Lögberg - 20.05.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. MAÍ 1954
3
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLJNIC
St. Mary's and Vaughan. Wlnnlpeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
JO* AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningal&n og elds&byrgC,
bifreiCa&byrgC o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.01 p.m.
Thorvaldson, Eggertson,
Bastin & Siringer
Barristers and Solicitors
109 BANK or NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONE 92-6291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Whoiesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917
Office Phone
92-4762
Res. Phone
72-6115
Phone 74-7855
ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
132 Simcoe St.
Wlnnipeg, Man.
Hofið
Höfn
í huga
Heimili sölsetursbarnanno,
Icelandic Old Folks' Home Soc.,
3498 Osler St., Vancouver, B.C.
SEWING^MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Poriage Ave.
Winnipeg, Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
SérfræCingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusfmi 92-3851
Heimasfmi 40-3794
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave. Winnipeg
PHONE 74-3411
ARLINGTON PHARMACY
Prescription Specialist
Cor. Arlington and Sargent
Phone 3-5550
Films, Picnic Supplies and
Beach Novelties.
We collect light, water and
phone bills.
Post Office
sagt að hann hafi eytt því og
sagt: ,Han har ikke fortjent
noget“ (hann verðskuldar ekk-
ert). „Þetta var síðasta kveðja
valdahafanna til hans“, segir
Jón Auðuns.
Naumast mátti bfiast við því,
að Finsen væri mjög vel við
Sigurð málara, því að hann var
eldheitur í sjálfstæðisbaráttunni
og oft berorður gegn stjórnar-
valdinu. Nokkur ádeilukvæði
mun Sigurður hafa ort um þetta
efni, sem flest komu í ljós eftir
hann látinn. Það voru „Kvöld-
félagar" Sigurðar, sem unnu
mest að því að koma Jóni Ólafs-
syni undan eftir að „Islendinga-
bragur hans kom út og allt fór
í uppnám. Nóttina áður en Stift-
amtmaðurinn, Hilmar Finsen,
átti að taka við hinu virðulega
landshöfðingjaembætti, 1. apríl
1873, var stórt svart flagg hengt
við fánastöngina fyrir utan hús
Finsens. En Sigurður hafði mál-
að á það stórum hvítum stöfum:
,,Niður með landshöfðingjann"
og stóðu stafirnir á höfði til að
sýna enn meiri óvirðingu þeim,
sem þannig þóttust ætla að
„þóknast íslendingum“.
----0----
Sigurður málari hafði ekki
komið til íslands til að leita sér
frama né fjár, enda hlaut hann
hvorugt. En efamál er ,hvort
nokkur maður hefir sýnt meiri
föðurlandsást en hann. Á þeim
starfssviðum, sem hann tók sér
fyrir hendur, varð hann braut-
ryðjandinn, hugsjónamaðurinn
og kunnáttumaðurinn, sem öllu
fórnaði, er bláfátækur maður
framast getur fórnað. En hann
var of trúr sjálfum sér til þess
að skjalla þá, sem óeinlægir
voru, þó þeir hefðu yfirráð í sín-
um höndum. Eitt sinn segir
hann í bréfi til vinar síns (lík-
lega Steingríms) í Kaupmanna-
höfn: „Dyggðin verður að betla
krjúpandi á kjánum og biðja um
náð hjá löstunum, segir í Hamlet,
svo var það á 16. öld og svo er
það nú“. Hann vissi vel, hvernig
átti að haga sér til þess að kom-
ast áfram í heiminum, en ekki
valdi hann þann veginn.
Sigurður málari var kosinn
fulltrúi á Þingvallafundinn 1873.
„En meðan sigurvíman var á
þjóðinni eftir þúsund ára hátíð-
ina„“ segir Jón Auðuns, „var
hann að hníga í valinn, maður-
inn, sem dreymt hafði stærri
drauma um ísland en flesta
aðra menn. Hann drógst yfir til
Jóns Guðmundssonar til að
borða máltíð og máltíð. Dag-
leg spor hans upp í helgidóm-
inn hans: Forngripasafnið á
Dómkirkjuloftinu, urðu þyngri
oð þyngri . . . . og svo gekk hann
heim í fátæklega herbergið sitt
í Davíðshúsi. í hjartanu brann
föðurlandsástin, hún var sterk-
ari hjá Sigurði málara og raunar
mörgum öðrum en hún hefir
nokkurn tíma síðar orðið á Is-
iandi, og gremjan brann gegn
öllu þessu öndverða og vitlausa
í samtíðinni, sem hann hafði
ekki ráðið við“.
