Lögberg - 04.01.1951, Blaðsíða 4

Lögberg - 04.01.1951, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 4. JANÚAR, 1951 iögtjrrg MAN. Gefið Qt hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstj&rans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVEUNE, WINNIPEG, PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg’' is printed and publiahed by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorised as Second Clase Mail, Post Office Department, Ottawa Heimsókn biskupshjónanna Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, dvaldi hér í borg um jóiin, ásamt sinni ágaðtu og virðu- legu konu, fru Guðrúnu ir’étursdóttur, eins og þegar hef- ir verið skýrt frá. Sigurgeir biskup er maður vinmarg- ur hér um slóðir frá hinni fyrri h-eimsókn sinni, og víst er um það, að ekki rýrnuðu vinsældir hans meðal okkár við það, að í þetta sinn kom hinn prúði iífsförunautur hans meó honum í heimsókn. Sigurgeir biskup sat ekki auðum hondum þann tíma, sem hann dvaldi hér um slóðir; hann heimsótti elliheimilið Betel, flutti þar ræðu og hreif sólsetursbörnin með ljúfmannlegri umgengni sinni og hjartahlýju; hann prédikaði í báðum íslenzku kirkjunum hér í borg við geisimikla aðsókn, og hann flutti jafnframt gagnmerkar og vekjandi ræður um þjóðræknismál. Að aflokinni virðulegri guðsþjónustu á jóladaginn í Fyrstu uútersku kirkju, flutti Sigurgeir biskup fagra og áhrifamikla ræðu um nauðsynina, sem til þess bæri, aö styrkja andlegum megingjörðum bræðraböndin milli íslendinga austan hafs og vestan báðum aðilum til gagns og menningarauka; sjálfur kvaðst hann hafa orðið ómetanlegs styrks aðnjótandi vegna heimsókn- anna til íslendinga vestan hafs; að hitta vini frá fyrri dögum og eignast nýja vini, væri hverjum manni að sjáifsögðu óumræðilegt fagnaðarefni; slíkt opnaði manni ný útsýni og veitti nýjan starfsþrótt við lausn hinna daglegu viðfangsefna; hann lét í ljós fögnuð sinn yfir því, hve nú horfðist vænlega á um stofnun kenslu- stólsins í íslenzku og íslenzkum bókmentum við Mani- toba-háskóla, þakkaði þeim öllum, er svo drengilega hefðu að framgangi málsins unnið og kvað kenslustól- inn verða mundu íslenzka kynstofninum sú menningar- leg lyftistöng, er seint mundi fyrnast yfir; eining Is- lendinga um þetta mikla menningarmál væri svo fögur, að aðdáun hlyti hvarvetna að vekja; hann vék að hinni miklu lækningastofnun, er íslendingurinn Dr. T. H. P. Thorlakson hefði komið á fót og gengur undir nafninu Winnipeg Clinic, er fyrir sjö árum hefði ekki haft nema sex eða sjö lækna í þjónustu sinni, en nú væri hún orðin að stórveldi, er eitthvað um fimmtíu læknar störfuðu við; kvað hann þetta, meðal annars, bera fagurt vitni, framtaki Vestur-íslendinga. Sigurgeir biskup mintist í ræðu sinni á íslenzku vikublöðin vestan hafs og hið ómetanlega menningargildi þeirra; hvatti hann hlust- endur sína til stuðnings við blöðin og komst í því sam- bandi meðal annars að orði á þessa leið: „Blöðin ykkar mega ekki deyja, og ég trúi því, að þið látið þau ekki deyja; ef þau liði undir lok, myndi margt með þeim líða undir lok, sem ekki má deyja“. E]ins og þegar hefir verið vikið að, kvaðst Sigurgeir biskup hafa orðið aðnjótandi mikils styrks af kynnum sínum við Vestur-íslendinga; við höfum líka notið mikils styrks af hans hálfu og af heimsóknum okkar til ís- lands, þar sem beðið hafa okkar útréttar vinahendur; hann þakkaði