Lögberg - 12.05.1955, Síða 8

Lögberg - 12.05.1955, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. MAI 1955 Úr borg og bygð Eitt svefnrúm fæst nú þegar í litlu hjúkrunarheimili að 494 Wardlow Avenue. Sími 40-2368. Æskilegt að umsækjandi væri Islendingur. ☆ Mr. Bergur Johnson vistmað- ur á Betel var staddur í borg- inni í lok fyrri viku. ☆ — ÞAKKARORÐ — Við undirrituð viljum hér með tjá börnum okkar, öðrum ætt- mennum og vinum okkar hjart- ans þakklæti fyrir undirbúning og framkvæmdir varðandi hið virðulega samsæti, sem okkur hjónum var haldið í samkomu- húsi Geysisbygðar hinn 19. apríl síðastliðinn í tilefni af gullbrúð- kaupi okkar; við þökkum þeim öllum, er skemmtu okkur svo yndislega áminst kvöld, jafn- framt því, sem við þökkum hin- ar fögru og verðmætu gjafir; en öllu öðru framar metum við þó þann góðhug og þá vináttu, sem til grundvallar lá. Guð blessi ykkur öll. Sigrún og Guðmundur Gíslason, Gimli Man. ☆ The Dorcas Society of Gimli Lutheran Church will hold its fourth annual Tulip Tea in the Beaver Hall, Hudson’s Bay Company, on Thursday, May 19, 1955, from 1.30 to 4.30 p.m. There will be a sale of home baking, handicrafts, surprise parcels, and white elephant. The cookbook published last year by the Dorcas Society will also be for sale. Conveners of the tea will be Mrs. J. T. Arnason and Mrs. Ellert Stevens. Tea table con- veners are Mrs. George Johnson and Mrs. S. Josephson; Sewing, Mrs. A. Jacobson and Mrs. J. Smale; home cooking, Mrs. B. V. Arnason and Mrs. H. Jo- hannesson; Surprise packages, Mrs. H. Johnson and Mrs. D. R. Oakley. Receiving will be Mrs. J. T. Arnason, Mrs. R. Mossman and Mrs. H. S. Sigmar. ☆ Þjóðhátíðardagur Norðmanna, er svo sem vitað er, haldinn venjulegast hinn 17. maí, sem ber upp á hinn svonenda grund- vallarlagadag norsku þjóðarinn- ar; út af þessu verður nú brugð- ið og fer nú þjóðminningin fram á Marlborough hótelinu laugar- daginn hinn 14. þ. m., kl. 6.30 e. h. Aðgöngumiðar kosta $3.00 á manninn. Framreidd verður fyrirtaksmáltíð og að lokinni reglubundinni skemtiskrá verð- ur stiginn dans. ☆ — 17. JÚNÍ — Ákveðið hefir verið, að Þjóð- ræknisdeildin „FRÓN“ efni til hátíðahalds í tilefni af 17. júni, fæðingardegi Jóns Sigurðssonar forseta, í Fyrstu Sambands- kirkju þann dag. Undirbúningur að skemmtiskrá er þegar hafinn, og verður að sjálfsögðu til hennar vandað eftir föngum. — Nánar auglýst síðar. F. h. „Fróns“, THOR VIKING, ritari Gefin voru saman í hjónaband af séra Sigurði Ólafssyni í Sel- kirk þann 7. maí þau Douglas George Roberts, Kamsack, Sask., og Hellen Margaret Oliver, Sel- kirk, Man. Vitni að giftingunni voru Mrs. Audrey Ida Thomsen og Mr. Larry Henry Gilbertson. ☆ Gefin saman í hjónaband af séra Sigurði Ólafssyni í Selkirk þann 30. apríl í kirkju safnaðar- ins: Haraldur Goodmanson, Sel- kirk, Man., og Pearl Marie Sorlie, sama stað. Ungu hjónin voru aðstoðuð af Miss Eesther Violet Gunderson og Mr. Marino Swanson. Ungu hjónin setjast að í Selkirk. ☆ Bandalag lúterskra kvenna heldur 31. ársþing sitt í Argyle prestakalli dagana 3., 4. og 5. júní. Moore’s Bus fer