I bréfi, sem Matthías skrifar
til séra Jóns Bjarnasonar, sem
þá var í Decorah, Iowa, segir
noðanmáls: „Málaraauminginn
er að deyja — úr bjúg og tær-
ingu, — ég sat í Davíðshúsi hjá
bonum í gær og gerði „skeifur",
Þegar ég gekk út. Hann lá í
hundafletinu í einum bólgu-
stokk, ískaldur undir tuskum og
aleinn — og banvænn! Alltaf að
tala um að ekkert gangi með
framför landsins".
f'á var Sigurður fluttur í
sjúkrahúsið, sem var uppi yfir
Gildaskálanum, þar sem hann
hafði löngum setið við að mála
leiktjöld, og þar andaðist hann
september 1874, aðeins 41 árs
að aldri. Þaðan fór útför hans
fram. Séra Matthías flutti áhrifa
mikla ræðu; og meðal þeirra,
sem fylgdu honum til grafar,
voru nokkrar konur í skautbún-
ingi með svartan fald.
Lárus Sigurbjörnsson tekur
það fram í tveim af greinum
sínum um Sigurð í Skírnl, að
Matthías hafi ekki verið ánægð-
ur með þau erfiljóð, er hann orti
eítir Sigurð, en að litlu síðar, er
nann orti um Hallgrim hið al-
unna ljóð, þá hafi hann verið
að hugsa um Sigurð en ekki
Hallgrím, er hann kvað:
„Atburð sé ég anda mínurn nœr,
aldir þó að liðnar séu tvœr,
inn í dimmt og hrörlegt hús ég
treð.
Hver er sá, sem stynur þar á
beð?“
því að hann var þá nýlega búinn
að sjá með eigin augum Sigurð
Guðmundsson á dánarbeði, og
Lárus Sigurbjörnsson seðir, að
lýsingin: „Hár er iþétt og hrokk-
ið, hvítt og svart“, eigi við Sig-
urð en ekki Hallgrím. En erfi-
ljóðin sem Steingrímur orti um
Sigurð eru gullfalleg og tilfinn-
ingarík, og er einhendingin
svona:
„Og haltu minning, moðurláð,
þess manns í fullu gildi,
sem hefði feginn blóði fáð
hvern flekk af þínum skildi“.
----0----
Það mætti flytja langt mál til
að leggja út af ævisögu þessa
mikilhæfa manns, en það ætla
ég þó ekki að gera. Ofurlítinn
kjarna úr því, sem ég vildi sagt
hafa, langar mig til að skilja
eftir með yður, en það er þetta:
Vér getum ekki öll verið stór-
virk á menningarsviðinu. En vér
getum öll gert eitthvað, sem
miðar í rétta átt, — meira að
segja er það skylda vor ,ef vér
eigum ekki alveg mótstöðulaust
að sogast inn í það hyldýpi eyði-
leggingarinnar, sem nú virðist
blasa við mannkyninu. Það er
nú komið svo, að leiðtogar þjóð-
anna eru farnir að óttast þau
eyðileggingaröfl, sem hugvit
mannanna og tæknileg þekking
hefir skapað. Einn rithöfundur
sagði nýlega: „Það er alla reiðu
augljóst, að hinar traustustu
stoðir mannfélagsins: kristnin,
lýðræðishugsjónin og siðferðis-
legt sjálfstæði einstaklingsins,
eru að hrynja, einmitt hér í
Ameríku! Ekkert getur bjargað
oss nema allsherjar uppvakning
á sviði andans, þ. e. a. s. virðing
fyrir göfgi pensónuleikans
sjálfs“.
