Lögberg - 12.05.1955, Síða 1
ANYTIME
ANYTIME
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 12. MAÍ 1955
NÚMER 19
Hundrað óra afmælið í Utah
Frá Vancouver
— 6. MAl —
Eins og áður hefir verið skýrt
frá í blöðunum halda íslending-
ar í Utah, undir umsjón Islend-
ingafélagsins þar, hátíðahöld
mikil dagana 15., 16. og 17. júní
n.k. til þess að minnast komu
fyrstu íslenzku innflytjendanna
til Spanish Fork fyr;ir hundrað
árum síðan.
Um þrjátíu manna nefnd hefir
starfað með miklum dugnaði að
undirbúningi hátíðahaldanna
síðan í ágúst s.l. og hefir nú þessi
mikla þriggja daga hátíð verið
skipulögð að mestu leyti. Það er
óhætt að segja, að vandað hefir
verið til allrar þátttöku í mann-
fagnaði þessum.
Utanríkisráðherra íslands hef-
ir skipað Hr. Pétur Eggerz frá
sendiráði Islands í Bandaríkjun-
um sem fulltrúa íslands á há-
tíðinni.
Einnig hefir Bandaríkja-
stjórnin í Washington, D.C., út-
nenft fulltrúa á hátíðina og er
hann hr. Marselis C. Parsons,
yfirmaður Norður-Evrópu deild-
ar stjórnarinnar — (Northern
European Division of the U. S.
Dpt. of State).
Skemtiskráin í Spanish Fork
verður að mestu leyti sem hér
fylgir:
15. júní, kl. 7 e. h. Guðsþjón-
usta og kórsöngur.
16. júní, kl. 2 e. h. Útiskemtun;
samkeppni í boltaleik (baseball).
Kl. 8 e. h. Söguleg sýning
(Pageant), sem innifelur m. a.
hvernig menningarerfiðir ís-
lendinga í Utah, sem þeir fluttu
með sér frá móðurjörðinni, hafa
orðið og verða afkomendum
þeirra til heilla. Sýningin fer
fram í stóru og veglegu sam-
komuhúsi í Spanish Fork, sem
rúmar um þúsund manns, og í
sambandi við hana verða sungn-
ir íslenzkir söngvar af öflugum
kór og hljómsveit annast undir-
spil.
17. júní, kl. 10 f. h. Skrúðför;
um 27 af skrúðvögnum þeim,
sem þegar hafa verið undir-
búnir sýna myndir úr lífi Is-
lendinga og afkomenda þeirra í
Utah. Kl. 12.30 e. h. Veizla til
heiðursgesta, sem sækja hátíð-
ina, og samkoma þar sem full-
trúi Bandaríkjanna, Marselis C.
Parsons, verður aðalræðumaður.
Kl. 2 e. h. verður útiskemmtun
sérstaklega helguð börnum og
unglingum. Kl. 4 skemtir
hornleikaraflokkur. Þar næst
verður farin skemtiför með gesti
hátíðarinnar til þess að skoða
umhverfi borgarinnar og þá
sérstaklega sögustaði og söguleg
minnismerki. Kl. 7 e. h. verður
samkoma þar sem fulltrúi Is-
lands, hr. Pétur Eggerz, verður
aðalræðumaður.
John Y. Bearnson, kaupmaður
í Springville, Utah, er forseti
hátíðarnefndarinnar. Hann er
sonur Finnboga Björnssonar, er
kom frá íslandi til Utah árið
1883. En föðursystir Finnboga,
Vigdís Bjarnadóttir (Holt), kom
til Utah árið 1857, og er nafn
hennar grafið á minnisvarðann,
sem helgaður er sextán fyrstu
innflytjendunum í Utah.
Björnssons fjölskyldan er
mikils metin, ekki aðeins meðal
íslendinga í Utah, heldur og
einnig meðal almennings fyrir
margþætt menningarstarf. Syst-
ir John Bearnson’s er Mrs. Kate
B. Carter, merkur rithöfundur
og menningarfrömuður, sem
hefir verið margvíslega heiðruð
fyrir starf sitt.
Á næstunni verður ofurlítið
getið um þessa afkomendur ís-
lendinga í Utah og minnst á inn-
flutning'stímabilið í íslenzku
blöðunum.
Hólmfríður Danielson
Flytur ræðu í
Winnipeg
Rt. Hon. Vincent Massey
Svo sem skýrt var frá hér í
blaðinu hinn 10. marz síðastlið-
inn, flytur landsstjórinn í
Canada, Rt. Hon. Vincent
Massey, ræðu í Civic Auditorium
hér í borginni á föstudaginn
hinn 20. þ. m., en sá dagur er
nefndur Canadian Citizenship
Day, og þá verður nýjum Canada
mönnum fagnað með fjölbreytt-
um hátíðahöldum; í mannfagn-
aði þessum taka þátt mörg þjóð-
arbrot, en um þátttöku íslend-
inga annast Icelandic Canadian
Club.