frá Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg kl. 9 að morgni föstudaginn 3. júní. Þær konur, sem vilja ferðast með Bus, tilkynni þátttöku sína í tæka tíð Mrs. C. Scrymgeour, 593 Goulding St., sími 72-4780, eða Mrs. B. S. Benson, sími 74-3411. — Þetta er áríðandi! ☆ Mrs. James Innes frá Moun- tain, North Dakota, hefir dvalið í borginni nokkra undanfarna daga ásamt Jennifer dóttur sinni. ☆ Mr. Bjarni Loftsson frá Lund- ar var staddur í borginni á mánu daginn ásamt dóttur sinni Mrs. Thoru Thompson frá Vancouver, B.C. ☆ Lundar, 10. mai 1955 Gefið í Blómveigasjóð Kven- félagsins „Björk“ $5.00 í minn- ingu um kæra vinkonu, Þóru Loftson, frá Mr. og Mrs. Ingi- mundur Sigurdson, Lundar, Man. Mrs. O. Johnson, Sec. of Ladies Aid „Björk“ Lundar, Man. ☆ Á laugardaginn 7. maí, kl. 3 e. h. fór fram afar fjölmenn og virðuleg hjónavígsluathöfn. Voru gefin saman þau Joan Audrey Bergman, einkadóttir þeirra Oddnýjar og Jóns Berg- man, Ste. 31 Redwood Apts. hér í borginni, og Bradley Barton Colbert frá Long Acres, Ont. Dr. Valdimar J. Eylands fram- kvæmdi vígsluna, en Mrs. Pearl Johnson söng einsöngva með aðstoð Mrs. Eric Isfeld við hljóð- færið. Brúðkaupsveizla var setin að heimili Dr. og Mrs. A. C. Sinclair, 210 Kingston Row, og mælti læknirinn fagurlega fyrir minni brúðarinnar. Brúðgum- inn er útskrifaður í viðskipta- fræðum frá háskólanum í Lon- don, Ontario. Heimili ungu hjón- anna verður þar eystra. ☆ Gleymið ekki hinni sameigin- legu guðsþjónustu í Fyrstu lútersku kirkju á sunnudags- kvöldið kemur 15. maí 1955, kl. 7. Veitingar verða framborn- ar að afstaðinni guðsþjónust- unni í samkomusal kirkjunnar. Dorcas Society of the First Lutheran Church will hold their Annual Spring Tea on Wednes- day May 18th from 2.30 to 5 and 7 to 9 in the lower Auditorium of The First Lutheran Church, Victor St. Receiving will be: Miss R. Bardal, President Mrs. C. Scrymgeour, Vice President Mrs. L. S. Gibson Mrs. N. O. Bardal, General Convenor Mrs. W. Kristjanson, Table Convenor Mrs. R. B. Vopni, Handicraft Convenor Mrs. K. Bardal, Home Cooking Convenor Mrs. H. Rowland Novelty Table Convenor Miss Ruth Bardal, Mrs. R. Pollock, Cook Book Table Convenor Miss Ruth Benson, Candy Table Convenor Mrs. W. Brown, Stationery Table Convenor Mrs. H. Comack, Mrs. I. Burgess, Plant Table Convenor. ■ú Mr. og Mrs. T. Vatnsdal frá Hensel, North Dakota, voru stödd í borginni í byrjun vik- unnar. Fréttapistlar . -ILJA SOKKAR Krefjisf þessara nýju sokkaþæginda fyrir fæfur yðar SNIÐ LITUR GERÐ \ FARAVEL. ÞÆGINDI 15-S-5 Framhald aí bls. 7 starfi þeirra um mörg ókomin ár. Þá jók það ekki lítið á ánægjuna á samkomunni, að tveir ungir efnismenn heiman af íslandi voru þar staddir; þeir töluðu báðir bæði á íslenzku og ensku. Þeir heita Þorgrímur Halldórsson og Þórður Einars- son. Þorgrímur er frá Hafnar- firði; gekk hann í skóla í Okla- homa City og stundaði nám í Electronic Engineering, en lagði sérstaka stund á RADAR. Hann hefir undanfarið starfað á veg- um Civil Aeronautic Admini- stration við Radarstöðvar í Kansas City, Los Angeles og nú við Seattle-Tacoma Airport. Þorgrímur dvelur í Seattle