Lögberg - 21.05.1953, Side 1

Lögberg - 21.05.1953, Side 1
Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Graaaa Tuno-Ups Accessoriaa 24-Hour Service Repairs 66 ARGANGUR Phone 72-0471 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Greasa Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 21. MAÍ, 1953 Númer 21 Þegnskaparhátíðin Á föstudaginn var fór fram hin árlega þegnskaparhátíð — Citizenship day — í þinghús- inu hér í borg; komu þar fram fulltrúar frá 40 þjóðabrot- um, sem byggja þetta fylki; var margt af því fólki klætt þjóð- búningum sínum og bar fána ættjarðar sinnar; skipuðu full- trúarnir sér í hinar breiðu tröpp- ur, er liggja inn í aðalsamkomu- salinn meðan sungið var O, Canada. Fulltrúar íslendinga voru Mr. Halldór Stefánsson og bar hann íslenzka fánann, og Mrs. V. J. Eylands og Mrs. Ágúst Blondal; voru þær báðar klæddar íslenzkum þjóðbúning- um; stóð þessi hópur með þeim efstu vegna þess, að Islendingar voru með fyrstu innflytjendum fylkisins. Ræður fluttu: — Edward Morgan, forseti þegnskapar- nefndarinnar í Manitoba; Hon. R. F. McWilliams, fylkisstjóri; Hon. D. L. Campbell forsætisráð- herra fylkisins; E. A. Macpher- son yfirdómari og W. J. Lindal dómari, en hann afhenti borgara skírteini þeim, er fengið höfðu borgararéttindi á árinu. Að lok- um söng blandaður kór frá Daniel Mclntyre skólanum. Allri athöfninni var útvarpað, og á stuttbylgjum til útlanda, meira að segja til landanna bak við hið svokallaða járntjald, en það er í fyrsta skipti að það hefir verið gert. Sambandsþingi slitið Á föstudaginn var fóru fram þinglausnir í Ottawa og þykir nú sýnt, að almennar kosningar verði háðar í ágústmánuði næst- komandi. Forsætisráðherrann er nú lagður af stað til krýningarhátíð- arinnar í London og má þess vænta, að hann brátt eftir heim- komu sína kunngeri þingrof og ákveði kjördaginn. Býður sig fram á ný Dr. S. O. Thompson Síðastliðinn föstudag héldu Liberal-Progressive stjórnmála- samtökin í Gimli kjördæmi fram- boðsfund í Gimlibæ, þar Slem nú- verandi þingmaður kjördæmis- ins, Dr. S. O. Thompson, var í einu hljóði kjörinn merkisberi flokks síns við fylkiskosning- arnar, sem nú fara 1 hönd. Dr. Thompson ætti að verða, og sennilega verður endurkosinn gagnsóknarlaust; hann er vitur maður, sem nýtur frábærra vin- sælda í héraði. Auk frambjóðanda flutti Campbell forsætisráðherra ræðu á fundinum. \ Friðrikka Thorolfson F. 27. marz 1879 — D. 26. febrúar 1953 íslenzk námsfólk braufskráð frá Manitobaháskóla Mrs. Friðrikka Thorolfson Með henni er gengin grafar- veg góð og glæsileg kona, öllum hugþekk er kynntust henni, og skipaði auk þess sérstöðu í sögu og félagslífi íslendinga í Winni- peg. Foreldrar hennar voru þau Friðrik Sigurbjörnsson frá Sjáv- arlandi í iÞistilfirði og Sigríður Jónsdóttir frá Geiteyjarströnd við Mývatn. Voru þau fyrstu ís- lenzku hjónin sem stofnuðu heimili í Winnipeg; voru gefin saman af fyrsta íslenzka prest- inum (séra Páli Þorlákssyni) sem heimsótti landa sína á þess- um slóðum, og börn þeirra, Frank Walter og Friðrikka, voru fyrstu börnin, fædd af íslenzk- um foreldrum í þessari höfuð- borg íslendinga vestan hafs. Þegar hún var þriggja ára gömul misti hún föður sinn, en ólst upp með móður sinni, og síðar stjúpföður, Sigurði Davíðs- syni, málarameistara. Á fyrstu uppvaxtarárunum munu þær mæðgur hafa búið við mjög fá- tækleg húsakynni og þröngan kost, eins og þá var títt um hið nýkomna fólk, og þar við bætt- ist lítilsvirðing sumra hinna „innlendu" samborgara, sem töldu sig