Lögberg - 19.08.1954, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 19. ÁGOST, 1954
Asbjörn Sunde dæmdur
Úr borg og bygð
Um miðja fyrri viku kom
hingað til borgar ungur maður,
hr. Bragi Melax, sonur séra
Stanleys Melax að Breiðaból-
stað í Vesturhópi í Húnavatns-
sýslu; hann er útskrifaður af
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
og Kennaraskóla íslands. Bragi
mun hafa í hyggju að setjast hér
að, verði aðstæður honum hag-
stæðar.
☆
Hinn 31. júlí síðastliðinn voru
gefin saman í hjónaband í
Kandahar, Sask., Sigríður, dóttir
Kristins Eyjólfssonar fyrrum
bónda þar í bygð, og Judin
McLaren, einnig úr sama bygð-
arlagi, Prestur United Church
framkvæmdi hjónavígsluna, er
fór fram á heimili Ingimundar
bróður brúðarinnar og frúar
hans.
Framtíðarheimili n ý g i f t u
hjónanna verður í Kandahar.
☆
Frú Emily Pálsson frá Van-
cauver, B.C., sem dvalið hefir
hér um slóðir um hríð, er nýlögð
Sf stað heim.
☆
Mr. og Mrs. Skúli Jónasson frá
Vogar, Man., voru stödd á ís-
lendingadeginum við Hnausa.
☆
Þeir, sem þurfa á leigubíl
(Taxi) að halda í Selkirk og
grend, ættu að finna að máli
Will’s Taxi — sími 4111, er á
öllum tímum nætur sem daga,
annast um fyrsta flokks af-
greiðslu.
☆
Nýir og gamlir íslenzkir og
sænskir rokkar til sölu. Upplýs-
ingar gefur Mrs. Dóra Thor-
steinson, Oak Point, Man.
☆
Mr. og Mrs. Ólason frá Seattle,
Wash., dvelja hér um slóðir
þessa dagana.
☆
Ný og heillandi hljómplata
í fyrri viku birti Lögberg aug-
lýsingu um nýja hljómplötu, er
frú Guðmunda Elíasdóttir hafði
sungið inn á og frá lögunum
skýrt; lögin eru hvert öðru feg-
urra og hvert öðru betur sungin;
á plötunni eru tólf lög; platan
með þessum tólf lögum kostar
aðeins $5.50 í canadiskum pen-
ingum og er því hér um óvenju-
leg kjörkaup að ræða.
Pantanir sendist
BJÖRNSSON’S BOOK STORE,
702 Sargent Ave.
Winnipeg, Man.
Kaupið Lögberg
Mrs. John Hannesson frá
Akra„ N. Dak., er stödd í borg-
inni um þessar mundir í heim-
sókn til ættmenna sinna, auk
þess sem hún heimsótti systur
sína að Lundar.
☆
Mr. G. L. Johannson ræðis-
maður og frú lögðu af stað á
sunnudagskvöldið í ferðalag
vestur um Albértafylki og munu
ekki koma heim fyr en um mán-
aðamót.
☆
Hinn 8. þ. m. lézt að heimili
sínú í Riverton John H. Björns-
son 57 ára að aldri. Útförin var
gerð frá lútersku kirkjunni þar
í bænum. Séra Robert Jack jarð-
söng.
Hinn látni kom ungur af ís-
landi og fluttist til Riverton frá
Winnipeg 1920 og stundaði þar
jöfnum höndum trésmíði og
iiskiveiðar; auk ekkju sinnar
Jóhönnu, lætur hann eftir sig
þrjár dætur, tvo bræður og ald-
urhniginn föður, Hallgrím
Björnsson trésmíðameistara.
☆
Mr. Einar Magnússon frá Sel-
kirk var staddur í borginni á
mánudaginn.
☆
Þeir Mr. Halli Axdal, sem nú
á heima hér í borg, og Mr. Árni
Sigurðsson listmálari frá Seven
Sisters Falls, eru nýlega komnij;
heim úr átta daga heimsókn til
Wynyard, Sask.
☆
Mrs. Jóhannesson frá Wyn-
yard, Sask., er á ferðalagi hér
um slóðir þessa dagana; hún hef-
ir meðal annars heimsótt ætt-
ingja og vini í Mikley, Riverton
og Árborg.
☆
Frú Margrét Kristjánsson frá
Seattle, Wash., hefir dvalið um
hríð ásamt börnum sínum hjá
bróður sínum séra H. S. Sigmar
og frú á Gimli.
