Lögberg - 01.07.1954, Blaðsíða 4

Lögberg - 01.07.1954, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. JÚLÍ 19&4 Lögberg Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON GefiíS 6t hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA J. T. BECK, Manager Utanáskrift ritstjörans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 743-411 ( Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg" is prlnted and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Kalda stríðið enn í algleymingi Fimmveldafundinum, sem haldinn var í London og jþað verkefni hafði með höndum, að ræða um takmörkun vopna, er nú lokið án þess að nokkurs viðunandi árangurs yrði vart, og venju samkvæmt, strönduðu allar tilraunir til úrlausnar og samkomulags á þvergirðingshætti Rússa; þeir kröfðust þess að blátt bann yrði lagt við notkun atóm- vopna og að vetnissprengjan yrði útlæg ger; en er til þ.ess kom, að ráðstafa eftirlitinu með þessurri háskalegu tortím- ingaröflum, eða réttara sagt framleiðslu þeirra, var engu líkara en dómgreidin hlypi í baklás; það var svo sem engin knýjandi ástæða til eftirlits nema þá helzt á þann veg, að það yrði að mestu leyti í þeirra eigin höndum; og þeir voru svo sem heldur ekki að brjóta heilann um það, hvernig takmörkun vopna mætti hrinda í framkvæmd á hagkvæm- um og skynsamlegum grundvelli; slíkt var svo sem ekki ómaksins vert; hinum gamla áróðri varð að beita hvað, sem öllu öðru leið. Að Stalín látnum þóttust ýmsir hafa orðið varir nokk- urra sinnaskipta í Moskvu; að eftirmaður hans virtist lið- legri til samvinnu og slíkt hið sama mætti um þá menn segja, er næstir honum stæði að,völdum; en hafi þessi skoðun í fyrstu stuðst við nokkur rök, var slíkt vissulega einungis skammgóður vermir, því nú er auðsjáanlega alt komið í sitt fyrra horf þar sem óbilgirnin skipar hinn æðsta sess. Kalda stríðið er enn í algleymingi og samkomulagstil- raunir við Rússa hafa fram að þessu allar fokið út í veður og vind og lítil von um batnandi horfur. Er Eisenhower forseti gerði heyrinkunnar uppástung- ur um alþjóðasamvinnu varðandi notkun kjarnorkunnar í þágu nytsamlegra athafna, beittu Rússar hinu gamla og víð- kunna laumuspili sínu, voru uppveðraðir fyrst í stað, en fóru síðan allar hugsanlegar krókaleiðir til að koma uppá- stungunum fyrir kattarnef. Svo sem' vitað er, tjáðu Rússar sig fúsa til að sækja umræðufund með það fyrir augum, að gera bindandi friðar- samninga við Austurríki og Þýzkaland; en er á fundinn kom, gerðu málsvarar þeirra illvíga árás á Norður-Atlants- hafsbandalagið og ásökuðu Bandaríkin um vélráð og póli- tíska stigamensku og í stað þess að gera nokkra minstu tilraun til að hrinda í framkvæmd áminstum friðarsamn- ingum, töldu hinir rússnesku erindrekar það sitt fyrsta og æðsta boðorð, að reyna að knýja stórveldin til að viður- kenna formlega yfirráð kommúnista í Kína, en upp úr því átti alt saman að lagast af sjálfu sér. Áminstur Berlínarfundur leiddi til ráðstefnu í Geneva, sem setið hefir all-lengi á rökstólum, án þess að viðunandi niðurstaða hafi náðst, og þar strandaði alt, alveg eins og fyrri daginn á Rússum; afstaða þeirra til Indo-China deil- unnar varð hvorki fugl né fiskur, heldur aðeins væmið undirhyggjufálm, þar sem alt var gripið úr lausu lofti og engin heil brú í neinu. Kalda stríðið grúfir enn