Frá því hefir áður jafnframt
verið skýrt, að Mr. Massey heim-
sæki Gimli á laugardaginn hinn
21. þ.m., og þarf ekki að efa að
þangað streymi múgur og manns.
Fylkiskosningar
í aðsigi
Fylkisþingið í Ontario hefir
verið rofið og nýjar kosningar
fyrirskipaðar hinn 9. júní næst-
komandi; síðastliðin fjögur ár
hefir setið að völdum í fylkinu
íhaldsstjórn undir forsæti Mr.
Leslie Frosts, sem stuðst hefir
síðastliðið kjörtímabil við þann
sterkasta þingmeirihluta, sem
um getur í sögu fylkisins.
Liberalar, en foringi þeirra er
Mr. Oliver, hafa lýst yfir því, að
þeir muni hafa frambjóðendur í
öllum kjördæmum og leiðtogi
C.C.F.-flokksins, Mr. McDonald,
gerir ráð fyrir að sinn flokkur
geri slíkt hið sama; þá má og
víst telja, að kommúnistar
freisti gæfunnar í nokkrum
kjördæmum.
Ekki er það talið ólíklegt að
Frost-stjórnin vinni kosning-
arnar þó vera megi, að glund-
roðinn, sem upp kom í fyrra
varðandi rekstur bílvega innan
vébanda fylkisins geti veikt að-
stöðu hennar til muna.
Ontariofylki hefir tíðum verið
eitt hið allra öruggasta vígi
íhaldsflokksins í landinu.
Gerist
óþolinmóður
Mr. Stephen Juba, utanflokka
þingmaður í fylkisþinginu í
í Manitoba fyrir Winnipeg
Centre kjördæmið, hefir skrifað
hinum nýja dómsmálaráðherra
og kvartað við hann yfir því hve
Bracken-nefndin í vínsölurann-
sóknarnefndinni sé orðin á eftir
með álitsskjöl sín; telur Mr.
Juba þetta seinlæti geta leitt til
þess, að saklausir borgarar
geriát lögbrjótar.
Þýzkaland öðlast
fullveldi
Hinn 5. þ. m., öðlaðist Vestur-
Þýzkaland fullveldi og tók þá
sæti meðal hinna lýðfrjálsu
þjóða og var þá, svo sem vænta
mátti, mikið um dýrðir í Bonn,
höfuðborg hins þýzka fylkja-
sambands; sendiherrar Breta,
Frakka og Bandaríkjamanna,
heimsóttu ríkiskanzlarann, Kon-
rad Adenauer þá um daginn, en
seinna ávarpaði kanzlarinn þjóð
sína í útvarpsræðu og lýsti holl-
ustu hennar við hugsjónir lýð-
ræðisins; telja má víst, að innan
næstu daga verði Vestur-Þýzka-
landi veitt upptaka í Norður-
Atlantshafsbandalagið og gerist
þá fullgildur aðili Vestur-
Evrópu varnarsamtakanna með
500,000 manna herafla.
í gleði vorsins
Á meðal þess, sem Vancouver
borg gerði til að fagna hátíð
vorsins, páskunum, var stórkost-
leg og fögur, eftir öllum lýsing-
um að dæma, samkepni í hljóm-
list. Allmikill fjöldi manna og
kvenna tóku þátt í því, þar á
meðal voru þrír þátttakendur af
íslenzku. bergi brotnir: Grettir
Björnsson með harmonikuspili;
Mrs. Margrét Sigmar Davíðsson
í kvenröddunum; og John G.
Hinrickson í unglingaröddnuum;
öll við ágætan orðstír.
Grettir Björnsson, dótturson-
ur Karls Sigurgeirssonar á
Bjargi, á íslandi, kominn hér
fyrir þremur árum, hlaut 94
stig af hundraði. Sá, sem bikar-
inn tók, hlaut 98 stig. Grettir
hefir barizt hart fyrir tilveru
sinni hér með því að stunda at-
vinnu gagnstæða listaverkum —
fiskverkun. En drengurinn sór
sig í ættina með því að gefast
ekki upp. Karl á Bjargi, er bróð-
ir Arinbjarnar heitins Bárdals,
frú Ingunnar Marteinsson og
þeirra systkina. Stórblaðið Van-
couver Province flutti bæði
ítarlega og hlýja grein um
Gretti um þetta leyti sem og
mynd af honum og konu hans,
Ernu.
