Lögberg - 19.08.1954, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 19. ÁGÚST, 1954
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið at hvern firntudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENITE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrlft ritstjörans:
EDITOR LÖGBERG,. 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 743-411
Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” ls printed and publlshed by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Minni íslands
Ræða, flutt á Iðavöllum 14. ágúst 1954
Eftir BJÖRN SIGURBJÖRNSSON
Góðir íslendingar:
Mér er það mikil ánægja og heiður að fá að mæla fyrir
minni fslands á þessari hátíð yðar hér á Iðavöllum. Mér er
það auðvitað ánægja sem íslenzkum ríkisborgara en öllu
fremur, er ég hugsa um þann einlæga áhuga og ræktarsemi,
sem þér Vestur-íslendingar sýnið, er þér nú í sextugasta
skipti komið saman á hátíðaslóðum fyrstu landnemanna til
að minnast, eins og þeir gerðu, gamla landsins, fóstur-
jarðar þeirra, og margra vor, og ættjarðar vor allra, íslend-
inga. Oss sem alizt höfum upp á fslandi og er innprentuð sú
fagra mynd blómlegra dala, fossa og fjallatinda, sem oss
aldrei gleymist — eru auðvitað kærstar slíkar hugar-
sjónir og minnumst þeirra í sameiningu í dag. En engu að
síður minnumst vér með hinum, sem aldrei litlu feðranna
Frón, hins sameiginlega og sérkennilega íslenzka anda og
menningar, þeirrar arfleifðar, sem oss var látin eftir af for-
feðrum vor allra, arfleifðar manngildis, bókmennta og
tungu, sem mótast hefur á vörum kynslóðanna í baðstofum
íslenzku sveitanna.
Nú eftir tveggja ára dvöl í Manitoba og töluverða
kynningu við landa hér víðsvegar um fylkið og lífskjör
þeirra, stend ég enn betur að vígi til að minnast nútíma ís-
lands við yður heldur en ég gerði áður. Ég hef mér til
mikillar ánægju komizt að raun um, að landar vorir á
Fróni hafa enga ástæðu til að öfundast út í yður, sem hingað
fluttust. Lífskjör fólks og lífshamingja eru engu síðri á ís-
landi heldur en meðal landa þeirra vestanhafs og framtíðar-
horfur hins litla lýðveldis, framfarahugur þjóðarinnar,
stendur í engu að baki hinum volduga nágranna hennar.
Það er ekki tilgangur minn að bera frekar saman eða
metast um lífskjör og menningu landa vorra fyrir austan og
vestan Atlantsála, vér getum glaðzt yfir velgengi Islendinga
hvar á jörðu sem er.
Hitt langar mig til að ræða, sem ég er kunnugri og
mér er ljúfara — stóru sporin, sem stigin hafa verið á
framfarabraut íslenzku þjóðarinnar, síðan ánauðinni létti,
erfiðleika, sem ógnuðu, en yfirstignir voru, ástandið í dag
og framtíðarverkefni og vandamál, sem við blasa.
Frá miðbiki síðustu aldar og einkanlega á liðinni þess-
ari öld hefur fyrst rofað til í þjóðmálum íslendinga, síðan
þeir afsöluðu sér frelsi í hendur Noregskonunga árið 1262.
ógnarstjórn Dana knúði þjóðina niður í slíka eymd og
volæði, að ekki fá nrð lýst. Ástandið í þjóðmálum vorum
var oft svo, að undravert er, að nokkur gat haldizt við á
landinu eða lifað af þær hörmungar. Framtíðarhorfur ungra
íslendinga í þann tíð voru daufar, ef ekki alveg dauðar.
Öll verzlun var einokuð í höndum útlendra manna, sem
hugsuðu ekki um annað en arðinn af henni. Framtak ein-
staklinga á Islandi var heft og tillögur til úrbóta og fram-
fara áttu líf sitt undir erledri og skilingslausri óstjórn. Með
slíku stjórnarfari og þjóðfélagslegu ástandi ullu náttúru-
hamfarir, hvort sem þær birtust í eldgosum og öskufalli
eða veðurofsa og ótíð enn meiri hörmungum meðal íslenzku
þjóðarinnar, og eymdin var óskapleg.
Það voru eftirstöðvar slíkra hörmunga og enn yfir-
standandi óstjórn, góðir Vestur-Islendingar, sem rak for-
feður yðar af landi brott til landnáms í Vesturheimi.
