Lögberg - 16.12.1954, Page 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 16. DESEMBER 1954
7
Siðmenning er eina bjargráð
mannkynsins
Framhald af bls. 3
lagsins og síðan með stofnun
Sameinuðu þjóðanna, og báðar
hafa þessar stofnanir látið margt
gott af sér leiða.
Eitt hið merkilegasta, sem
eftir Þjóðabandalagið liggur, er
það, að 1922 gaf það út vegabréf,
sem giltu um allan heim, handa
þeim, sem misst höfðu föður-
land sitt í fyrri heimsstyrjöld-
inni. Það var Friðþjófur Nansen,
sem átti frumkvæðið að þessu.
Hvernig hefði farið fyrir öllum
hinum föðurlandslausu mönn-
um, ef þetta hefði ekki verið
gert? Og hvernig hefði farið fyr-
ir öllum þeim, sem flosnuðu upp
í seinni heimsstyrjöldinni 1945,
ef Sameinuðu þjóðirnar hefði
ekki verið?
En hvorug stofnunin hefir
komið á friði. Það er manngöfgin
ein, sem komið getur á varanleg-
um friði. Vér verðum að treysta
á hana, því að hún hefir skapað
siðmenninguna, hún er grund-
völlur allrar framþróv^nar, sem
orðið hefir. Vér verðum að
treysta. á hana, annars förumst
vér.
Siðmenningin kemur fram 1
því, að treyst er á innra eðli
mannsins, samúðina, sem í sjálfu
sér er grundvöllur allrar sið-
Greetings . . .
Mqy Happiness and Prosperity
Be Yours in the Coming Year!
For FOOD You'll Enjoy!
ELLICE INN
Ellice Ave. at Toronto St.
^ BARBECUED SPARERIBS
DELICIOUS SOUTHERN FRIED
OR BARBECUED CHICKEN
In Part or Whole for Home or Picnics
4'Golden Brown" FISH AND CHIPS^
PHONE
3-5156
WE DELIVER
Open from 10 a.m. to 1 a.m.—Saturdays 10 a.m. to 3 a.m.
Closed Mondays Except on Holidays
menningar, og að hún geti fyrst
notið sín er hún nær til alls
þess, er lífsanda dregur, undir
kjörorðinu: Lotning jyrir lífinu!
Árið 1950 kom út bók eftir
nokkra prófessora við háskólann
í Göttingen, sem höfðu lent í
brottrekstri Þjóðverja frá Aust-
ur-Þýzkalandi árið 1945. Þessir
flóttamenn segja frá því blátt
áfram hvernig einstakir menn
af óvinaþjóð hefðu hjálpað sér.
Sjaldan hefir bók komið svo við
hjartað í mér sem þessi. Hún er
vel til þess fallin að endurvekja
trú á manngöfgi hjá þeim, er þá
trú hafa misst.
Vonin um varanlegan frið er
alveg undir því komin í hvaða
átt hugarfar einstaklinga og þá
um leið heilla þjóða, kann að
beinast. Þetta er enn augljósara
nú en áður var. Erasmus, Sully,
Abbé St. Pierre og aðrir byggðu
vonir sínar á veldi þjóðhöfð-
ingja. Kant var hinn fyrsti, sem
minntist á lýðræði í sambandi
við alheimsfrið. Hann treysti því
að í brjóstum almennings byggi
friðarviljinn. En staðreyndir
tveggja heimsstyrjalda mæla
þessu í gegn.
í stríðinu þróaðist þjóðernis-
rembingur af allra versta tagi,
og enn í dag er hann versti
þrándur í götu þess að viðsjám
milli þjóðanna létti. Þessi þjóð-
ernisrembingur verður ekki
kveðinn niður nema því aðeins
að manngöfgishugsjónin endur-
fæðist meðal þjóðanna.
Allir menn, jafnvel hinir
frumstæðustu og ómenntuðustu,
hafa í sér manngöfgi, og hún
kemur fram í þeirri samúð, sem
þeir sýna öðrum. Hún er oss
meðfædd, hún er falin í oss og
getur blossað upp eins og eld-
fimt efni, sem neisti hrekkur í.
Það er bjargföst sannfæring
mín, að einhverntíma komi sá
dagur, að vér fordæmum styrj-
aldir af hreint og beint siðfræði-
legum ástæðum, vegna þess að
þær séu glæpur gagnvart mann-
kyninu. Þessi sannfæring mín
styðst við þá vissu, að nú á dög-
um sé mannsandinn þess megn-
ugur að skapa sér nýtt viðhorf —
viðhorf siðmenningar og mann-
göfgi. Þær stofnanir, sem 'ætlað
er að gæta friðarins, sem vér
vonumst eftir, geta aðeins rækt
hlutverk sitt að svo miklu leyti,
sem friðarhugsjónin þróast og
dafnast meðal þjóðanna.
