Lögberg - 19.08.1954, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 19. ÁGÚST, 1954
Kveðjur vestan um haf
Erindi flult á prestastefnunni 22. júní s.l.
Eftir dr. RICHARD BECK prófessor
MIKILL heiður og sambærilegt
fagnaðarefni er mér, leik-
manninum, það, að hljóta á ný
tækifæri til að ávarpa Presta-
stefnuna, en það var einnig hið
góða hlutskipti mitt fyrir tíu
árum síðan. Vil ég þess vegna
hefja mál mitt með því að þakka
þær frábærlega innilegu, já,
bróðurlegu viðtökur, er ég átti
þá að fagna af ykkar hálfu, við-
tökur, sem hituðu mér um
hjarta, og gera enn; en engir
eldar hlýja betur eða varanlegar
á lífsins braut, en eldarnir, sem
hlýhugur annarra samferða-
manna á lífsleiðinni kveikja í
brjósti manns.
Tíu ár eru að vísu æði langur
timi í hraðfleygu æviskeiði okk-
ar mannanna barna. Þó finnst
mér rétt eins og það hefði verið
í gær, er ég ávarpaði ykkur lýð-
veldishátíðarsumarið ógleyman-
lega 1944, svo lifandi eru minn-
ingarnar um þá samfundi í huga
mínum. Og inn í hjartagróinn
hlýjustrauminn frá þeirri heim-
sókn minni á Prestastefnuna,
finn ég þegar í stað nýjan yl-
straum vinhlýju ykkar um mig
leika, eins og vermandi blæ vors-
ins, sem nú faðmar vekjandi og
græðandi hendi fjörðu, strönd og
dal þessa svipmikla og fagra
lands okkar.
Að þessu sinni er það einnig
hið eftirsóknarverða hlutskipti
mitt að koma á ykkar fund sem
boðberi góðhuga velfarnaðar-
óska. Ég er hingað kominn á
Prestastefnu íslands sem fulltrúi
Þjóðræknisfélags íslendinga í
Vesturheimi og Sambandskirkju
félagsins íslenzka vestan hafs, og
tel mér, að vonum, mikinn sóma
að því, að hafa verið fafíð það
veglega hlutverk að fara hér með
opinberar kveðjur þeirra félaga.
Áður en ég flyt þær kveðjur,
kemst ég ekki hjá því að slá í
byrjun máls míns á streng
saknaðar og eftirsjár; annað
væri mikill skortur á háttvísi, í
rauninni ófyrirgefanleg van-
ræksla af minni hálfu, bæði sem
fulltrúi fyrrnefndra félaga og
persónulega, þar sem í hlut á
mikilsmetinn samherji í þjóð-
ræknislegum störfum og menn-
ingarmálum og hjartfólginn
vinur.
Minnst séra Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups
Aí heilum og hrærðum huga
votta ég, í nafni Þjóðræknisfé-
lagsins og Sambandskirkjufé-
lagsins, þér, herra biskup, kirkju
íslands og prestastéttinni, og öll-
um hlutaðeigandi, djúpa samúð
í tilefni af sviplegu fráfalli dr.
Sigurgeirs Sigurðssonar, biskups
íslands, síðastliðið haust. Við
áttum þar mikils að missa, ís-
lendingar í Vesturheimi, eigi síð-
ur en þið hér heima á ættjörð-
inni. Sigurgeir biskup hafði með
ferðum sínum vestur um haf, og
þá sérstaklega með sögulegri og
sigurríkri för sinni sem fulltrúi
ríkisstjórnarinnar og þjóðarinn-
ar á 25 ára afmæli Þjóðræknis-
félagsins, treyst öfluglega ætt-
ernis- og menningarböndin milli
íslendinga yfir hafið, og sam-
tímis, með elskulegri og glæsi-
legri framkomu sinni, heillað
hugi landa sinna með þeim
hætti, að af nafni hans mun
jafnan bjartur ljómi stafa í
minningu þeirra. Ég veit með
vissu, að ég talaði fyrir munn
þeirra, er ég komst þannig að
orði í erfiljóðum mínum um
Sigurgeir biskup:
Þú brúaðir hafið bróðurhönd
og barst oss frá móðurgrundu
þá hlýju, er vermir vora önd,
sem vorblær að hinztu stundu.
