Lögberg - 17.02.1955, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 17. FEBRÚAR 1955
7
VVWVWVWWWWVWWWVW'9'WVW*
ÁIKAMÍL
rVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
HLÝTUR VERÐLAUN í LEIKRITASAMKEPPNI
Miss Lauga Geir, Edinburg,
N. Dak., hefir nýlega hlotið
$50.00 verðlaun í leikritasam-
keppni, er Jóns Sigurðssonar
félagið í Winnipeg efndi til.
(Félag þetta tilheyrir hinu vold-
uga kvennasambandi, Imperial
Order daughters of the Empire,
og starfar aðallega að fræðslu-
málum og öðrum áhugamálum
sambandsins, en hefir lagt
drjúgan skerf til menningarmála
Islendinga hér).
Þátttaka í samkeppninni var
öllum opin nema aðeins með-
limum Jóns Sigurðssonar félags-
ins, og skyldi leikritin vera í
þrem þáttum á ensku og fjalla
um líf íslenzku frumbyggjanna í
Ameríku. Fjögur leikrit bárust
nefnd félagsins, sem sá um sam-
keppnina, — en formaður nefnd-
arinnar er Mrs. Björg Isfeld.
Óháðir dómendur, þrír að tölu,
dæmdu leikritin, og voru það
Próf. G. L. Brodersen og Próf.
Skúli Johnson, báðir kennarar
við Manitobaháskólann, og Mrs.
John Craig, en hún er alkunn
fyrir leiklistarstarfsemi sína í
Winnipeg.
Formaður dómnefndar, Mr.
Brodesen, fór mjög lofsamlegum
orðum um leikrit Miss Geir, er
hún nefnir, “In the Wake of the
Storm”, og segir að það sé vel
samið, bæði hvað form snertir
og innihald.
Lauga Geir, sem eitt sinn var
kennari við Jóns Bjarnasonar
skóla hér í borg, er útskrifuð frá
háskóla Norður Dakota, sem
B.A., árið 1923, og hlaut meist-
aragráðu frá sama skóla árið
1938. Aðalfög hennar við meist-
araprófið voru bókmenntir og
leiklistarnám. Síðan var hún
kennari í fjölda mörg ár við mið-
skóla á ýmsum stöðum í Norður
Dakota og víðar. Féll það þá
ætíð í hennar hlut að æfa, undir-
búa og stýra leiklistarstarfsemi
skólanna er hún starfaði við.
Einnig hefir Miss Geir unnið
mikið og gott starf í þágu heima-
byggðar sinnar á leiklistarsvið-
inu. Oft hefir hún samið smá-
leikrit og táknsýningar fyrir sér-
stök tækifæri eða hátíðahöld ís-
lenzku byggðarinnar í Norður
Dakota, og hefir henni ætíð
farist það prýðilega vel og
smekklega úr hendi. Árið 1941
samdi hún og sýndi táknleik
(pageant), er hún nefndi,
“Manifestations of Icelandic
Heritage in Pembina County,”
fyrir héraðsfund kvenfélagsins
Dœtur jrumherjanna (Pioneer
Daughters). Síðar æfði hún á ný
og sýndi þennan sama táknleik
við hátíðahöldin í Dakota í til-
efni af 75 ára afmæli íslenzku
byggðarinnar þar 1953. Voru
áhorfendur mjög hrifnir af sýn-
ingunni og mun hún allmikið
hafa aukið á menningar- og
sögulegt gildi hátíðarinnar.
Lauga hefir einnig skrifað
greinar í ýms blöð, bæði á ensku
og íslenzku, — mestmegnis
fyrir „Árdís“ og The Icelandic
Canadian tímaritið.
Foreldrar Laugu voru Jóhann
Geir og kona hans Anna Jóns-
dóttir, frá Kolstöðum í Dala-
sýslu. Þau komu frá Islandi í
„stóra hópnum“ 1876, og settust
að skammt fyrir sunnan Hnausa
í Nýja-lslandi, en fluttu til
Norður Dakota árið 1880. Jóhann
dó frá stórum barnahóp skömmu
áður en Lauga fæddist, og var
hún sem ungbarn tekin til fóst-
urs af nágrönnum Önnu, — þeim
Davíð Jónssyni og Þórdísi Guð-
mundsdóttur, sem einnig komu
til Nýja-lslands með stóra hópn-
um frá Húnavatnssýslu, en
fluttu til N. Dak. árið 1882.
