Lögberg - 08.05.1952, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
» u^te<
A Complele
Cleaning
Inslilulion
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 8. MAÍ, 1952
PHONE 21 374
ikox&
001
\Xt&*
/-■1ea"^er
Cle^
(jere1’* ae'rO'í'A'<^^
L.tt'U'110' A Complete
Cleaning
Inslitution
NÚMER 19
Minningarorð
Samkvæmt nýlegu bréfi frá
Gunnari B. Björnssyni skatt-
stjóra í Minneapolis, lézt þar í
borginni þann 22. apríl síðast-
liðinn, Mrs. Sveinn Magnús,
fædd á Búastöðum í Vopnafirði
14. desember árið 1866. Hún
hafði ekki gengið heil til skógar
tvö eða þrjú síðustu æviárin.
Mrs. Magnús, Guðrún Salína
Jónsdóttir, kom til Minneota frá
íslandi 1888, systir hins ágæta
manns Bjarna Jones, er mjög
kom við sögu bygðarlags síns og
mikinn þátt tók í íslenzkum
mannfélagsmálum; foreldrar
hennar voru þau Jón og Sigur-
veig Rafnson. Eftir skamma
dvöl í Minneota fluttist Mrs.
Magnús til Minneapolis og lagði
þar stund á hjúkrunarfræði og
varð ágætlega að sér í þeirri
grein; hún giftist árið 1897
Sveini Magnús og settust þau að
í Minneota og dvöldu þar fram
á árið 1906, en þar rak Mr.
Magnús ljósmyndaiðn, þá fluttu
þau hjón til Minneapolis og
hafa átt þar aðsetur jafnan síð-
an; auk manns síns lætur Mrs.
Magnús eftir sig tvo sonu,
Eugene og Bjarna, sem báðir
voru fæddir í Minneota, en nú
búsettir í Minneapolis. Sveinn
Magnús er fæddur á Áslaugar-
stöðum í Vopnafirði og er nú 89
ára að aldri, og má teljast all-
hress; hann kom til Vestur-
heims 1879.
Útfararathöfn þessarar prúðu
og mætu landnámskonu fór fram
frá Bucki’nger útfararstofu og
flutti þar kveðjumál séra Svein-
björn (Ólafsson prestur Meþó-
distakirkjunnar í norðvestur
Minneapolis. Jarðsett var í Hill-
side grafreit, Minneapolis.
Þreskingu að
verða lokið
Vegna hinnar einstæðu veður-
blíðu, sem ríkt hefir í Vestur-
Canada frá því í byrjun apríl-
mánaðar, hefir bændum lánast
að hirða nálega alt það upp-
skerumagn, er lá undir snjó í
vetur, sem leið; áætlað er að sú
uppskera nemi 285,000,000 mæla,
en verðgildi hennar er metið á
315 miljónir dollara; hér er átt
við fyrstu greiðslu, en líklegt
talið, að síðar bætist 10 miljónir
við.
Eisenhower vinnur
stórsigur
Við prófkosningar, sem haldn-
ar voru í Massachusettríkinu í
lok fyrri mánaðar urðu úrslit á
þann veg, að Eisenhower sigraði
þar með svo yfirgnæfandi meiri
hluta, að Taft kom þar svo að
segja ekki við sögu. Flokkur
Republicana í áminstu ríki kýs
38 kjörmenn á framboðsþing, en
af þeirri tölu fékk Eisenhower
27, en Taft einn kjörmann;
hinir tíu, sem kosnir voru, höfðu
ekki ráðið við sig um stuðning
ákveðins frambjóðanda, þótt
staðhæft sé, að minsta kosti sex
þeirra gangi Eisenhower á hönd,
er á framboðsþingið kemur.
Eins og nú horfir við, þykir
líklegt, að Eisenhower hljóti út-
nefningu við fyrstu atkvæða-
greiðslu á framboðsþinginu með
því að sýnt þykir að kjörmenn
Stassens snúist til fylgis við
hann.
Af hálfu Demokrata hlaut
Senator Kefauver mikið fylgi.