Og fastar þú tengdir frændabönd
og færðir oss gull í mundu.
Því brúar vor þökk hið breiða
haf
og blómsveig þitt leiði vefur,
sem letrað er stjarna logastaf,
er land vort í draumi sefur.
tírátt sveipar þinn legstað
sólskinstraf,
er sumarið völdin hefur.
Og nú, er hann er sjálfur
genginn inn í dýrð hins eilífa
sumars, og vorsólin vefur legstað
hans vermandi geislum, blessum
við minningu hans og þökkum
hið mikla og ágæta starf hans.
En lífið heldur áfram. ,.Enginn
stöðvar tímans þunga nið“. Og
góðu heilli, kemur maður í
manns stað, eða eins 'og skáldið
norska orðaði það eftirminnilega
í þessum orðum:
Ef bila hendur,
er bættur galli:
ef MERKIÐ stendur
þótt MAÐURINN falli.
Nýr biskup hefir verið kjörinn
og vígður yfir kirkju íslands, og
hann hefir þegar hafið upp djarf-
mannlega og drengilega merki
hins ástsæla fyrirrennara síns á
’oiskúpsstóli; og víst mun hinn
nýi biskup bera merkið fram til
nýrra sigra kirkju og kristni
landsins til eflingar og þjóðlíf-
inu til heilla. Það vitum við hinir
mörgu vinir hans og velunnarar
í hópi landa hans beggja megin
hafsins, að hann muni ótvírætt
gera, því að hann hefir sýnt það
svo ríkulega í verki áður, að
öðruvísi getur það ekki farið.
Herra biskup Ásmundur Guð-
mundsson dr. theol. 1 nafni Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í Vestur
heimi og forseta þess, séra Valdi-
mars J. Eylands dr. theol, og í
eigin nafni, óska ég þér hjartan-
lega til hamingju með kosningu
þína og vígslu í hið virðulega
biskupsembætti og bið þér bless-
unar í því mikilvæga leiðtoga-
starfi landi og lýð til velfarnaðar
og aukins þjóðarþroska. Jafn
hlýjar samfagnaðaróskir í tilefni
biskupskosningar þinnar og
vígslu flyt ég þér í nafni Sam-
bandskirkjufélagsins og forseta
þess, séra Philips M. Péturs-
sonar.
Þjóðræknisfélag íslendinga í
Vesturheimi stendur í mikilli
þakkarskuld við kirkju íslands
og prestastétt. Merkisklerkar og
kirkjulegir leiðtogar héðan
heiman um haf hafa átt sinn
góða þátt í þeirri brúarbyggingu
yfir hafið, sem Þjóðræknisfélag-
ið hefir unnið að um 35 ára skeið.
Skal það jafnframt tekið fram, að
í erindi þessu er sérstaklega get-
ið þeirra íslenzkra presta vestan-
hafs, sem starfað hafa beint í
þjónustu og þágu þeirra félaga,
sem ég fer hér með kveðjur
fyrir. Hitt þarf ekki að fjölyrða
um, að við íslendingar vestan
hafs minnumst með sömu virð-
ingu og þakklæti þeirra ágætu
klerka héðan að heiman um haf,
sem störfuðu hjá óháðum ís-
lenzkum söfnuðum vestan hafs,
og mikilsvægs starfs þeirra
mætismanna að kirkju og þjóð-
ræknismálum. Með þökk og að-'
dáun minnast margir íslending-
ar enn í dag heimsóknar og fyrir
iestrahalds séra Kjartans Helga-
sonar í íslendingabyggðum
vestan hafs á fyrstu starfsárum
Þjóðræknisfélagsins. Söguríkra
og farsælla ferða dr. Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups og ágæts
starfs hans í þágu þjóðræknis-
málanna, eins og hefir þegar
verið getið.