í sjálfu sér er vélamenningin
góð. Já, frumur líkamans eru
einnig góðar og nauðsynlegar, en
þegar þær verða að villtu afli,
sem breiðist út og eyðileggur
líkamskerfið, þá eru þær kall-
aðar krabbamein! Og vélamenn-
ing var og átti að vera þjónn
mannkynsins, en ef hún kemst á
það stig að verða algerlega þjónn
vadafýkni, peningagræðgi og hé-
gómlegs metnaðar mannanna,
þá er hún um leið orðin krabba-
mein í siðferðis- og menningar-
kerfi heimsins.
Já, vér finnum að vér erum
aðeins lítils megnugir einstakl-
ingar og efumst um að afl vort
geti dugað til þeirra hluta er
gera skal. En heildin öll saman-
siendur þó aðeins af einsiakl-
ingum. E. t. v. verður vér aldrei
neinir sigurvegarar hvað átök
og afrek snertir, en vér eigum þó
enn ráð á hugsjónum vorum,
anda og sál! Oft er það markmið
vort og afstaða til viðfangsefn-
anna, sem varðar meiru en það,
hve miklu vér fáum afkastað,
því enginn getur mælt þau áhrif,
sem göfugt hugarfar leiðir af
sér. Margur umbótamaðurinn
hefir fórnað lífi sínu fyrir gott
málefni -og beðið ósigur að lok-
um. En verk hans lifa og hug-
sjón hans dafnar eftir hann lát-
inn. Fyrir páskana minntumst
vér með mikilli lotningu pínu og
dauða frelsarans. En einnig hann
varð að þola ofsóknir yfirvald-
anna og háðung skrílsins! En
hugsjónir hans og kenningar
lifa! Eigum vér ekki að trúa því,
að ofurlítill neisti af guðdómi
hans hafi verið gróðursettur í
hverri einustu sál? Og ef þessi
neisti sannleika, samúðar og
kærleika er tendraður í hverri
sál þá verður hann að logandi
blysi, sem lýst getur gegnum
hið ógurlega heimsmyrkur, sefn
nú virðist vera að skella á.
Ef alþýðan setur merkið hátt,
þá er sigurinn vís. Og þeir sem
eiga háleitt markmið finna nautn
í starfinu. Enginn andi getur
þroskast, sem ekkert reynir að
skapa sjálfur. Menn geta fundið
nautn í andlegu og menningar-
legu starfi. I stað þess að verða
þreytandi skyldustarf getur það
orðið nokkurs konar fagnaðar-
óður til alvaldsins, sem hefir
gefið oss skilningarvit og til-
finningalíf svo vér megum próf-
ast í eldrauninni, fullkomnast í
þrautinni og endurnýjasl í gleð-
inni. Já, vér verðum að glæða í
sál vorri starfsgleðina!
Það er hermt, að fyrir hið
mikla tónverk sitt, The Ninth
Symphony, hafi tónsnillingurinn
Beethoven orðið fyrir innblæstri
frá hinu ódauðlega kvæði
Schillers, Ode to Joy. En grunn-
tónninn í kvæðinu er: „Ó, þið
í gær, á hátíðardegi verkalýðs-
ins, var f^gurt veður í Reykja-
vík og voru hátíðahöld verka-
lýðsfélaganna með svipuðum
hætti og undanfarin ár. Farin
var kröfuganga um götur bæjar-
ins og staðnæmzt á Lækjartorgi
og var þar haldinn útifundur.
Var þar fjölmenni. Voru þar
fluttar nokkrar ræður. 1 gær-
kvöldi stóðu verkalýðsfélögin
fyrir skemmtunum í fimm sam-
komuhúsum. Hátíðahöld í til-
efni dagsins voru einnig víðar
um land, meðal annars í Hafnar-
firði og á Akureyri. Voru þar
farnar kröfugöngur og útifundir
haldnir.
☆
Síðastliðinn þriðjudag varð
banaslys í Reykjavík. Þriggja
ára gömul telpa varð fyrir fólks-
bifreið og beið bana. Telpan hét
Halldóra Þórarinsdóttir, dóttir
hjónanna Kristínar Hinriksdótt-
ur og Þórarins Andréssonar
kaupmanns, Úthlíð 3.
