Lögberg - 08.07.1954, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 8. JOLl 1954
íslendingar þurfa að eiga sína
eigin orgelsmiði
— segir organsnillingurinn Power Biggs
Þann 25. júní s.l. kom hingað
til landsins hinn kunni orgel-
leikari E. Power Biggs, ásamt
konu sinni, Margaret, en hann
mun skipa bekk með þeim
mönnum sem einna hæst bera
meðal núlifandi organleikara í
Bandaríkjunum. Er þetta í
fyrsta skipti, sem þau hjónin
koma hingað til Islands, en hing-
að komu þau með flugvél Loft-
leiða frá Kaupmannahöfn, eftir
11 vikna ferðalag um Evrópu.
Power Biggs hefur haldið
tvenna hljómleika hér á landi á
vegum Félags íslenzkra organ-
leikara og Tónlistarfélagsins,
sem báðir voru haldnir í Dóm-
kirkjunni síðastliðið mánudags-
kvöld. Þau hjónin munu halda
héðan í kvöld flugleiðis til
Bandaríkjanna.
Biggs er fæddur í Westcliff
nálægt Lundúnum árið 1906, en
hefur verið bandarískur þegn
síðan 1937. Hann er nú búsettur
í Boston. Upphaflega hóf hann
nám í verkfræði, en lét brátt af
því og hóf tónlistarnám við
Royal Academy of Music, þar
sem hann hafði hlotið náms
styrk sem sérlega efnilegur
nemandi. Að loknu námi hóf
hann kennslu við sama skóla.
Nokkru síðar fluttist hann til
Boston og gerðist þar organ
leikari hinnar heimsfrægu sin-
fóníuhljómsveitar, sem kennd
er við þá borg. Síðan 1942 hefur
Biggs einnig verið fastur organ-
leikari hjá CBS útvarpsfyrir
tæki Bandaríkjanna og hefur
orgelleik hans síðan verið út-
varpað um hinar mörgu CBS
stöðvar á hverjum sunnudags-
morgni. Átti Morgunblaðið við
tal við þau hjónin í gærdag.
Ferðast um 10 lönd
á 11 vikum
— Þið hjónin hafið ferðast
mikið undanfarnar vikur?
— Við erum búin að vera a
stöðugu ferðalagi svo að segja í
11 vikur. Fyrsta landið sem við
komum til á þessu ferðalagi var
Portúgal, en við komum til
Lissabon á páskadaginn. Þaðan
fórum við til Englands, síðan til
Hollands, Þýzkalands, Dan-
merkur, Noregs, Svíþjóðar og
Frakklands. Þaðan fórum við
aftur til Hollands og síðan til
Englands, og um Kaupmanna-
höfn hingað til Reykjavíkur. Á
BIOOD
«4í^tPOiio
i *
TM I $
S P A C E
CONTRIBUTEO
B Y
DREWRYS
MANITOBA
DIVIJION
WESTERN
CANADA
BREWERIES
L t M I T E O
öllum þessum stöðum hélt ég
tónleika og það mun láta nærri
að þeir hafi verið um þrjátíu
talsins.
1
Langt í norðri
— Yður hlýtur að vera margt
minnisstætt úr þessari för.
— Það er margt, sem hefur
hrifið hug minn þessar síðustu
vikur. Til dæmis þegar við hjón-
in komum til Hollonds, í byrjun
maí, sáum við í fyrsta skipti
fullþroskaðar túlípanaekrur.
Það var dásamleg sjón að sjá
túlípanabreiðurnar í fullum
blóma á þeim tíma árs. Annar
merkur þáttur í ferðalaginu var
heimsóknin til Þrándheims, en
þar lék ég á 50 ára afmæli
norska orgelleikarafélagsins, í
hinni gömlu dómkirkju Niðar-
óss, þar sem ennþá nokkur hluti
kirkjunnar er uppistandandi frá
því á 12. öld. Mér er sérstaklega
ríkt í huga það atriði hátíða-
haldanna, er sinfóníuhljómsveit,
kór og orgel fóru með Mattheus-
ar-passíuna í dómkirkjunni, sem
var þéttsetin af fólki úr öllum
stéttum, sem virtist allt vera
jafn næmt fyrir hátíðleik þeirr-
ar stundar. Okkur hjónunum
fannst þegar við vorum stödd í
Þróndheimi, að við værum
stödd mjög norðarlega á hnett-
inum — öllu norðar yrði ekki
farið. — Þá vorum við ekki búin
að koma til íslands.