Trúin andleg yngingar- og
orkulind landnemanna
vestan hafs '
Með sama þakkarhug minn-
umst við íslendingar vestan
hafs heimsóknar og ræðuhalda
núverandi biskups íslands, herra
Ásmundar Guðmundssonar, er
hann kom vestur um haf sem
fulltrúi kirkju íslands á 60 ára
afmæli Lúterska kirkjufélagsins
islenzka í Vesturheimi. Er mér
enn í fersku minni hin íturhugs-
aða og snjalla kveðja hans, sem
hann flutti í Winnipeg á hinni
virðulegu afmælishátíð Kirkju-
félagsins. í þeirri ræðu sinni
túlkaði Ásmundur biskup fagur-
lega, hver andleg yngingar- og
orkulind trúin var í óvægri en
sigursælli baráttu íslenzkra
landnema vestan hafs, og fórust
meðal annars þannig orð:
„1 manndómsraun og þoran-
raun landnámsáranna er trúin
þeim orkugjafi, eins og hún var
kennd þeifti heima og þeir höfðu
inndrukkið með. móðurmjólk-
inni. Þeir skilja til hlítar Matt-
hías, er hann kveður:
Vér deyjum, ef þú ert ei Ijós
það og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá.
Þeir varðveita guðsorðabæk-
urnar að heiman í lágum bjálka-
kofa og lesa húslestra eins og
lieima. Passíusálmarnir eru
mörgum þeirra kærastir allra
bóka og Vídalínspostilla“.
Ég minni á þetta til þess að
draga athygli yðar að því, hve
vel hinn nýi biskup Islands skil-
ur sögu íslendinga í Vesturheimi
og hvern hug hann ber til okkar
íslendinga í landi þar; og hann
hefir með mörgum hætti sýnt
þann skilning sinn og góðhug í
verki, svo sem með ræðuhöldum
sínum um kirkju- og þjóðrækn-
ismál í fyrrnefndri vesturför
sinni, og með þeim rgikla og
ágæta hlut, sem hann hefir átt í
prestaskiptum milli íslendinga
yfir hafið, en það er augljóst
mál, hve mikilvæg þau gagn-
kvæmu mannaskipti eru í þjóð-
ræknislegum og menningarleg-
um samskiptum íslendinga aust-
an hafs og vestan.
Því næst skal hér minnst með
verðugri þökk kærkominnar
heimsóknar og víðtækra prédik-
<jna- pg fyrirlestrarhalda séra
Einars Sturlaugssonar prófasts
vestan hafs á vegum Þjóðræknis
félagsins síðastliðið ár. Er óhætt
að fullyrða, að hann hafi einnig
með komu sinni og ræðuhöldum
styrkt að drjúgum mun ættar-
og menningartengslin milli Is-
lendinga beggja megin hafsins.
Sem fulltrúi Þjóðræknisfélags-
ins, og sem háskólakennari í nor-
rænum fræðum vestan hafs, vil
ég einnig á þessum stað votta
séra Einari opinberlega virðingu
mína og þökk fyrir hina stór-
höfðinglegu blaða- og tímarita-
gjöf hans til bókasafnsins í
Manitobaháskóla; er sú gjöf
bæði einstæð og svo verðmæt,
að hún verður eigi til fjár metin,
og þó er hið bókmenntalega og
menningarlega gildi hennar enn
meira, í raúninni ómetanlegt,
enda hefir háskólinn sýnt það í
verki, að hann kann að meta
höfðingsskap og langsýni gef-
andans. Þá hafa þeir prestar ís-
lenzkir héðan heiman um haf,
sem dvalið hafa lengur eða
skemur vestan hafs lagt sinn
góða skerf til þjóðræknisstarfs-
ins, svo sem séra Ragnar E.
Kvaran, er* skipaði þar um ára-
bil forystusess. Hinir nýkomnu
prestar héðan að heiman fylgja
einnig fyrirrennurum sínum
'dyggilega í spor í þeim efnum.