Mrs. Margrét Sigmar Davíðs-
son var önnur af þrjátíu og
þremur konum, er tóku þátt í
söngnum. Það er mjög ánægju-
legt, því þetta fólk, sem kepti
þarna og skaraði fram úr, eru
„Stjörnur morgundagsins“ “The
Stars of Tomorrow.” Við höfum
heyrt þá, er þannig hafa skarað
fram úr á undanförnum árum,
manni til mikillar ánægju, yfir
útvarpið á sunnudögum, um
mörg undanfarin ár. Og er gott
til þess að vita, að sem flestir af
þeim, sem hafa góða hæfileika,
fá svo góðan byr undir vængi til
þroska, sem þessar samkepnir
gefa.
John G. Hinriksson er tólf ára
að aldri. Faðir hans er íslenzkur
Canadamaður, Gunnþór Hin-
riksson frá Selkirk, Manitoba.
Kona Gunnþórs er af enskum
ættum. John hefir fjarska þýða
og fallega rödd, og manni virtist
hún vera nokkuð mikil fyrir svo
ungan mann. Faðir hans sagði
um þátttöku hans í hljómlistar-
samkepnninni: „Við, foreldrar
hans, erum hæst ánægð með út-
komuna fyrir hans hönd. Þetta
er í fyrsta sinn, sem John tekur
þátt í söngsamkeppni. Það er svo
ótal margt, sem unglingur þarf
að læra undir þessum kringum-
stæðum. John varð sá fjórði af
tuttugu og fimmti af tuttugu og
fimm eða svo, í öðrum þætti.
Hann lærði svo margt við þátt-
töku sína í þessu, sem honum
kemur að gagni, háttvísi á söng-
palli og annað því um líkt“.
Mr. Hinriksson var fjarska
vel ánægður fyrir sonar síns
hönd.
Prófdómarinn, The Adjudi-
cator, í þessar hljómlistarsam-
keppni er Englendingur. Þeir
menn þykja með afbrigðum vel
að sér í þessari grein og kröfu-
harðir við þátttakendur að sama
skapi. Gefa ekki einkunnir fyrir
smámuni, en framkomugóðir og
sanngjarnir eigi að síður við
nemendur. Hann fór mjög lof-
samlegum orðum um hæfileika
þessa fólks, margra þeirra, er
þátt tóku í þessari keppni og
þar á meðal þeirra, er hér um
ræðir sérstaklega.
Formaður fyrir Business
Men's Club
Enn er einn vel þektur maður
síns fólks á meðal, Fred Bardal,
sonur Halldórs Sigurgeirssonar
Að því er ráða mátti af síma-
og útvarpsfregnum frá Regina
hinn 5. þ. m., er áætlað að tjón
af völdum áflæðis á ýmissum
stöðum í Saskatchewan fylki
hafi numið um þær mundir á
milli fimmtíu til sextíu miljón-
um dollara og geti auðveldelga
farið nokkuð fram úr því.
Mörg bygðarlög á flóðsvæð-
inu eru svo að segja umflotin
Bardals, sem allir Winnipeg-
íslendingar þekktu hér fyrr
meir, sem getið hefir sér góðan
orðstír fyrir þátttöku sína í
störfum dagsins. Fred Bardal
hefir um mörg undanfarin ár
verið meðlimur “Scandinavian
Business Men’s Club.” Þeir hafa
meðal annars myndasýningar og
ferðaminningar frá ýmsum lönd-
um. Mér er sagt, af þeim, sem
séð hafa, að þeir hafi oft góða
aðsókn. Þessi klúbbur gaf
skandinavisku eilliheimilunum
jólagjafir í vetur. íslenzka elli-
heimilinu „Höfn“ gáfu þeir
fimmtíu dali, „til glaðnings
gamla fólkinu“. Þeir kjósa for-
seta klúbbs síns til eins árs í
einu. Þetta ár var Fred Bardal
kosinn forseti félagsins.
Fröken Katrín Brynjólfsdóttir,
systir séra Eiríks S. Brynjólfs-
sonar, kom nýlega flugleiðis frá
Winnipeg vestur á Kyrrahafs-
strönd. Hún hygst að dvelja í
sumarleyfi sínu hjá bróður sín-
um og fjölskyldu hans. Katrín
fór af stað frá Winnipeg um
miðaftan á miðvikudag. Flug-
skipið kom við um stund bæði í
Saskatoon og Edmonton, en til
Vancouver kom það snemma á
fimtudag.
Dr. Valdimar J. Eylands sendi
frá skrifstofu Lögbergs eintak af
Lögbergi — svona bara glóðvolgt
af pressunni, til séra Eiríks S.