Hugsjónarinnar um varanleg-
an frið hefir gætt hjá ýmsum
menningarþjóðum. í Gyðinga-
landi kom hún fyrst fram hjá
spámanninum Amos á 3. öld
áfram í trú Gyðinga og kristinni
fyrir Kristsfæðingu, og hún lifði
trú sem von um komu guðsríkis.
Hún er einn hluti kenninga
hinna gömlu meistara í Kína:
Konfusius, Laotse og annara.
Henni skýtur enn upp hjá
Tolstoj og öðrum vitmönnum í
Norðurálfu á seinni tímum.
Sumir hafa talið þetta hreinan
hugarburð. En nú er svo komið,
að hugsjónina verður að gera að
veruleika á einhvern hátt, því
annars er mannkynið glatað.
---------------☆-----
Ég veit að fátt er nýtt í því,
sem hér er sagt. Hið eina, sem er
nýtt, er fullvissan um að kraftur
andans sé þess megnugur að
skapa nýjan og göfugan hugsun-
arhátt. Eins og málum horfir nú,
er von að þjóðirnar telji sér
ógnað og þykist því hafa rétt til
þess að vera viðbúnar með þeim
ægilegu vopnum, er vér ráðum
yfir. En meðan á þessu stendur
verðum vér að vona að upp
komi sá andi sáttfýsinnar, sem
vér verðum að byggja á allar
vonir vorar.
í nafni allra þeirfa, sem vilja
vinna að friði, grátbið ég þjóð-
irnar um að taka upp stefnu
sáttfýsinnar. Engin mun fyrir
það missa neitt af því bolmagni,
til þess að geta varið sig.
sem hún þykist þurfa á að halda
Með þessu þykist ég hafa lýst
hug og vonum þeirra milljóna
manna í þessum hluta heims, er
lifa í sífelldum ótta við yfirvof-
andi styrjöld. Og ef orð mín gæti
borizt út fyrir merkjalínuna, þá
vona ég að þau verði skilin rétt
af þeim, sem þar búa og einnig
lifa í sí^elldum ótta við stríð.
Ég vildi að allir þeir, sem hafa
forlög þjóðanna í hendi sér, forð-
uðust sem heitan eld allt sem
gæti orðið til þess að breyta á-
standinu til hins verra. Ég vildi
að þeir hefðu alltaf í huga orð
Páls postula: Ef mögulegt er,
þá hafið frið við alla menn. Þessi
orð eru ekki mælt til einstakl-
inga, heldur einnig til þjóðahna.
Og ég vildi að þær gengi þannig
að friðarstarfinu, að andinn nái
að þroskast og láta til sín taka.
—Lesb. Mbl.
Minnist
BETEL
"A Realistic Approach to the
Hereafter"
by
Winnipeg author Edith Hansson
Bjornsson's Book Store
702 Sargent Ave.
Winnipeg
nnilegustu óskir . .
um gleðileg jól, til allra
okkar íslenzku viðskiftavina
og allra íslendinga, og góðs,
gæfuríks nýórs.
MiinaGAammGiti
Komið til okkar með myndir, málverk, Petit
Point, krosssaum og það annað, er setja skal í
ramma . . .
LITTLE GALLERY hefir í þjónustu sinni sérfræðinga,
sem að öllu þessu lýtur, og stofnun okkar, með fimmtíu
ára reynslu getur sparað ykkur frá 20% til 40%. Við
önnumst um hið rétta val og sönnum það með
árangrinum. Allar myndir þurfa að vera í viðeigandi
ramma.
LITTLE GALLERY
396 Notre Dame Ave.
402 Notre Dame Ave.
Winnipeg. Man.
HEADQUARTERS FOR FRAMING
BLUE RIBBON
Quality Products
A rich and flavory blend
of freshly roasted coffee.
C0FFEE
Always a favorite because
it is always so delicious.
BAKING
POWDER
Pure and Wholesome
Ensures Baking Success
TEAMWORK
Þa8 er engin nýlunda a8 fólk vinni í sameiningu; 1
hundruCum tilfella taka menn höndum saman viB
skemtanir og störf. Menn vínna saman meö fi.kve8iC
markmiS fyrir augum, hvort heldur er átt við tölf
manna fötboltaflokk, e8a þúsundir, sem starfa a8
samvinnufyrirtœkjum.
Yfir 35,000 bænda t Manitoba vinna í einingu aS
sameiginlegu markmi8i, e8a því, hvernig bezt ver8i
haga8 me8fer8 korns me8 sem mínstum tilkostnaSi.
Þessir 35,000 bændur, sem teljast til 211 sam-
vinnu-kornhlööustofaana, hafa blessunarrtk
áhrif á efnalega afkomu fylkisins og
þjöSarinnar allrar. v
MANIT0BA P00L ELEVATORS