Lögberg - 01.07.1954, Side 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. JÚLÍ 1954
Lærdómurinn á að vera oss
íslendingum heilagt mólefni
117 slúdenlar brauðskráðust
gær frá Mennlaskólanum
í Reykjavík
Menntaskólanum í Reykja-
vík var slitið í gær við at-
höfn í hátíðarsal skólans,
að viðstöddum kennurum
skólans, nemendum og gest-
um. Héldu þar ræður Pálmi
Hannesson rektor, Kristinn
Ármannsson, settur rektor í
vetur og fulltrúar eldri
stúdenta. — í þetta sinn
brautskráðust 117 stúdentar
frá skólanum.
473 í skólanum
Skólaslita-athöfnin hófst kl. 2
e. h. í gær. Pálmi Hannesson
rektor bauð stúdenta, eldyi stú-
dentaárganga og gesti vel-
komna. Gaf hann síðan Kristni
Ármannssyni yfirkennara orð-
ið, en hann hefur gegnt rektors-
störfum í vetur í fjarvistum
Pálma Hannessonar.
Kristinn Ármannsson flutti
skýrslu um skólastarfið í vetur
að venju, og var þar ýmsan
- fróðleik að finna um nemendur
skólans og próf á vetrinum.
Þeir stúdentar, sem í þetta
sinn útskrifast frá skólanum,
eru þeir fyrstu, sem aðeins hafa
setið fjóra vetur þar, samkvæmt
hinni nýju fræðslulöggjöf. Var
nemendafjöldinn í vetur samtals
473, þar af 152 stúlkur og 321
piltur. Er það nokkru nríinni
fjöldi en í fyrra, en svipaður og
var árið það áður. Skiptingin
milli deilda er þannig, að 199
stunduðu nám í máladeildum
skólans, en 136 í stærðfræði-
deildum.
Skólinn starfaði að þessu sinni
í 21 bekkjardeild. Þá gat settur
rektor einnig um, hvernig nem-
endur skiptust eftir búsetu, og
voru flestir þeirra úr Reykjavík
og nágrenni. Aðeins 40 nemend-
ur áttu heimili sín í sveit.
an orðum sínum til 25 ára stú-
denta, sem viðstaddir voru, en
þeir voru fyrsti bekkurinn, sem
hann kenndi við Menntaskól-
ann. Loks ávarpaði hann ný-
stúdenta, bað þá gæta hófs, sam-
vizkusemi og siðprýði í lífi sínu
og störfum og óskaði þeim farar-
heilla um ókomin ár.
Að því búnu tók Pálmi Hann-
esson rtktor aftur til máls og
afhenti hinum nýju stúdentum
prófskírteini sín og óskaði þeim
jafnframt til hamingju. Þá af-
henti hann og verðlaun úr,ýms-
um sjóðum skólans • og bóka-
gjafir fyrir námsafrek og hátt-
prúða framkomu.
Miklar fjarvistir
Þá gat Kristinn Ármannsson
þess, að heilsufar í skólanum
hefði verið gott á vetrinum, en
þó hefði nokkuð gætt kvellisótt-
ar um það bil, er vorpróf hófust.
Skólasókn hefði aftur á móti
verið bágborin og hefði of mik-
ið borið á fjarvistum. Hvatti
hann nemendur og aðstandend-
ur þeirra til að bæta þar úr á
komandi vetri.
Á kennaraliði skólans voru
þær breytingar, að í stað Pálma
Hannessonar rektors kenndu
þeir dr. Hermann Einarsson og
dr. Sigurður Þórarinsson. ólafur
Ólafsson cand. mag. hefur og
verið skipaður fastur kennari
við skólann.
Skólinn er nú aðeins fjögurra
vetra skóli sem kunnugt er, en
þrátt fyrir það heldur hinn
gamli þriðji bekkur, sem nú er
raunverulega sá fyrsti, hinu
gamla nafni sínu. Undir 3.
bekkjarpróf gengu alls 139 og
stóðust 113 prófið, en 19 féllu.