réttborna til landsins með gögnum þess og gæðum, og litu smáum augum á hina ís- lenzku innflytjendur og af- springi þeirra. Nú er alt þetta breytt, og það fyrir löngu orðið heiðursnafn að vera íslendingur í Canada. En almenningsálitið breytist aldrei í skjótri svipan. Öflin, sem hér voru að verki, voru bjartsýni, skapfesta kjarkur og manndómur íslenzku brautryðjandanna. Friðrikka átti þessa eiginleika í ríkum mæli; þeir báru hana fram til sigurs, og hjálpuðu til að sigrast á for- dómum og fákænsku þeirra er fyrir voru í landinu, er íslend- inga bar hér fyrst að garði. Friðrikka hlaut nokkra mennt- un í bóklegum fræðum á gamla Central skólanum hér í borg- inni, og síðar lærði hún sauma, og stundaði þá iðn í mörg ár. 21. sept. 1903 giftist hún Hall- dóri Þórólfssyni, Jónssonar frá Hörðubóli í Dalasýslu, og Hall- dóru Halldórsdóttur, konu hans. (f. 26. okt. 1879). Var hann, sem kunnugt er, um langt skeið einn helzti forvígismaður í hljómlist og söngmennt meðal Islendinga í Winnipeg, og bar heimili þeirra jafnan sérstakan rausnar- og menningarblæ. Sambúð þeirra hjóna var mjög farsæl og blessuð efnilegum börnum. Eru þau: Pearl, (Mrs. L. G. Johnson) um langt skeið í fremstu röð ein- söngvara meðal íslendinga vest- an hafs; Halldóra Furbína, fyrr- um hjúkrunarkona (Mrs. Walter G. Allison) og Frank, hljóm- listarfræðingur. Mrs. Thorolfson átti um langt skeið við heilsuleysi að stríða hin síðari ár. En jafnvel ellin og hrumleikinn fengu ekki af- máð aðalsmerkið í hjarta henn- ar og yfirbragði. Það var bjart yfir henni til hinztu stundar. Hún sáði kærleika og góðvild um langa ævi, hver sem í hlut átti, og hún uppskar á sama hátt, hjá ástvinum sínum og öðru samferðafólki. Kirkjan sem hún ávalt til- heyrði, og sem hún og fjölskylda hennar veittu margháttaða þjón- ustu frá fyrstu tíð, kvaddi hana hinztu kveðju við fjölmenna og virðulega athöfn 2. marz 1953. Það mun ávalt verða bjart yfir minningu þessarar góðu konu, og blessun fylgja nafni og niðj- um þessarar fyrstu og einu dóttur hinna fyrstu íslenzku frumherja í Winnipeg. V. J. E. Leitar endurkosningar •íhomas P. Hillhouse Fyrir hönd Liberal-Progres- sive flokksins leitar endurkosn- ingar til fylkisþings í St. Andrews kjördæmi Thomas P. Hillhouse lögfræðingur í Sel- kirk, vinsæll maður, sem reynst hefir vel á þingi og unnið dyggi- lega að velferðarmálum kjör- dæmis síns. Mr. Hillhouse verðskuldar endurkosningu og er þess að vænta, að íslendingar í Selkirk fylki um hann liði í kosning- unum. Allar leiðir til Dakota! Svo væntum við að raunin verði næsta mánuð. í hljóði hefir farið undirbún- ingur 75 ára landnáms-minning- ar sveitar Islendinga þar. En nú er skriður kominn á. Mánudag- inn 15. júní 1953 verður minnst fyrstu landtöku og svo áfram- haldandi landnáms. Allar byggð- ir landnámsins taka þátt í há- tíðinni og er ákveðið að hún hefjist með skrúðgöngu, og í fararbroddi sé víkingaskip skip- að víkingum og í lyftingu drottning dagsins og hirðmeyjar hennar. Saga og þroski byggð- arinnar mun hér sýndur. Vönd- uð skemtiskrá er í undirbúningi fyrir seinnipart dagsins og valdir ræðumenn, æfður söngflokkur og söngfólk. Tignir menn og konur munu fram koma. Kveðjur þjóð- höfðingja og stórmenna verða fluttar og ræðumenn þeir beztu, sem völ er á. Söguleg sýning, Pageant, verð- ur að kveldinu, þar sem brugðið er upp myndum úr lífi landans Síðastliðna viku birtist í dag- blöðunum listi yfir 986 nem- endur, er luku prófi við Mani- tobaháskóla í vor. Ekki er ávalt hægt að greina af