum. Samningaumleitanir hófust fyrir allöngu milli Loftleiða h.f. og leiðangursmanna um, að Loft- leiðir önnuðust þessa flutninga og nýlega fór Alfreð Elíasson flugstjóri til Parísar, gekk þar frá samningunum og undirritaði þá í umboði félagsins. Eru þeir mjög hagkvæmir fyrir Lofleið- ir og mun framkvæmd þeirra í engu raska gerðum áætlunum, en veita örugga vinnu milli Ev- rópuferðanna. Fyrsta Grænlandsförin verður farin 15. þ. m. og verður „Geys- ir“ notaður til ferðanna, sem munu verða um 20. Birgðir verða fyrst fluttar til bæki- stöðvanna tveggja, sem eru milli aðalstöðvarinnar og jökulrand- arinnar, en síðar verður farið með um 65 tonn til aðalstöðvar- innar. Gert er ráð fyrir að ferð- unum verði lokið seint í júlí- mánuði. Hver ferð mun taka um 8—10 klukkustundir héðan og heim, ef 45 mínútur eru ætlað- ar til afhleðslu. Væri óskandi, að flutningar þessir tækjust giftusamlega, því heimsblöðin fylgjast vel með hinum franska vísindaleiðangri og munu vafalaust skýra greini- lega frá þessum íslenzka þætti hans og vekja þannig verðskuld- aða athygli á íslenzkum flugmál- um. —Alþbl. 10. júní ið áfram alla leið að Holtavegi næstkomandi vetur er gert mögulegt að byggja'vestan við Langholtsveg miðjan, en ætlast er til að byggðin verði í vestur en ekki til norðurs eins og hing- að til hefir verið. Bæjarverkfræðingur B o 11 i Thoroddsen, yfirverkfræðingur Einar Pálsson og Ingi Ú. Magn- ússon verkfræðingur fram- kvæmdu undirbúningsrannsókn- ir og áætlanir um verk þetta, en yfirverkstjórin hehfir Guð- laugur Stefánsson haft á hendi. —Vísir 7. júní Bus. Phone 27 »89—Res. Phone 36 151 Rovatzos Flower Shop Our Speelaltles: WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS Mlu K. Chrlstle, Proprletress Formerly wlth Robinson & Co. 233 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANITOBA SELKIRK METAL PR0DUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka út með reyknum — Skrifið símið til KELLY SVEINSSON 187 Sutherland Ave., Winnipeg Sími M 358 PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barristers - Soliciiors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 923 5«1 JOHN A. HILLSMAN. M.D.. Ch. M. 332 Medical Arta. Bldg. OBFICE 929 349 Home 403 288 Phone 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson 8UITE 6 — 652 HOME ST, Vlðtalstlmt 3—5 eftir hádegi DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk. Man. Office hrs. 2.30 6 p.m Phones: Offioe 26 — Res. 2S0 Offlce Phone Res Phone 924 762 726 116 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDQ. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment DR. H. W. TWEED Tannlœknir 508 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth 8t. Phone 926 952 WINNIPEG Office 933 587 Res. 444 389 s. A. THORARINSON BARRISTER and SOLICITOR 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Main Street WINNIPEG CANADA SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLE SERVICE J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPG. Fasteignasalar. Lelgja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgB. bifreiðaábyrgB, o. ■. frv. Phone 927 6*8 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrcefinoar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG Portage og Garry St. Phone 928 291 CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Fraeh and Frozen Fish. 311 CHAMBKRS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 78 917 A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkkistur og annast um llt- farir. Allur útbúnaður sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi 27 324 Heimilis talslmi 26 444 Phone 23 996 761 Notre Dame Ave. Just West of New Maternity Hospital Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790 —Kirkjuritið Stórfelldar verklegar fram kvæmdir í Laugardalnum

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.