um 3—4 vikna tíma og starfar hann með starfsmönnum C.A.A. og U. S. Air Force. — Bráðum fer Þorgrímur heim, en mun stanza um tíma í Washington, D.C. Eftir heimkomuna mun hann að líkindum starfa á vegum ís- lenzka ríkisins. Vér hér í Seattle óskum honum til lukku og mik- illar blessunar 1 sínu framtíðar- starfi. Þórður Einarsson er fulltrúi hjá Upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna (U. S. Information Service) í Reykjavík, sem starf- ar í sambandi við sendiráð Bandaríkjanna þar að skiptum stúdenta og námsmanna milli landanna, og að því að styrkja menningarlegt samband ís- lands og Bandaríkjanna. Þórður Einarsson dvelur í Bandaríkj- unum um þriggja mánaðatíma, en hann er í kynnisför um Bandaríkin á vegum utanríkis- málaráðuneytisins í Washington, D.C. Þórður flutti snjalla ræðu um sambandið milli Islands og Bandaríkjanna, og var gerður góður rómur að máli hans. Megi lukka og blessun fylgja honum í hans göfuga og mikilfenglega starfi.. Síðast á skemmtiskránni kom fram söngflokkur Calvary Lutheran kirkjunnar, undir stjórn Tana Björnssonár; var það hrífandi og blessunarrík stund. Þá va rsungið „Eldgamla lsafold“ og „My Country“. Að skemmtiskrá lokinni voru fram bornar indælar veitingar og var samtal og gleðskapur fram til miðnættis. Hér læt ég staðar numið í þetta sinn, en byrja næstu fréttapistla frá Sumardeginum fyrsta. Gleðilegt sumar! G. P. J. Heimsókn í súkkulaðiverk- smiðjuna Lindu á Akureyri Kakoóbaunirnar eru ekki góm- sæíar írá nátiúrunnar hendi Rætt við forstjórann EYÞÓR TÓMASSON Þeir, sem leið hafa átt um efri hluta „Eyrarinnar“ á Akureyri nokkur undan- farin ár, hafa vafalaust oft staðnæmst á göngu sinni til þess að njóta ilms, sem fyllt hefir loftið og komið hefir vatninu fram í munn veg- farenda. Ókunnugir spyrja hvaðan þessi mikla súkku- laðilykt komi en heima- menn vita, að hún berst frá hvítmáluðu húsi, sem stend- ur við Hólabraut, þar sem framleitt er hið ljúffenga Lindu-konfekt og súkkulaði, sem þekkt er orðið um land allt fyrir gæði. Tíðindamaður blaðsíns hitti forstjóra verksmiðjunnar og eig- anda, Eyþór H. Tómasson, að máli og tekur hann vel þeirri málaleitan að sýna verksmiðj- una, og leysir greiðlega úr öllum spurningum. Verksmiðjan er stofnuð árið 1947 en telja má, að hún hafi ekki tekið fullkomlega til starfa fyrr en í ágúst 1948. Húsakynni verksmiðjunnar, sem þegar hafa verið aukin eftir að verksmiðjan tók til starfa, eru ágæt svo langt sem þau ná, en líklega rekur þó brátt að því, að þau verði of lítil, sakir sí- aukins vélakosts. Verksmiðjan er eingöngu búin nýjum þýzkum vélum, sem eru þær fullkomnustu í sinni röð hérlendis og þótt víðar væri leitað. Yfirleitt höfum við haft á að skipa ágætu starfsliði og er það að meðal tali 20 manns“, segir Eyþór forstjóri. „Margt af því hefir verið hér alveg frá byrjun og tel ég það mjög mikils virði. Það hefir því getað fylgzt með öllum nýjungum frá upphafi og þroskast þannig betur í starfinu. Ég krefst mikillar vandvirkni af starfsfólki mínu, enda er vandvirkni og nákvæmni frum- skilyrði fyrir fyrsta flokks fram- leiðslu. Hjá okkur hefir starfað þýzk- ur sérfræðingur í súkkulaðigerð frá upphafi, og tel ég okkur svo lánsöm að mega gera okkur von- ir um að fá að njóta starfs- krafta hans áfram, þar sem hann kann vel við sig hér á landi.