Flutti séra Bragi Friðriksson
prýðilega þjóðræknislega pré-
dikun við guðsþjónustu í Fyrstu
lútersku kirkju í Winnipeg
sunnudaginn fyrir þjóðræknis-
þingið í vetur, en þeir séra
Robert Jack og séra Eiríkur
Brynjólfsson fluttu báðir ágæt
erindi á lokasamkomunni í sam-
bandi við þingið.
Séra Philip M. Pétursson,
forseti Sambandskrrkjufélagsins
íslenzka vestan hafs, mæltist sér-
staklega til þess, að ég vottaði
þér, herra biskup, kirkju íslands
og prestastétt, innilega þökk fyr-
ir starf hinna mörgu og klerka
héðan að heiman, sem starfað
hafa í þágu kirkjufélags hans í
Vesturheimi. Er mér sérstaklega
kært að bera fram það þakklæti
hér á þessum stað, enda efga þar
hlut að máli vinir mínir, frænd-
ur og samherjar í þjóðræknis-
málum. Séra Ragnars E. Kvaran,
fyrrv. forseta Þjóðræknisfélags-
ins og fyrrv. forseta Sambands-
kirkjufélagsins, hefir þegar að
verðugu getið verið. 1 því sam-
bandi er mér einnig ljúft að
minnast þeirra séra Benjamíns
Kristjánssonar, séra Jakobs Jóns
sonar, séra Friðriks A. Friðriks-
sonar og séra Þorgeirs Jónssonar,
að ógleymdum sveitunga mínum
séra Eyjólfi J. Melan, sem við
landar hans vestan hafs skoðum
þó fyrir löngu síðan sem heima-
mann, vegna langdvalar hans
þeim megin hafsins.
Líftaug þjóðrœkninnar
má ekki slitna
Allir hafa þessir mætu klerkar
unnið prýðilegt kirkjulegt og
þjóðræknislegt starf í þágu
Vestur-íslendinga, og eiga því
miklar þakkir skilið af hálfu
Kirkjufélagsins, sem þeir störf-
uðu fyrir, og einnig af hálfu
Þjóðræknisfélagsins. Veit ég, að
ég tala í nafni dr. Valdimars J.
Eylands, forseta Þjóðræknisfé-
lagsins, ei; ég votta þeim þökk
þess félagsskapar fyrir þjóð-
ræknisstörf þeirra vestan hafs,
og fyrir allan góðhug þeirra í
okkar garð Vestur-íslendinga
síðan þeir hurfu heim til ætt-
jarðarstranda til starfs þar í
þágu kirkju- og menningarmála.
Mér hefir eðlilega í kveðju-
ávarpi þessu frá Þjóðræknisfé-
laginu og Sambandskirkjufélag-
inu orðið tíðrætt um persónu-
legu tengslin og menningarleg
samskipti milli þeirra og kirkju-
og prestastéttar íslands, er verið
hefir jafnframt, eins og þegar er
nægilega skýrt, bæði mikill og
merkilegur þáttur í viðhaldi hins
þjóðernislega og menningarlega
sambands íslendinga í Vestur-
heimi við ættlandið og heima-
þjóðina; en aldrei verður of
mikil áherzla á það lögð, hvert'
grundvallaratriði það samband
er í allri okkar þjóðræknisstarf-
semi Islendinga vestan hafs. Það
er líftaug þjóðrækninnar, sem
aldrei má slitna. Hafi kirkja Is-
lands og prestastétt hjartans
þökk fyrir þann góða þátt, sem
af þeirra hálfu hefir ofinn verið
í þá vígðu taug milli íslendinga
yfir hafið.
Spakleg og spámannleg orð
prestsins og þjóðskáldsins séra
Matthíasar Jochumssonar sækja
fast á hug minn þessa stund:
Sé ég hendur manna mynda
megin-þráð yfir höfin bráðu,
þann er lönd og lýður bindur
lifandi orðið suður og norður.