☆
Nokkur úrvalsmálverk frá ís-
landi til sölu nú þegar við sann-
gjörnu verði að 187 Lipton
Street hér í borginni. — Sími
75-1018.
☆
— GIFTING —
Laugardaginn þann 3. júlí
voru gefin saman í hjónaband í
Anglican kirkjunni í Souris,
Man., Joan Shirley, yngsta dótt-
ir Mr. og Mrs. W. G. Fraser að
Souris, og Douglas Arthur,
einkasonur Mr. og Mrs. A. G.
McCartney að Souris.
Ættingjar og vinir sátu veg-
lega brúðkaupsveizlu í I.O.O.F.
Hall. Að afstaðinni brúðkaups-
veizlunni fóru ungu hjónin til
Banff. Heimili þeirra verður í
Winnipeg.
FYRIR nokkrum vikum síðan
voru allmargir menn í Norður-
Noregi dæmdir fyrir njósnir í
þágu Rússa, en áður var búið
að dæma nokkra menn í Þrænda
lögum fyrir sams konar verkn-
að. Á laugardaginn var féll svo
dómur í Osló yfir Asbjörn Sunde
og helzta samverkamanni hans,
Erling Nordby, en síðar í sumar
verður dærr\j í máli allmargra
manna, sem Sunde hafði notað
til að afla ýmsra upplýsinga
fyrir sig. Dómsniðurstaðan varð
sú, að Sunde hlaut 8 ára fang-
elsi og Nordby 3 ára.
Mál Sunde hefir vakið lang-
mesta athygli þessara njósa-
mála í Noregi, enda er hann
þekktastur þeirra, sem þar hafa
komið við sögu. Sunde hefir
um all-langt skeið verið með
fremstu fyrirliðum norskra
kommúnista og gat sér allmikið
frægðarorð á stríðsárunum fyrir
skæruliðahreyfingu, sem hann
stofnéði og stjórnaði. Það sýndi
sig þá, að Sunde var hygginn
vel, snarráður og hugrakkur, en
líka ósvífinn og skeytingarlaus
úr hófi fram.
Ýtarlegar forsendur fylgja
dómnum yfir þeim Sunde og
Nordby og hefir verið sagt ýtar-
lega frá þeim í norskum, dönsk-
um og sáenskum blöðum, því að
mál þessi öll hafa vakið mikla
athygli á Norðurlöndum. Hér á
eftir verða rifjuð upp nokkur
meginatriði úr forsendum dóms-
ins.
Norska leynilögreglan fékk
fljótlega eftir stríðslokin slæm-
an bifur á Sunde, því að hann
lifði fremur ríkmannlega, en
hafði lítið fyrir stafni. Þó byrj-
aði hún ekki að fylgjast að ráði
með ferðum hans fyrr en í árs-
byrjun 1949, en þá ræddi hann
við háttsettan mann í lögregl-
unni og fékk hann það helzt út
úr samtalinu, að Sunde vildi fá
hann til að afla ýmsra upplýs-
inga fyrir sig. Eftir þetta fylgd-
ist lögreglan nákvæmlega með
ferðum Sunde. Hann hagaði sér
á ýmsan hátt tortryggilega, t. d.
leigði hann sér aukaíbúð, sem
hann kom yfirleitt ekki í, nema
áður en hann fór til fundar við
einhverja af starfsmönnum rúss-
neska sendiráðsins. Á tímabilinu
frá því í ársbyrjun 1950 og
þangað til Sunde var tekinn
fastur síðastliðinn vetur, hitti
hann starfsmenn frá sendiráð-
inu a. m. k. 38 sinnum og yfir-
leitt alltaf á afskekktum stöð-
um. Þegar Sunde fór til þessara
funda við” Rússana, fór hann
oftast miklar krókaleiðir og
bendir það til þess, að hann hafi
óttazt að fylgzt væri með ferð-
um hans.
Jafníramt því, sem lögregian
fylgdist með ferðum Sunde,
fylgdist hún með því fólki, sem
hann umgekkst mest. Sú athug-
un leiddi í ljós, að hann um-
gekkst talsvert af fólki, er vann
á stöðum, þar sem líklegt var
að safna mætti upplýsingum
varðandi varnir landsins. M. a.
hitti hann oft konu, er annaðist
gólfþvott í aðalskrifstofum hers-
ins og hefir það síðar upplýst,
að hann fékk konuna til að
safna sundurrifnum minnisblöð-
um, er fleygt hafði verið í rusla-
körfur. Sýnir það glöggt, hve
nákvæmt njósnakerfi Sunde
hefir verið.
