Lögberg - 21.06.1951, Qupperneq 1
PHONE 21 374
ciea1xeTS
pn)
A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374
_(o.4
Cleaning
Inslilulion
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 21. JÚNÍ, 1951
NÚMER 25
Fyrrum forsætis-
ráðherra látinn
Hon. Joseph B. Chifley, fyrr-
um forsætisráðherra í Ástralíu,
varð bráðkvaddur í hóteli í Can-
berra þann 13. þ. m., 66 ára að
aldri; var hann þar staddur,
einn af mörgum, vegna hinna
miklu og alþjóðlegu hátíðahalda
í tilefhi af hálfrar aldar sjálf-
stjórnarafmæli Ástralíu.
Mr. Chifley var um langt skeið
einn af mestu áhrifamönnum
ástralska verkamannaflokksins,
og er flokkurinn sigraði í kosn-
ingunum 1945, gerðist hann for-
sætisráðherra og gegndi því em-
bætti fram í desember 1949, er
flokkur hans beið lægra hlut í
kosningum.
Mr. Chifley þótti frábærlega
yfirlætislaus maður, en þéttur
fyrir, er á reyndi; faðir hans var
fátækur járnsmiður; hinn látni
stjórnmálamaður vann að járn-
brautarstörfum megin hluta ævi
sinnar; hann tók snemma þátt í
samtökum verkamanna, og kom
miklu góðu til vegar á þeim
vettvangi; jafnskjótt og fregnin
um sviplegt fráfall hans varð
heyrinkunn, var áminstum há-
tíðahöldum frestað um stundar-
sakir um landið þvert og endi-
langt.
Endurkosin
Fjóla Gray
Á nýlega afstöðnu ársþingi
Bandalags lúterskra kvenna, var
frú Fjóla Gray endurkosin for-
seti félagsskaparins; hún er
mikilhæf kona og gædd góðum
forustuhæfileikum.
Kjörinn til forustu
Við nýlega afstaðnar þing-
kosningar í írska fríríkinu, urðu
úrslit þau, eins og vitað er, að
enginn þingflokkanna f é k k
hreinan meirihluta til stjórnar-
myndunar; flokkur sá, er Eamon
de Valera fyrrum forsætisráð-
herra studdist við, hlaut mestan
þingstyrk og skorti aðeins örfá
þingsæti til þess að geta af
sjálfsdáð myndað ráðuneyti;
undanfarin þrjú ár hafði farið
með völd í landinu samsteypu-
stjórn undir forsæti Mr. Costel-
los, er þrír flokkar stóðu að.
Nokkrir óháðir frambjóðend-
ur náðu kosningu, og er þing
kom saman á miðvikudaginn í
fyrri viku, gengu það margir
þeirra í lið með de Valera, að
honum tókst að mynda stjórn;
hinn nýi forsætisráðherra er
enginn nýgræðingur í stjórn-
málasögu hins írska fríríkis, því
hann hafði, áður en samsteypu-
stjórn Mr. Costellos tók við, set-
ið að völdum í samfleytt sextán
ár; hann barðist um langt skeið
fyrir fullum aðskilnaði við
Breta.
Sigurður Albert Helgason, B. Sc.
Lýkur prófi
Eftir fjögra ára herþjónustu
ára herþjónustu sem Wireless
Mechanic hjá canadíska flug-
hernum, hóf þessi efnilegi náms-
maður nám við Manitobaháskól-
ann 1946. í vor lauk hann prófi
sem Bachelor of Commerce,
Honurs degree, með ágætis-
einkunn, og skipar nú stöðu í
Actuarial deildinni hjá Great
West Life Assurance félaginu
hér í borg. Sigúrður er sonur
Mr. og Mrs. Jónatan Helgason,
Prince Rupert, B.C. Hann er
kvæntur Jóleenu, dóttur Mr. og
Mrs. Gunnar H. Tómasson,
Hecla, Man. Þau Joleen og Sig-
urður eiga tvo sonu, Albert sjö
ára, og Gunnar fimm ára.
Kunnur lögfræð-
ingur látinn
Á þriðjudagirtn þann 12. þ. m.,
lézt á Princess Elizabeth sjúkra-
húsinu hér í borginni, R. B.
Graham, K.C., fyrrum lögreglu-
dómari í Winnipeg, áttræður að
aldri; hann var ættaður frá Nova
Scotia, og öðlaði§t í því fylki
málafærsluréttindi 23. ára gam-
all, en upp úr því fluttist hann
til Manitoba, og þar lá mest
hans ævistarf; hann gegndi lög-
sóknarastarfi af hálfu þess opin-
bera í sextíu ár, og gegndi síðar
í mörg ár lögregludómaraem-
bætti; þótti hann jafnan hinn
skylduræknasti embættismaður
um störf sín.
Vel að verki verið
Nýlega áttu þau Mr. og Mrs.