ísland hefir ekkerl að óttasl, segir McCormick:
Atlantshafsbandalagið mun
verja frið og frelsi
Lýkur lofsorði á viðbúnað varn-
arliðsins hér undir forustu
McGaw hershöfðingja
„Sem þátttakendur í Atlants
hafsbandalaginu munum vér
með festu framkvæma sam-
eiginlegar skuldbindingar
vorar, — þær, að varðveita
frið og frelsi, sem Islending-
ar hafa alltaf látið sig svo
miklu varða. ísland hefir
því væntanlega ekkert að
óttast.“
Þetta sagði Lynde McCor-
mick, yfirflotaforingi Atlants-
hafsbandalagsins, í viðtali við
íslenzka blaðamenn í gær; og
hann lauk jafnframt lofsorði á
þær framkvæmdir, sem þegar
hefðu verið gerðar hér á vegum
varnarliðsins, undir stjórn
McGaw hershöfðingja; en flota-
foringinn er yfirmaður hans.
Lynde McCormick flotafor-
ingi kom hingað frá Bretlandi á
sunnudaginn, en hann hefir að
undanförnu heimsótt allar þær
þjóðir Atlantshafsbandalagsins,
og átt viðræður við ríkisstjórnir
þeirra varðandi mál, sem snerta
sameiginlegar varpir bandalags-
ríkjanna.
Laust fyrir hádegi í gær áttu
blaðamenn tal við yfirflota-
ingjann. í skrifstofu utanríkis-
málaráðuneytisins, að viðstödd-
um Bjarna Benediktssyni utan-
ríkismálaráðherra, McGaw hers
höfðingja, Sir William Andrews
flotaforingja og fleira stórmenni.
Lét yfirflotaforinginn í ljós á-
nægju sína yfir komu sinni
hingað og þeim viðtökum, er
hann hefði hlotið.
Flotaforinginn kvað erindi
sitt hingað hið sama og til ann-
arra þeirra landa Atlantshafs-
bandalagsins, er hann hefði
heimsótt að undaförnu: að kynna
sér það starf, sem þar hefði þeg-
ar verið unnið að framkvædm
sameiginlegra varna, kynnast
vandamálum þeirra, hvers um
sig, athuga með hvaða hætti og
hvaða framlag hver þjóð um
sig gæti innt af hendi, velja for-
ingja og fulltrúa í flotaráð sitt;
en hvað ísland snerti sérstak-
lega, að ræða við ríkisstjórnina
um val sérstaks fulltrúa, er hann
gæti snúið sér til varðandi mál,
er ísland snerta. Einnig kvað
hann sér það' ljóst, að þar eð
íslendingar, sökum fámennis
síns, megnuðu ekki að halda
uppi vörnum landsins, ef til á-
taka kæmi, hlyti hann að telja
það snaran þátt í starfi sínu, að
verja landið. Kvaðst hann vona,
að Islendingar þyrftu ekkert að
óttast, þótt svo illa tækist til, að
til ófriðar drægi.
Þá lét flotaforinginn í ljós,
að sér væri sérstök ánægja að
heimsækja íslenzku þjóðina,
sem telja mætti eina elztu lýð-
Uppbót effirlauna
Ráðherra hermannamálefna,
Mr. Lapointe, hefir borið fram
þingsályktunartillögu þess efn-
is, að eftirlaun heimkominna
hermanna verði hækkuð að mun
vegna dýrtíðarinnar í landinu;
einhleypir menn fá þessu sam-
kvæmt 50 dollara á mánuði í
stað 40, en kvæntir menn, sem
áður fengu 70 dollara á mánuði
fá nú 90 dollara; auk þess mega
hlutaðeigendur afla sér meiri
tekna annars staðar frá en áður
var heimilað.
ræðisþjóð heimsins; kvað hann
lýðræðið okkar á það háu stigi,
að flestar lýðræðisþjóðir mættu
þar af læra, meðal annars það,
hvernig þjóð gæti lifað í friði og
eindrægni við allar þjóðir heims.
Pétur Eggerz skipaður
fulltrúi íslands.
Það var tilkynnt á blaða-
mannafundinum, að Pétur
Eggerz* sendiráðsfulltrúi hefði
verið skipaður fulltrúi íslands í
hermálanefnd Atlantshafsbanda
lagsins.