ýfir mannheimi eins og mara, en á hinum pólitíska húðarklár Rússans, eru drápsklyfjar, loforð öðrumegin en svik hinumegin, eins og Hjálmar frá Bólu eitt sinn sagði, er hann kom vonsvikinn með berklakka jálk sinn úr kaupstaðarferð. ☆ ■ ☆ ☆ Þinglausnir og ráðuneytisbreytingar Síðastliðið mánudagskvöld var sambandsþinginu slitið eftir eina hina lengstu setu í þingsögu hinnar canadísku þjóðar; miklum hluta þingtímans var varið til íhugunar um fjármálin, sem heldur var ekki mót von, þar sem áætluð útgjöld nema nálega fimm biljónum dollara á næsta fjárhagsári; meðal hinna meiri háttar mála, sem þingið tók til meðferðar, má telja endurskoðun hegningarlaganna, er fer fram á margar og mikilvægar breytingar, svo og endur- skoðun á bankalöggjöfinni, er lög mæla fyrir að gerð sé tíunda hvert ár; núverandi stjórn nýtur öruggs meirihluta á þingi og átti hægt um vik með að koma hugðarmálum sínum á framfæri; áhrifa Mr. Drews gætti nokkru meira í /þetta skipti en á undanförnum þingum og var það góðs viti, því stjórn, sem ræður yfir styrkara þingfylgi en holt má teljast, þarf á gagnrýni að halda. Nú má víst telja, að róttækar breytingar verði þá og þegar gerðar á skipulagningu ráðuneytisins; fjármálaráð- herrann, Mr. Abbott, lætur þá og þegar af embætti, og mun eftirmaður hans verða Mr. Harris, núverandi innflutn- ingsmálaráðherra; þá er og fullyrt að hermálaráðherrann, Mr. Claxton, dragi sig í hlé af stjórnmálasviðinu og verði formaður þeirrar stofnunar, er fyrir stjórnarinnar hönd, skal annast um framkvæmdir og mannvirki við St. Lawr- ence-fljót vegna hins fyrirhugaða skipaskurðar og hirina miklu orkuvera, sem þar verða gerð. Mr. Claxton er glögg- skygn eljumaður og mun því í þeirri virðulegu ábyrgðar- stöðu reynast réttur maður á réttum stað. Rétt fyrir síðustu kosningar dubbaði Mr. St. Laurent eftirlætisgoð sitt, Mr. J. W. Pickersgill til ráðherratignar, þótt aldrei fyr hefði hann á þingi setið, og kom þetta mörg- um á óvart; nú er mælt, að honum verði falin á hendur forusta innflutningsmálaráðuneytisins. Hver verður hlutur Sléttufylkjanna að afstöðnum hin- um fyrirhuguðu ráðuneytisbreytingum? Spyr sá, sem ekki veit. Einar þveræingur Fréttir af kirkjuþingi Hann kom á Lögberg þegar þing var sett. hann Þórarinn — um landið barst sú frétt. Það allir vissu að hann kveðju bar frá Ólafi kóngi — fæstir hver hún var. En hún var svona: „Skilji þjóðin þín að það er kveðja bæði Guðs og mín, er heim þú flytur öllum landsins lýð, með lögum — hvorki kúgun eða stríð. Ég vænti liðs hins mikla, ríka manns frá Möðruvöllum. — Eftir ráðum hans það hef ég spurt, að breyti lýður lands og leiðist eftir sporum höfðingjans“. Með kveðju Guðs og konungs Guðmundur reis klökkur; steig á pallinn orðhvatur. Hann fylgdi í máli þessu Þórarni með þungum orðum, hlyntur konungi: „Ég ræð hér engu meiru en aðrir menn: — — En margir gefa ráðin tvenn og þrenn. Hér væri þögn að missa manndóm sinn og móðga bæði Guð og konunginn. Nú varðar allan þingheim þetta mál — já, þjóðina með hjarta, líf og sál. Nú gagnar engin hálfvelgja né hik, því hér er kannske teflt um augnablik“. Hann þagnaði, og þingið studdi alt með þögninni — fanst talað rétt og snjalt. Og nú var enginn lengur beggja blands, — þeir beygðust allir fyrir ræðu hans: „Já, kjarngóð ræða, kröftug: Heyr! heyr! heyr! Hvað kóngurinn er góður!