O. N. Hefte, sem búsett eru að
Caledonia í Minnesotaríkinu,
sjötíu ára hjónabandsafmæli, og
sama daginn sátu þau gullbrúð-
kaup dóttur sinnar og tengda-
sonar; ekki er þess getið, að
sögupersónur þessar beri nokkur
ellimörk. •
Virðuleg
giftingarathöfn
Á fimmtudaginn 14. júní fór
fram vegleg og fögur hjóna-
vígsluathöfn í lútersku kirkj-
unni í Selkirk. Voru þá gefin
saman í hjónaband þau séra
Eric H. Sigmar, sóknarprestur í
Argyle, og Svafa Pálson, skóia-
kennari frá Geysir, Man. Sóknar-
presturinn séra Sigurður Ólafs-
son, og séra Haraldur Sigmar,
D.D , frá Blaine, Washington,
faðir brúðgumans, framkvæmdu
hjónavígsluna, en þær frú Sig-
mar, móðir brúðgumans, og frú
Alma Gíslason, sungu einsöngva.
Að afstaðinni kirkjuathöfn-
inni settust um 150 manns að
veizluborðum í samkomusal
safnaðarins. Séra Harald S. Sig-
mar, hinn nýji prestur Gimli-
prestakalls og bróðir brúðgum-
ans, hafði veizlustjórn með
höndum. Þá töluðu þar einnig
séra Sigurður, séra Egill H.
Fáfnis, forseti kirkjufélagsins,
og svo auðvitað brúðguminn
sjálfur, sem einnig söng einsöng.
Öll var athöfn þessi hin virðu-
legasta, og bar vott um miklar
vinsældir hinna ungu hjóna, og
fjölskyldna þeirra. Ungu hjónin
fara bráðlega til Seattle, þar
sem séra Eric tekst á hendur
prestsstarf við Hallgrímssöfnuð
þar í borg.
Lögberg óskar til hamingju.
Drengur hverfur
Fyrir hálfum mánuði hvarf
fjögra ára gamall drengur, son-
ur þeirra Mr. og Mrs. William
Bullock í Narcissebygðinni hér í
fylkinu frá heimili sínu, og hefir
eigi til hans spurst síðan; hann
var krypplingur frá fæðingu;
mikill fjöldi manna, undir for-
ustu þjóðlögreglunnar cana-
dísku, hefir tekið þátt í leit að
drengnum nótt sem nýtan dag,
en nú þykir sýnt, að hann hafi
vilst inn í skógarþykni og látið
þar líf sitt.
Ferðalög
MacArfhurs
General Mac Arthur, hinn frá-
vikni yfirhershöfðingi Banda-
ríkjastjórnar í Asíu, er nú á
fyrirlestrarferðum um Banda-
ríkin þvert og endilangt í því
augnamiði, að reyna að sann-
færa þjóð sína um ístöðuleysi
Trumans forseta og annara for-
kólfa Demokrataflokksins; tjáist
Mac Arthur þeirrar skoðunar,
enn sem fyr, að lausn Kóreu-
deilunnar náist því aðeins, að
heimilaðar verði sprengjuárásir
á meginland Kína og hernaðar-
legar bækistöðvar í Manchuríu.
Fljúga til Minneapolis á
Góðfemplarahátíð
Mr. Slefán Einarsson
í dag fljúga þeir Mr. A. S. Bardal útfararstjóri og Stéfán Einars-
son ritstjóri suður til Minneapolis, Minn., til að taka þar þátt í
hátíðahöídum í tilefni af aldarafmæli Góðtemplarareglunnar; þeir
takast þessa ferð á hendur sem erindrekar Stúkunnar Heklu í
Winnipeg.
Frú Þuríður Ólafsson
Fjallkona Landnámshátíðarinnar á Hnausum
Settur inn í embætti
Séra Harald S. Sigmar
Samkomulag
Að því er fregnir frá London
herma, hefir náðst fullkomið
samkomulag milli brezkra og
amerískra stjórnarvalda um
uppkast að friðarsáttmála við
Japan. Þeir Kenneth Younger
ráðherra, fyrir hönd Breta, og
John Foster Dulles, sérstakur
ráðunautur Trumans forseta,
unnu að sáttmálagerðinni í
London.
Rússar höfðu krafist þess, að
utanríkisráðherrar stórveldanna
fjögurra undirbyggju friðar-
samninginn, er á sínum tíma
skyldi einnig verða undirskrif-
aður af kommúnistastjórninni í
Kína, en að því vildu hvorki
B r e t a r né Bandaríkjamenn
ganga, eins og málum væri
háttað.
Vinnur sér
námsframa
Nýverið lauk ungfrú Lilja
María Eylands gagnfræðaprófi
hér í borginni, og hlaut verðlaun
vegna frábærrar tungumála-
þekkingar. Þessi gáfaða stúlka
er dóttir hinna mikilhæfu hjóna,
séra Valdimars J. Eylands og
frú Lilju Eylands.