Velgengni Islendinga í dag, hinn ört vaxandi fólksf jöldi
á Islandi er í fyrsta og öðru lagi að þakka því sjálfstæði,
sem örlaði á í byrjun þessarar aldar og náðist að fullu fyrir
tíðu árum síðan.
Við hvert skref, sem erlenda stjórnin tók til undanhalds,
urðu mörg skref til framtaks og dáða meðal íslenzku
þjóðarinnar.
Þeir einir, sem þekkja sögu Islendinga og erfiða baráttu
hennar fyrir frelsi og fullveldi, geta skilið, hve eðlilegar og
sjálfsagðar hinar stórstígu framfarir hafa verið á íslandi
hin síðustu ár, svo að líkast hamskiptum hefur verið. — Þeir
einir geta skilið og fundið þann fögnuð, sem umlykur hjarta
hvers ósvikins Islendings 17. júní ár hvert.
Saga sjálfstæðisbaráttunnar hefur verið rakin af
mörgum á þessu sumri í ræðu og riti austanhafs og vestan
og jafnvel víðar, en sjálf endurreisn lýðveldisins á Þing-
völlum 17. júní 1944 verður ógleymanleg öllum þeim, er
viðstaddir voru, og helgi hennar og tign ólýsanleg í fátæk-
legum orðum. A þeirri stundu áttu allir Islendingar eina
sál — hina íslenzku þjóðarsál. Þeir strengdu þess heit að
vinna upp dimmu árin ófrelsis og ánauðar með nýju átaki
og atorku — strengdu heit, sem í huga þúsundanna varð að
einni hugsun — Islandi allt!
Þessi heillastund að Þingvöllum 17. júní 1944 varð
upphaf margskonar breytinga á kjörum íslenzku þjóðar-
innar og afstöðu hennar og mikilvægi á alþjóðavettvangi.
Þau lög sem þá öðluðust gildi voru sannarlega ekki í anda
við stöðulögin, svonefndu frá 1871, fyrir réttum mannsaldri
síðan, er ákveðið var að Island skyldi vera óaðskiljanlegur
hluti Danaveldis.
Stjórnarskrá hins unga lýðveldis var einnig mjög frá-
brugðin sambandslögunum frá 1918, þegar ákveðið var að
Danmörk færi með utanríkismál
íslands, þótt í umboði þess væri.
Nú eiga íslendingar sæti á al-
þjóðaþingum og í þjóðabanda-
lögum. Njóta þeir þar sama
réttar og Danir, Kanadamenn,
Bandaríkjamenn og allar aðrar
þjóðir heims. Atkvæði íslands,
eyjunnar í Norðurheimsskaut-
inu, hefur sama vald og atkvæði
hinna voldugu ríkja Norður-
Ameríku.
Fáni Islands, rauður, hvítur,
blár, blaktir á sendiráðsskrifstof-
um og sendiherrabústöðum víða
um lönd og álfur.
Æðsta manni þjóðarinnar, for-
setanum, er tekið sem jafningja
af þjóðhöfðingjum annarra ríkja.
Þótt ekki væri neinu öðru til
að dreifa, væru þetta rikuleg
laun fyrir aldalanga baráttu for-
feðra vorra.
Vissulega megum vér Islend-
ingar vera hreyknir af frammi-
stöðu þeirra landa vorra, sem
fram hafa komið fyrir hönd ís-
lands á samkundum heimsþjóð-
anna. %
En vandi fylgir vegsemd
hverri og svo er í þessu máli.
Eftir að sambandsslit fóru
fram við Dani, og íslendingar
tóku að öllu leyti við utanríkis-
málum sínum, tóku þeir einnig á
sig ábyrgðina á vernd lands og
þjóðar jafnt í friði sem í ófriði.
Landhelgisgæzlan er fram-
kvæmd af íslendingum og er
það hvorki létt verk né löður-
mannlegt, einkanlega vegna á-
sækni einnar fyrrverandi vina-
þjóðar vorrar.
Það varð augljóst í síðasta
stríði, að vernd Dana var oss
íslendingum einskisnýt, enda
urðum vér vopnlausir fyrir árás
Englendinga, snemma í stríðinu.
Gerðu íslendingar sér einnig
Ijóst, að þótt algjört hlutleysi
væri æskilegast, væri það jafn-
framt tilgangslaust á ófriðar-
tímum.