Meira tákn og miklu stærra
megin-band hefir guðinn dregið,
sveiflað og fest með sólar-afli
sálu fyllt og guða-máli. —
Megi skáldsins orð verða að
áhrínsorðum, megi sýn hans
verða að sem fegurstum veru-
leika um ókomin ár. Höldum á-
fram að brúa djúpið, sem skilur
Islendinga austan hafs og vestan,
iifandi orði íslenzks máls, bróð-
urhuga og bróðurlegu handtaki.
Sú brúin á sér djúpar rætur og
traustan grunn, að engar úthafs-
öldur fái brotið stoðir hennar
eða .skolað henni í kaf.
Svo lýk ég-máli mínu með til-
vitnun í þann fagra og andríka
sálm íslenzkan, sem vafalaust
hefir verið oftar ^unginn við
setningu þjóðræknisþings okkar
íslendinga í Vesturheimi, eða við
þingslit, heldur en nokkur annar
af okkar mörgu og dýrðlegu ís-
lenzku sálmum:
Faðir Ijósanna,
lífsins rósanna,
lýstu landinu kalda.
Vertu oss fáum, >
fátækum, smáum
líkn í lífsstríði alda.
—Mbl., 27. júlí
Lesið Lögberg
Fimm kvikmyndaleiðangrar
staddir á íslandi
Mikil og víðiæx landkynningar-
siarfsemi í sumar. — Þýzkir og
brezkir úivarpsmenn hér á landi
Allmargir einstaklingar og
leiðangrar dvelja um þess-
ar mundir hér á landi til
þess að taka fræðslukvik-
myndir af landi og þjóð.
1 þessum hópi eru þrír aðilar
frá Bandaríkjunum, einn frá
Þýzkalandi og einn frá Svíþjóð.
Njóta sumir þeirra fyrirgreiðslu
Ferðaskrifstofu ríkisins, en aðrir
eru á annarra vegum eða þeir
taka kvikmyndir sínar á eigin
spýtur.
I dag fór héðan fimm manna
leiðangur frá amerískri fræðslu-
stofnun, sem dvalið hefir hér-
lendis um sex vikna skeið og
tekið kvikmynd á breiðfilmu.
Kvikmyndaleiðangur þessi hef-
ir ferðast víðsvegar um landið
og hefir í hyggju að gera einnar
klukkustundar kvikmynd, svart-
hvíta af landi og þjóð, er notuð
yrði í fræðsluskyni ytra. Leið-
angursstjórinn heitir Harvey
Yorke frá New York.
Amerískur maður dvaldi hér
í nokkra daga og tók litkvik-
mynd fyrir ferðasamtök, sem
starfa á vegum Efnahagsstofn-
unar Sameinuðu þjóðanfia og
allmargar þjóðir eru aðilar að.
Verður gerð ein heildarkvik-
mynd frá öllum aðildarþjóðun-
um og íslenzka þættinum skeytt
í hana. En auk þess verður gerð
stutt sjálfstæð kvikmynd frá Is-
landi. Þetta verður 11 mm. kvik-
mynd. Mest var kvikmyndað
hér í Reykjavík, nágrenni bæj-
arins og á Suðurlandsundir-
lendinu.
Þriðji ameríski aðilinn, sem
fengizt hefir við kvikmyndatöku
hérlendis í vor, er hinn góð-
kunni kvikmyndatökumaður Hal
Linker, sem vinnur að því að
endurbæta Islandskvikmynd
sína.
Stærsti kvikmyndatökuleið-
angurinn, sem til íslands hefir
komið til þess að taka hér
fræðslukvikmyndir, er þýzki
leiðangurinn frá Roto-Film, sem
Vísir skýrði á sínum tíma frá.
Kom leiðangurinn á eigin skipi
til Islands og tekur hér kvik-
myndir á mjó- og breið-filmur
bæði í litum og eins svart-hvítar.
Leiðangurinn hefir að undan-
förnu verið norður í landi, en
mun nú vera á leið vestur- og
suðurum.
Þá er hér loks kvikmynda-
tökuleiðangur frá Nordisk Tone
film og Edda-film, sama félag-
inu og tók kvikmyndina af
Sölku Völku. Er hann að vinna
að fræðslukvikmynd af landi og
þjóð.