Er það helmingi betri árangur
en í fyrra og veit á gott, þar
sem þriðji bekkur er þungur.
Stúdenisprófin
Stúdentspróf stóðu yfir í skól-
anum frá 28. maí til 12. júní að
þessu sinni, og brautskráðust 70
stúdentar úr máladeild en 44
úr stærðfræðideild. Luku allir
sjöttubekkingar prófi. Þá tóku
og stúdentspróf 2 barnakennar-
ar í áföngum og 4 utanskóla-
nemendur.
Hæstu einkunn á stúdents-
prófi fékk Þorsteinn Sæmunds-
son úr stærðfræðideild, ágætis
einkunn 9,42, og var það jafn-
framt hæsta einkunnin yfir
allan skólann. — Hæsta einkunn
í máladeild fékk Árni Kristins-
son, 8,95. Þakkaði settur rektor
síðan inspector scholae, Þor-
valdi Þorvaldssyni, fyrir vel
unnin störf á vetrinum og
Stefaníu Guðnadóttur aðstoð
við skólastjórn. Beindi hann síð-
Ræða reklors
Beindi hann síðan máli sínu
til hins fríða stúdentahóps og
mælti m. a. svo:
Ungu stúdentar.
I nafni skólans, kennara og
skólasystkina, árna ég ykkur
allrar blessunar með þennan
merka áfanga á þroskabraut
ykkar, sem þið nú hafið náð.
Þið eruð gjöf þessarar öldnu
stofunar til hins unga lýðveldis
íslands á 10 ára afmæli þess.
Ég óska þess af öllum hug, að
þið reynizt landi voru góð gjöf,
og ég blð hinn hæsta að styrkja
ykkur til þess.
Þið hafið tengzt mér býsna
traustum böndum, þótt fátt hafi
um samvistir orðið síðasta ár. í
tvísýnu þorraveðri, þegar ég lét
frá landi, stóðu allmörg ykkar í
hnappi á hafnarbakkanum og
horfðuð eftir mér. Sú mynd var
mér harla hugföst. Sami hópur-
inn beið mín aftur í birtu vor-
dagsins og fagnaði mér, þegar ég
kom heim. Sú mynd mun eigi
heldur líða mér úr minni.
j
Gildi lærdóms
Ég hef nú haft með höndum
skólastjórn í 25 skólaár. Þið eruð
því hinn 25. árgangur stúdenta,
sem mér auðnast að skrá brott
úr skólanum. Þetta mun enn
auka tengslin okkar á meðal,
þótt leiðirnar skilji nú. Þegar ég
kvaddi ykkur í vetur, vildi ég
brýnt hafa fyrir ykkur gildi
lærdóms, jafnt fyrir einstakl-
inga sem þjóðfélag. Ég lét þess
getið, að lærdómur væri heilagt
málefni, ekki sízt oss Islending-
um. Trú mín er enn hin sama
nema aukin sé, því að hversu
þarflegir og nýtir sem Jiinir
efnalegu hlutir eru, þá eru það
þó hin andlegu verðmæti ein,
sem eru í ætt við eilífðina og
himininn. Hitt allt er jarðnesks
eðlis, hversu gott sem það er.
Þjóð vor er fámenn og hefur
löngum verið hrjáð af fátækt og
umkðmuleysi. — Fyrir andlegt
starf hefur hún lifað, fyrir and-
legt starf hefur hún hafizt til
frelsis og sjálfstæðis, fyrir and-
legt starf mun hún lifa áfram í
landi sínu og frelsinu halda, en
týnast annars, hversu mjög sem
hún kann að auðgast að tíman-
legum verðmætum. Fyrir því
mega menn aldrei horfa ein
vörðungu til hinna efnalegu
verðmæta eða sefja sig við ein-
hliða lofstír um þau, þótt við
leggjum raflagnir um landið
allt, virkjum hvert fallvatn og
ræktum hvert hrjóstur, ef vér
glötum úr landinu lærdómi og
öðrum ávöxtum andans. Eins og
hönd og fótur mega sín lítils,
hversu sterk sem þau eru, nema
höfuð og hjarta séu í leiknum
með, þannig verða hin tíman-
legu, hin efnalegu verðmæti
eins og Mökkurkálfinn, mikil,
en meginlítil, þegar í harð-
bakka slær, nema lærdómur og
andleg menning komi til með
víðsýnina og hinn andlega þrótt-
inn. — En því mæli ég þessum
orðum hér, að mér virðist nokk-
ur raun þess hin síðari ár, að
mönnum sé að gleymast gíldi
lærdóms og annarra mennta
með þjóð vorri. Þess vegna
kveð ég ykkur nú, ungu vinir
Úr borg og bygð
Úr bréfi að heiman,
dagsettu 19. júní s.l., i'rá P. S.