Um alíslenzka gæzlu landsins
var ekki að ræða sökum fólks-
fæðar, og tóku íslendingar til
þess ráðs, sem sjálfsagt var, að
ganga í lið með vestrænum
þjóðum um sameiginlegar varnir
hins frjálsa heims.
Eru íslendingar því meðlimir,
ásamt Kanadamönnum í 14 ríkja
bandalagi Atlantshafsríkjanna.
Með þeirri ákvörðun fengu Is-
lendingar sömu réttindi og
hlunnindi sem hin ríkin, en tóku
á sig um leið hlutfallslega hinar
sömu kvaðir. Var talið nauð-
synlegt vegna yfirvofandi ófrið-
arhættu, að byggja upp varnir
landsins í samráði við hin banda-
lagsríkin, og fylgdi því einnig sú
kvöð að hafa erlendan her í
landi. Sú kvöð verður mönnum
ávallt mestur þyrnir í augum,
jafnvel þótt þeir geri sér mæta
vel grein fyrir nauðsyn hennar.
' Það fylgir einnig fullráðum
Islendinga yfir utanríkismálum
sinum að fara með alla utanríkis-
verzlun, og hefur öflun markaða
fyrir framleiðsluvörurnar verið
erfiðust í þeim efnum. Reyna Is-
lendingar að fylgja þeirri stefnu
að ná viðskiptasamningum við
sem flest ríki til að verða engu
einu háðir, enda brenndu þeir
sig illilega á viðskiptum sínum
við eina nágrannþjóð sína ekki
fyrir löngu síðan.
Frá því íslendingar tóku við
utanríkisverzlun sinni hefur í
henni sem í svo mörgu öðru,
síðan lýðveldið var endurreist,
orðið mikil breyting til batnaðar
og hafa Islendingar aldrei fyrr
haft meiri verzlun við útlönd né
víðtækari.
Árin eftir að lýðveldið var
stofnað, tók við völdum ríkis-
stjórn, sem síðan hefur verið
kölluð „nýsköpunarstjórnin“. I
anda hins unga lýðveldis hóf hún
markið hátt og hóf umbyltingu
í atvinnuvegum íslendinga með
endurnýjun atvinnutækjanna til
sjávar og sveita. „Nýsköpunar-
togararnir“ streymdu til lands-
ins, unz Íslendingar áttu einn
fullkomnasta togaraflota í heimi.
Bátaflotinn var stóraukinn og
endurbættur og fjölmörg ný far-
þega- og farmskip kljúfa úthöfin
í dag undir íslenzkum fánum.
Flugsamgöngur voru einnig stór-
auknar og Islendingar eignuð-
ust millilandaflugvélarnar, sem
margir ykkar Vestur-Islendinga
kannizt við.
Það hefði þótt tíðindum sæta
á íslandi fyrir nokkrum áratug-
um, að farartæki undir íslenzku
flaggi legðu leið sína vikulega
og stundum oft í viku frá Reykja
vík til New York og Hong Kong
í Kína. Á sviði landbúnaðarins
urðu stórbyltingar, sumar svo,
að heilar sveitir tóku stakka-
skiptum, er gömlu torfbæirnir
létu undan síga fyrir reisulegum
steinhúsum, hvítum með rauðu
þaki, svo sem tíðkast á Fróni.
Mýrafen og þúfnakollar, sem
gömlu bændurnir reittu með ljá-
um sínum, eru á hröðu undan-
haldi fyrir gröfuskóflu og ýtu-
tönn. Vegir þenja sig yfir staði,
þar sem áður var ekki fært nema
fuglinum fljúgandi. Með bætt-
um samgöngum hefur félagslíf
aukizt og samkomustaðir og
félagsheimili risið upp svo að
segja í hverjum hrepp. Mennta-
mál hafa verið til fyrirmyndar
á Islandi um aldaraðir, svo að
það hefur aldrei til frétta talizt,
að maður væri fróður og fær í
erlendri tungu, hvað þá að allir
landsmenn væru læsir og skrif-
andi á móðurmálinu, svo sem
var á mestu niðurlægingatímun-
um ekki síður en í dag. Samt
hefur mikil rækt verið lögð við
skólamál, og ný skólahús risið
víða á landinu. Reynt er að láta
æðri menntun ná til sem allra
flestra og eru nú fjórir skólar
sem útskrifa stúdenta eða
“Bachelor of Arts” á hérlendri
tungu, í stað hins eina sem áður
var.