Fór vesiur um haf í nótt.
Aðmírállinn ræddi við Bjarna
Benediktsson utanríkismálaráð-
herra fyrir hádegi í gær. Há-
degisverð snæddi hann að Bessa-
stöðum, en síðdegis sat hann
fund með ríkisstjórn, utanríkis-
málanefnd og fleiri íslenzkum
fulltrúum.
Aðmírállinn ætlaði að leggja
af stað héðan vestur um haf í
nótt.
—Alþbl., 18. marz
Batnandi hagur
Frakka
Mr. Hubert Guerin, sendiherra
Frakka í Canada, var staddur
hér í borginni í fyrri viku og
átti tal við blaðamenn; kvað
hann hag frönsku þjóðarinnar
fara batnandi jafnt og þétt; hin
nýja stjórn Frakklands, sem að-
eins hefði setið að völdum í svo
mánuði, hefði tekið þá viturleg-
ustu og heillavænlegustu stefnu,
er hugsast gæti til að koma í veg
fyrir háskalega verðbólgu; hún
hefði þverneitað að hækka skatta
eins og fyrirrennarar hennar
kröfðust, en í stað þess hefði hún
einsett sér að draga svo úr út-
gjöldum sem framast mætti
verða; jiú hefir reksturskostn-
aður ríkisstjórnarinnar verið
lækkaður um $308,000,000. Mr.
Guerin kvaðst sannfærður um
það, að hinn nýi forsætisráð-
herra, Antoine Pinay, nyti
trausts mikils meirihluta frönsku
þjóðarinnar í viðleitni sinni við
að bjarga frankanum frá verð-
hruni.
Mr. Guerin er 56 ára að aldri
og er útskrifaður í lögvísi af
Nancy háskóla.
\ '
Tæki til að bjarga mönnum,
sem falla af skipum úti á hafi
Fulltrúum á landsþingi Slysa
varnafélagsins voru sýnd í
gær tæki, sem sérstaklega
eru ætluð til þess að bjarga
mönnum, sem fallið hafa
fyrir borð. Tæki þessu eru
mjög haganlega útbúið
björgunarvesti og lína, sem
flýtur á sjónum. Eru vestin
alveg ný, en línan hefir verið
hér til í nokkur ár, þótt ekki
hafi hún enn verið sett
í skipin.
Fulltrúar á slysavarnaþinginu
skoðuðu þessi tæki, er slysa-
varnadeildin Ingólfur í Reykja-
vík bauð þeim að skoða björg-
unarstöð sína í Örfirisey.
Einnig fengu fulltrúarnir að
bragða á nærandi súpu, sem
geymd er í dósum og ætluð er
til þess að hafa í skipbrots-
mannaskýlum. Súpudósirnar eru
tvöfaldar, og á milli laga er efni,
sem kveikt er í, og hitnar þá
súpan. Á að neyta hennar heitr-
ar. Er hún einkar hentug til
hressingar skipbrotsmönnum, er
ná landi og komast í skýli að-
framkomnir af kulda og vosbúð.
B j ör gunar veslið.
Björgunarvestið er mjög fyrir
ferðarlítið, þegar það er ekki í
notkun. Það er geymt í lítilli
tösku, sem hver sjómaður getur
haft spennta á sig við vinnu
sína. Falli hann útbyrðis, þarf
hann ekki annað en að opna
töskuna og setja vestið upp yfir
höfuðið, kippa síðan í band á
’vestinu, og fyllist það þá lofti.
Vestið heldur manninum alveg
á floti. Einnig er ljós á vestinu
og áföst við það flauta, sem hann
getur blásið í, ef hann þarf að
láta vita, hvar hann er í dimm-
viðri eða náttmyrkri. Falli mað-
ur fyrir borð, án þess að vera
búinn vestinu, en sé það til í
skipinu, getur annar skipverji
búizt því í skyndi og kastað sér
til hins nauðstadda manns. Er
þá flotlínan fest við beltið.
Flotlínan.
Flotlínan er grönn en sterk og
flýtur ofan á sjónum. Henni á
að skjóta út til manns, sem fallið
hefir í sjóinn, og má hafa ljósa-
útbúnað á enda hennar. Ef ekki
er mjög dimmt, sér hann línuna
á sjónum og getur gripið í hana,
enda yrði henni skotið eins nærri
honum og unnt væri.