Tekur ofan fyrir
Leifi heppna
— Hvernig var svo að koma
til Islands?
— Við hjónin vorum lengi bú-
in að hlakka til þess að koma
hingað, því við höfðum lesið
mikið um land og þjóð. I raun
og veru er ég lengi búinn að
vera kunnugur einum Islend-
ingi, en það er Leifur Eiríksson,
sem fann Vínlandið góða, en
hann stendur ljóslifandi á torg-
inu í Boston. Við erum það
miklir kunningjar, að ég tek
alltaf ofan fyrir honum er ég á
leið fram hjá fótskör hans.
Fyrsti lifandi Islendingurinn,
sem ég hitti á ævinni var svo dr.
Páll Isólfsson, svo ég get með
sanni sagt að fyrstu kynni mín
af íslendingum eru mjög góð.
Þegar við komum undir íslands-
strendur með flugvél frá Loft-
leiðum, var veður mjög fagurt
og fengum við því afburða góða
landssýn. Það var ákaflega á-
hrifamikil sjón að sjá landið úr
lofti. I þessu sambandi vil ég
nota tækifærið til að nefna það,
að á þessu ferðalagi er ég búinn
að ferðast með þeim fjölda flug-
véla, að ég hefi varla tölu á því,
en hvergi hef ég orðið fyrir jafn
alúðlegri og góðri afgreiðslu og
sjónustu bæði í lofti og á landi
sem hjá Loftleiðum. Ég segi
Detta ekki vegna þess að mér
hafi litist of vel á flugfreyjurn-
ar í flugvélinni, en þær eiga
samt sem áður allt hrós skilið.
Skrifborð lögsögumanns
á Lögbergi
Síðan við stigum fæti á ís-
lenzka grund, hafa gestrisni og
alúðlegheit rekið hvað annað.
Við höfum haft mikla ánægju af
þessari fyrstu heimsókn okkar
til Islands, en þó fannst mér sér-
staklega ánægjulegt að fá tæki-
færi til þess að koma á Þingvelli,
þó einkanlega á Lögberg, sem
ég hefi lesið svo mikið um. Þeg-
ar ég kom á þann stað, sá ég
greinilega fyrir mér skrifborð
lögsögumanns og á því liggjandi
fundarhamarinn úr einkenni-
lega löguðum steini, sem hrotið
hafði úr barmi Almannagjár. Ég
held að hið gamla alþingi Is-
lands, sé sá þáttur í sögu lands-
ins, sem flestir útlendingar hafa
heyrt getið um.
— Þeir þekkja flestir of lítið
til hennar til þess að geta dæmt
um það, en sem dæmi get ég
nefnt, að í desember síðastliðn-
um lék ég í CBS útvarpið verk
eftir dr. Pál ísólfsson, sem heitir
Chaconne, en sú útvarpsstöð út-
varpar um Bandaríkin þver og
endilöng. Það verk vakti mikla
athygli og persónulega er ég
mjög hrifinn af því og ætla mér
í framtíðinni að leika meira eftir
hann í bandaríska útvarpið.
Goíí hljóðfæri í lílilli kirkju
Þegar ég kom til Kaupmanna-
hafnar hitti ég að máli hinn
fræga hljóðfærasmið Dana,
Frobenius, sem aðallega hefur
hlotið frægð fyrir oreglsmíði
sína. Hann sagði mér að hann
hefði smíðað orgelið í dóm-
kirkjunni í Reykjavík. Mér var
þetta dálítið undrunarefni, því
ég áleit að íslendingar gætu
smíðað sín orgel sjálfir. Hins
vegar hafði ég mikla ánægju af
að leika á þetta orgel, sem er
mjög gott hljóðfæri, en kirkjan
er sú minnsta, sem ég hefi leikið
í. Hún minnti mig á gamlar
kirkjur í Nýja-Englandi. Islend-
ingar þurfa að eiga sína eigin
orgelsmiði. Þeir geta það engu
síður en aðrar þjóðir. Maður,
sem hefur næmt tóneyra og er
laginn smiður ætti að geta lært
þessa smíði á 3 árum. Ég vona,
að ekki líði mörg ár, þar til hér
verði leikin stór tónverk á ís-
lenzk orgel, en þetta atriði tel
ég hluta af almennri tónlista-
þróun, sem á að vera hægt að
skapa hér sem annars staðar í
heiminum.