presti Fyrsta lúterska safnaðar og fjöl- skyldu ársdvölina á Íslandi og kvað mikið gott hafa af slíkri heimsókn hlotist og hvatti um leið til aukinna, gagnkvæmra heimsókna af hálfu íslendinga beggja vegna hafsins, því með þeim hætti mundi bræðralags- brúin svo styrkjast, að hún stæði óbrotleg í aldir fram. Á undan áminstri ræðu biskups, flutti séra Valdi- mar fagra ræðu, þar sém hann þakkaði hinum tignu gestum Ijúfa viðkynningu og merkilegt menningarstarf, og árnaði þeim góðs brautargengis. Koma biskupshjónanna til okkar var yndisieg jóla- gjöf, er við geymum í þakklátum huga. n ísland er erfitt land en fagurt og aðlaðandi I •/# Samtal viS C. W. Baxter sendi- herra Breta, sem er á förum. Drengskaparorð „Það er ótrúlegt hvað bænd- urnir verða að leggja hart að sér til að yrkja jörðina við hin erfiðu veðurskilyrði. íslenzku sjómennirnir verða að vera þrek menn miklir til að sigrast á hin- um óblíðu náttúruöflum, á stormasömu hafi við klettótta strönd. En einmitt vegna dugn- aðar síns og þrautseigju nýtur íslenzka þjóðin virðingar þeirra, sem henni fá að kynnast. Þannig er það að minnsta kosti í mín- um augum“. Þetta mælti C. W. Baxter, sediherra Breta hér á landi, er ég braut upp á því við hann á dögunum, að hann segði nokkur örð hér í blaðinu í kveðjuskyni, en sendiherrann lætur nú af em- bætti hér eftir þriggja ára dvöl. „Þegar kona mín og ég förum frá íslandi, minnumst við fyrst og fremst góðra kynna okkar við íslendinga og þeirrar vináttu, er við höfum hvarvetna mætt frá því að við stigum hér á land“,1 segir sendiherrann. Og það vill svo til, að hinir mörgu íslend- ingar, sem kynnst hafa áendi- herrahjónunum brezku, munu einmitt minnast þeirra fyrir það sama, hlýhug þeirra og vináttu. Baxter sendiherra er, eins og allir vita, sem til hans þekkja, ímynd hins brezka prúðmennis, bæði til orðs og æðis. Kynnlisl Agli Skallagrímssyni á íslenzku. Eitt af því, sem Baxter sendi- herra hefir iðkað í tómstundum sínum á íslandi, er lestur forn- sagnanna íslenzku. Hefir hann lesið þær flestar, eða allar, sem þýddar hafa verið á enska tungu nema Egils-sögu Skallagríms- sonar, sem hann las á frummál- inu. „En vitanlega með aðstoð orðabókar“, bætir sendiherrann við með sínu alkunna lítillæti, því ekki er hrokanum fyrir að fara. „Það er tiltölulega auðvelt að komast inn í að lesa erlent mál“, heldur hann áfram, eins og til að afsaka að hann les íslenzku. „En erfiðara hefir reynst að læra talmálið, enda tækifærin fá til æfinga vegna þess, hve margir Islendingar tala ágæta ensku. Hitt hefir mér ekki geng- ið eins vel, að komast upp á að borða alíslenzkan mat, þegar frá er skilinn ykkar ágæti fisk- ur. Það væri helzt hangikjöt og svo vitanlega skyrið. En skyri hafði ég raunar kynnst áður, því þegar ég var 1 Persíu, vand- ist ég rétti, sem er mjög líkur skyrinu ykkar“. í fornnorrænum sið var drengskaparorðið í slík- um hávegum haft, að það var í raun og veru skoðað sem algilt innsigli hins sanna manngildis; sá, sem brást því átti ekki sjö dagana sæla og var að jafnaði flæmdur úr hverjum griðastað; og þótt margt hafi breytzt frá fyrri tímum og annarlegur skilningur lagður í eitt og annað, er þó sýnt, að drengskaparorðið er hvergi nærri aldauða með norrænum mönnum, eins og nýleg um- mæli aðalritara sameinuðu þjóðanna, Tryggve Lie, bera svo glögg merki um, en þau lúta að hinni siðferðilegu ábyrgð hinna sameinuðu þjóða