Af því fólki, ær Sunde um-
gekkst mest, *þótti pmgengni
hans við Erling Nordby einna
tortryggilegust, En Nordby var
undirforingi í hernum og vann
við birgðastöðvar og vopnabúr
hersins í Osló og nágrenni henn-
ar. Nordby hafði því aðstöðu til
að geta veitt mikilvægar hernað-
arlegar upplýsingar. Það sýndi
sig t. d. þegar Þjóðverjar réðust
inn í Noreg vorið 1939, að það
kom þeim að ómetanlegu gagni
að norskir nazistar höfðu útveg-
að þeim nákvæmar upplýsingar
um allar helztu vopnageymslur
hersins og létu Þjóðverjar það
verða sín fyrstu verk að ná þeim
á vald sitt. Með því komu þeir í
veg fyrir, að norski herinn veitti
eins mikla mótspyrnu og hann
ella hefði getað gert. Vopn hans
voru komin í hendur óvinanna,
þegar hann ætlaði að fara að
beita þeim.
Sunde kynntist Nordby fljót-
lega eftir stríðið, en hann byrj-
aði ekki að heimsækja hann að
ráði fyrr en eftir áramótin 1951,
en þá var Nordby kominn í það
starf að geta veitt* framan-
greindar upplýsingar. Honum
var að vísu bannað af yfirmönn-
um sínum að gefa nokkrar upp-
lýsingar, sem gætu komið hugs-
anlegum óvini Noregs að not-
um, en samkvæmt vitnisburði
Nordbys, eftir að hann var hand
tekinn í vetur, tókst Sunde
smátt og smátt að fá hann til
að segja allt það, sem hann vissi.
Nordby gaf Sunde upp hvar
vopnageymslurnar væru, hvaða
vopn væru geymd á þeim stöð-
um, þar sem hann þekkti bezt
til, og hvernig varðgæzlu væri
þar fyrir komið. Nordby, sem
ekki er kommúnisti, segir að
Sunde hafi aldrei látið orð falla
í þá átt, að hann væri að safna
þessum upplýsingum fyrir aðra
og sér hafi ekki þótt þetta neitt
tortryggilegt í fyrstu, heldur
talið það stafa af áhuga Sunde
fyrir þessum málum síðan hann
var í mótspyrnuhreyfingunni.
Þegar fram í sótti, fór honum
hins vegar að þykja tortryggi-
legt, hve mikið Sunde spurði
um þessi mál, en þá varð ekki til
baka snúið. Að dómi réttarins
virðist eins og Sunde hafi náð
eins konar andlegum tökum á
Nordby og gert hann þannig að
verkfæri sínu. Nordby virðist
vera veikgeðja maður og áhrifa-
næmur, en Sunde er sterkur
persónuleiki, eins og sýndi sig á
stríðsárunum, er hann fékk
margt manna til skilyrðislausr-
ar hlýðni við sig.
1 dómsforsendum segir, að
ekki leiki minnsti vafi á því, að
Sunde hafi látið Rússa fá þýð-
ingarmiklar þernaðarlegar upp-
lýsingar, eins og t. d. um stað-
setningu vopnageymsla hersins
í Osló og grennd og um alla til-
högun þar. yafalaust hafi hann
og útvegað þeim ýmsar fleiri
þýðingarmiklar upplýsingar. —
Skýrist það sennilega enn bet-
ur, þegar tekin verða fyrir mál
annarra þeirra, sem Sunde not-
aði til að njósna fyrir sig.
í dómsforsendum segir, að
vafalaust sé, að Sunde hafi
fengið greiðslur fyrir njósnir
sínar, en þær einar hafi þó ekki
knúið hann til þess að taka
njósnirnar að sér. Takmarka-
laus hollusta við kommúnism-
ann og Sovétríkin hafi áreiðan-
lega ráðið miklu eða mestu um
gerðir hans. Þá kunni það og að
hafa ráðið nokkru um gerðir
hans, að hann hafi látið sér til
hugar koma, að hann gæti haft
persónuleg not af upplýsingun-
um, t. d. með því að stofna
skæruliðahreyfingu, ef til striðs
kæmi, og ná fleiri eða færri af
vopnageymslunum. Ferill Sunde
sé slíkur, að engin fjarstæða sé
að álykta á þennan veg.