Heilbrigðismál eru með ágæt-
um og á mörgum sviðum til
fyrirmyndar, sérstaklega um
sjúkratryggingu og annað þjóð-
félagslegt öryggi.
Afkoma manna hefur stór-
batnað á örstuttum tíma, og eru
meðaltekjur á Islandi, þrátt
íyrir torsótt landgæði, hærri en
meðaltekjur í Kanada og jafnvel
í nágrannaríki þess, Banda-
u'kjunum.
Hungursneyð og horfellir mið-
aldanna eru óhugsanleg í fram-
tíðinni, þótt alltaf geti harnað í
ári.
Það yrðu áreiðanleg ólík sjón-
armið, sem réðu búferlaflutningi
nú á dögum frá íslandi til Vest-
urheims en þau er réðu komu
landnemanna hingað.
Þessar svipmyndir úr sögu
hins unga lýðveldis, sem ég hef
dregið hér upp, eru sannarlega
glæsilegar, ekki sízt, þegar tekið
er tillit til fámennis þjóðarinnar
og þeirrar fátæktar, sem hafizt
var handa í.
Ekki má heldur hinu gleyma,
að hér er ekki sagan öll.
Margt er enn, sem betur mætti
fara; mörg eru átökin fram-
undan, enda er þessi fyrsti ára-
tugur lýðveldisins ekki annað
en vísir að því, er koma skal;
fyrsti steinninn, sem velt er á
íslandi í þeirri skriðu framþró-
unar, sem fellur ekki einungis á
íslandi, heldur meðal allra
landa heims, þar sem hundruð
milljóna búa enn við lakari kjör
en íslendingar "hokkurn tíma
gerðu.
Þessi tíu bernzkuár lýðveldis-
ins hafa ekki verið eintómur
leikur, ekki neinn seitlandi læk-
ur án nokkurs erfiðis eða hættu.
Erfiðleikar og vandamál hafa
steðjað að hverri tillögu og
framkvæmd, og svo er enn. Oft
hefur verið erfitt að stýra milli
skers og báru, en alltaf hefur
þjóðarskútan komið heil úr
vandanum, þótt stundum hafi
tekið niðri.
Aflabrestur á síldveiðum síð-
astliðin tíu ár hefur valdið margs
konar erfiðleikum, sölubann
Englendinga á íslenzkum fiski
þar í landi hefur verið útgerð-
inni fjötur um fót, og mæðiveiki
í sauðfé hefur leikið bændur
grátt, en verðbólgan eftir stríðið
ógnar efnahagsikerfi landsins.
íslendingar halda þó ótrauðir
Fréttir frá ríkisútvarpi íslands
Framhald af bls. 1
kostnaðarsamra fiskveiðirann-
sókna til þess að fá leitt í ljós,
hver árangurinn er af hinum
nýju friðunarákvæðum. Hafa
tilraunir þessar þegar borið þann
árangur, sem vonir vorar höfðu
staðið til. Komið hefir í ljós, að
fiskmergðin á svæðum, sem
rannsökuð hafa verið vísindalega
í meira en 30 ár, er nú margfalt
meiri en áður. Meðal annars hafa
vísindarannsóknimar og fisk-
veiðiskýrslur fært sönnur á, að
allmikið hefir unnizt við frið-
unina, einnig utan nýju tak-
markanna. I lok greinargerðar-
innar er að því vikið að málið
verði tekið fyrir í Erópuráðinu,
og íslendingar líti svo á að með-
ferð málsins þar geti orðið próf-
steinn á norræna samvinnu í
framkvæmd.
Formaður Islandsdeildar
Norðurlandaráðs er Sigurður
Bjarnason forseti neðri deildar
. Alþingis. Af hálfu ríkisstjórnar-
innar munu sækja þingið Ólafur
Thors forsætisráðherra og Stein-
grímur Steinþórsson félagsmáia-
ráðherra. — Fulltrúarnir fóru
utan í gærmorgun.
☆
Togaraútgerðin hefir átt í
mestu örðugleikum undanfarna
mánuði og mikill hluti flotans
legið í höfn. Nefnd var skipuð í
vor til þess að rannsaka hag tog-
araútgerðarinnar og benda á
leiðir henni til aðstoðar, og hefir
ríkisstjórnin nú orðið sammála
um það, að útgerðinni skuli veitt
aðstoð í aðalatriðum á grund-
velli tillagna nefndarinnar. Er í
ráði að lækka ýmsa kostnaðarliði
útgerðarinnar, gera tilraun til að
fá frystihúsin til að kaupa tog-
hækkað söluverð á útfluttum
fiski. Enn fremur skal leggja
skatt á nýjar bifreiðar, aðrar en
vörubifreiðar, sem verða fluttar
til landsins, og verja þeim skatti
til stuðnings togaraútgerðinni.