Lék inn á segulband
fyrir ríkisútvarpið
Að lokum bað Power Biggs
blaðið að flytja dr. Páli Isólfs-
syni sérstakar þakkir fyrir þátt
hans í undirbúningi Islandsferð-
arinnar og einnig stjórnum Fé-
lags íslenzkra organleikara og
Tónlistarfélagsins, en þessir að-
ilar sáu um hljómleikana hér og
allar móttökur.
I gær spilaði Biggs Biggs inn á
segulband fyrir ríkisútvarpið
sérstakan þátt, sem saman-
stendur af amerískri hljómlist,
meðal annars eftir höfunda frá
nýlendutímabilinu og núlifandi
höfunda. Þá lék hann einnig
sérstakan þátt eftir klassiska
höfunda, svo sem Handel og
Bach. M. Th.
—Mbl., 1. júlí
Úr borg og bygð
Gefin saman í hjónaband í
lútersku kirkjunni í Selkirk,
þann 30. júní, Gordon Alex-
ander McMillan, Toronto, Ont.,
og Birgitta Laufey Björnsson,
Selkirk, Man. Við giftinguna að-
stoðuðu Mrs. Líney Sigríður
Gray, systir brúðarinnar, og Mr.
Raymond Albert Wallace, Win-
nipeg, Man. — Nýgiftu hjónin
setjast að í Toronto. — Veizla
var setin í Selkirk Lutheran
Hall. Sóknarprestur gifti.
☆
Mr. Benedikt Ólafsson mál-
arameistari, Mr. Sveinn Odds-
son prentari og Mrs. Linekar
fóru til Oak Point á laugardag-
inn var í heimsókn til ættingja
og vina og komu heim aftur á
sunnudagskvöldið; með þeim
komu hingað Mr. og Mrs. Krist-
inn Pétursson frá OakvPoint.
☆
Stödd eru hér um slóðir um
þessar mundir hr. Sigurjón
Sigurðsson og frú frá Reykjavík.
Sigurjón er starfsmaður við
klæðaverksmiðjuna Álafoss, en
kona hans er hálfsystir frú Guð-
rúnar konu Skúla Sigfússonar,
fyrrum þingmanns St. George
kjördæmis, og Mrs. Thorgilson,
sem búsett er að Ashern.
☆
Dr. Friðrik Kristjánsson frá
Ottawa, sem þar skipar háa
stöðu í þágu landbúnaðarráðu-
neytisins, dvaldi í borginni
nokkra undanfarna daga ásamt
fjölskyldu sinni; kom hann
hingað í heimsókn til foreldra
sinna, þeirra Mr. og Mrs. J. F.
Kristjánsson, 246 Montgomery
Avenue. Kona Dr. Friðriks,
Lena, er dóttir þeirra Mr. og
Mrs. Ásgeir Gíslason í Leslie,
Sask., og þangað vestur fór fjöl-
skyldan á þriöjudaginn.
☆
Mr. Kenneth Hallsson, rafur-
magnsverkfræðingur tók nýlega
að sér að selja happdrættismiða
vegna krabbalækningafélagsins,
keypti einn miðann sjálfur og
seldi alla hina, sem í bókinni
voru; hann datt í lukkupottinn,
fékk splunkunýjan Pontiac-bíl
og sjónvarpstæki þar að auki.
