Lögberg - 09.09.1954, Blaðsíða 1
ANYTIME
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT ■ SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 9. SEPTEMBER 1954
NÚMER 36
Fuglafræðingur og
skógrækfarmaður
■ heimsókn
Hér á landi hafa um nokkurt
skeið dvalizt tveir Bandaríkja-
^ienn. Er annar þeirra prófessor
1 plöntufræði við háskólann í
Michigan, dr. Dow Baxter að
hafni, en hinn er ungur maður,
fuglafræðingur, Richard Zusi að
nafni. — Hann býr sig nú undir
að semja doktorsritgerð. Hann
kvaðst vera hingað kominn af
alþjóðlegum fundi plöntu- og
skógarfræðinga, sem haldinn
var í París. — Maðurinn, sem
vakti athygli mína á Islandi,
var Fairfield Osborne, höfund-
Ur bókarinnar Heimur á heljar-
þröm, — Þá bók íslenzkaði Há-
^on skógræktarstjóri Bjarnason.
Fór Osborne miklum viður-
kenningarorðum um Hákon við
Próf. Baxter og taldi hann í tölu
fremstu skógræktarmanna. Hér
hefur hann kynnt sér skógrækt-
armálin og tilraunir íslendinga
þess að koma upp nytjaskógi
* landinu.
Kvað hann Skógrækt ríkisins
hafa unnið hreinasta þrekvirki á
þessu sviði. Þekking íslenzkra
skógraektarmanna væri mjög
rnikil og góð. — Sem dæmi
nefndi hann frætekjuna í
Alaska, þar sem trén vaxa við
svipuð skilyrði og hér. — Þá
þótti honum skjólbeltin fyrir
nytjaskóginn sýna þekkingu á
þessum málum hér. — Með skjól
beltunum ættuð þið að geta
komið upp nytjaskógi á nokkr-
um áratugum. Þið ættuð sjálfir
a^ geta framleitt allan þann við,
sem þarf til girðinga í sveitum
^ndsins, sagði hann.
Prófessor Baxter hefur ferð-
ast milli skógræktarstöðvanna í
l^ndinu og kvað þær vera hverri
annarri betri og fróðlegri að
^eimsækja. Þar er unnið mark-
Vlst að vísindalegum athugun-
Ufn á því, hvernig landnemun-
um vestan frá Alaska eða öðrum
^ndum vegnar í moldu hér. Þá
Hafði hann orð á því, að sér
Psetti merkilegt, hve kynbótum
a sviði trjáræktunar virtist miða
Vel áfram.
IHjög rómaði hann alla fyrir-
Sreiðslu starfsmanna Skógrækt-
arinnar. — Hér hefur prófessor-
lnn einnig kynnt sér sjúkdóma
* trjám, en það er sérgrein
ans. — Taldi hann sig hafa
undið þrjár skaðlegar sveppa-
legundir. Myndi hann senda
skógrasktinni skýrslur um það,
er hann kæmi heim. En það var
skoðun hans, að væntanlegum
skógum landsins myndi ekki
stafa hætta af sveppum eða
annarri sýkingu, þar eð aðfluttu
ren vaxa upp af fræi.
H'uglafræðingurinn Richai
Usi kvaðst hér hafa notið mi
L,lar og góðrar hjálpar Fim
uðmundssonar. Hefur Zu
a- brugðið sér norður að M
Vatnj og út í Vestmannaeyja
111 nokkra hríð var hann úti
1 lum grasi grónum hóln
Undan landi Korpúlfsstaða. Þ;
Verpir hettumáfurinn. — Kvað
lehard Zusi hafa reynt <
ynna sér lifnaðarháttu hai
ar og annað í sambandi v
^°ktorsritgerð í fuglafræði u
ettumáfinn, sem hann vinm
undirbúningi að. Fuglalíf
n^ennt í landinu kynnti har
er að sjálfsögðu.
j ^ann kvaðst vilja nota tæV
^rið til þess að vekja athyg
almennings á hinu frábæra
fuglasafni Kristjáns Geirmunds-
sonar á Akureyri. — Það væri
leitt til þess að vita, ef Akur-
eyringar ekki nota sér þetta
safn Kristjáns. Fuglasafn þetta
er ómetanlegt, og ættu Akur-
eyringar að forða því frá glötun
og eyðileggingu, sagði hann.