“ I einum af þrem sölum verk- smiðjunnar eru nokkur stór ker, íull af ljósleitum baunum og er tíðindamanni þegar boðið að bragða á þeim. En hvernig sem reynt er ,er ekki hægt að renna þeim niður því að þær reynast rammar á bragðið og algjörlega óætar. Ég spyr hvaða óæti þetta sé og fæ þær upplýsingar, að þetta séu kakóbaunir, eins og þær komi fyrir. Verksmiðjan brennir og mal- ar þessar baunir og er því eina verksmiðjan hérlendis, sem vinnur súkkulaðiduftið úr hrá- um baunum. Vélar þær, sem notaðar eru við brennsluna og mölunina eru í gangi dag og nótt og taka V2 tonn af baunum í einu. súkkulaðinu hér Við göngum svo inn í annan sal, áfastan þeim fyrri, en þar er svo mikill hávaði, að ekki heyrist mannsins mál. Afar stór vélasamstæða nær um endilangan salinn. Mér til mikillar undrunar sjáum við á eftir hráefninu inn í annan enda hennar, en út úr hinum kemur innpakkað súkkulaði. Við nánari athugun kemur í ljós, að þegar hráefnið er til- búið til vinnslu er það allt sett í stóran pott og þar er súkku- laðið lagað. Sjálfvirk dæla dælir því svo inn í vélasamstæðu, sem skilar svo löguninni í mótum út á hristandi færibönd. Á þeim renna þau sjálfkrafa inn í kæli- rúm. Úr kælirúminu koma svo súkkulaðiplöturnar, harðar og lausar úr mótunum og renna á færiböndum inn í pökkunar- vélina, en mótin fara á öðrum færiböndum til baka, gegnum hitastilli og sækja nýja áfyll- ingu. Þessi sjálfvirka súkkulaðivél kemur í stað fjögurra sérstæðra véla, sem útheimta mikið starfs- fólk og eru langtum seinvirkari. Vélasamstæða þessi skilar 3600 súkkulaðipökkum á klukku stund og geta þeir verið af öll- um gerðum og stærðum. Frá því að byrjað er að mala kakóbaunirnar og þar til súkku- laðið er fullbúið líða 26 tímar. Á þeim tíma hefir súkkulaði- lögunin verið tvisvar hituð og tvisvar kæld. Eins og áður hefir verið getið þarf að nota hina ýtrustu ná- kvæmni við lögun súkkulaðsins, svo að vel fari. Ef hin mismun- andi hitastig eru ekki nákvæm- lega rétt gránar súkkulaðið. Einnig verður að varast að loft- bólur myndist í því. Aðeins fyrsta flokks súkkulaði er sent á markaðinn. Annar vélakostur verksmiðjunnar I þriðja salnum er svo húð- unarvélin, sem húðar allt kon- fekt og sælgæti, sem framleitt er í verksmiðjunni. Talið er að vél þessi vinni á við 8 stúlkur. Ótaldar eru svo ýmsar smærri vélar, svo sem hrærivélar, suðu- pottar, konfektmót o. fl. Verk- smiðja þessi var sú eina sinnar tegundar hér á landi, sem sendi vörur sínar á alþjóðaiðnsýning- una í Brussel í fyrra, en þangað voru aðeins sendar framleiðslu- vörur, sem taldar eru standa jafnfætis beztu framleiðslu- vörum hinna stærri þjóða. Ritstjóri þýzks viðskiptatíma- rits, dr. F. E. Altman að nafni, sem ferðaðist hér um landið til þess að kynna sér íslenzkan iðn- að, lét þess getið í blaðaviðtali, að hann teldi Lindu-súkkulaði samkeppnisfært við súkkulaði frá Sviss, Hollandi og Englandi, en þessi lönd þykja skara fram