Pálson-hjónunum, sem eru á
skemmtiferð um Island, stendur
þetta meðal annars:
-----Mikið hefir ferð okkar
gengið vel. Hin svörtu ský. sem
voru að umkringja Winnipeg, er
við lögðum á stað, hurfu okkur
sýn innan tíu mínútna frá því
loftfarið hóf sig á loft, og höfum
við verið í einu sólbaði og blíð-
viðri síðan. í Reykjavík hefir
verið sól og blíða, utan 17. júní,
þá var skýjað loft og smáskúrir
við og við allan daginn, sem
enginn virtist taka nærri sér —
mannfjöldinn afar mikill og
borgin öll skreytt fánum,
myndum og blómum.--------Við
tökurnar elskulegar, jafnt af
skyldum sem vandalausum, vin-
um sem ókunnugum, og hefir sá
hlýlgjki haldist óbreyttur hvar
sem við höfum farið og komið.
í fám orðum: borin á höndum
hins gestrisna fólks, er landið
byggir.-----Við höfum ferðast
mikið hér um nærsveitir og
borgina og séð marga sögustaði
og minnismerki, sem unun er að
líta.----Öll ferðin hefir verið
líkust fögrum draum, sem mað-
ur óskar, að aldrei taki enda.
----Næst förum við til Austur-
lands á æskustöðvar konunnar,
Borgarfjörð hinn minni.
Með innilegri kveðju til allra.
☆
Hvergi hagkvæmara
Á bökkum Winnipeg-vatns,
þar er staðurinn að dvelja yfir
sumarfríið. Hægt að fá Cabin
hjá honum Jóni Árnasyni á
Gimli. Bæði nálægt Gimli Park
við vatnið og við suðurlínu
bæjarins, alveg á blávatns-
bakkanum. Það er yndislegt
pláss, sem mikið er sótt eftir.
Inngirtur leikvöllur. Góð bað-
stöð. Gosbrunnur og nýtízku
Plumbing. Leiga $15.00, $18.00
og $22.50 á viku. — Skrifið eftir
“Photo folder.”
☆
Gefin saman í hjónaband í
kirkju Selkirk safnaðar 26. júní:
Stanley Wick, Winnipeg, Man.,
og Margaret Elsie Elizabeth
Walker, sama staðar.
Við giftinguna aðstoðuðu Mrs.
Pauline White, Winnipeg, Man.,
og Mr. Eddie Wick, Petersfield,
Man. Sóknarprestur gifti.
☆
— GIFTING —
Laugardaginn þ. 19. júní voru
gefin saman í hjónaband á
heimili Mr. og Mrs. Ronald
Howardson að Lundar, Man.,
Ann, eldri dóttir Mr. og Mrs.
William Halkowich frá St.
Martin, Man., og Joseph Mundi,
einkasonur Mr. og Mrs. K. S.
Austford að Lundar. Brúðurin
var leidd fram af föður sínum.
Aðstoðarmey brúðarinnar var
systir hennar Olga, en aðstoðar-
maður brúðgumans var John
mínir, með þessum orðum:
Stundið lærdóm, virðið lærdóm,
eflið lærdóm og sanna menn
ingu með þjóð ykkar. en ofmetn-
izt aldrei af þessu.