Þeir félagar eru nú á förum
heim. — Báðu þeir Morgun-
blaðið fyrir kveðjur til þeirra
fjölmörgu, sem á einn eða annan
hátt hefðu greitt götu þeirra
hér.
—Mbl., 6. ágúst
íslenzkukennsla
við háskólann
íslenzkukennsla hefst við há-
skólann 20. september að lokinni
innritun dagana 15.—18. septem-
ber. Nemendur þeir, er hyggja á
íslenzkunám í vetur, eru beðnir
að koma til viðtals, áður en þeir
láta innrita sig. Mun ég verða í
skrifstofu minni innritunardag-
ana, herbergi nr. 207 í Arts-
byggingunni.
Finnbogi Guðmundsson
Batnandi horfur
Að því er hveitiráðinu og ein-
stökum kornkaupmönnum segist
frá, hafa horfur um sölu hveitis
héðan úr landi batnað til muna
upp á síðkastið. Á Bretlandi hef-
ir kornuppskeran orðið með
allra rýrasta móti og þess vegna
hefir eftirspurnin þaðan eftir
canadisku hveiti aukist jafnt og
þétt.
í ýmsum öðrum löndum Norð-
urálfu hefir uppskera einnig
orðið næsta léleg.
Gifting
Á föstudaginn 3. sept. voru
gefin saman í hjónaband í Fyrstu
lútersku kirkju þau Clara Hólm-
fríður Stefánsson, og Leslie
Gaven Will, bæði til heimilis
hér í borginni. Brúðurin er dótt-
ir þeirra Kristínar og Pálma
Stefánssonar frá Steep Rock, en
brúðguminn er af skozkum
ættum, námsmaður við Manitoba
háskólann. Að afstaðinni hjóna-
vígslunni, sem dr. Valdimar J.
Eylands framkvæmdi, var afar
fjölmenn veizla að heimili
þeirra Mr. og Mrs. S. M. Bjarna-
son á Belvidere Ave., og var þar
veitt af mikilli rausn.
Heimili ungu hjónanna verður
í Winnipeg.
Appointed
Miss Ásta Eggertson
The board of directors of the
Children’s Aid Society of Win-
nipeg, Thursday accepted the
resignation of the Society’s
executive director, Miss Muriel
Frith.
Miss Asta Eggertson, assistant
to the executive direct’or, was
appointed by the board as
executive director.
Miss Eggertson, a graduate of
the school of social work of the
University of Manitoba in 1944,
joined the staff of the Society in
1951. She had previously occup-
ied positions on the staffs of the
family welfare bureau in Ed-
monton, the public welfare
department of the Manitoba and
the Winnipeg juvenile and
family court.
Miss Eggertson is the daughter
of Mrs. Thorey Eggertson and
the late Arni Eggertson.
Til framboðs í
Selkirk
Sýnt þykir, að aukakosning til
sambandsþings fari fram í Sel-
kirk-kjördæmi að áliðnu hausti,
en kjördæmið losnaði vegna frá-
falls þingmannsins, Mr. Woods;
nú er vitað um tvo frambjóð-
endur, Mr. Bryce, C. C. F., fyrr-
um þingmann kjördæmisins, og
Mr. Veitz, er býður sig fram af
hálfu íhaldsmanna og búsettur
er að Petersfield.
Víst má telja að Liberalar
velji sér þingmannsefni, þó enn
sé eigi vitað hver verði fyrir
valinu, því enn hefir eigi verið
kvatt til framboðsfundar; nokk-
uð hefir þó verið talað um í
þessu sambandi Mr. Morrison
járnvörukaupmann í Selkirk,
sem er vinsæll maður og vel
metinn, en hvort hann gefur kost
á sér, getur verið annað mál.
STEPHAN G.:
From a Speech on lcelandic Day
You may visit each country,
Through the world you may roam,
And your soul will forever
Bear the shape of your home.