Auk þessa dvelur hér þýzk
kona ásamt dóttur sinni og er
ætlun hennar að taka litmyndir
fyrir blo$ og tímarit, og enn-
fremur mun hún hafa 1 hyggju
að gefa út sérstaka litmyndabók
um Island. Kona þessi heitir
Fritz og er mjög listrænn og
góður ljósmyndari. Hún er þeg-
ar búin að vera hér nokkurn
tíma og dvelur áfram um skeið
við myndatökur sínar.
Enn einn liður í íslenzkri
landkynningu eru útvarpsþættir
frá íslandi, sem útvarpað verður
frá erlendum stöðvum. Fyrir
fáum dögum skýrði Vísir frá
því, að hér dveldu tveir brezkir
útvarpsmenn frá BBC, sem voru
að taka upp alls konar hljóð, er
þeir nota síðan sem eins lconar
bakgrunn að útvarpserindum,
sem flutt verða í brezka út-
Einnig er hér þýzkur út-
varpsmaður, Markús J. Tidick,
sem vinnur að því að taka hér
upp viðtöl við ýmsa aðila og
skýra frá því sem fyrir augun
ber. Samtals hefir hann ákveðið
að taka upp um 30 stutta þætti
frá íslandi, má þar m. a. nefna
þætti um íþróttir, togveiðar, há-
skólann, gróðurhús, Keflavík.
Gullfoss og Geysi, brennisteins-
hveri, 17. júní, Sjómannadaginn,
flugmál, hvalveiði, fuglalíf,
hesta, börn, þróun, bjartar næt-
ur, auk þess ýmsa þætti úr starfi
Þjóðverja á íslandi a. m. fl.
Að öllu þessu er hin mikil-
vægasta landkynning og getur
orðið okkur til ómetanlegs gagns
ef vel og skynsamlega er á mál-
unum haldið.
—•VISIR, 24. júní
Bygging 3ja nýbýía
á FljótsdaSshéraði
að hef jast
Búnaðarfélag Auslurlands 50 ára
Búnaðarfélag Austurlands
hélt nýlega þing að Eiðum.
Er félagið 50 ára á þessu ári
og minntist það afmælisins
á þinginu. Pálmi Einarsson
landnámsstjóri flutti erindi
um nýbýlaframkvæmdir á
þinginu og skýrði frá því
að framkvæmdir við bygg-
ingu nýbýla á Fljótsdals-
héraði h æ f u s t innan
skamms. y
Pálmi Einarsson gat þess í er-
indi sínu, að ákveðið væri að
reisa 10 nýbýli á Fljótsdalshér-
aði. Eiga 3 þeirra að rísa á Ketils
staðavöllum, 4 á Bóndastöðum
og 3 á Hjaltastöðum.
Byrjað á Ketilsstöðum í sumar
Framkvæmdir á Ketilsstaða-
völlum eiga að hefjast innan
skamms. Er ætlunin að bygging
þeirra 3ja nýbýla er þar á að
reisa komizt langt í sumar.
Stofnendur sjö
Að loknu þinginu að Eiðuna
var haldin veizla til að minnast
50 ára afmæli félagsins. Félagið
var stofnað 22. júní 1904, og
voru stofnendur þess sjö bænd-
ur: Jónas Eiríksson. Eiðum; Sig'
fús Halldórsson, Sandbrekku;
Gunnar Pálsson, Ketilsstöðum;
sr. Magnús Blöndal Jónsson,
Vallanesi; Björn Pálsson, Rangá;
Jón Eiríksson, Hrafnabjörgum',
og sr. Einar Þórðarson, Bakka,
Borgarfirði.
—Alþbl., 22. júní
FOR SALE
Oil Painting “Hekla” by
Emil Walters 2x2Vz gi14
frame. Halldor Halldorson
Estate, 353 Broadway Ave.
Phone 923-055 or 924-758.
Mornings only.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
SINDRI SIGURJÓNSSON
LANGHOLTSVEGI 206 — REYKJAVIK