gagnvart öryggi Suður- Kóreu lýðveldisins, er fyrst leit dagsljósið og stofnað var í skjóli þeirra. „Við megum ekki láta það viðgangast“, sagði Tryggve Lie í nýlegri ræðu, sem hann flutti í Osló, „að neinu stjórnarkerfi, hvort heldur það ber á sér svip kommúnista, fasista, sósíalista eða kapitalista, sé þröngvað upp á nokkra þjóð án hennar eigin vilja með hervaldi, en einmitt þetta væru kommúnistar nú að gera, eða reyna að gera í Suður-Kóreu, þvert ofan í skýlaus fyrirmæli sáttmálans, er sameinuðu þjóðirnar bygðu tilveru sína á“. Aðalritarinn var síður en svo myrkur í máli og lagði ríka áherzlu á gildi drengskap- arorðsins varðandi vernd Suður-Kóreu; lét hann þá þannig um mælt: Sameiginlegar hugsjónir og arfur. Baxter sendiherra er fæddur í Skotlandi, en fluttist þaðan, eftir að hann komst á legg, til Suður-Englands og mun nú setj- ast að í húsi sínu í hinu fagra héraði, Sussex, um 80 km. frá London. Þegar talið berst að skyldleika Islendinga og Skota, segir sendiherrann: „Já, og auk hugsanlegra ætt- arbanda eiga íslendingar og Bretar margt sameiginlegt. — Báðar þjóðirnar eru hreyknar af síum gömlu lýðsæðisþingum og virða lýðræðið. Með báðum þjóðum eru mannréttindi í há- vegum höfð, þar sem frelsi ein- staklingsins og alþýðumanna er virt og þykir sjálfsagt. Meðal annars af þessum ástæðum er hér gott að véra“. Áhugasamur um slysavarnamál. Það er alkurina að berzi sendi- herrann hefir haft mikinn á- huga fyrir slysavarnamálunum íslenzku og hefir lagt þeim meira lið, en margir vita, því að honum er ekki að skapi að flíka því, sem hann gerir til stuðnings á- hugamálum sínum. En þegar brotið er upp á starfi Slysa- varnafélags íslands og björgun manna úr sjávarháska hér við land er auðséð að hreyft er við áhugamáli Baxters sendiherra. „Það vildi svo til, að skömmu eftir að ég kom hingað til lands, vann björgunarsveit Slysavarna félags Islands eitt mesta björg- unarafrek, sem sögur fara af hér við land. — Þeir sjómenn sem komust af togaranum „Dhoon“, er strandaði við Látrabjarg, stóðu hér í herberginu, sem við erum nú í og sögðu mér frá hin- um frábæra dugnaði og fórnfýsi íslendinganna. Síðar er ég fór til Patreksfjarðar, sá ég strand- staðinn. Það var að sumarlagi, en samt gat ég gert mér í hugar lund hvert þrek hefir þurft til að bjarga skipbrotsmönnunum úr fjörunni upp bjargið, sem þá var allt freðið, í hamslausu veðri, hina löngu skammdegis- nótt. Síðan hafa íslendingar oft bjargað brezkum sjómönnum úr sjávarháska og það hefir fallið í minn hlut að votta þeim og Slysavarnafélaginu þakkir að- standenda og útgerðarmanna í Englandi“. „Og þau embættisverk hefi ég ávallt unnið með hinni mestu gleði og ánægju“. Hefði viljað ferðasi meira um landið. Baxter sendiherra sér eftir einu atriði í sambandi við dvöl sína á íslandi, en það er, að hafa ekki haft tækifæri til að ferðast meira um landið, en hann hefir gert. Margir útlendingar, sem starfað hafa hér á landi lengur en sendiherrann, hafa þó séð minna af landinu en hann. Sendiherrahjónin hafa ferðast til Norðurlandsins og um allar nærsveitirnar oft og tíðum. Einn ig til Patreksfjarðar,, er björg- unarmennirnir frá Látrum voru sæmdir heiðursmerkjum og heið ursskjölum fyrir björgunaraf- rek sitt. Auk þess hefir sendi- herrann stundað laxveiðar í án- um í Borgarfirði og unað sér vel við þá íþrótt. Börn sendiherrahjónanna, sem eru í skóla, hafa komið hingað