“ sögðu þeir: „Hann heimtar hvorki gull né grænan skóg, en góðvild fólksins — það er honum nóg. Framhald af bls. I Markuson; Mrs. W. J. Arnason; Mrs. Anna M. Jonason; Barney Egilson. Vidines — One — Mrs. E. Thor- steinson. Mikleyar — One — Anna Jones. Ardal — Three — Mrs. Emily Nicolson; Mr. Pall Stefanson; Sigurdur I. Sigvaldason. Braedra—One—Halldor Bjorn- son. Breidavikur — One Edwin Mar- teinson. Geysir — Two — Jon Palsson; Valdimar Sigvaldason. Vidir—One—Ragnar Gudmund- son. Glenboro — One — Fred Fred- erickson. Baldur — One — A. W. Johnson. Grund — One — B. S. Johnson. Bru — One — Th. Hallgrimson. Lundar — Two — Mrs. N. R. Johnson; G. A. Breckman. Herdubreidar — Two — G. F. Thordarson; Mrs. V. Valdemar- son. Calvary — Two — Mrs. Ruth Sigurdson; Mr. Tryggvi Ander- son. Vancouver — Two — Mrs. A. Mattiason; Mrs. S. Hambly. Missions Commitiee — Mrs. B. Bjarnason. Lutheran Womens League — Mrs. O. Stephenson. Treasurer — Mr. Neil Bardal. Executive Committee of Synod —Mr. J. V. Jonason. Og Grímsey — þetta gæðasnauða sker. sem gagnar ekki neinum hvort sem er: við látum það, og skárri skerin hin að skaðlausu — með konunginn að vin“. En einhver sagði: „Dauft er þetta þing, ef þar ei heyrum Einar þveræing: Því einkar fróður hann er hér og þar, og hann er líka bróðir Guðmundar.“ Hann Þveræingur þá á fætur stóð og þingheim allan bað um stundar hljóð: Þó kóngurinn sé góður — sé það satt — þá sýnist mér við greiðum engum skatt. Því þó við ættum engilstjórn í dag, þá yrði á morgun kannske breytt um lag. — Að því er snertir þetta eyði sker, má þangað fltyja’ og ala stóran her. Nú varðar allan þingheim þetta mál, já, þjóðina með hjarta, líf og sál.“ — Og nú var enginn lengur beggja blands, en blessað sérhvert orð á vörum hans: „Við teljumst þó með öllu ráði enn, og ekki neinum háðir“, sögðu menn: En ef að kæmi hingað æfður her þá hyrfi alt, sem bezt og göfgast er. Hann Einar hefir okkur ráðið heilt, og um það skal ei lengi rætt né deilt, að kónginum við gefum enga ey, í einu hljóði segjum margfalt nei“. Á báðar hliðar, heil og lærdómsrík er hérna saga úr okkar pólitík: Ef slysast skyldi Þórarinn á þing, á þjóðin altaf nýjan þveræing. Sig. Júl. Jóhannesson ÁVARP TIL Dr. Richards Beck Eftir HARALD LEÓSSON Sungið af Karlakór ísafjarðar í Alþýðuhúsinu á ísafirði á afmælisdegi dr. Richards Beck, 9. júní 1954. Kom þú heill yfir sæ nú er blíðasta blæ hefur blásalur himins af náð sinni veitt. Snemma vestur um sund bar þig víkingsins lund. . Sértu velkominn, fóstra vor ann þér enn heitt. Þegar rödd þín barst heim, bar hún hánorðurs hreim, því að hjartað er íslenzkt og norrænt þitt orð. Þú varst fulltrúi vor, áttir þreklund og þor og varst þjóð vorri sómi á vestrænni storð. Og með stórhug og trú reistir bandalags brú milli bræðra hér eystra og vestan við höf. Því skal þakkir tjá þér, því skal heiðra þig hér, og þín heimsókn er oss sem hin dýrasta gjöf. AGENDA I— (a) That the synod thanks the president for his complete, com- prehensive and challenging re- port as well as his conscientious devotion to the duties of this office. (b) We recommend that the following be the Agenda of the Synod and in order here stated: 1. Report of officers. 2. Report of committees. 3. Mission and Evangelism. 