Kveðjur háiíðaárganga
Að lokinni ræðu rektors tóku
fulltrúar hátíðaárganganna til
máls. Fyrstur talaði sr. Guð-
brandur .Björnsson og mælti á
latínu. Svaraði settur rektor og á
latínu. Dr. Guðni Jónsson flutti
kveðjur frá 30 ára stúdentum og
færði skólanum að gjöf brjóst-
líkan úr eir af Páli Sveinssyni
yfirkennara, gert af Ríkharði
Jónssyni myndskera. Afhjúpaði
sonur Páls, Páll Pálsson stud.
theol., myndina. — Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri flutti
skólanum kveðjur 25 ára stú-
denta og ræðustól, útskorinn af
Ágústi Sigurmundssyni, hinn
mesta kjörgrip, að gjöf.
Að lokum var sungið „Ó, land
míns föður“, og sleit síðan
rektor Menntaskólanum í
Reykjavík í 108. sinn.
—Mbl., 17. júní
Halkowich. Fjölmenn veizla var
setin um kvöldið í samkomusal
Lundar-bæjar. — Séra Jóhann
Fredriksson frá Glenboro fram-
kvæmdi hjónavígsluna. Ungu
hjónin setjast að í Gypsumville,
Man.
☆
— Argyle Prestakall —
Séra Jóhann Fredriksson
FERMINGAR:
Fríkirkju-söfnuður:
Marlene Mae Johnson
Carole Gail 'Nordal
Beverley Vivian Johnson
Immanuel-söfnuður:
Lyal Curtis Reykdal
Frank Raymond Skardal.
F relsis-söf nuður:
Robert John Christophersson
John Albert Oliver
SKÍRNIR:
Barabara Louise, Mr. og Mrs.
Jónsson, Stockton.
Julian Susan, Mr. og Mrs.
McDowell, Greenwood.
Thomas Einar, Mr. og Mrs.
E. S. ísford, Baldur.
Sheldon Anthony, Mr. og Mrs.
B. O. Sveinsson, Cypress River.
Rickey Elvyn, Mr. og Mrs. E.
L. Davidson, Glenboro.
Gary Lee, Mr. og Mrs. W. A.
Davidson, Glenboro.
George Reed, Mr. og Mrs. S.
A. Storm, Glenboro.
Kristín Gaile, Mr. og Mrs. A.
A. Johnson, Glenboro.
Nancy Jean, Mr. og Mrs. S.
Arason, Glenboro.
Mary Ellen, Mr. og Mrs. R. C.
Rawlings, Glenboro.
☆
Kaupið Sögu íslendinga í
Veslurheimi, IV. og V. bindi. —
Þetta er ykkar saga.
☆
Miss Dorothy Mae Jónasson,
sem stundar nám í fiðluleik við
Toronto Conservatory of Music,
hefir dvalið í tveggja vikna
heimsókn hjá móður sinni, Mrs.
Jónasson, Acadia Apts.
☆
Henry John Einarsson, sonur
G. Einarsson, Glenboro, gekk
að eiga Miss Wilhelmina Jean
Larocaue, 19. júní. — Heimili
þeirra verður í Glenboro.
☆
Mrs. Valgerður Johnson, 866
Ebby Ave., lézt á laugardaginn
26. júní, 77 ára að aldri. Hún
fluttist til Winnipeg fyrir 71 ári;
tilheyrði Fyrsta lúterska söfn-
uði og söngflokk kirkjunnar.
Hún lætur eftir sig þrjá sonu,
Arnold, Leonard og Edward;
þrjár dætur, Mrs. Vernon
Hildahl, Mrs. Ben Gibson og
Mrs. Ellie Lower; tvær systur,
Mrs. S. Anderson og Mrs. Annie
Gunn. — Útför hennar var gerð
frá Fyrstu lútersku kirkju á
mánudaginn. Dr. V. J. Eylands
flutti kveðjumál. Jarðar var í
Brookside-grafreit.
☆
Frances, yngsta dóttir Mr. og
Mrs. G. B. Johannson, Árborg,
Man., og Robert Knippleberg
frá Eatonia, Sask., voru gefin
saman í hjónaband í Sambands-
kirkjunni í Árborg 18. júní; séra
Philip M. Pétursson gifti. Heim-
ili Mr. og Mrs. Knippleberg
verður í Moose Jaw, Sask.