nöfnunum hverjir eru af íslenzkum ættum og væri því blaðinu greiði gerð- ur, ef því væri send nöfn þeirra, er kunna að vanta á þann lista, er hér fylgir. Myndir af náms- fólki munu birtar í næsta blaði. Bachelor of Laws: Leifur Julius Hallgrimson, B.A., Honors, second highest aggregate in fourth year—prize $25.00. Gunnar Örn Eggertson, B.A., Honors; John Ronald Gillies, Honors. Doclors of Medicine: Gestur Kristjánsson John Donald Thordarson. Bachelor of Arts: Dorothy Merle Kristjanson John Richard Peterson Arthur Johannes Sigurdson Joyce Marie Thordarson Bachelor of Science (General Course): Donald Francis Johannson Victor Allan Laxdal Bachelor af Science (Electrical): John Edwin Bjarni Thorsteinsson (Mechanical Engineering): Magnús Ingiberg Daníelsson Philip Ólafur Hallgrímur Pétursson. Bachelor of Science in Agriculture: William Gísli Olafson Alan Olafur Olson Wilmar Theodore Sigvaldson Bachelor of Education: Angantýr Árnason, M.A. Bachelor of Pedagogy: Margrét Sigvaldason, B.A. Jóhanna Guðrún Wilson B.Sc. (H.Ec.) frá brottför hans af íslandi til heiðurs og viðurkenningar hér í Vesturheimi. Auðvitað verður íslenzk rausn og gestrisni hvarvetna. Forstöðunefnd skipar fjöldi fólks, en formaður er Magnús F. Björnsson, skrifari Leo Thor- leifson og féhirðir Stefán Indriðason. Sunnudaginn fyrir hátíðina verða tilheyrandi guðsþjónustur í kirkjum byggðarinnar, og munu prestar víðsvegar að pré- dika þar. Söngflokkar safnað- anna munu þar auka á alian hátíðleik. Seinna birtist nákvæmari skemtiskrá, en hér er aðeins vakin athygli allra sona og dætra landnámsins og vina nær og fjær, að veita oss styrk til hátíðar þessarar með nærveru sinni og þátttöku svo sem fram- ast má verða. Frumbyggjanna verður minnst og heiður sýndur. Svo skal minnast sannra drengja. E. H. Fáfnis Landnámshátíð Dakotabyggðarinnar Fréttir frá ríkisútvarpi íslands 10. MAÍ Vikuna, sem leið var suðlæg átt um allt land og hlýindi og kom aldrei frost í byggð. Hlýjast var á miðvikudaginn og mældist hitinn þá 19 stig á Akureyri, en víða var hann 12 til 15 stig. A Norðurlandi var stillt veður alla vikuna og sólskin flesta daga. Sunnan lands var aftur á móti þokuloft og rigning öðru hverju fyrri hluta vikunnar, en víðast úrkomulaust síðari hlutann. Vindur var yfirleitt hægur nema undir Eyjafjöllum, — þar var allhvasst á köflum fram á fimmtudag. — Snjóa hefir tekið upp norðanlands og bílferðir eru hafnar aftur milli Reykjavíkur log Akureyrar, eri vegir eru víða iblautir nyrðra. Garðavinna er nú hvarvetna byrjuð og gras- blettir í skrúðgörðum orðnir grænir. it Síðari hluta aprílmánaðar voru gæftir yfirleitt mjög góðar ■og víða var mikill afli, einkum í Vestmannaeyjum. Afli bátanna þar var samt mjög misjafn og höfðu hinir aflahæstu þrisvar sinnum meiri afla en þeir, sem tminnst höfðu fengið. — Tvö hundruð manns unnu hjá Bæj- arútgerð Reykjavíkur í vikunni, sem leið, og togarar hennar lögðu á land hátt á níunda hundrað lestir af ísfiski og 160 lestir af saltfiski. ☆ í dag er hinn almenni bæna- dagur íslenzku þjóðkirkjunnar og voru guðsþjónustur mjög víða um land og margir prestar mess- uðu á fleiri en einum kirkju- stað. Biskupinn yfir Islandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, pré- dikaði við guðsþjónustu í dóm- kirkjunni í Reykjavík. Bænar- lefnið var þetta: Þökkuð hand- leiðsla guðs á liðnu ári og beðið um að ljós trúar mætti lýsa oss og öllum þjóðum á hinn rétta veg til friðar og bræðralags í anda Jesú Krists. ☆ Hinn 4. þ. m. var gefið út for- setabréf