☆
Mr. Thor Viking vélsetjari hjá
The Columbia Press Limited
brá sér austur til Kenora, Ont.,
síðastliðið fimmtudagskvöld á-
samt frú sinni og dóttur í heim-
sókn til Mr. og Mrs. V. A. John-
Fakírinn, sem dregur bíla með
tungunni að koma í Tívolí
Lætur bíl aka yfir brjóst sér og
skjóta sig í kvið og brjóst
Stjórn Tívolí hefir ráðið til
sín marga erlenda og inn-
lenda skemmtikrafta til þess
að skemmta gestum garðs-
ins í sumar. Fyrsti erlendi
skemmtikrafturinn, s e m
kemur, er hinn heimsfrægi
fakír, Tarano, og mun hann
hefja sýningar í Tívolí á
annan í hvítasunnu.
Lék verk eftir dr. Pál ísólfsson
í CBS útvarpið
— Hafa Bandaríkjaménn á-
huga fyrir íslenzkri tónlist?
Tarano er sá núlifandi maður,
sem sagður er hafa yfirunnið
sársaukatilfinninguna, og eru
það hinir ótrúlegustu hlutir,
sem hann framkvæmir og hefir
hlotið heimsfrægð fyrir.
Krækir kjötkrók í tungu sér
Má nefna til dæmis eitt at-
riði, þar sem hann krækir kjöt-
krók í tungu sér og dregur þann-
ig bíl skipaðan farþegum með
tungunni. Einnig má nefna, að
hann lætur bíl aka yfir brjóst
sér. Þá lætur hann skjóta sig í
kvið og brjóst með byssu, og
framkvæmir það einn af áhorf-
endunum.
Hangir á sverði
Auk þess gerir hann þekktar
fakírkúnstir, svo sem að hanga
á flugbeittu sverði, sem hann
bregður undir háls sér, liggur á
naglabretti með mikinn þunga
ofan á sér og ótal margt fleira,
sem ekki er hægt upp að telja,
en fólk verður að koma og sjá.
11 þúsund gestir
Rúmlega 11 þúsund manns
hafa nú þegar sótt garðinn á
þeim fáu dögum, er hann hefir
verið opinn. Garðurinn var opn-
aður 16. maí og er það nokkru
fyrr en venjulega og má það
teljast góð aðsókn áður en
helztu skemmtikraftar sumars-
ins koma.
Svífur 60 metra
Næsta atriði eftir komu fakírs
ins verður hinn heimsfrægi
fallbyssukonungur Leoni, sá
sem lætur skjóta sér úr fall-
byssu í 20 metra hæð og svífur
um 60 metra, og er hann sá eini
núlifandi, er leikur þessa list.
Selkópar í tjörninni
Til að gleðja börnin sérstak-
lega hefir stjórn Tívolí gert
ráðstafanir til að fá tvo selkópa,
og verður þeim komið fyrir í
annarri tjörninni, sem verður
girt sérstaklega. Rúlluskauta-
brautinni verður komið fyrir á
danspallinum, og verður hún
tekin í notkun nú um hvítasunn-
una. Fyrir þá fullorðnu mun
hinn vinsæli skotbakki verða
opnaður.
—Alþbl., 5. júní
M ESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
— MESSUBOÐ —
Messað verður í Guðbrands-
söfnuði við Morden, sunnudag-
inn 18. júlí, kl. 2 e. h. Standard
Time.
Fólk er vinsamlega beðið að
auglýsa messuna innan byggðar.
S. Ólafsson
☆
■Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 11. júlí:
Hnausum, kl. 2
Riverton, kl. 8. ■—
Báðár messurnar á íslenzku.
Robert Jack
son. Mr. Viking kom heim á
sunnudagskvöldið en kona hans
og dóttir dvöldu í Kenora fram
á miðvikudag.
☆
Mr. og Mrs. Björn Olgeirsson
frá Mountain, N. Dak., hafa
dvalið í borginni nokkra undan-
farna daga.
☆
Mr. Grettir Eggertson rafur-
magnsverkfræðingur, er í 3ja
vikna sumarfríi ásamt frú sinni
vestur við Banff og Lake Louise.
☆
Mr. John Vigfússon frá
Howardville var staddur í borg-
inni á mánudaginn ásamt fjöl-
skyldu sinni.
