Lögberg - 22.07.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. JÚLI 1954
3
Drottning Ádríahafsins
Feneyjar, borgin sögufræga
við botn Adríahafsins, er eftir-
læti allra ferðamanna. Erlendir
ferðalangar flykkjast árlega í
hrönnum til Feneyja til að skoða
þessa undraborg, sem ekki á sinn
hka í veröldinni. Og það er ó-
hætt að fullyrða, að sá ferða-
langur, sem leggur leið sína til
Feneyja, skynjar ýmsa fegurð,
sem hann áður ekki vissi, að
v*ri til í þessum heimi.
Úppha/ borgarinnar
Það er upphaf byggðar í Fen-
eyjum, að fólk, sem byggði
Norður-ltalíu á fimmtu öld,
flýði undan innrásarherjum
barbara út í lálendar eyjar, sem
Hggja undan ströndu milli ósa
Piave og Adige, en báðar þær ár
eiga upptök sín í Alpafjöllum.
Petta flóttafólk hóf byggingu
borgar, sem síðar varð ein feg-
ursta og auðugasta borg ver-
aldar.
Venezia varð snemma sjálf-
staett lýðveldi og nefndist sá
boge (hertogi), sem æðstur var
uianna í ríkinu. Borgin er vel í
sveit sett sem verzlunarborg,
enda græddist henni snemma of
fjár á viðskiptum við Austur-
lönd. Á tímum krossferðanna
var uppgangur Feneyja mikill.
Fftir fjórðu krossferðina var
borgin á hátindi veldis síns.
Veneziumenn réðu þá yfir
íónísku eyjunum, hluta af Mikla
garði og höfðu aðgang að Svarta-
hafi. Þannig sátu þeir yfir allri
verzlun milli Evrópu og Asíu.
Stríð og hnignun
Veneziumenn háðu styrjaldir
við nábúa sína í Genúa og gjör-
sigruðu flota þeirra í Chioggia
arið 1380. Þeir brutu einnig und-
lr sig landsvæði á meginlandinu.
Verzlun og siglingar blómguð-
ust nú meira en nokkru sinni
fyrr. En brátt komu hnignunar-
merki í Ijós. Tyrkir náðu Mikla-
garði og byrjuðu að leggja undir
sig grísku nýlendurnar. Þegar
svo hin nýja sjóleið til Indlands
fyrir Góðravonarhöfða var upp-
götvuð seint á fimmtándu öld,
fluttust Austurlandaviðskiptin
frá Miðjarðarhafi að Atlantshafi.
Feneyjar höfðu lifað sitt feg-
Ursta. Napóleon tók borgina her-
skildi,1797. Eftir fall hans voru
^eneyjar undir veldi Austurríkis
þangað til árið 1866, að ítalía var
sameinuð í eitt ríki.
Gondola! Gondola!
Feneyjar eða borgin fljótai
eins og hún er stundum köl]
er byggð á mörgum smáeyjt
Fr engu líkara en húsin hafi v
Ið reist á hafi úti. Stór skur(
hggur eftir borginni endilan
°g skiptir henni í tvennt. Nefr
hann Canale Grande og er í 1
un eins og S. Út frá honum lig,
Svo smásíki, 117 talsins, s
Kaupið Lögberg
V
VIÐLESNESTA
ISLENZKA BLAÐIÐ
spönnuð eru af rúmlega 400
brúm. Aðalfarartæki borgarinn-
ar eru hinir nafntoguðu gondól-
ar, flatbotnaðir bátar, langir og
mjóir. Stendur ræðarinn aftur í
skut og stjakar gondólnum á-
fram með einni ár.
Gondólinn hefir lengst af
gegnt sama hlutverki í lífi Fen-
eyinga og hesturinn hjá okkur
íslendingum. Nú á gondólinn í
vök að verjast fyrir nýja tíman-
um, því að vélbáturinn er bæði
hraðskreiðari og ódýrari. Hann
mun þó aldrei geta þrætt króka-
leiðir gondólsins og aldrei bjóða
upp á svipaða rómantík! Starf
ræðaranna er erfitt og lýjandi,
en það má telja til lista, hversu
fimlega þeir stýra báti sínum
á hinum þröngu síkjum milli
húsaraðanna. Það vantar ekki að
ferðamanninum sé boðið í sigl-
ingu. Hvarvetna bjóða ræðar-
arnir þjónustu sína: Gondóla!
Gondóla! hrópa þeir og eru
reiðubúnir til að slá af svo sem
helmingi af upphaflegu verði, ef
ferðamaðurinn er búinn að læra
þá göfugu list að prútta.
