Lögberg


Lögberg - 27.11.1952, Qupperneq 1

Lögberg - 27.11.1952, Qupperneq 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil • Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs 65. ÁRGANGUR Phone 72-0471 BARNEY#S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas • Oil • Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs NÚMER 4\$ -------1 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 16. NÓVEMBER Lætur af flokkksforustu Formaður Liberala í Saskat- chewan, Walter Tucker, er átt hefir sæti á fylkisþinginu síðan 1946, hefir tilkynt að hann muni áður en langt um líði láta af flokksforustinni, og sé staðráð- inn vegna áskorana að bjóða sig fram til sambandsþings í Rosthernkjördæmi við næstu kosningar, sem víst má telja að haldnar verði næsta ár. Mr. Tucker var fulltrúi þess kjör- dæmis í sambandsþinginu í nokkur ár áður en hann tókst á hendur flokksforustuna í Saskat- chewan, og var þá talinn einn hinna atkvæðameiri þingmanna úr Sléttufylkjunum; hann er málafylgjumaður mikill og læt- ur sér ekki alt fyrir brjósti brenna. En þótt Mr. Tucker sé harð- snúinn og lægi síður en svo á liði sínu, reyndist honum það þó ofurefli, að koma C.C.F.-stjórn- inni í Saskatchewan fyrir kattar- nef. Gera má ráð fyrir að áður en langt um líði kveðji Libearlar í áminstu fylki til flokksþings í því augnamiði, að velja sér nýjan leiðtoga. Verkalýðsforingi látínn Nýlátinn er í Cincinatiborg í Ohioríkinu, William Green, for- ingi hinna útbreiddu og vold- ugu verkalýðssamtaka, er ganga undir nafninu The American Federation of Labor, víðkunnur merkismaður 81 árs að aldri; hafði hann einkum orð á sér fyrir það, hve laginn hann var í því, að hrinda í framkvæmd kjarasamningum milli atvinnu- rekenda og starfsfólks þeirra, og hafði jafnan sitt fram með stefnufestu og hógværð. Velur utanríkisráðherra Dwight D. Eisenhower, næsti forseti Bandaríkjanna, hefir kunngert, að hann hafi valið John Foster Dulles til að takast á hendur forustu utanríkisráðu- neytisins, er Republicanar taka við völdum þann 20. janúar næstkomandi; hefir Mr. Dulles langa sögu að baki í meðferð utanríkismála og þykir um alt hinn mikilhæfasti maður. Úr borg og bygð Síðastliðinn fimtudag lézt að heimili Hrundar dóttur-dóttur sinnar og manns hennar J. G. Skúlasonar í Geysisbygð, Hólm- fríður Magnúsdóttir 92 ára að aldri, fædd að Nesi í Aðal- Reykjadal 11. ágúst árið 1860, mikilhæf kona og merk; for- eldrar hennar voru Magnús Jónsson og Kristjana Vigfús- dóttir. Útförin fór fram frá kirkju Geysis-safnaðar á mánu- daginn. Séra Valdimar J. Ey- lands jarðsöng. — Þessarar kvenhetju verður frekar minst í næsta blaði. ☆ Frú Guðrún Hallsson frá Vogar hefir dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. ☆ Stúkan HEKLA I.O.G.T. held- ur fund á venjulegum stað og tíma næstkomandi þriðjudag 2. desember. Halldór M. Swan Sjöfugur: Á föstudaginn hinn 21. þ. m., átti Halldór M. Swan verk- smiðjueigandi sjötugsafmæli; hann á heima að 912 Jessey Avenue, og bauð til sín þá um kvöldið nokkrum nánustu vin- um sínum til gleðimóts, xer í öll- um atriðom bar nafn með rentu. Halldór er fæddur að Burstar- felli í Vopnafirði hinn 21. dag nóvembermánaðar árið 1882, sonur hinna gagnmerku hjóna Methúsalems Einarssonar og Elínar ólafsdóttur, er sátu hið kunna höfuðból áratugum sam- an með rausn og prýði. Halldór nam trésmíðaiðn á Akureyri, en fluttist í blóma lífs hingað til lands og hefir gefið sig hér að margvíslegum störfum, þótt lengstan tímann hafi hann upp á eigin reikning rekið hér verk- smiðju. Á æskuárum