☆
Sjöunda landsþing Slysavarna
félags Islands var sett í Reykja-
vík síðastliðinn sunnudag. Sátu
þingið 115 fulltrúar víðsvegar að
af landinu. Forseti þingsins var
Júlíus Havsteen sýslumaður. —
Þingið ræddi ýmis slysavarna-
mál.
☆
Fyrrihluta síðustu viku var
víða góður afli í verstöðvum
sunnanlands, og sums staðar
landburður af fiski, til dæmis í
Þorlákshöfn. Síðari hluta vik-
unnar hefir afli verið öllu treg-
ari á sumum stöðum, til dæmis
í Vestmannaeyjum og lítur þar
út fyrir vertíðarlok. Hafa um 100
bátar róið frá Eyjum í vetur.
Vertíðarfólk er nú farið að tygja
sig til heimferðar. — Bæjarút-
gerðin á Siglufirði hefir nýlega
orðið að leggja togaranum Haf-
liða vegna manneklu.
☆
Mikill skortur hefir verið og er
enn á kjöti hér á landi. Hefir
nú verið ákveðið að kaupa 100
lestir af kjöti í Danmörku og
kemur það til landsins 7. maí.
Er hér um að ræða kjöt af naut-
gripum og nokkuð af svínakjöti.
Verður kjötið flutt til Reykja-
víkur og skorið frá beinum og
útbúið til sölu í kjötbúðunum
svo enginn kjötúrgangur þurfi
að falla til í búðunum.
Brezki togarinn Red Knight
var tekinn að veiðum innan fisk-
veiðitakmarkanna undan Sel-
vogi aðfaranótt fyrra laugar-
d^gs. Skipstjórinn játaði brot
sitt og var hann dæmdur í 74
þúsund króna sekt og afli og
veiðarfæri gerð upptæk. Skip-
stjórinn áfrýjaði dóminum.
☆
Um 70 manns, aðallega á Sel-
tjarnarnesi, hafa veikzt af tauga-
veikibróður, eða paratyfus B.
Fyrstu sjúkdómstilfellin voru
21. fyrra mánaðar. Veikin hefir
verið rakin til ógerilsneyddrar
mjólkur frá bæ nokkrum á Sel-
tjarnarnesi. Gerðar hafa verið
ýmsar varúðarráðstafanir til að
hefta útbreiðslu veikinnar. —
Veikin hefir lagzt misjafnlega
þungt á fólk.
☆
I fyrramorgun kom upp eldur
í íbúðarbragga í Laugarnes-
kampi í Reykjavík. Tvær íbúðir
voru í bragganum og bjuggu þar
milljónir veraldarinnar, ég vef
yður að hjarta mínu í gleði
minni, og finn að þér eruð
bræður mínir. Og í gleði vorri
finnum vér það sannarlega að
uppi yfir hinum bjarta stjörnu-
skara býr alvaldur Guð, faðir vor
allra!“
Já, ef ég mætti senda yður
sumarkveðju á ný, þá vildi ég
segja: Verið glaðir! Lífið sjálft
er verðmæti, sem enginn getur
tekið frá yður, og það er hið
innra persónugildi mannsins,
sem getur sett aðalsmerki á
mannslífið, hvort sem það er í
koti eða konungshöll, og gert
það að sigursöng!
níu manns. Komst fólkið nauð-
uglega út um glugga á nærklæð-
unum einum. Missti fólkið aleigu
sína, því engu varð bjargað úr
bragganum.
☆
Ólafur Thors forsætisráðherra
er farinn utan í embættiserind-
um og hefir Bjarna Benedikts-
syni, dóms- og menntamálaráð-
herra verið falið að gegna for-
sætisráðherrastörfum um stund-
arsakir.