úr í súkkulaðigerð. Forstjórinn skýrði frá því, að hann teldi útflutningsmöguleika á Lindu-súkkulaði mjög góða. Fyrir jólin var hann t. d. búinn að ganga frá sölu á nokkr- um lestum af súkkulaði til Eng- lands, en á seinustu stundu neit- aði enska stjórnin honum um innflutningsleyfi fyrir því. Um þessar mundir standa yfir samningar á sölu til Þýzkalands og er allt útlit fyrir því, að þeir muni takast innan skamms. Að lokum gat hann þess, að takmarkið væri að tryggja kaup- endum sem fullkomnust vöru- gæði, og í því sambandi má geta þess, að í framtíðinni verða engar vörur sendar frá verk- smiðjunni nema sérstaklega pakkaðar og á þannig að koma í veg fyrir að varan geti rýrnað í höndum hinna ýmsu milliliða. —VÍSIR, 11. marz MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands. Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 15. maí: Ensk messa kl. 11 árd. Ensk messa kl. 7 síðdegis undir umsjón yngra fólksins. Sunnudagaskóli kl. 12. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson Hópferðin til íslands Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hafa ekki enn borizt endanlegar upplýsingar um far- gjöld o. fl. frá íslandi, þó að allt virðist í fullum gangi um undir- búning fararinnar þeim megin frá. Verðum við því að treysta, að það allt standi, sem sagt hef- ur verið hérna megin í sambandi við hópferðina, því að þar hefur ekkert verið framar sagt en bréf frá ferðaskrifstofunni Orlofi gáfu tilefni til. Um 15 manns hafa nú þegar haft samband við mig, og mun ég senda þeim bréflega — eða láta þau vita á annan hátt — hinar langþráðu upplýsingar, jafnskjótt og þær berast. Grettir Jóhannsson ræðismað- ur, sem nú er á förum til út- landa, hefur afhent mér um- sóknareyðublöð vegna vega- bréfsáritunar til Islands, og geta menn skrifað eftir þeim til mín, en síðan nauðsynlegt að senda þau til íslenzka sendiráðsins í Washington, Legation of Ice- land, 1906 23rd Street N.W., Washington 8, D.C. Vinsamlegast, THOR VIKING, 515 Simcoe Street, Winnipeg 10, Man. Friðarsamningar við Austurríki Nú er svo komið, að telja má nokkurn veginn víst, að friðar- samningar við Austurríki verði þá og þegar undirskrifaðir og öðlast þjóðin þá að sjálfsögðu með því fullveldi sitt; að samn- ingunum hafa staðið, auk austur- rísku stjórnarinnar, erindrekar Breta, Frakka, Bandaríkjanna og Rússlands; að loknum samning- um verður setulið þessara fjögra, hlutaðeigandi þjóða kvatt heim. Fullkomnasta . . . Úrvals aðbúð farþega Lægsta flugfargjald til íslands Fljöglð skemstu hrtngferSina til Reykjavíkur vitS þvl lægsta ílugfargjaldi, sem fáanlegt er. Hinar óviSjafnanlegu fjögra hreyfla Douglas Skymaster vélar, er skandinaviskir flugmenn, sem notiS hafa U. S. æfingar stjórna, veita hina fullkomnustu flugferSatækni, þægindi og ávalt lent á áætlunartima. Þér njótiS ágætis máltíSa, hallandi sæta og fyrsta flokks afgreiSslu ferSina á enda. Bein sambönd við alla Kvrópu og Mið-Austurlönd. Frekarl upplýsingar og verð fargjalda hjá ferðaskrlfstofu yðar n n\ n ICELANDICl AIRLINES uzAauu W V IX Pl 7.P«;fiS

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.