Niece to ice and volcano,
Son of Longhill and lea,
’Kin to Gullfoss and Geyser,
Grown by Skerry and sea.
What you think o’er our kingdoms
Or our heaven in hope,
All the lands of your future
Have their falls and a slope.
In Eternity’s ocean
Waits your island for you,
Nightless midsummer country,
Land of glorious view.
An Icelandic Elysium,
’Tis the land of your dreams,
Only bloom-clad the mountains,
Every Baldjökull gleams.
Niece to ice and volcano,
Son of Longhill and lea,
’Kin to Gullfoss and Geysir,
Grown by skerry and sea.
—Translated by Sigurður Norland.
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
29. ÁGÚST ---------------
Vikuna, sem leið, var framan
af hæg austlæg átt hér á landi,
en hvessti af austri á miðviku-
daginn og var þá mjög hvasst og
rigning við tfuðurströndina. Síð-
an hefir verið • breytilegt veður.
Á föstudaginn var komin norð-
austan átt og bjart veður sunn-
anlands og í gær var bjart veður.
í morgun var austan stormur
í Vestmannaeyjum og rigning
sunnanlands en úrkomulaust
nyrðra. Hlýtt var framan af vik-
unni en kalt seinni partinn, hrím
mun hafa fallið sums staðar á
jörð aðfaranótt laugardags, en
hvergi mældist frost að ráði. 1
morgun var aðeins tveggja stiga
hiti á Grímsstöðum á Fjöllum,
en hlýrra talsvert í lágsveitum.
☆
Heyskapur hefir gengið sæmi-
lega norðanlands og austan að
undanförnu, en lakar sunnan-
lands, m. a. hefir verið óþurrka-
tíð í Vestur-Skaftafellssýslu. í
sveitunum við Eyjafjörð er hins
vegar heyskap að ljúka. Margir
bændur hafa þegar hirt allt hey
og er það fyrr en vanalega. Hey-
fengur telst þar í góðu meðal-
lagi.
☆
Margir bátar eru nú á rek-
netaveiðum, bæði norðanlands
og sunnan, en veiði hefir verið
misjöfn. Um fyrri helgi hafði að-
eins verið saltað í 2200 tunnur
síldar sunnanlands, en talsvert
var saltað í vikunni, sem leið.
Nokkrir togarar eru nú komnir
á veiðar fyrir Þýzkalands-
markað.
☆
Á morgun hefst í Reykjavík
fundur utanríkisráðherra Norð-
urlanda og verður settur í há-
skólanum kl. 10,30. Þar verður
einkum rætt um afstöðu Norður-
landa í ýmsum helztu málun-
um, sem eru á dagskrá alls-
herjarþings Sameinuðu þjóð-
anna, er hefst í New York í
næsta mánuði. Halvard Lange,
utanríkisráðherra Norðmanna,
kom til Reykjavíkur í gær-
kveldi, H. C. Hansen, utanríkis-
ráðherra Dana, er væntanlegur
á morgun, og þá kemur enn-
fremur Arne Lundberg, skrif-
stofustjóri í sænska utanríkis-
ráðuneytinu, er situr fundinn í
stað Undéns utanríkisráðherra,
sem ekki á heimangengt vegna
kosningabaráttunnar. í för með
hverjum þessara manna eru
nokkrir starfsmenn utanríkis-
ráðuneytanna, skrifstofu- og
deildarstjórar. Af íslands hálfu
sitja fundinn, auk dr. Kristins
Guðmundssonar utanríkisráð-
herra, þeir Magnús Vignir
Magnússon skrifstofustjóri, Thor
Thors sendiherra, og deildar-
stjórarnir Hans G. Andersen,
Henrik Sv. Björnsson og Sig-
urður Hafstað. Fundinum lýkur
á þriðjudaginn, og munu erlendu
fulltrúarnir flestir halda heim-
leiðis á miðvikudaginn.