var Halldór þegar kunnur íþróttamaður, og hér í landi varð hann frumkvöðull að endurreisn hinnar þjóðlegu, nor- rænu íþróttar, bogfiminnar. — Halldór er manna listrænastur og söngvinn vel; hann er dreng- ur góður og vinfastur. Lögberg flytur afmælisbarn- inu hugheilar árnaðaróskir. Sambandsþing kemur saman Síðastliðinn fimtudag var sambandsþingið í Ottawa kvatt saman til funda og sett af lands- stjóranum, Rt. Hon. Vincent Massey, er flutti þingheimi í ræðuformi boðskap stjórnarinn- ar til þingsins; var þar vikið að ýmissum aðkallandi vandamál- um, sem stjórninni er ant um að verði leyst. Á mánudaginn voru bornar fram tvær vantraustsyfirlýsing- ar á hendur stjórninni, sú fyrri af leiðtoga íhaldsflokksins, Mr. Drew, er sakaði stjórnina um ó- hæfilega fjárbruðlun, en hin síð- ari af Mr. Coldwell, forustu- manni C.C.F.-sinna, er fann stjórninni það helzt til foráttu hve slælega hún hefði unnið að því að koma á fót almennum heilsutryggingum í landinu. Lokagreiðslur Um þessar mundir standa yfir lokagreiðslur hveitiverðs fyrir uppskeruárið, sem endaði 31. júlí síðastliðinn og nemur upp- hæðin 25 cents á mæli; öllum slíkum greiðslum á að vera lokið fyrir jól að því er hveitiráðinu segist frá; heildar upphæðin, er á þennan hátt' verður greidd bændum, nemur fyrir bygg, hafra og hveiti $158,572,000. Skarar framúr í byggrækt Á iðnaðar- og framleiðslusýn- ingunni, sem enn stendur yfir í Toronto, var Albert Robins bóndi í Laurahéraðinu í Saskat- chewan úrskurðaður „bygg- konungur“ veraldarinnar; hon- um féll hliðstæð sæmd í skaut árið 1948. Margir aðrir bændur úr Sléttufylkjunum hlutu há verðlaun fyrir kornyrkju. Hinn 8. þ. m. sendi íslenzka ríkisstjórnin brezku ríkisstjórn- inni skilaboð, og var þar sagt, að íslenzka stjórnin byggði allar sínar ráðstafanir varðandi fisk- veiðalandhelgina á þeirri skoð- un, að þær væru innan lögsögu íslands samkvæmt alþjóðalög- um, og meðan þeim væri ekki hnekkt á lögformlegan hátt, gæti hún ekki samþykkt erlend- ar kröfur um tilslakanir á frið- unarsvæðinu. Viðræður um slík- ar tilslakanir myndu því vera gagnslausar og aðeins vera til ills, þar sem þær kynnu að vekja vonir, sem ekki gætu rætzt. Hins vegar væri íslenzka ríkisstjórnin fús til að senda sér- fræðinga til London til að skýra nauðsynina á friðun íslenzkra fiskimiða fyrir brezkum togara- eigendum, samkvæmt ósk brezku ríkisstjórnarinnar, enda yrði að vona að slíkar skýringar myndu eyða margs konar misskilningi. Fleiri skilaboð fóru milli ríkis- stjórnanna og hinn 10. þ. m. lýsti íslenzka ríkisstjórnin yfir því, að hún héldi fast við skoð- anir sínar í fiskveiðalandhelg- inni og væri fús til þess með viðræðum í nefndinni til að hindra ofveiði, að halda áfram skýringum sínum, bæði varð- andi nauðsyn á friðun og laga- legum rétti íslendinga í þessum efnum. Fyrir nokkru var stofnað í Grimsby hlutafélag til að vinna ».S löndunum þar á fiski, og eiga íslenzkir togaraeigendur hlut í því. Brezkir togaraeigendur hafa bundizt samtökum að leyfa ekki íslenzkum skipum not af löndunartækjum sínum, og yfir- menn á togurum á þessum slóð- um hafa haft við orð að gera verkfall, ef tekið yrði við fiski úr íslenzkum skipum. — Nú var í ráði að íslenzkur togari freist- aði að landa þar fiski á vegum hins nýstofnaða hlutafélags, sem áður var getið, en horfið var frá þeirri tilraun. Utanríkisráðu- neytið birti þá svohljóðandi til- kynningu: „Brezka ríkisstjórnin er nú að vinna að því, að aflétt verði banni á löndunum ís- lenzkra togara í Bretlandi og hefir farið þess á leit, að Islend- ingar sendi ekki örfáa næstu daga togara til að selja fisk í Bretlandi, þar sem það myndi gera henni erfiðara fyrir um lausn málsins. — íslenzka rikis- stjórnin hefir samkvæmt þessu fallizt á að beita áhrifum sínum í þessa átt.