Rétturinn telur, að upplýs-
ingarnar, sem Sunde fékk hjá
Nordby, séu mjög þýðingar-
miklar. Hann telur, að ekki séu
nema 25 menn í hernum, er hafi
aðstöðu til að gefa jafn ýtar-
legar upplýsingar um vopna-
geymslur í Osló og Nordby. Vel
geti svo farið vegna þess gáleys-
is Nordbys að láta Sunde um-
rædda vitneskju í té, að nauð-
synlegt verði talið að breyta
allri tilhögun við vopnageymsl-
urnar og færa sumar þeirra til,
en slíkum breytingum mun
fylgja verulegur kostnaður.
Vafalaust er talið, að mál
Sunde og Nordby verði til þess,
að norski herinn geri auknar
varúðarráðstafanir til að hindra
njósnir innan hans og í sam-
bandi við hann.
—TIMINN, 9. júlí
FOR
" EATON’S OF canada
EATON’S of CANADA
Gerir aðvarl um hina nýju
Haust og Vetrar Verðskrá
. . . er býður Canadabúum upp á mikið úrval af
öllum hugsanlegum vörutegundum, þeim beztu,
sem fáanlegar eru, sem þannig eru afgreiddar
gegn pöntun, að EATON'S þjónusian í Canada
táknar óbrigðul vörugæði! 1 86 ár hefir sama
stefna ríkt hjá EATON með hag fjölskyldunnar
fyrir augum . .. Nú er það orðið kjörorð frá strönd
til strandar, að það borgi sig að verzla hjá Ealon's!
Verið er að sonda viðskiptaviimtn KATON’S verðsk rána.
Pnrst einni" samkv.rmt ÍM'iðni lijá Póstpaiitanadeildinni í
Winnipear.
■*T. EATON C?_™
WINNIPEO CANADA
Til ritstjóra
Lögbergs
Árborg, Man., 16. ágúst 1954
Kæri vinur:
Sunnudaginn 29. þ. m. ætlar
Ladies Aid í Riverton að láta
afhjúpa mynd í kirkjunni í
minningu um séra Jóhann
Bjarnason. Myndin er af prest-
inum sjálfum; elzta kona Ladies
Aid, Mrs. Thorarinson, ætlar að
afhjúpa hana. Þá ætlar séra Sig-
urður Ólafsson að flytja ræðu
um séra Jóhann. Svo er búist
við Séra Bjarna og konu hans að
sunnan. Athöfnin byrjar kl. 2
Standard Time.
Riverton Ladies Aid bað mig
að skrifa þér og biðja þig að
vera svo góður að birta eitthvað
um þessa athöfn í Lögbergi og
skorar á presta að mæta, og
einnig alla sem geta.
Athöfn þessi verður, held ég,
ánægjuleg í alla staði, og sjálf-
sagt verður gaman að fá fulla
kirkju.
Vona að þér líði sem bezt eftir
ferðina til „Grímseyjar“ Nýja-
íslands, nefnlega til Heklu.
Með beztu kveðjum
Þinn einl.
ROBERT JACK •
M ESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Dr. Valdimar J. Eylands lagði
af siaS flugleiðis til Oiiawa í g®r
vegna lasleika konu sinnar, sem
þar liggur á sjúkrahúsi þar i
borginni; í fjarveru Dr. Valdi-
mars annasi séra S. O. Thorlak-
son um presisþjónusiu Fyrsia
lúierska safnaðar.
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnudaginn 22. ágúst:
Árborg, kl. 11, á ensku.
Riverton, kl. 2
Hnausa, kl. 8.
Ferming á ensku.
Robert Jack
Fréttir fró ríkisútvarpi Islands
Framhald af bls. 4
boðið var hingað frá Ameríku til
þess að vera viðstaddur athöfn-
ina, og hann afhjúpaði minnis-
varðann. Forseti Flugmálafé-
lagsins, Jón Eyþórsson, kvað
menn þarna samankomna til
þess að minnast með einfaldri
athöfn mi'kils afreks og merki-
legs atburðar i sögu íslenzkra
flugmála.