Hörmulegur
afburður
Síðastliðinn föstudag kom upp
eldur í elli- og munaðarleysingja
heimilinu á Atwater Street í
Montreal, og létu þar þrjátíu og
átta manns lífið; mælt er að
kviknað hafi í út frá lyftu í
byggingunni. Þetta er sagður
vera mannskæðasti eldsvoði í
sögu Montrealborgar á síðast-
liðnum tuttugu og fjórum árum.
Á miðvikudagskvöldið, 13.
júní kl. 8, var lúterska kirkjan
á Gimli þéttskipuð. Tilefnið var
innsetning séra Harald S. Sig-
mar í prestsembætti sóknarinn-
ar. Framkvæmdi forseti kirkju-
félagsins séra Egill H. Fáfnis þá
athöfn með aðstoð þeirra prest-
anna, séra Valdimars J. Eylands,
séra Eric H. Sigmars, Dr. Rún-
ólfs Marteinssonar og Dr. Har-
aldar Sigmar, sem flutti syni
sínum föðurleg áminningarorð í
tvöföldum skilningi: sem reynd-
ur prestur og sem nánasti ætt-
ingi. Kór ungra stúlkna aðstoð-
aði við guðsþjónustuna, sem var
mjög hátíðleg.
Var einkar eftirtektarvert hve
innilega og af mikilli einlægni
söfnuðurinn gekst undir það heit
að taka presti sínum með kær-
leika, og styðja hann í starfi.
Mun söfnuðinum og prestakall-
inu það líka hið mesta fagnaðar-
efni að hafa nú fengið séra
Harald fyrir prest.
Að afstaðinni athöfn þessari
fór fram kaffidrykkja á hinu
nýja og yndisfagra heimili
prestshjónanna, en það hafði
prestakallið keypt skömmu áð-
ur en þau hjón komu þangað frá
Seattle.
Dr. Thorbergur Thorvaldson
Flaug til Japan
og Kóreu
Hervarnaráðherra Bandaríkj-
anna, George Marshall, er ný-
verið kominn heim til Washing-
ton úr skyndiflugferð til höfuð-
borgarinnar í Japan og megin
vígstöðvanna í Kóreu; var ferð
hans undirbúin með svo snögg-
um hætti, að utanríkisráðherr-
ann kvað hana hafa komið sér
alveg að óvörum; jafnskjótt og
hljóðbært varð um komu her-
varnaráðherrans til T o k y o,
komst allskonar orðasveimur á
flug eins og gengur og gerist, en
þó mest um það rætt, hvort för
hans stæði að einhverju leyti í
sambandi við hugsanlegt vopna-
hlé í Kóreu; en eigi leið á löngu
unz Mr. Marshall tók alveg af
skarið, og lýsti afdráttarlaust
yfir því, að koma sín til Tokyo
og Kóreu styddist ekki við neitt
diplómatískt umboð, heldur
væri hún einyörðungu hernaðar-
legs eðlis.
Kafbátur fundinn
Brezki kafbáturinn Affray,
sem týndist í Ermarsundi þann
16. apríl síðastliðinn, hefir nú
fundist á 200 faðma dýpi um 40
mílur suður af þeim stað, er
hann steypti sér í kaf. Sjötíu og
fimm manna áhöfn, sem á kaf-
bátnum var, lét líf sitt; er þetta
talið með sérstæðustu slysum í
siglingarsögu Breta.
Ungfrú Margrét Sigvaldason
Miss Canada á Landnámshátíð
inni á Hnausum
Elztu bergtegundir
í heimi
Jarðfræðingar vítt um heim
eru önnum kafnir við rannsókn
vissra bergtegunda, er likjast
kristöllum, og fundist hafa við
Winnipegána um 110 mílur norð
austur af Winnipeg; er þess get-
ið til, að bergmyndanir þessar
séu hinar elztu í heimi og muni
vera að minsta kosti 2,400,000,000
ára gamlar.
Hveiti hækkar
i veroi
Hlýtur maklega
sæmd
Hinn víðkunni vísindamaður,
Dr. Thorbergur Thorvaldson,
fyrrum prófessor við háskóla
Saskatchewanfylkis, hefir verið
sæmdur medalíu The Chemical
Institute of Canada vegna uþp-
götvana og frábærrar forustu á
.sviði efnavísindanna.
Viðskiptamálaráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, C. D. Howe;
hefir lýst yfir því, að hveitiverð
hækki á næstunni um sex cents
á mæli; nú þykir sýnt„ að brauð-
hleifurinn stigi þegar í verði um
eitt cent, og bætir það vissulega
ekki mikið úr dýrtíðinni, sem
láglaunastéttirnar í borgum og
bæjum eiga við að búa, og sárt
hafa verið leiknar af völdum
slíks óvinafagnaðar.