“ ☆ Vöruskiptaj öfnuðurinn í októ- bermánuði var óhagstæður um 17,6 miljónir króna. Út voru fluttar vörur fyrir 80,3 miljónir, en inn fyrir 97,9 miljónir króna. Fyrstu tíu mánuði ársins var vöruskiptajöfnuðurinn við út- lönd óhagstæður um 249,9 milj- ónir króna. Inn voru fluttar vörur fyrir 754,9 miljónir, en út fyrir 505 miljónir. ☆ Framfærsluvísitala í Reykja- vík var 163 stig hinn fyrsta þessa mánaðar og kaupgjaldsvísitala fyrir nóvember var 153 stig. ☆ í fyrrakvöld var opnuð sýning á myndum eftir Nínu Tryggva- dóttur í Listvinasalnum við Freyjugötu í Reykjavík og eru þar sýndar 35 myndir. Þetta er þriðja sýningin, sem Nína held- ur hér, en hún hefir einnig sýnt málverk sín í höfuðborgum Norðurlandanna og í New York og tekið auk þess þátt í mörgum samsýningum. Tæplega sextíu verkalýðsfé- log hafa sagt upp kaup- og kjara- samningum við atvinnurekend- ur, og hafa nú birt þær kröfur, er þau bera fram sameiginlega til breytinga á samningunum. Aðalatriðin eru þau, að félögin krefjast 15% hækkunar á grunn- kaupi, verðlagsuppbót verði greidd á allt grunnkaup mánað- arlega, lágmark orlofs lengist úr 12 virkum dögum í 18 virka daga, og athugaðir verði mögu- leikar á framkvæmd 40 stunda vinnuviku. ☆ Á aðalfundi Landssambands íslenzkra útvegsmanna, sem ný- lega var haldinn í Reykjavík var samþykkt ályktun, þar sem sagt er að ‘hag útgerðarinnar sé þannig komið, að óhugsandi sé að hún geti tekið á sig aukin út- gjöld vegna kauphækkana. Kaup hækkunarkröfur, sé þeim haldið til streitu, hljóti óhjákvæmilega að leiða til stöðvunar útvegsins. ☆ Aðalfundur Sölusambands ís- lenzkra fiskframleiðenda var haldinn í Reykjavík í vikunni, sem leið, og var þar skýrt frá því, að sölusambandið hefði á síðastliðnu ári selt fisk fyrir 135 miljónir króna. Umræður á fund inum snerust mjög um fiskmat og vöruvöndun. Samþykkt var að gefa 125.000 krónur í dvalar- heimilissjóð aldraðra sjómanna. ■ír » Unnið er að því að koma upp radíóvitum víða hérlendis til þess að auka öryggið í innan- landsflugi, og hafa slíkir vitar þegar verið settir upp á Akur- eyri og Hjalteyri. Tæknilegir ráðunautar frá alþjóðaflugmála- stofnuninni dveljast hér til þess að þjálfa íslenzka flugmenn í radioflugtækni og íslenzku vél- arnar hafa verið búnar þeim tækjum, sem nauðsynleg eru til þess. Radiovitar verða settir upp á Fljótsdalshéraði og sennilega á tveimur eða þremur stöðum í viðbót, tveir vitar á hverjum stað. ☆ Á föstudaginn var afhjúpað í Reykjavík minnismerki um franska vísindamanninn dr. Jean Charcot, sem drukknaði hér við land í ofviðri í septembermán- uði 1936, er skip han Pourquoipas fórst. Minnismerki þetta er koparskjöldur með mynd af Charcot greyptur í sæbarinn stein, er valinn hefir verið stað- ur á háskólalóðinni hjá At- vinnudeild háskólans, og er þetta fyrsta minnismerkið, sem reist er á lóð háskólans. Ríkis- stjórn íslands gaf félaginu Alli- ance francaise skjöldinn, en hann er afsteypa af skildi, sem Ríkarður Jónsson myndhöggv- ari gerði og festur var á vitann á Þormóðsskeri í sumar, en þar í nánd fórst skip Charcots. Við afhjúpun minnismerkisins töl- uðu siglingamálaráðherra, Ólaf- ur Thors, forseti Alliance fran- caise Pétur Gunnarsson og franski sendiherrann hér Henri Voillery. ☆ Ársfundi æskulýðsfélaganna í Reykjavík lauk á fimmtudags- kvöldið og var Ásmundur