Lögberg - 27.10.1955, Side 7

Lögberg - 27.10.1955, Side 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 27. OKTÓBER 1955 7 ’ % - '$■* i , ' ■ H00- •y- ■•■■■■■ • ■/. ■ ‘ 1 v MINNINGARORÐ: Mrs. Guðrún Johnson Hinn 24. júní s.l. andaðist á sjúkrahúsinu á Gimli Mrs. Guðrún Johnson frá Árnesi. Hún var fædd 25. febrúar 1877 á Reyn í Hegranesi í Skagafirði. Foreldrar hennar Voru hjónin Þorvaldur Þor- valdsson og Guðríður Þor- bergsdóttir. Guðrún fluttist ásamt foreldrum sínum til þessa lands árið 1887. Þann 8. júlí 1896 giftist hún Sigurjóni Johnson. Þau settust að á landi í Árnesbyggð, er þau ftefndu Odda, og bjuggu þar. Sigurjón dó árið 1925 og bjó Guðrún á landinu ásamt úörnum sínum, en þau eru Hr. Þorvaldur, yfirmaður hveitirannsóknarstoíunar í Winnipeg, Mrs. Þuríður Ólafs son, kennari í Winnipeg, Marenó, bóndi í Odda, Ólafur, veðurfræðingur, Bergsveinn °g Albert, báðir dánir, Sigur- rós Margrét og Júlíana. Guðrún Johnson var hin uiesta merkiskona. Hún var góðum gáfum gædd, framúr- skarandi áhugasöm og dugleg. Hún var ágæt starfskona, eigi aðeins á heimili sínu, heldur Og í byggðinni. Hvert það mál, sem hún taldi þarft og gott, atti víst liðsinni hennar. Hún var sérstaklega hjartagóð og hjálpsöm við alla bágstadda, en skóla- og uppeldismál voru henni næst huga. Hún barðist fyrir sunnudagaskóla í byggð- Jnni og kenndi hann árum saman. Hún var ætíð í stjórn Sambandssafnaðarins í Ár- Oesi og í kvenfélögum hans. Sömuleiðis í stjórnarnefnd Sumarheimilisins á Hnausum. Hvar sem hún starfaði komu rnannkostir hennar í ljós; ó- sérhlífni og tryggð við mál- efni ásamt góðri dómgreind, vöktu aðdáun og þakklæti samferðamanna hennar. Og nú, þegar hún er horfin úr hópnum, minnumst vér henn- ar með söknuði. Guðrún heitin var hin mesta starfskona, en hún fann samt tíma til að lesa og fylgj- ast með. Hún bar virðingu fyrir menntun og lærdómi, tveir sona hennar luku há- skólanámi og gegna nú þýð- lngarmiklum störfum í þágu lylkisins. Tvær dætur hennar eru kennarar. Þau Guðrún og Sigurjón voru ekki auðug en ólessun fylgdi búskap þeirra, °g sambúð þeirra var reist á Iraustum grundvelli ástar og skilnings á því fyrir hverju jKveðja til Björgvins Guðmundssanar B. E. M. Television Service • Factory Trained Technicians. • All Work Guaranteed. • Swift Efficient Service. Phone 75-2875 1786 Logan Ave. WINNIPEG 3 Mrs. Guðrún Johnson væri vert að berjast og hvert væri bezt að stefna. Bæði voru þau frjálslynd í trúar- skoðunum og áhugasöm um velferðarmál byggðarinnar. Þau voru bæði sönghneigð og ekki hugsa ég að þau hafi verið mörg sálmalögin í ís- lenzku sálmabókinni, sem hún kunni ekki. Þeim er firða feg- urst að lifa, sem velmargt vita, segir hið fornkveðna. Það átti við um þessa framliðnu merkiskonu. Líf hennar var auðugt af góðum og nýtum verkum, auðugt af ástríki við mann sinn, börrú og heimili, og þarft og fagurt af mörgum góðverkum. Vér, sem þekkt- um hana, þökkum henni fyrir samstarfið; vér minnumst hennar með virðingu og biðj- um Guð að veita henni sinn frið. E. J. Melan TÓNSKÁLDS Þú komst hér með söngva sálar þinnar: alþjóðalist, sem ei fá grandað höfuðskepnur, né heimsvísindi nútímans, maurar né morðvélasafn. Vannstu þá úr efni, sem í þig spann Alfaðir íta, er á leið sinni til Rjúpnafells, forðum