Brynjólfssonar. Blaðið var því
komið alla leið vestur á Strönd,
að þessu sinni, daginn eftir að
það kom út í Winnipeg, og þegar
horft er á útkomudaginn aðeins,
þá er það sama daginn. — Við
lifum á tímum hraðans, sem og
fjölda margra annara stórundra.
R. K. G. S.
Veittar þungar
búsifjar
Smáþorpinu Delta við Mani-
tobavatn voru veittar þungar
búsifjar í lok fyrri viku; vegna
háflæðis í vatninu og stórrign-
inga, lét nærri að þorpið færi í
kaf og mörg sumarhús, sem þar
eru, fyltust af vatni; víða annars
staðar hafa vatnavextir þjakað
kosti fylkisbúa, svo sem í Pipe-
stone bygðarlaginu, en þar urðu
þrjátíu fjölskyldur tilneyddar
að flýja óðul sín af völdum
áflæðis.
Aukakosning til
skólaráðs
Kjörstjórinn í Winnipeg, Mr.
George Gardner, hefir skipað
svo fyrir, að aukakosning til
skólaráðs verði haldin í 2. kjör-
deild 8. júní næstkomandi; kjósa
skal einn skólaráðsmann í stað
Mr. Malcolms, er lét fyrir
nokkru af stöðunni.
Þrír frambjóðendur munu
verða í kjöri, þeir Mr. Paul
Thorkelsson af hálfu borgar-
nefndarinnar, Mr. Robertson
fyrir hönd C.C.F.-sinna og Mr.
Penner undir merkjum komm-
únista.
vatni og hafa búendur eigi átt
annars úrkostar en flýja þaðan;
horfur um sáningu og uppskeru
eru því einar þær ömurlegustu,
sem hugsast getur, einkum að
því er hveitiræktina áhrærir.
Svo umfangsmikið er tjónið í
fylkinu þegar orðið, að óhugsan-
legt sýnist að sambandsstjórn
bregðist ekki skjótt við og
hlaupi undir bagga.
ÁRNI G. EYLANDS:
Þórólfur smjör
Við mér allar hlógu hlíðar,
hlakkar ennþá minning hver
um hve sveitir valdavíðar
virðulega heilsuðu mér.
Fannamöttluð fjöll og tindar,
Framnesengjar, heiðablár,
söngur og kvæði læks og lindar,
laxafossa og silungsár.
Opnir blöstu breiðir dalir,
bakkaflæði, kjarralönd,
endalausir undrasalir,
ytra nes og Látraströnd,
eggver, sker o5_ «krúður eyja,
Skuggabjörg og Hleinavík.
Höfðar sig um hafnir teyja,
hvergi leit ég gæði slík.
Bóndans úð mér bauð að skoða
bjargráð drjúpa af hverri tó,
smjör við strá og lyngið loða,
líknargrös um skriðumó.
Fangabjart til bús og iðju,
blessunarlega frjálst og vítt
til að elda í eigin smiðju
óðalsrétt um kjörland nýtt.
Víða hef ég vegu kannað
víða stigið fæti á sand,
hvergi bauð mér auðna annað
eins og þetta töfraland.
Það getur ei úr hug mér horfið,
hvergi kysi ég ættarrann
fremur, og binda traust við torfið
tryggð, er göfgar hraustan mann.
Þar ég kysi ungum örfum
Unaðsdal og sagnagrund,
þroska efldan sterkum störfum,
stóra kosti, opin sund.
Æ að mega í minnum geyma
marga sigra og heljartök,
og um nýja dáð að dreyma,
drýgri velli, hærri þök.
Sé ég vaxinn Vitaðsgjafa,
víða kynntan sofn við tröð,
óðalsbónda akur grafa,
aflagnótt í veiðistöð.
Sé ég mætast lá og lendur
'lýð að tryggja heillakjör,
kaupang fóstra stórar strendur,
stefna á sæinn hlaðinn knör.
Gafst mér eigi vandi og vegur
víða storð að helga mér,
kvaddi ég landið klökkva-tregur,
kvöldin löng í huga ber.
Faxaós og fjörðinn breiða,
fjallahring og jöklasýn,
bak við endi allra leiða
Islands strendur bíða mín!
Hugrökk æska ættjörð byggir
öllu snýr á betri leið,
sterkur gróður garða tryggir,
garpar sækja í hafið skreið.
Þó að skyggi ögn í álinn
eitthvað tefji sóknarför,
sækjum þrótt í sagnamálin,
söguna um Þórólf smjör.
11. marz 1955.
Gífurlegt tjón af völdum
vatnavaxta og sandroks