Síðari árin hefir Lauga lagt
niður skólakennslu, mikið sök-
um heilsubilunar, og býr nú á
bújörð fósturföður síns, sem er
um þrettán mílur norður af
Edinburg, en svo að segja mitt
á milli Garðar og Mountain.
Hún lætur ekki heilsubrestinn
aftra sér frá því að sinna alls
konar menningarstörfum, sem
orðið gæti byggð hennar og
þjóðarbroti í hag, — og mun hún
hafa byrjað að semja ofannefnt
leikrit, þá er hún lá á sjúkrahúsi
hér í Winnipeg s.l. haust eftir
alvarlegan uppskurð.
Jóns Sigurðssonar félagið hef-
ir í hyggju að setja á leiksvið
leikrit Laugu sem allra fyrst.
Sem íslendingur vil ég þakka
Laugu Geir fyrir áhuga hennar
og ágætt menningarstarf, og
óska henni til hamingju og
langra lífdaga.
Hólmfríður Danielson
Bezta munntóbak
heimsins
HAMINGJUÓSKIR . . .
til íslendinga í tilefni aí 36. ársþingi
þjóðræknisfélagsins, sem haldið
verður í Winnipeg, 21 .-23. feb. 1955.
★
WESTERN PAINT CO. LIMITED
“The Painter’s Supply House Since 1908”
Phone 93-7395
521 HARGRAVE ST. WINNIPEG
Ný bók um Arabíu-Lawrence þar sem
hann er talinn falsari og skrumari
Framhald af bls. 4
skrumara, sem ekki einasta kom
á loft hróðurssögum um sjálfan
sig, heldur vann einnig það sem
hann mátti gegn Frökkum, er
þá voru bandamenn Breta (í
heimsstyrjöldinni fyrri). Adling-
ton segir ennfremur, að Arabíu-
Lawrence hafi látið það berast
til Georgs fimmta, Bretakóngs,
að svo gæti farið, að hann yrði
neyddur til að berjast gegn
Bretum, ef brezka stjórnin yrði
ekki við tilteknum kröfum ara-
bískra vina hans.
Eins og Vellýgni-Bjarni
Það skeði, er Arabíu-Lawr-
ence var generáll í Transjór-
daníu 1921, að tíu þúsund pund
týndust úr fjárhirzlum þeim,
sem hann hafði umsjón með.
Gat hann ekki gert grein fyrir
því, hvað hafði orðið af þessu
fé. Er hann skilaði af sér hafði
hann eytt hundrað þúsund
pundum á þremur mánuðum og
voru týndu tíu þúsundirnar í
þeim faldar. Adlington segir
ennfremur, að hin fræga Araba-
uppreisn í eyðimörkinni, en
Lawrence hélt því fram, að með
henni hefði hann endurskapað
hin nærliggjandi Austurlönd,
hafi ekki verið annað en smá-
vegis skæruhernaður, sem engin
sérleg áhrif hefði haft á stríðið
við Tyrki. Ennfremur, að bók
Lawrence um uppreisnina, verði
nú að meiru eða minna leyti að
teljast til skáldsagnagerðar,
enda segir Adlington, að Lawr-
ence hafi verið þannig gerður og
enda viðurkennt, að hann vissi
stundum ekki hvar staðreynd-
irnar enduðu og skáldskapurinn
tæki við.
Ætlaði að rita ævisögu hans
Adlington skýrir frá því, að
hann hafi í fyrstu hugsað sér að
rita ævisögu Arabíu-Lawrence.