4. Stewardship and Benevol- ence. 5. A memorial service for pastors and laymen of the Synod who have passed away during the year. 6. Changes in constitution. 7. Revision of Synodical con- gregational roll. 8. Pension plan and salaries. 9. Lutheran World Relief and Lutheran World Action. 10. Lutheran Women’s work. 11. Lutheran laymen’s work. 12. Publications. 13. Old Folks Home. 14. Social problems. 15. Archive of Synod. 16. Other causes. Á morgunfundi þingsins á mánudaginn, eftir stutta guð- þjónustustund, sem séra Sigurð- ur Ólafsson flutti, var tekið á móti skýrslum embættismanna og nefnda. Eftir miðjan dag á mánudaginn flutti umboðsmað- ur United Lutheran Church in America, Rev. G. Jacobi forseti Canadian Lutheran Cynate fyrri partinn af erindi, sem var þrungið eldmóði og áhuga um kristnilega þróun og starf þess mikla og sókndjarfa kirkju- félags. Einnig flutti W. A. Mehlen- backer forstjóri Canadian Luth- eran Coucel snjallt erindi um al- heirhsstarf lútersku kirkjunnar (Lutheran World Action). Kveldfundur kirkjuþingsins á mánudagskvöldið verður sér- staklega eftirminnanlegur, því að þá nutu þingmenn og gestir fagurrar og áhrifamikillar söng- skemmtunar hjá sameinuðum söngflokkum Fyrsta lúterska safnaðar — þeim eldri og yngri, undir stjórn hinnar mikilhæfu konu frú E. ísfeld, sem hefir eigi aðeins getið sér ógleyman- legan orðstír á meðal íslendinga í þessari borg fyrir þátttöku sína í list listanna, heldur líka á meðal / allra enskumælandi manna, sem til hennar þekkja og list þeirri unna. Undirleik annaðist ungfrú Sigrid Bardal. Þrjár ræður voru fluttar á mánu dagskvöldið, allar snjallar og vel fluttar. Fyrsti ræðumaðurinn var séra Haraldur S. Sigmar; tók hann itl athugunar nýja hug- mynd, sem upptök sín mun eiga hjá hinum víðkunna og vel þekta lækni, P. H. T. Thorlakson, er hugmynd sú róttæk og stór eins og læknirinn er sjálfur, og var prýðilega vel með hana farið af séra Sigmar, en hug- myndin er um stórbyggingu, sem rísa skuli á rústum gamal- menni heimilisins Betel á Gimli, sem fullnægi þægindakröfum samtíðarinnar og rúmi þá sem þreyttir eru orðnir eftir hita og þunga dagsins, og höltum fæti ganga. Aðra ræðuna flutti Þórir Kr. Þórðarson, cand. theol., frá Chicago, ungur, glæsilegur og víðförull menntamaður frá Is- landi, sem framhaldsnám stijnd- ar 1 Chicago. Talaði hann um Biblíuna, sérstaklega Gamla testamentið, og skilning sinn og nútíma vísindamanna á henni. Erindið var vísindalega samið, vel flutt á prýðis-fallegu ensku máli. Síðustu og þriðju ræðuna flutti erindreki United Lutheran Council, Rev. G. Jacobi, fram- hald af ræðu hahs frá eftirmið- deginum og hljóði hún um at- hafnir og sókn lútersku kirkj- unnar í Ameriku. Rev. Jacobi er ákveðinn í skoðunum, einarður og prýðilega vel máli farinn. Að loknum fundi þáðu allir góðgerðir í fundarsal kirkj- unnar. —FRAMHALD Lögregluþjónninn: — Þér haf- ig enga bjöllu á hjólinu yðar! Hvernig ætlið þér að leiða at- hygli vegfarenda að yður? Kvenhjólreiðamaður: — Hvað er þetta! . . . . ég sem er í stutt- buxum! ☆ Bíbí, 7 ára, kom til reiðhjóla- viðgerðamannsins til þess að ná í hjólið istt, sem hafði verið í viðgerð. — Hvað kostar viðgerðin? — Hún kostar einn koss. — Allt í lagi. Amma kemur á morgun og greiðir skuldina mína! THIS SPACi CONTRIBUTED B Y WINNIPEG BREWERY L i m i t e o

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.