*
Piazza San Marco
Markúsartorgið er miðstöð
borgarinnar og við það standa
frægustu byggingar borgarinn-
ar: Hertogahöllin, Companilu-
turninn og Markúsarkirkjan. —
Kirkjan var byggð yfir jarð-
neskar leifar Heilags Magnúsar,
þegar þær voru fluttar frá Alex-
andríu til Feneyja. Mikið skraut
var borið í kirkjuna. Það voru
lög í ríkinu, að hver sá kaup-
maður, sem til Austurlanda fór,
skyldi koma aftur með einhverja
skrautmuni í kirkjuna. Kirkjan
er byggð í byzönskum stíl, afar
litskrúðug, þegar glampar á
mósaikið í sólskininu. Yfir aðal-
innganginum standa bronzhest-
arnir fjórir, sem eitt sinn
skreyttu hvelfingu Neós í Róm.
Flestir skrautmunir í kirkjunni
eru frá Alexandríu og öðrum
borgum Austurlanda. Markúsar-
kirkjan er eitt fegursta guðshús
i veröldinni, sem gert hefir verið
af mannanna höndum. Hertoga-
höllin er umkringd súlnaröðum
á tvo vegu með fögrum bog-
hvelfingum. Hún var í smíðum
í tvær aldir og var sífellt verið
að breyta henni á ýmsa vegu.
Hún er ein af fegurstu bygging-
um á ítalíu. I hertogahöllinni eru
geymd mörg meistaraverk mál-
arans Tintoretto, t. d. „Bacchus
og Adríane“ og „Paradís", sem
er stærsta olíumálverk í heimi.
Kotneskar kirkjur og
Renaissance
Annars úir allt og grúir af
kirkjum og höllum í gotneskum
stíl. Má þar til nefna kirkju
Santa Maríu Gloriosa de Frari,
sem skreytt er listaverkum eftir
Titian. Renaissancinn náði al-
drei eins sterkum tökum á Fen-
eyjum og öðrum borgum ítalíu,
sökum hinna austurlenzku á-
hrifa, sem þar gætti. Þó eru
margar byggingar í stíl endur-
vakningarinnar, t. d. San Marco-
bókasafnið, sem álitið er skraut-
legasta dæmi um Renaissance,
sem til er í heiminum. Það væri
að æra óstöðugan að telja upp
allar þær glæsilegu og frægu
byggingar, sem Feneyjar hafa
upp á að bjóða, enda er þar sjón
sögu ríkari. Skulum við því lítil-
lega athuga daglega lífið undir
hinni brennandi sól Italíu.
Sotto il sole di Venezia
Það verður ekki annað sagt en
að götulífið sé nokkuð fjölskrúð-
ugra og hávaðasamara þarna
suður frá en við eigum að venj-
ast hér við kaldar strendur At-
lantshafsins. Götusalar og úti-
kaffihús setja sinn svip á bæinn.
Fátt er skemmtilegra en að eiga
viðskipti við hina lífsglöðu götu-
sala. Þeir eru fljótir að falla frá
hinum upphaflega prís og
stökkva ekki upp á nef sér, þótt
viðskiptavinurinn * sé enginn
þægir gulls og geri sig ekki á-
nægðan fyrr en hann hefir
þjarkað hinu upphaflega verði
niður um helming. Ensku,
þýzku, frönsku, dönsku og
sænsku hafa þeir á takteinum,
en tungu þeirra Egils og Snorra
kannast þeir ekkert við! Ekki
ber mikið á betlurum, miklu
minna en í Þýzkalandi t. d.
Fólkið er yfirleitt snyrtilegt til
fara, einkum kvenþjóðin. Þær
eru flestar í ‘drögtum eins og
stöllur þeirra íslenzkar á fögr-
um sumardegi, sérlega þokka-
legar og aðlaðandi mannverur!
ítalskan er hljómíagurt mál og
lætur þægilega í eyrum. Fólkið,
sem talar hana er glaðlynt,
söngvið og elskulegt í viðmóti.
Það lætur tilfinningar sínar ó-
spart í ljós. Tveir fullorðnir
karlmenn skömmuðust sín t. d.
ekkert fyrir að skæla framan í
heila járnbrautarlest.
Gler og feröamenn
Gleriðja Feneyinga er fræg, og
þeir eru ekki lítið stoltir af.