☆
Sýning á norskri nútímalist
var opnuð í Listasafni ríkisins í
dag að viðstöddum fjölda gesta,
og fluttu þar ræður Bjarni Bene-
diktsson menntamálaráðherra og
Halvard Lange utanríkisráð-
herra Noregs. Sýningin er hald-
in í boði ríkisstjórnar Islands, og
eru þeir verndarar hennar for-
seti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, og Hákon Noregskon-
ungur. Þar eru 220 listaverk
eftir 62 núlifandi norska lista-
menn, — málverk, höggmyndir,
vatnslitamyndir og svartlistar-
myndir. Fimm norskir lista-
menn komu til Reykjavíkur á
miðvikudaginn var til þess að
koma myndunum fyrir í sýning-
arsölum Listasafns ríkisins, en
meðal þeirra er Stinius Frede-
riksen myndhöggvari, sem er
formaður stjórnar Sambands
myndlistarmanna, og Reidar
Aulie listmálari, formaður dóm-
nefndar opinberra listsýninga í
Noregi. — Sýning íslenzkra
listaverka var haldin í Noregi
árið 1951 í boði norsku ríkis-
stjórnarinnar, og voru þau lista-
verk sýnd fyrst í Osló en síðan í
fjórum öðrum borgum. Þá var
um það talað, að æskilegt væri,
að efnt yrði bráðlega til norskrar
listsýningar í Reykjavík. í fram-
haldi af þessu sendi Mennta-
málaráð Islands norska mynd-
listarfélaginu boð snemma á
þessu ári, að undirlagi ríkis-
stjórnarinnar, að norska mynd-
listarfélagið efndi til almennrar
listsýningar, þeirrar sem opnuð
var í dag.
☆
Aðalfundur Sambands ís-
lenzkra rafveitna var haldinn í
Vestmannaeyjum og flutti
Jakob Gíslason, raforkumála-
stjóri, þar erindi um raforkumál
Vestmannaeyja. Ræddi hann
m. a. þá lausn á málinu að leiða
rafmagn með sæstreng til Vest-
mannaeyja. Samkvæmt laus-
legri áætlun myndi það kosta um
10 miljónir króna að leiða raf-
magnið á þann hátt til Eyja frá
Hvolsvelli, og væri þá miðað við,
að sæstrengurinn gæti flutt 3000
kílóvött.
☆
Aðalfundur Prestafélags Suð-
urlands hófst í Haukadal í dag
og messuðu aðkomuprestar í
kirkjum í héraðinu. Á morgun
verður farið í Skálholt, en auk
venjulegra aðalfundarstarfa er
nú endurreisn Skálholtsstaðar á
dagskrá.
☆
Nú í vikunni voru undirritaðir
samningar milli Reykjavíkur-
bæjar og Stéttarfélags verkfræð-
inga, en verkfræðingar hjá ríki
og bæ sögðu upp samningum í
vor og kröfðust hærri launa. —
Ríkisstjórnin hefir ekki samið
við félagið.
☆
Ferðafélag Islands hefir reist
sæluhús á Þórsmörk. Er það átt-
unda sæluhús félagsins og stærst
þeirra. Þar eru 27 hvílurúm og
geta 50 manns gist þar. Hús
þetta er reist til minningar um
Kristján Ó. Skagfjörð, sem var
einn af forystumönnum Ferða-
félags Islands og framkvæmda-
stjóri þess um langan aldur.
☆
Norski tundurspillirinn Aren-
dal kom í heimsókn til Reykja-
víkur í gær og dvelst þar til
fimmtudags. Sklp þetta, sem er
rösklega 1000 lestir að stærð, er
nótað sem æfingaskip fyrir norsk
sjóliðsforingjaefni og eru 55
þeirra á skipinu. Til Reykjavíkur
kom það frá Liverpool.
☆
Skáksamband Islands efndi til
fjársöfnunar til að standa straum
af kostnaði vegna farar skák-
manna á skákmótið, sem hefst í
Amsterdam á laugardaginn
kemur. Skáksambandið taldi að
safna þyrfti um 40,000 krónum,
en á skömmum tíma söfnuðust
rúmlega 60,000 krónur, og verður
sendur 6 manna flokkur.