til lands öðru hvoru og ávallt í sumarleyfum sínum. Hafa þau ferðast víða um landið og mikið fótgangandi. Baxter-hjónanna mun lengi verða minnst hér á landi sökum alúðlegrar framkomu þeirra og gestrisni þeirra í sendiherrabú- staðnum að Höfða, sem margir hafa notið. Island hefir með þeim sendiherrahjónunum eign- ast einlæga vini og hauka í horni. Hlýleg kveðjuorð. Það sést bezt, að ekki er farið með kurteisishjal eitt, er hlý- hugur sendiherrahjónanna brezku er nefndur, að þau báðu blaðið fyrir eftirfarandi kveðju- orð til íslendinga. „Við höfum notið dvalar okk- ar hér á íslandi í ríkum mæli. Hér höfum við eignast góða vini, sem við munum aldrei gleyma. Við tökum með okkur héðan á- nægjulegar minningar og við óskum íslenzku þjóðinni gæfu og gengis og að allt megi ganga henni í haginn í framtíðinni“. —Mbl. 29. okt. Hundrað ára biblíuminning Biblíufélagið vinnur að undirbúningi að nýrri biblíuúigéfu. Mánudaginn 13. þessa mánaðar var haldinn aðalfundur Hins íslenzka biblíufélags, sem stofnað var 1815, og er elzta starfandi félag í landinu. Starfsemi félagsins hefir aldrei lagst niður allan þennan tíma. Þrátt fyrir háan aldur eru ekki ellimörk á félaginu. Félagatalan hefir aukizt mikið á síðari árum og starfsemi þess að sama skapi. Félagið hefir þrívegis annast útgáfu á biblíunni, þar af tví- vegis í heild, og séð um þær út- gáfur, sem prentaðar hafa verið erlendis, sagði Sigurbjörn pró- fessor Einarsson, sem tíðinda- maður Vísis leitaði upplýsinga hjá um félagið. Ennfremur fór- ust prófessornum orð á þessa leið: „Fyrir fáum árum var stofnað alþjóðasamband allra biblíufé- laga í veröldinni og var það gert fyrir forgöngu brezka biblíufé- lagsins og hins ameríska. Við höfum gengið í þetta samband og með hliðsjón af því breytt nokkuð skipulagi félagsins. Erlendis starfa þessi félög þannig, að lagt er kapp á að þau séu fjöldafélög og félags- menn styrktarmenn, með því að greiða árgjald, sem er lágt. Mun- um við reyna að koma á þessu fyrirkomulagi hér. Ný lög end- urskoðuð, voru samþykkt á aðal fundinum. Aðeins einu sinni áð- ur á hinu langa æviskeiði sínu WORTUERIV CÆLIFORMA I^ewslelter CHRISTMAS—the worship of Christ! The wise men of old felt this way about it, and ever since wise people have learned to love the philosophy of this truth. Even in 1950 the best Christmas wish we can extend to you, one and all, is that you may exper- ience the reality of this worship in your hearts at this time so that 1951 may indeed be a blessed landmark in your lives. For those of you who were not able to attend our Home Festi- val of Christmas Carols, English and Icelandic, on Dec. 24th, we send you herewith a few of the old, old songs, the ones we loved to sing when we were young. Let us sing them again this year so that the message they bring will flood our hearts with praise and thanksgiving( “for unto us is born this day a Saviour, who isChrist the Lord.” If you can come, be assured of a double welcome! ☆ Born to:-Mr. and Mrs. Johann Hannesson, a son, Sigurður, on October 2nd. Dr. and Mrs. Jón' Love Karlsson, a son, Erik Allen, on Dec. 3. Mr. and Mrs. Thomas E. Croak, a son on Dec. 16th. Congratulations and best wishes to these happy home-makers. „Sameinuðu þjóðirnar settu áminst lýðveldi á lagg- irnar og þær béra ábyrgð á vörnum þess og öryggi, jafnvel þó slíkt kunni að leiða til stríðs við hið nýja, kommúnistíska