—Alþbl., 3. apríl
Góður gestur
væntanlegur
Hr. Gylfi Þ. Gíslason prófessor
við laga- og hagfræðideild Há-
skóla fslands, er væntanlegur
hingað til borgar 'í júnímánuði
næstkomandi; hann er kominn
vestur í boði utanríkisráðu-
neytis Bandaríkjanna með sama
hætti og þeir Pálmi rektor
Hannesson, Dr. Alexander Jó-
hannesson og Dr. Páll ísólfsson
voru fyrir skömmu boðnir.
Gylfi prófessor dvelur um þess-
ar mundir við Harvard-háskóla;
hann á sæti á Alþingi sem einn
af þingmönnum Alþýðuflokks-
ins fyrir hönd Reykvíkinga og
má teljast einn af aðal forkólf-
um flokks síns jafnt utan þings
sem innah.
Gylfi Þ. Gíslason er sonur
Þorsteins Gíslasonar skálds og
blaðamanns, sem látinn er fyrir
allmörgum árum; hann kemur
hingað einkum í heimsókn til
föðurbróður síns, hr. Hjálmars
Gíslasonar, sem búsettur er að
66 Maryland Street P þessari
borg.
Jarðargróði og mjólkurframleiðsla:
Heyfengurinn 1950 nam 2.3 millj.
hestburðum og kartöfluuppskeran
nam 86 þúsund tunnum
Mjólkurframleiðslan óx um 9
millj. lítra frá 1946 til 1950
Árið 1950 var heyfengur lands-
manna samtals 2.291.000 hest-
burðir, þar af 1.696.000 hestar af
töðu og 595.000 hestar úthey. nam
Árið áður var heildarheyfengur-
2.129.000 hestar, þar af
mn
1.505.000 hestar af töðu og
624.000 hestar af útheyi. Kar-
töfluuppskeran nam árið 1950
86.033 tunnum, og rófnauppsker-
an 8.353 tunnum. Árið áður nam
kartöfluuppskeran 39.781 tunnu
og rófnauppskeran 5.835 tunn-
um. Mjólkurframleiðslan hefir mu
aukist um 9 miljón lítra frá
1946 til 1950.
Er þetta samkvæmt upplýs-
ingum úr nýútkomnum Hagtíð-
indum, en tölur þessar eru
byggðar á búnaðarskýrslum
þessa árs.
Heyfengurinn fór jafnt og
stöðugt vaxandi fyrstu 30 ár ald-
arinnar, segir ennfremur. Út-
heyið var nokkurn veginn jafn
mikið, en töðufengurinn óx ár
frá ári úr 500 þús. hestum um
aldamótin í 1000 þús. hesta 1930.
Síðan hefir útheyið farið minnk-
andi næstum jafn ört og taðan
hefir vaxið. Með töðunni er tal-
ið hafragras og annað grænfóð-
ur, en það var 17.500 hestar árið
1950 og 14 300 hestar 1949.
Mjólkurframleiðslan 1950 nam
samtals 69.661 lítrum og hefir
aukizt um rúmlega 9 milljón
lítra frá 1946, og kemur öll sú
aukning fram sem sölumjólk, og
2.7 millj. lítrum betur. Árið
1946 var mjólk til heimanotkun-
ar 29.939.000 lítrar, en seld mjólk
þá 30.669.000 lítrum, en
1950 fóru 27.208.00 lítrar til
heimanotkunar, en seld mjólk
nam 42.453.000 lítrum. Minnkun
sú, er varð á heimanotkun
mjólkur 1949, er talin stafa af
því, að á því ári tóku tvö ný
mjólkurbú til starfa, mjólkur-
búin á Blönduósi og Húsavík.