í rannsóknum sínum í sambandi
við þetta fyrirhugaða verk,
hnaut hann um ýmsar missagnir
og fór fyrir alvöru að gagnrýna
manninn, þegar hann komst að
raun um, að sumt af þessum mis-
sögnum var rakið til mannsins
sjálfs. Lawrence mun hafa hald-
ið því fram, að árið 1925 hafi
honum staðið til boða há opin-
ber staða í Egyptalandi fyrir
brezka ríkið. Adlington komst
að því, að þetta voru ósannindi
og grunsemdir hans vöknuðu.
Þannig héldu rannsóknir áfram
að leiða í ljós missagnir, unz
Aldington komst að raun um,
að þessi brezka hetja og sam-
landi hans var ekki annað en
falsari. Sumar sögur hans voru
hreinn tilbúningur, aðrar skap-
aðar af litlu tilefni og sumar
með sannleiksbroti, en fáar með
öllu sannar. Segir síðan í bók
Adlingtons: „Þessi gloppótti
ferill mun líklegast aldrei verða
upplýstur. Það var það, sem
Lawrence vildi, enda ól það á
hégómagirnd hans og þrá hans
eftir yfirburðum meðan það
leiddi athyglina frá leyndarmáli
hans“. Adlington heldur því
nefnilega fram, að tiltekið leynd-
armál sé á bak við þetta — fjöl-
skylduleyndarmál.
Þetta leyndarmál hrjáði Lawr-
ence árum saman og skýrir ef til
vill nafnabreytingar hans yfir í
T. E. Shaw og síðan Ross. Segir í
bókinni að sektartilfinning hafi
hrundið Lawrence út í þau ó-
skemmtilegheit og karlmennsku
leysi að telja sig ofurmenni.
Ágætt handa ömmudreng —
og ömmu!
I.júífent á, bragðið. Wampoie’s
inniheldur ekki neina olfu og
reynist fyrirtak ár út og ár inn
fyrir fðlk á öllum aldri. Eink-
um holt fyrir ungbörn. Auðugt
af bæUefni "D” og calcium.
Pað styrkir bæði heilsu og
HKW-4
nitV
0F C0D LIVER •
Ein af missögnunum er sú, að
Lawrence þakkaði sér áætlun-
ina, sem gekk undir nafninu
„Bjargið Galipoli", sem var um
lendingu Bandamanna við Alex-
andretta í Sýrlandi. Adlington
komst að því, að þessi áætlun
hafði verið gerð af öðrum, þegar
Lawrenece var enn í skóla.
Enginn veit, hvert leyndarmál
Arabíu-Lawrence var, þótt. það
hafi kannske valdið mestu um
líf hans og hegðun. Hann tók
það með sér í gröfina, en eins og
fyrr segir, búast blöðin við því,
að vinir hans og aðdáendur muni
reyna að hrekja niðurstöður
Adlingtons.
Congratulations . . .
to the lcelandic People on the occasion
of the thirty-sixth annual gathering of
the lcelandic National League in
Winnipeg, February 21 st to 23rd, 1955.
A FRIEND
..illlllllllllllllll!llill!lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllllllll!llllllllllli,.
Hagsýnt fólk situr jafnan
við þann eldinn sem bezt
brennur . . .
Af þeim ástæðum er það að
viðskiptavinum vorum fjölgar
óðfluga dag frá degi. Það
kaupir enginn köttinn í sekkn-
um, sem gerir sér það að reglu
að verzla í
For the Best In Bedding
GLOBE
• Beds
• Springs
• Mattresses
• Davenports and Chairs
• CHESTERFIELDS
• Continental Beds
• Comforters
• Bedspreads
• Pillows and Cushions
GLOBE BEDDING
COMPANY LIMITED
WINNIPEG
CALGARY
CONGRATULATIONS . . .
on Ihe occasion of the 36th Annual Convention
of the Icelandic National League.
For FOOD You'll Enjoy!
ELLICE INN
Ellice Ave. al Toronto St.
f BARBECUED SPARERIBS f
DELICIOUS SOUTHERN FRIED
OR BARBECUED CHICKEN
In Part or Whole for Home or Picnics
4 "Golden Brown" FISH AND CHIpTþ
3-5156
PHONE
WE DELIVER
Open from 10 a.m. to 1 a.m.—Saturdays 10 a.m. to 3 a.m.
Closed Monday Except on Holidays