☆
I sumar fer fram ný samnor-
ræn sundkeppni á tímabilinu frá
15. maí til 15. september og er
það nokkru lengri tími en ætlað-
ur var til keppninnar 1951. Synda
á 200 metra eins og þá, en sú
breyting hefir verið gerð á, að
menn mega nú nota hvaða sund-
aðferð, sem þeir vilja. I þessari
keppni sigrar sú Norðurlanda-
þjóð, sem eykur mest þátttöku
sína frá síðustu keppni. Þá sigr-
uðu Islendingar og syntu þá
rösklega 36 þúsund manns. Að
þessu sinni hefir Friðrik Dana-
konungur gefið verðlaunagrip
til að keppa um. Verðlaunagrip-
ur íslendinga frá 1951, sem Há-
kon Noregskonungur gaf, hefir
nú verið settur á Þjóðminja-
safnið. Ákveðið er að unglings-
sundmeistaramót Norðurlanda
verði haldið hérlendis í byrjun
júlímánaðar næsta ár.
☆
Jón Jónsson fiskifræðingur
hefir haft það að aðalstarfi síðan
1947, að vinna úr gögnum, sem
safnað hefir verið varðandi
þorskinn og vinna að þorskrann-
sóknum. Hefir gögnum og rann-
sóknarefni varðandi þorskinn
verið safnað hérlendis í 25 ár
samfleytt. Er nú svo komið, að
fiskifræðingar geta reiknað út
með nokkru öryggi hver fiski-
mergðin verði í sjónum frá ári
til árs og gert áætlanir eða veiði-
spár fyrirfram með furðu miklu
öryggi. Telur Jón Jónsson fiski-
fræðingur allar líkur benda til
þess, að þorskveiði næsta ár
verði sízt lakari en í ár. Jón
kveður það vísindalega sannað,
að fiskigengd í Faxaflóa hafi
stóraukizt síðan landhelgin var
stækkuð 1952 og flóinn þar með
friðaður og hefir friðunin haft
mest áhrif til aukningar á stofni
kola og ýsu og veiðist nú mörg-
um sinnum meira af þessum
fisktegundum en þegar bezt
gegndi áður en friðunin gekk í
gildi.
☆
Þjóðleikhúsið hafði frumsýn-
ingu á fimmtudagskvöldið á
sjónleiknum Villiöndin eftir
Henrik Ibsen í þýðingu Halldórs
Kiljan Laxness. Leikstjóri er
norska leikkonan Gerd Grieg. I
aðalhlutverkunum eru Gestur
Pálsson, Jón Aðils, Lárus Páls-
son, Regína Þórðardóttir og
Katrín Thors. Var leikendum og
leikstjóra vel fagnað.
*
Háskóli Islands opnar í dag
sýningu í tilefni af 200 ára af-
mæli Columbia-háskólans í
Bandaríkjunum á þessu ári.
Leggur Columbia-háskólinn til
til sýningarefnið og er kjörorð
sýningarinnar: Réttur mannsins
til þekkingar og frjálsrar notk-
unar hennar.
☆
18 opinber knattspyrnumót
verða haldin í Reykjavík í sum-
ar og verða leikir alls 190 að tölu
í ýmsum aldursflokkum.
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur llkkistur og annast um út-
farlr. Allur ötbúnaCur sá beztl.
StofnaC 1894 SÍMI 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavilion
General Hospltal
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
Nell Johnson Res. Phone 74-6753
Lesið Lögberg
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykh&far, öruggasta eldsvörn,
og &valt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viC, heldur hita frá aC rjúka út
meC reyknum.—SkrlfiC. símlC til
KELLT SVEINSSON
025 WaU St. Wlnnipeg
Just North of Portage Ave.
Simar 3-3744 — 3-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance ln aU its branches
Real Kstate - Mortgages • Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 93-7181 Res. 46-3480
LET US SERVE YOU
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOm BUTTONS
324 Smilh St. Winnipeg
PHONR 02-4024
AUTOMOTIVE SERVICE
Exclusive Hillman
Distributors
Sargent & Home Ph. 74-2576
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar.
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Accountant
505 Confederatlon Life Building
WINNIPEG MANTTOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjanason
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 92-3561
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Loulse Street Siml 92-5227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
Van's Etectric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL KI iKC* 1'kTC ADMIHAL
McCLABY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-48L0
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
2. MAÍ