Þykir þeim illt, ef nokkur slepp-
ur úr borginni án þess að hafa
skoðað að minnsta kosti eina
glersmiðju. Annars hafa þeir
drýgstan skilding af ferðamönn-
um, sem koma hvaðanæfa að til
að skoða borgina þeirra. Fen-
eyjar eru líka Paradís ferða-
mannsins. Rétt fyrir utan borg-,
ina liggur Lidor baðströndin,
þar sem hann getur svamlað í
volgum býlgjum Adríahafsins og
sleikt sólskinið í glóandi fjöru-
sandinum. Ef hann vill freista
gæfu sinnar, er hægurinn á að
skreppa snöggvast inn í casí-
nóið, en það er lukkan ein, sem
ræður vigt á pyngjunni, þegar
menn koma aftur út í sólskinið.
I Rialtohverfinu er heimsins
elzti banki og þar er líka fiski-
torg, þar sem ýmsar framandi
fisktegundir eru til sölu. Þarna
iðar allt af lífi og fjöri, það er
þráttað um verðið á hverjum
kolkrabba þar til hæsin bindur
endi á frekari umræður.
Við kveðjum Feneyjar að
kvöldlagi. Sól er hnigin til viðar.
Hægur andvari vaggar gondóln-
um á Canale Grande. Við róum
framhjá tveimur elskendum,
sem gleymt hafa stað og stund
undir stirndum himni. Brátt er-
um við í járnbrautarvagni, sem
ber okkur burt frá þessari fögru
undraborg, þar sem Titian
föndraði við pensla, d’Annunzio
háði stefnumót við Elenoru Duce
og Shylock gamli taldi dúköturn-
ar sínar. V. A.
—TÍMINN, 16. júní
Gætið mikilvægra skjala
Fæðingarvottorð, vegabréf, borgarabréf og önnur verðmæt skjöl,
ættu að vera geymd annars staðar en í heimahúsum, því þar er
hætta af eldsvoða og þjófnaði of mikil. Geymið slík skjöl í yðar
eigin öryggishólfi hjá The Royal Bank of Canada, en það kostar
innan við 2 cent á dag. Spyrjist fyrir hjá næsta útibúi.
Viðskipti yðar eru kærkomin!
THE ROYAL BANK OF CANADA
Sérhvert útibú nýtur tryggingar allra eigna bankans.
Baráttumenn . . .
Framhald aí bls. 2
ugt að holdgast á jörðu í öllum
mönnum. Fyrr er ekki takmarki
hins mennska lífs náð. En það er
ekki frelsun einstaklinganna
fyrst og fremts og ekki heldur
eitthver fyrirmyndarríki á jörðu,
þar sem hver maður á bíl, kæli-
skáp og útvarp, sem er tak-
markið. Heldur er það eins konar
upphafning þessa jarðneska lífs
til guðmannlegs lífs, sem orðið
gæti eins og himnesk symfónía í
samanburði við ruddalegan jass
hversdagsleikans. Um þetta ræð-
ir nokkuð í einni af merkustu
bókum hans: Fredom and the
Spirit, er fyrst kom út í Eng-
landi 1935, en hefir komið nokkr-
um sinnum út síðan (London,
Geoffrey Bles. '12s. 6d).
Guðs samverkamenn eruð þér
Að skoðun Berdyaevs hafa
ýmisir áhrifamenn vestrænnar
kristni, eins og t. d. Ágústínus
og Lúthfer, verið of tröllriðnir af
syndartilfinningu sinni. Ekki
tjáir þó að ætla sér að hunza
þann gamla með öllu. Honum
verður alltaf að sýna tilhlýðlega
kurteisi. En í stað þessarar sál-
sýkiskenndu hræðslu við djöful-
inn og ógnir vítis, er mönnum
var áður innrætt, mundi það
reynast farsælla að halda meira
á lofti merki fegurðar og góð-
leika. Það að vera mennskur er
einmitt í þéssu fólgið, að vera
gæddur frelsi og skapandi mætti
fram yfir skynlausar skepnur.
Mesta vegsemd mannsins er það,
að honum er ætlað að verða sam-
verkamaður Guðs. Að vera að
berja það stöðugt inn í hann, að
hann sé réttlaus stórsyndari, fall-
inn og gerspilltur garmur, sem
ekkert verðskuldi nema helvítis-
eld,- verður fremur til hrösunar
en sáluhjálpar. Það getur ekki
verið draumur skaparans, áð
koma sér upp þrælastétt. Enda
væri harðstjórn á himni engu
geðslegri en harðstjórn á jörðu.
Af öllum þrældómi, sem mann-
kynssagan veit dæmi um, er sá
verstur, sem lagður hefir verið á
mennina í nafni Guðs.