daga, hörpu ljúfra laga þér lagði í skaut. Þú einn.vildir skapa, eins og hann, söngva í djúpi sálar þinnar: safna helgihljómum í hörpu Braga; frumstæðum bæði og fjölradda. Yrkja þú vildir, eigin höndum, akur til uppskeru anda þíns; berjast þó yrðir við allra veðra öfl og aðstæður úti í frá. Trú þín var reist á tvennt í heimi: guð í algeimi guð í þér sjálfum. Hún ein fékk svalað sálu þinni, sem uppspretta tær frá iðrum jarðar. Sem uppsprettu lind • frá æðra heimi farveg sér bryti um frjólönd ný; skyldi leggja leið sem lög skipa að ægi fram á ’ið yzta haf. Lind á leið sinni skyldi lög skapa; svanasöng á heiði, sólarljóð: ofin straumþunga strengja, fossa, ljóða og lífssögu lands og þjóðar. Þjóð skyldi hlusta þunnu blóði á fallþunga tíða í fossins raust; stundanna strengleik í straumkasti brothljóð böls og harma' í brimsins gný. Þjóð skyldi heyra í hljómasölum himins og jarðar hjartaslátt, djúpsins regin rök í regnitóna lífsins ljóðahörpu af list slegna. List þín, Björgvin, skyldi á bjargi reist, sem völundarhús hins vitra manns; lýsa lífs á höf, sem ljós frá vita farmannsins auga á yztu mið. Þakka nú vinir í Vesturheimi hugljúfa söngva; heimsókn þína. Þakka og henni, er þér við hlið stóð sem hetja sterk á stríðsvelli. Siglið heil 1 höfn um hafsins djúp í útbreidda faðminn föðurtúna. Berið landi og þjóð bróðurkveðju vina og frænda í Vesturheimi. Wpg., 26. september ’55 S. E. Björnson MOLAR Maður kom til dýralæknis og spurði: —Viljið þér gera svo vel að stýfa rófuna af hundinum mínum? — Hvers vegna ætti ég að gera það? spurði dýralæknir- inn. — Ég skal segja yður að tengdamóðir mín kemur í heimsókn á morgun, og ég vil fyrirbyggja það, að henni sé sýnd nokkur vinahót. ☆ Starfsmaður á skattstofunní var að athuga framtalsskýrsl- urnar. Á eyðublaðinu stóð prentað fyrir ofan einn reit- inn: Hér má ekki skrifa. En þar hafði einn framteljandinn skrifað þetta: „Ég mótmæli harðlega þessari árás á at- hafnafrelsi, og skrifa þar sem mér sýnist". Um alt þetta er honum kunnugt . . . Reynsla þessa manns og dómgreind hefir djúptæka þýðingu fyrir mikinn fjölda manna og kvenna í umhverfi yðar. Hann er forstjóri eins af útibúum löggiltu bankanna. Að baki honum liggur margra ára reynsla, sem gjaldkera, yfirbókara og aðstoðar forstjóra, og hann skilur út í æsar tilgang bankans, sem hann starfar fyrir. Mannþekking hans, viðskiptareglur og löng bankamálareynsla, stendur til boða öllum viðskiptavinum hans. Hann stjórnar miðstöð bankaþjónustu, sem hefir ákveðinn tilgang og allir í umhverfinu geta fært sér í nyt. ♦ Viðurkendir hæfileikar hans og hagkvæm reynsia, hafa gert hann að aðalmanni í canadiska bankakerfinu. Aðeins löggiltir bankar veita full- komna bankaþjónustu, sem innifelur: PEKSÓNULiÁN til að fullnæKja persónu- legum þörfum; endur- greiösla reglubundin af launum y8ar. L/AN tiu ENDURBÓTA HEIMIIjUM Til vifigerSa, breytinga og viöbygginga. VERZLUNARLAN Smá og stór lán til viS- skipta- og iCnfyrirtækja, fyrir framleiSendur og þá, sem um viSbúnaS hennar annast, smásölukaup- menn og dverja aSra, se*n viS viSskipti fást. PENING A YFIRFÆRSLA MeS pósti, símskeytum, eSa millilandaþræSi um víSa veröld. HINIR LÖGGILTU BANKAR ÞJÓNA UMHVERFI YÐAR

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.