☆
1 vor laskaðist Katalínuflug-
bátur frá bandaríska flotanum á
höfninni á Þórshöfn. Flugmála-
stjórnin keypti vélina og var
gert við hana til bráðabirgða og
henni flogið til Reykjavíkur í
vikunni, sem leið. Þar fer fram
íullnaðarviðgerð. — 1 mánuðin-
um, sem leið, ferðuðust 1559 far-
þegar með flugvélum Loftleiða,
en það félag hefir þrjár áætlun-
arferðir á viku milli meginlanda
Evrópu og Ameríku.
☆
Tuttugu íslenzkir kennarar
lögðu af stað í gærmorgun í
kynnisför til Danmerkur, og
dveljast þar fram í september í
boði dönsku kennarasamtak-
anna. í fyrrasumar komu hingað
danskir kennarar í sams konar
kynnisför, og þannig hefir verið
skiptzt á nokkrum sinnum.
Sendiherra Dana hér á landi,
frú Bodil Begtrup, átti frum-
kvæðið að kynnisferðum þess-
um.
☆
Nýlega var úthlutað styrkjum
úr Menningar- og minningar-
sjóði kvenna fyrir árið 1954. Út-
hlutað var 32.500 krónum til
tuttugu og fjögra kvenna. Hæsti
styrkur er 3000 krónur, en flest-
ar fengu eitt þúsund króna
styrk.
☆
Ríkisstjórn Spánar hefir á-
kveðið að veita íslenzkum stú-
dent styrk til háskólanáms á
Spáni frá 1. okt. 1954 til 30. júní
1955, og falið menntamálaráðu-
neytinu að velja námsmanninn.
Styrkurinn nemur 1500 pesetum
á mánuði og jafnframt verður
námsmanninum útvegað hús-
næði og fæði fyrir 1100 peseta á
mánuði og hann verður undan-
þeginn innritunar- og skóla-
gjöldum. Umsóknir sendist
menntamálaráðuneytinu fyrir 1.
sept.
☆
Danska freigátan Esbern
Snare kom í heimsókn til Reykja
víkur í dag og verður hér til
fimmtudags. Yfirmaður danska
flotans, Vedel flotaforingi, hefir
að undanförnu verið á siglingu
við austurströnd Grænlands, en
siglir * á freigátunni heim til
Danmerkur.
Á fimmtudaginn komu þcír
brezkir Sundarland-flubátar til
Reykjavíkur á leið til Græn-
lands að sækja þangað brezka
vísindaleiðangurinn, sem þaf
hefir dvalist undanfarin tvö ár
við rannsóknir. Þrír flugbátar
voru farnir áður. Leiðangurs-
menn eru væntanlegir til ís-
lands á sunnudaginn kemur.
☆
Frá því að nýja áfengislög-
gjöfin gekk í gildi hafa þrjú
veitingahús í Reykjavík fengið
leyfi til vínveitinga, — Hótel
Borg, Sjálfstæðishúsið og Röðull-
Mörg önnur veitingahús hafa
sótt. Leyfin eru bundin við
fyrsta flökks veitingahús, er
þurfa að fullnægja tilteknum
skilyrðum.
☆
Þjóðhátíð Vestmannaeyja var
haldin um þessa helgi og var
mikill fjöldi aðkomumanna 1
Eyjum. Flogið var á hálftíma
fresti til Vestmannaeyja fra
Reykjavík allan föstudaginn, og
daginn áður höfðu 300 manns
farið flugleiðis þá leið. Meðal
skemmtiatriða á þesari hátíð var
keppni í nokkrum íþróttagrein-
um, og þar stökk Torfi Bryn-
geirsson 4,30 metra í stangar-
stökki.
☆
Meistaramót Islands í frjáls-
um íþróttum hófst í gær 1
Reykjavík og heldur áfram í dag-
Að mótinu loknu verður ákveðið,
hverjir íþróttamenn skuli sendir
héð^n til keppni á Evrópumeist-
aramótinu r Bern.
smM/wor
for R«S«R*
It’* easyl All you need is »
thovel. The root is there k'5*
waiting for you to dig it dp-
The market is ready to take
you can shipto R.S.R. The pric®
is good and payment it prompt.
Organlze a digging party ano
srtart rlght now. Everyone can
get into the act and make
money.
Write for a suppiy of R-s-R-
Shipping Tags (free) and «h'P
your collection daily to tn®
world's largest distributors 01
Seneca Root since 1883 —
R.S.R. BUILDINC - 43-51 10UI5S ST.
rasr or haim sr. wiNNlPf^