um þingrof og almenn- ar kosningar. Almennar kosn- ingar til alþingis fóru síðast fram haustið 1949 og umboð þingmanna falla því eigi niður án þingrofs fyrr en á hausti kom anda er fjögur ár eru liðin frá kjördegi 1949, en hins vegar er svo til ætlast í lögum að al- rnennar, reglulegar þingkosn- ingar fari fram síðasta sunnudag í júnímánuði, og er því nauðsyn að rjúfa alþingi. Mælir forseti svo fyrir, að alþingi sé rofið 28. júní 1953 og almennar kosningar til alþingis skuli fara fram þann dag. ☆ Þessi framboð til alþingis voru gerð kunnug í vikunni, sem leið: Framboðslista Alþýðuflokksins í Eyjafjarðarsýslu skipa þessir: Bragi Sigurjónsson ritstjóri, Jón Þorsteinsson lögfræðingur, Hulda Kristjánsdóttir og Krist- ján Jóhannesson hreppstjóri. — Karl Kristjánsson alþingismað- ur verður í framboði fyrir Fram- sóknarflokkinn í Suður-Þing- eyjarsýslu, og Þórður Hjaltason símstjóri í Norður-ísafjarðar- sýslu. Haukur Helgason banka- fulltrúi verður í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn á ísafirði, Gunnar Jóhannsson verkamaður á Siglufirði og Gunnar Bene- diktsson rithöfundur í Stranda- sýslu. — Einar Ingimundsson bæjarfógeti verður í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Siglu firði. Gagnkvæma öryggisstofnunin í Washington hefir tilkynnt að hún hafi nýlega veitt íslandi tvö fjárframlög að upphæð samtals 1,6 miljónir dollara eða sem svarar 25,7 miljónum króna. Fyrra framlagið nemur 600.000 dollurum og er það til kaupa á vélum og tækjum í áburðar- verksmiðjuna nýju. Hið síðara nemur einni miljón dollara og var það veitt til þess að aðstoða við að mæta greiðsluhalla ís- lands hjá Greiðslubandalagi Evrópu. Bæði eru þessi framlög óafturkræf. — Á þessu fjárhags- ári hefir stofnunin veitt Islandi samtals 2,2 miljónir dollara, og hefir 1,2 miljónum dollara af þessu fé verið varið til kaupa á Framhald á bls. 4 Fiskimannahátíðin Hátíðin sem lúterski söfnuð- urinn á Gimli efndi til á sunnu- daginn í annað sinn undir for- ustu séra H. S. Sigmar, til að kveðja fiskimenn og árna þeim blessunar áður en þeir leggja af stað norður á Winnipegvatn á sumarvertíðina, tókst með af- brigðum vel. Hátíðin var haldin í Gimli Theatre og fjölmennti þangað fólk víða að. Athöfninni var útvarpað og munu þeir, sem á hlýddu, seint gleyma henni og ber margt til þess; fyrst og fremst hin drengilega og skorin- orða ræða séra Haralds, en hann ber hag og velferð fiskimanna mjög fyrir brjósti; ennfremur hin ágæta ræða séra Philips M. Péturssonar. — Bæjarstjórinn, Barney Egilson, sem er einnig forseti safnaðarins, bauð gesti velkomna í nokkrum vel völdum orðum; tveir söngflokkar, eldri og yngri, sungu. Alvin Blondal var útvarpsþulur og söng einnig einsöng. Var hátíðin öllum, sem í henni tóku þátt, til sóma. Sæmdur doktors- nafnbót í guðfræði Valdimar J. Eylands, D.D. Sú ánægjulega fregn hefir Lögbergi nýverið borist, að United College, sem er sam- bandsstofnun við Manitobahá- skólann, hafi kjörið séra Valdi- mar J. Eylands prest Fyrsta lúterska safnaðar, forseta ís- lenzka lúterska kirkjufélagsins og forseta Þjóðræknisfélagsins, að heiðursdoktor í guðfræði; er þetta hinum mörgu vinum hlut- aðeiganda sérstakt fagnaðarefni. Hinn nýi heiðursdoktor í guð- fræði er áhrifamikill kennimað- ur, góður lærdómsmaður og mælskur langt um fram það, er alment gerist. Lögberg flytur honum innilegar árnaðaróskir í tilefni af þeirri maklegu sæmd, sem honum nú hefir fallið í skaut. \ I

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.