☆
Fulltrúar sjómanna þeirra,
sem eiga aðild að togarasamning-
unum komu saman á fund í
vikunni, til þess að leggja sam-
eiginlega fram óskir um breyt-
ingar á kaup- og kjarasamning-
um togarasjómanna.
☆
I fyrrakvöld urðu menn á
Þórshöfn á Langanesi varir við
hvalavöðu þar á höfninni. Tókst
að reka vöðuna á land og voru
þar drepnir samtals 130 hvalir,
sem voru allt að því 6 metrar á
lengd. Hvalkjötið var fryst.
☆
I vikunni, sem leið, var slátrað
1000 fjár hér á landi, bæði lömb-
um og fullorðnu fé, og var því
slátrað í varúðarskyni vegna
gruns um sauðfjársjúkdóma. Fé
að markinu. Vitundin um hinn
uppfyllta draum forfeðranna,
frelsi og sjálfstæði landsins, ástin
á tungunni, íslenzkri menningu
fyrr og nú, og trúin á landið eru
þau öfl er gefa starfsþránni byr
undir báða vængi, gerir lífsbar-
áttuna léttari og sameina hugi
íslendinga um aldir fram í
einkunnarorðunum Islandi allt!
arafiskinn hærra verði en þau
hafa gert, og vinna að því að fá
þetta var úr Borgarfirði og
Skagafirði. Regluleg sumar-
slátrun hefst hinn 12. þessa
mánaðar.
☆
Þingvallanefnd hefir ákveðið
að gangast fyrir almennri fjár-
söfnun í landinu í því skyni að
koma upp nýrri kirkju á Þing-
völlum, er verði jafnframt minn-
isvarði um þann atburð, er
nefndin telur merkastan hafa
orðið á Þingvöllum, kristnitök-
una árið eitt þúsund. Kirkja sú,
sem nú stendur á Þingvöllum,
er 95 ára gömul, og telur Þing-
vallanefnd þjóðina hvorki geta
varið það fyrir sjálfri sér né út-
lendum mönnum, er heimsækja
Þingvelli að hafa þar ekki veg-
legra guðshús. Formaður Þing-
vallanefndar er Gísli Jónsson al-
þingismaður.
☆
Þann 2. þessa mánaðar var
þess minnst með hátíðlegri at-
höfn á Melatanga í Hornafirði
að 30 ár voru liðin þann dag fra
því að fyrst var flogið flugvél
til íslands. Það gerði Eric Nel-
son, bandarískur flugmaður af
sænskum ættum, sem tók þátt i
hnattflugi bandaríska flughers-
ms árið 1924, og flaug þá til
Hornafjarðar frá Kirkwall i
Orkneyjum á 8V2 klukkustund.
Flugmálafélag Islands lét reisa
minnisvarða í 'tilefni þessa af-
mælis, og stendur hann rétt hjá
flugvellinum í Hornafirði. Þetta
er stuðlabergssúla á hvítum
stalli og er greipt á súluna: Eric
Nelson flaug fyrstur til íslands,
2. ágúst 1924. Meðal viðstaddra
Framhald á bls. 8
TMIS
S f A C ■
CONTRIIUTID
■ Y
WINNIPEG
BREWERY
t I M I T t D
LÆGSTA FLUGFAR
TIL
Grípið tækifærið og færið
yður í nyt fljótar, ódýrar og
ábyggilegar flugferðir til
tslands í sumar! Reglu-
bundið áætlunarflug frá
New York ... Máltíðir inni-
faldar og annað til hress-
ingar.
SAMBÖND VIÐ FLESTAR STÓRBORGIR
Finnið umboðsmann ferðaskrifsiofunnar
n /71 n
ICELANDICl ’A I R L I N E S
UZÁAUzr
15 V/est 47th Street, New York PLaza 7-8585
WtlHimHIIIHmHIIIHIIHIIimilMliHHIIIIHIimilllBIIIIHimiillHIIIIHIIIHIlllHillllHIIIIHIIIMiniBllM11111
ÍSLANDS
Aðeins $31Q
fram og 111 baka
±11 Reykjavíkur