☆
Mr. Otto Matthews kaupmað-
ur frá Edmonton dvaldi nokkra
daga hér í borginni í fyrri viku
í gistivináttu þeirra Mr. og Mrs.
K. W. Johannson Goulding St.
☆
Mr. J. Walter Johannson leik-
hússtjóri frá Pine Falls, var
staddur í borginni í vikunni,
sem leið.
☆
Látinn er nýlega hér í borg
Eyjólfur Thorsteinsson, 72 ára
að aldri, góður drengur og vand-
aður, ættaður úr Hróarstungu;
hann' lætur eftir sig eina systur,
frú Ellu Jónasson, sem hér er
búsett. Útför Eyjólfs var gerð
frá Bardals. Dr. Valdimar J.
Eylands jarðsöng.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjurr,
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
— Gimli Lulheran Parish —
9 a.m. Betel.
11 a.m. Gimli.
2 p.m. Árnes.
7 p.m. Gimli.
8 p.m. Husawick.
All Times are Daylight
Saving.
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 4. júlí:
Víðir, kl. 2 á ensku.
Árborg, kl. 8 á íslenzku.
Robert Jack
— ÞAKKARORÐ —
Með línum þessum vil ég
túlka hjartans þakklæti fyrir
eigin hönd og fjölskyldu minn-
ar mörgum vinum, félagsheild-
um í Selkirk-söfnuði, er heiðr-
uðu okkur með samsæti og mig
með gjöfum í tilefni af því að
ég er nú að láta af störfum sem
umsjónarmaður við kirkju
safnaðarins og samkomuhús eft-
ir 16 ára þjónustu við það starf,
nú meira en 81 árs að aldri.
Sér í lagi vil ég þakka hinu
eldra kvenfélagi safnaðarins,
sem hafði forgöngu samsætisins
með höndum.
Hermann Þorvaldsson,
Selkirk, Man.
— Mundirðu eftir að þakka
fyrir kökuna, sem þú fékkst?
— Já, mamma; ég mundi vel
eftir því; en ég fékk samt ekki
meiri köku!
Kristján G. Backman, sonur
Dr. og Mrs. K. J. Backman, Win-
nipeg, og Miss Ina Beatrice
Acheson voru gefin saman í
hjónaband 25. júní. — Heimili
þeirra verður í St. Vital.
☆
Gefin saman í hjónaband,
þann 16. júní, að heimili íslenzka
sóknarprestsins í Selkirk, Man.,
Magnús Halldór Halldórsson,
Camp Morton, Man., og Marg-
aret Loydina Johnson, sama
staðar. — Við giftinguna áðstoð-
uðu Mrs. Jóhanna Valdi.na
Walld og Mr. Jóhann Kristinn
Jónasson. Nýgiftu hjónin setjast
að í Camp Morton, Man.
☆
Dr. Kjartan Johnson frá Pine
Falls var staddur í borginni í
fyrri viku.
Lesið Lögberg
"A Realistic Approach io the
Hereafter"
by
Winnipeg author Edith Hansson
Bjornsson's Book Store
702 Sargent Ave.
Winnipeg
Það er
bragðbetra!
C r tiss h
Framleidd í Canada af Canadamönnnum
Þessi eldavél telst til fágætra verðmæta
......ein af Eaton’s allra fullkomnustu
munum til heimilishalds.......fögur að
ytri gerð í gljáandi Titanium, hvítu
enamel, er sýrir hafa engin áhrif á, sjálf-
virk ljós að ofan, nákvæmur tímamælir
og 7 hraða-umráðatæki, þrjú venjuleg og
eitt stórt suðuhólf, og fallegur ofn með
“permaview” og samstæðu geymslu- og
hitunarskúffum.
IiíTlÐ INN í næstu Eaton’s báð og skoðið nieð
eigin auffum þessa óviðjafnanlegu rafeldavél.
EATON'S of CANADA