Guð- mundsson prófessor endurkjör- inn formaður bandalagsins. ☆ 1 dag syngja kirkjukórar úr fjórum prófastsdæmum á Vest- urlandi í Bíóhöllinni á Akranesi, og verður þetta 150 manna sam- kór, hinn stærsti sem sungið hefir innanhúss hér á landi. Félag íslenzkra iðrekenda og Samband smásöluverzlana í Reykjavík hafa tekið upp sam- vinnu íslenzks iðnaðar, og verð- ur þessa vikuna sölusýning á ís- lenzkum iðnaðarvörum í búðar- gluggum og búðum. ☆ Ásgrímur Jónsson listmálari gaf nýlega, í samráði við vanda- menn sína, íslenzka ríkinu allar eigur sínar eftir sinn dag, — málverk, húseign og annað, kvaðalaust með öllu. Er svo til ætlast, að húsið veði notað til sýninga á málverkum Ásgríms, meðan ekki hefir verið reist listasafn, þar sem myndum hans sé tryggt svo mikið rúm, að unnt sé að fá gott yfirlit um safn hans. — Menntamálaráðuneytið hefir þakkað þessa höfðinglegu gjöf. ☆ Nýr skóli var vígður í Reykja- vík í fyrradag, Langholtsskól- inn, og þar eiga um 700 börn að stunda nám í vetur. Skólahúsið er 1032 fermetrar og rúmmál þess 10,660 teningsmetrar. 1 aðal byggingunni eru 7 almennar kennslustofur, þrjár sérstofur og samkomusalur. Auk þess er leik- fimisalur og millibygging, og í henni heilsugæzla skólabarna. I enda fimleikahússins verður heilsugæzlustöð fyrir Langholts- byggðina. Skólastjóri er Gísli Jónasson. — Björn Ólafsson menntamálaráðherra komst svo að orði við þetta tækifæri, að í fáum löndum hins menntaða heims myndi hafa verið jafn rík þörf fyrir skólabyggingar á undanförnum áratugum og hér á landi, og úr því hefði verið bætt svo greiðlega, að stundum hefði legið við að þjóðin hefði reist sér hurðarás um öxl. Hinn öri vöxtur Reykjavíkur á sein- asta aldarfjórðungi hefði ekki hvað sízt krafizt mikils í þessu efni. ☆ Brezka beitiskipið Swiftsure kom til Reykjavíkur á miðviku- daginn í opinbera heimsókn. Það er flaggskip Robsons flotafor- ingja og kom tvívegis í heim- sókn til Svíþjóðar í sumar, einu sinni til Noregs og einu sinni til Finnlands. Almenningi hefir gefizt tækifæri til að skoða skip- ið. Tuttugu manna hljómsveit af Swiftsure hélt hljómleika í dag í Reykjavík til stuðnings Styrkt- arfélagi lamaðra og fatlaðra, en fyrsta verkefni þess er að safna skýrslum um lamaða og fatlaða á landinu öllu. ☆ Á Seyðisfirði voru í sumar gerðar allmiklar endurbætur á vatnsveitu bæjarins og vatns- magn stórlega aukið með því að uppsprettuvatn var leitt í 6 þumlunga víðum pípum um 700 metra veg og lögn þessi tengd gamla vatnsveitukerfinu. — Ný- lega var hafizt handa á Seyðis- firði um nýja uppfyllingu og öryggjugerð við höfnina í fram- haldi af eða rétt utan við hafn- arbryggju bæjarins. Er í ráði, að uppfylling þessi verði um 100 metra löng. ☆ Leikfélag Reykjavíkur sýnir í kvöld gamanleikinn Ævintýri á gönguför eftir danska skáldið Hostrup, en sá leikur var fyrst sýndur hér á landi 1855, og síðan á annað hundrað sinnum í Reykjavík. Leikstjóri er Gunnar R. Hansen. ☆ Nýlega var haldinn aðalfundur Borgfirðingafélagsins í Reykja- vík. Aðalverkefni þess á liðnu ári var kvikmyndataka af Borg- Framhald á bls. 8 Mr. og Mrs. Ronald Perry du Bois Virðuleg athöfn fór fram í The Foyer de L Ame frönsku Unítara kirkjunni í París þann 20. október síðastliðinn, en þá voru gefin þar saman í hjónaband þau Þóra Solveig Ásgeirsson píanóleikari og Ronald Perry du Bois; prestur safnaðarins Georges Marchall gifti. Brúðurin er dóttir þeirra Mr. og Mrs. Jón Ásgeirsson hér í borg, en brúðguminn amerískur maður af frönskum ættum.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.