Meðalmálsnyt var á öllu land-
talin vera 2191 lítri árið
Frú stúliðnaði
Bandaríkjanna
í aprílmánuði síðastliðnum
kom til ágreinings milli eigenda
stálsuðuverksmiðjanna í Banda-
ríkjunum annars vegar og starfs
manna þeirra hins vegar; kröfð-
ust verkamenn kauphækkunar
sem svaraði 25 centum á klukku-
stund, en eigendur tóku ekki í
mál að hækka kaup yfir 10 cents
á klukkutímann; leiddi þessi á-
greiningur til þess, að um sex
hundruð þúsundir verkamanna
lögðu niður vinnu; tók Truman
forseti þá það til bragðs að þjóð-
nýta stáliðnaðinn unz komist
yrði að fullnægjandi samning-
um; þessu mótmætlu stálkóng-
arnir og fólu héraðsrétti málið
til rannsóknar og komst hann að
þeirri niðurstöðu, að tiltektir
forseta bryti 1 bága við stjórn-
arskrána og væru þar með dauð-
ar og ómerkar; dómsmálaráðu-
neytið áfrýjaði þegar málinu til
yfirréttar og þar sigraði stefna
forsetans; nú er verkfallinu lok-
ið,en forseti hefir kvatt til fund-
ar við sig báða málsaðila til að
koma á varanlegum sáttum.
Spirit of Spring
I am the shining beady eyes
That part through slender grass;
The chirping pomp in sunlit skies,
The feathered V’s that pass.
I am the docile growing grain,
The open fields of green
Washed by clear, cool, drops of rain —
I am the trembling sheen.
I am the upward running sap
When winter’s sleep is done;
I cushion on the meadow’s lap
The splendor of the sun.
1949, en 2234 lítrar árið 1950.
—Alþbl., 30. marz
Alvarlegt
ástand enn
Gin- og klaufaveikin hefir nú
brotist út í bygðarlögunum
umhverfis bæinn Weyburn í
Saskatchewanfylkinu og hefir
um tvö hundruð sýktum skepn-
um þegar verið slátrað þar, og
enn er hvergi nærri séð fyrir
enda á þessum óvinafagnaði.
Slegið hefir í snarpar brýnur
í sambandsþinginu milli Dr.
Taggarts annars vegar og Johns
Diefenbakers hins vegar. Mr.
Diefenbaker, sem er íhaldsþing-
maður fyrir Lake Centre kjör-
dæmið, bar landbúnaðarráðu-
neytinu það á brýn, að það hefði
gerzt sekt um vanrækslu á
byrjunarstigi veikinnar og eigi
tekið nógu snemma í taumana
til varnar útbreiðslu hennar. Dr.
Taggart, sem gegnir embætti
aðstoðar búnaðarmálaráðherra,
kvað ákærur téðs þingmanns á
litlum rökum bygðar þar sem
óhjákvæmilegt hefði verið að
það krefðist all-langrar rann-
sóknar að komast að niðurstöðu
um hvers konar veiki um væri
að ræða.
Freda Bjorn
Róstusamt 1. maí
Það er nú í rauninni engin ný
bóla þótt rófctusamt verði hér og
þar hinn 1. maí, því þá hefja
róttækar verkalýðsfylkingar
jafnaðarlegast kröfugöngur sín-
ar og berast mikinn á; að þessu
sinni bar mest á óspektum í
Tokyo, en þar létu um 20 þús-
und kommúnistar all óðslegaj
réðust að skrifstofubyggingum
erlendra þjóða, einkum Banda-
ríkjanna og lentu í grjótkasti
við lögregluna; nú er vitað að
seytján manns hafi látið lífið
meðan á gauragangi þessum
stóð, auk þess sem á þirðja
hundrað manns sætti meiri og
minni meiðslum; eftir all-langt
þóf og gagnskotahríð, tókst lög-
reglunni að skakka leikinn, og
voru þá nokkrir af forsprökkum
kommúnista teknir úr umferð.
Forsætisráðherra kvaddi þegar
saman ráðuneytisfund varðandi
þá hegningu, er foringjar upp-
þotsins skyldu sæta; um hríð leit.
ekki sem friðvænlegast út í
Berlín þótt eigi hlytust veruleg
slys af.
Á Rauðatorginu í Moskvu
hyltu kommúnistar Stalín, en
einn af höfuðsmönnum þeirra
flutti þar ræðu og bar Bretum
og Bandaríkjamönnum á brýn
svikráð við heimsfriðinn.