Frelsisþrá rússnesku þjóðar-
innar er á sígildan hátt lýst í
hinni frægu skáldsögu eftir
Fyodor Dostoevsky: Karamazov
bræður, í frásögninni af rann-
sóknardóamaranum mikla, sem
lætur handtaka Jesú, er hann
kemur til jarðarinnar á ný, og
dæmir hann á bálið. „Þú þóttist
ætla að gera mennina frjálsa“,
mælti hann, „en þetta frelsi
hefir orðið okkur dýrkeypt. I
fjöldamargar aldir erum við
búnir að berjast við þetta frelsi
þitt, sem mennirnir hafa ekkert
með að gera og nota sér aðeins
til óþurftar. Nei, þá sá fjandinn
betur: Gefið þeim brauð, og
fyrir það eru þeir reiðubúnir að
selja frelsi sitt og frumburðar-
rétt“. 1 skapgerð rannsóknar-
dómarans er ofið þáttum úr
hugsunarhætti Jesúíta og komm-
únista. Hann ímyndar sér, að
hann vilji vel. En af því að
mennirnir eru ekki frelsinu
vaxnir, verður hann að taka sér
einræðisvald yfir þeim. Allt er
skipulagt: heimilislíf þeirra,
störf þeirra og skemtanir, hugs-
anir þeirra og vilji. Aldrei má
hin algóða forsjón rannsóknar-
dómarans af þeim líta, svo að
þeir fari.sér ekki að voða. Menn-
irnir verða að eins konar verk-
færum eða viljalausum vinnu-
dýrum í höndum hinna útvöldu
stjórnenda. Dostoevsky sá með
skyggnum augum, hvað koma
mundi í þeim þjóðfélögum, sem
hættu að trúa á frelsi Krists, en
féllu fyrir freistingum Satans í
eyðimörkinni. Dýrin en ekki
mennirnir geta lifað af einu
saman brauði.
—KIRKJURITIÐ
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Út-
vega peningal&n og elds&byrgC.
bifreiBaábyrgC o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For t^uick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK. MANITOBA
Phones: Ofíice 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.0t p.m.
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
132 Slmcoe St. Wlnnipeg, Man.
'^=UNfí=r
SEWING MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Portage Ave.
Winnipeg, Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
Sérfræðingur í augna, eyrna, nef
og hálssjiíkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 92-3851
Heimasími 40-3794
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave. Winnipeg
, PHONE 74-3411
Thorvaldson. Eggertson, Baslin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 Hafið Höfn í huga Heimili aólsetursbarnanna. Icelandic Old Folks’ Horne Soc , 3498 Osler St., Vancouver, B.C.
CANADIAN FISH ARLINGTON PHARMACY
PRODUCERS LTD. Prescriplion Specialist Cor. Arlington and Sargent
J. H. PAGE, Managing Director Phone 3-5550 Films, Picnic Supplies and
Wholesale Distributors of Fresh and Beach Novelties.
Frozen Fish' We collect light, water and
311 CHAMBERS STREET phone bills.
Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917 Post Office
Office Phone Res. Phone 92-4762 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST
528 MEDICAL ARTS BUILDING SERVING THE WEST END FOR
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. 27 YEARS
and by appointment. Phone 74-4422 Ellice & Home
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaCur sá bezti.
StofnaC 1894 SlMI 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre bame Ave.
Opposite Matemity Pavilion
General Hospital
NelLs Flower Shop
Weddlng Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
Nell Johnson Res. Phone 74-6753
Gilbarl Funeral Home
Selkirk, Manltoba.
J. Roy Gilbart
Licensed Embalmer
Phone 3271 Selkirk
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Acccrmtant
505 Confederation Life Bulldlng
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker. A. F. Kristjansmon
500 Canadlan Bank of Commerce
Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3561
SELKIRK METAL PRODUCTS G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hltaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- vi8, heldur hita frá aC rjúka út meB reyknum.—SkrifiB, simiC til KELLT SVEINSSON C2S Wall St. Wlnnlpeg Just North of Portage Ave. Simar S-3744 — 3-4431 Keystone Fisheries Limited Wholesaie Diatrlbutors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Simi 92-6227
J. Wilfrid Swanson & Co. EGGERTSON
Insurance ln all lta branches Real Estate - Mortgage* - Rentals FUNERAL HOME
210 POWER BUILDING Telephone »3-7181 Res. 40-3480 Dauphln, Manitoba
LET US SERVE YOU Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. Van's Etectric Ltd. 636 Sargenl Ave.
RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smlth SL Wlrmipeg PHONR 02-4624 Authorized Home Appliance Dealers GENKRAL F' 1 .Fd'KIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFTAT Phone 3-4890