☆
Félagið Menningartengsl Is-
lands og Ráðstjórnarríkjanna
hefir ákveðið, að gera septem-
bermánuð að kynningarmánuði,
þannig að allar deildir félagsins,
16 að tölu, stuðli samtímis að
menningarfræðslu um Sovét-
ríkin. I því skyni hefir félagið
boðið hingað lista- og vísinda-
mönnum frá Sovétríkjunum, og
hefst kynningarmánuðurinn með
ballettsýningu og hljómleikum í
Þjóðleikhúsinu 1. september.
☆
I sumar hefir verið unnið að
rannsóknum í Skálholti í um-
sjá þjóðminjavarðar og norsks
fornleifafræðings. Fyrra laugar-
dag urðu þeir, sem vinna að
rannsóknunum, varir við stein-
kistu, og telur þjóðminjavörður
að það sé kista Páls biskups
Jónssonar, er biskup var í Skál-
holti frá 1195 til 1211. Páll var
sonur Jóns Loftssonar og höfð-
ingi mikill, lærður í Englandi og
tók biskupsvígslu í Lundi. Um
hann segir, að hann lét steinþró
gera, ágæta haglega. Er hann
eini biskupinn hér, sem getið er
um að veittur hafi verið slíkur
umbúnaður. Steinkista þessi er
gerð úr heilum steinum. Hún er
rösklega tveir metrar að lengd
og mjög haglega höggvin. Stein-
hella er yfir og virðist kistan
hafa verið óhreyfð alla tíð. Kist-
an liggur í suðurkrossálmu
kirkjugrunnsins gamla, og hefir
sennilega verið miðsvæðis í
kirkju þess tíma. Kistan hefir
ekki verið opnuð ennþá. Þetta er
merkasti fundurinn í Skálholti
síðan byrjað var að grafa þar.
Skálholtsrannsóknirnar ganga
vel, en töluvert er þar enn ógert,
og munu þær eflaust standa
langt fram í september.
☆
Leikflokkur frá Þjóðleikhús-
inu er nú á ferðalagi austan-
lands og sýnir franka sjónleikinn
Topaze.
☆
Á föstudaginn kemur verður
opnuð í Osló svartlistarsýning,
sem haldin er á vegum norræna
svartlistarsambandsins. íslenzk
deild í sambandinu var stofnuð
í vor, og er Jón Engilberts for-
maður hennar. — Fjórir íslenzk-
ir listamenn sýna samtals 30
myndir á sýningmnni í Osló.
☆
Karlakórinn Fóstbræður í
Reykjavík leggur af stað í söng-
för til meginlands Evrópu og
Bretlands á miðvikudaginn kem-
ur. Söngstjóri er Jón Þórarins-
son, söngmenn 45. Sungið verður
í Lubeck, Hamborg og Kiel í
Þýzkalandi, ennfremur í Hol-
landi og Belgíu, París, London,
Glasgow og Edinborg. Einsöngv-
ari með kórnum er Kristinn
Hallsson. Á hverjum hljómleik-
um verður að minnsta kosti
helmingur laganna eftir íslenzka
höfunda. Kórinn syngur víða í
útvarp, og í sjónvarp í París.
☆
I gærmorgun lagði flokkur
knattspyrnumanna af stað til
Þýzkalands í kepnnisför. Það er
íþróttabandalag Akraness, sem
sendir knattspyrnuflokk til
Þýzkalands, en knattspyrnulið
frá Hamborg var í heimsókn hjá
Akurnesingum í sumar. Akur-
nesingar urðu Islandsmeistarar í
knattspyrnu í sumar, og sex úr
liði þeirra voru í íslenzka lands-
liðinu, sem keppti við Svía í
Kalmar á þriðjudaginn var, en
þar töpuðu íslendingar með
tveimur mörkum gegn þremur.
Fyrsti leikur Akurnesinga í
Þýzkalandsförinni er í Hamborg
í dag'við úrvalslið borgarinnar,
en næsti leikur þeirra verður á
miðvikudaginn í Hannover gegn
Þýzkalandsmeisturunum. Þriðji
leikurinn verður á sunnudaginn
Framhald á bls. 8