☆
Mr. og Mrs. Th. Clements frá
Ashern, Man., voru í borginni á
mánudaginn.
☆
Síðastliðinn fötsudag lézt hér
í borginni Pétur E. Erlendsson
83ja ára að aldri; hann stundaði
um tuttugu ára skeið búskap í
grend við Belmont, Man., en
dvaldi þaðan í frá í þessari borg;
hann lætur eftir sig þrjár dætur,
Mrs. Fred Hernrich, Mrs. Sam
Travis og önnu, og þrjá sonu,
John, Carl og Magnús; einnig
lifir hann ein systir, Mrs. Julian
Prout.
Útförin var gerð frá Bardals á
mánudaginn. Séra Philip M.
Pétursson jarðsöng.
☆
Frú Emily Pálsson frá Van-
couver er nýkomin til borgar-
innar úr heimsókn til dæt.ra
sinna í Ottawa og Geraldton,
Ont.
— Ég vil hér með biðja um
hönd dóttur yðar, því að nú hef
ég fengið svo góða stöðu, að ég
get séð fyrir fjölskyldu.
— Ágætt! Við erum sex í
heimili!
Frá Seattle
Seattle er séleg borg
sín með breið og fögru torg,
bygð er steini og stáli af
og stendur við hið Kyrra haf-
Heimsins öllum álfum frá
ýmsar þjóðir líta má;
upp að telja allar þær
um það varla ég er fær.
Svíinn tíðum tyggur snús,
talinn mjög til starfa fús.
Þá er hér einnig þegnaval
frá Þrándheimi og Raumudal.
Baunverjinn er hér frá Höfn,
hingað kominn yfir dröfn.
Islendinga einnig hér
innan um synda lítum vér.
Tekur óhræddur ölið inn,
unir hjá oss Þýzkarinn.
Rússar, Finnar Frakkarnir,
flutt hafa hingað allmargir.
Urmull sést af ítölum
útsmognum frá Páfanum.
1 húsum ríkra og hótelum
er heilmikið af Mongólum.
Þeir eru mestu þrifa skinn
og þolnir að ná í dollarinn.
Líka Irinn er oss hjá,
Engla og Skota telja má.
Gráðugir að græða féð,
Gyðingana fáum séð.
Þeir alskyns varnig selja sveit
og sjaldan tapa það ég veit.
Hér eru annars engin naut
í amerískum þjóða-graut.
☆ ☆ ☆
Þá er að geta þess, að Islend-
ingar í Seattle hafa ákveðið að
stofna til íslendingadags hátíða-
halds eins og undanfarandi ár,
sunnudaginn 1. ágúst n.k. að
Silver Lake; ekki alveg á sama
stað og áður, heldur rétt norðan
við garðinn sem við höfðum
áður.
Nefndin er nú í óða önn að
útbúa skemmtiskrá fyrir dag-
inn og verður hún með bezta
móti: Iþróttir af ýmsu tagi fara
fram og geta allir tekið þátt í
þeim eftir vild, ungir sem
gamlir. Ein af okkar glæsilegu
konum mun koma fram og
tákna Fjallkonuna, og verður
það óefað með beztu atriðum á
skemmtiskránni.
Veitið athygli auglýsingum
vorum, sem munu birtast bráð-
lega í íslenzku blöðunum.
J. J. M-
Eiginkonan kom til manris
síns rétt fyrir jólin og bað hann
að lána sér 500 krónur.
— Góða bezta! Að lána þér?
Ég sé þá peninga aldrei aftur.
— Jú; ég skal veðja við þig
20 krónum, að þú færð pening-
ana aftur í janúar.
— 1 byrjnu febrúar sagði kon-
an við mann sinn:
— Ég tapaði veðmálinu. Hér
eru tuttugu krónurnar.
Lesið Lögberg
"A Realislic Approach to the
Hereafter"
by
Winnipeg author Edith Hansson
Bjornsson's Book Store
702 Sargent Ave.
Winnipeg
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fjnrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
SINDRI SIGURJÓNSSON
LANGHOLTSVEGI 206 — REYKJAVÍK