Kínaveldi“. Norrænir menn vilja ógjarnan ganga á gefin loforð. We are happy to report that George DeYoung, who had been invaliding at the Southern Paci- fic Hospital, S. F. since Oct. 7th, returned to his home in Los An- geles on Dec. 7th. Mrs. DeYoung (Wilma) is a Thorvaldson. ☆ On Dec. 9th, Jack and Olive Brown entertained a few close friends with Lambasteik and Lifrapylsa! The occasion? Jón and Eva Olafsson were moving south on the 15th. Their new ad- dress is 59 Christopher Ave., Campbell, California. Our best wishes follow them in their new home. ☆ Now that Pastoral visiting days are over, we would enjoy a few dates with you. Our calen- dar for 1951 has several open spaces which we should like to share with you. So, if you really want to see us at any other time than at the stated picnics, this is your chance. ☆ How you flood us with beauti- ful cards and substantial re- membrances! We do appreciate your thoughtfulness and many kindnesses. ☆ Our next picnic date:- Janu- ary 28th, 1951. WELCOME! (We are hoping that the Bishop of Iceland and Mrs. Sigúrdsson will be with us then. Our very best New Year’s greetings to you, one and all. Rev. and Mrs. S. O. Tharlaksson. hafa lög félagsins verið endur- skoðuð. Biskup Islands er sjálfkjörinn forseti félagsins, en aðrir í stjórn þess eru: Séra Bjarni Jónsson, vígslu- biskup, séra Sigurbjörn Ást- valdur Gíslason, séra Magnús Már Lárusson, séra Sigurbjörn Einarsson prófessor, Alexander Jóhannesson háskólarektor, Frí- mann Ólafsson forstjóri, Ár- mann Snævarr prófessor og Ólafur Ólafsson trúboði. Framundan er fyrst og fremst að prenta og gefa út biblíuna hér innanlands. Frá 1866 hafa útgáfur biblíunnar á íslenzku verið á vegum Brezka biblíu- félagsins, en að sjálfsögðu hefir Hið íslenzka biblíufélag haft þar hönd í bagga með. Síðasta biblía, sem prentuð var að öllu leyti hér á landi, var prentuð í Reykjavík 1859 og er það í eina skiptið, serp biblían hefir verið prentuð hér í bænum. Biblían, sem prentuð var 1941, var prentuð í Viðey, en fyrsta afrek Hins íslenzka biblíufélags var prentun Nýja testamentisins 1827. Af því, sem sagt hefir verið, má sjá, að nú er brátt öld liðin síðan að biblían var prentuð hér á landi, og er það markmið fé- lagsins, að gefa hana út sóma- samlega ekki síðar en þá. Njóti félagið almenns stuðnings, verð- ur auðvelt að ná þessu marki. Félagar munu nú vera á 9. hundrað og fjölgar stöðugt, sem fyrr var sagt. Árgjald er aðeins 10 kr. —VÍSIR, 25. nóv. Kaupsýslumaður fór inn á járnbrautarstöð. „Hvar og hver- nar næ ég í lest, sem fer til Chi- cago?“ spurði hann mann nokk- urn. „Hv-hv-hvað, þe-þe-þetta er le-lestin, ó, al-al-máttu-tu-tugur, ef þér he-he-hefuð ekki spu-spu- spura mig, he-he-helduð þér ná- ná-náð henni,“ var svarið. ☆ Ef kona kemur klukkutíma of seint heim, og eiginmaðurinn er orðinn áryggjufullur varður hún stolt og ánægð. Ef karlmað- ur kemur þrem tímum of seint, verður hann fokvondur, ef ein- hver er orðinn áhyggjufullur. ☆ Faðirinn: „Nú, það er naum- ast. Það eru ekki tíu mínútur síðan ég steig af skipsfjöl og þú ert strax farinn að biðja um peninga.“ Sonurinn: „Já, en skipinu seinkaði um einn og hálfan tíma.“ ☆ Hún: Ég er hrædd um, að ég hafi ekki efni á þessum upp- skurði núna. Hann: Nei, það lítur út fyrir að þú verðir að tala um þá síð- ustu næsta ár.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.