Lögberg - 27.10.1955, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 27. OKTÓBER 1955
Úr borg og bygð
In The Wake of the Storm
The Jon Sigurdson Chapter,
I.O.D.E. will present the
prizewinning play, “IN THE
WAKE OF THE STORM,”
Monday and Tuesday even-
ings November 14 and 15, in
the concert hall of the Federa-
ted Church, Banning Street.
This three act play won
first place in a play compe-
tition sponsored by the Jon
Sigurdson Chapter, I.O.D.E.
Miss Lauga Geir from Edin-
burg, N. Dak., is the winner
and the play deals with a
story from the early life of
pioneer Icelandic settlers in
America.
A carefully chosen cast is
busy rehearsing this play,
directed by Mrs. Holmfridur
Danielson.
Tickets may be had from
Mrs. Flora Benson at the
Columbia Press or from any
member of the Jon Sigurdson
Chapter, I.O.D.E.
Get your tickets early for
the night you wish to attend
this unique play.
☆
— Brúðkaup —
Fögur hjónavígsla fór fram
í United Church, Eriksdale,
Manitoba, laugardaginn 1.
október, er Ernie Elmer
Boushy og Phyllis Jean
Hallson voru gefin saman í
hjónaband. Brúðurin er ís-
lenzk í föðurætt. Foreldrar
hennar eru Mr. og Mrs. Hallur
Ó. Hallson í Eriksdale.
Brúðguminn er einkasonur
Mr. og Mrs. Norman Boushy,
Brandon, Manitoba.
Við orgelið var Miss Ethe
Cline.
Brúðarmeyjar voru Miss
Mary Lynne Ryckmap, Miss
Ordetta Stewart og Miss
Linda Hallson, systir brúðar-
innar. Svaramaður brúðgum-
ans var Mr. Gerald Robson
frá Dauphin, Man., Mr. John
Ginnell frá Dauphin og Mr.
Ed. Hadway frá Winnipeg
leiddu gesti til sæta. Mrs.
Ronald D. Johnstone söng tvo
fagra einsöngva og blessunar-
orðin. Séra Ronald D. John-
stone gifti. Brúðkaupsveizla
fór fram í Eriksdale Memorial
Community Centre. Heimili
ungu hjónanna verður í Swan
River, Manitoba.
Brúðkaupið bar upp á sjö-
tugasta afmælisdag afa brúð-
arinnar, ólafs Hallssonar.
☆
— GIFTING —
Valgerður Jórunn (Joey)
Magnússon og Robert William
Wilkinson voru gefin saman
í hjónaband í lútersku kirkj-
unni að Hnausum 8. okt. Séra
Bragi Friðriksson gifti. Brúð-
urin er dóttir Mr. og Mrs'. M.
Magnússon, Hnausa, sem nú
eru bæði látin. Að hjónavígsl-
unni lokinni fór fram veizla
að heimili Mr. og Mrs. E. K.
Magnússon. Heimili Mr. og
Mrs. Wilkinson verður að
Whitehorse, N.W.T.
☆
Úr bréíi frá Vancouver
Við væntum þess, að nýja
íslenzka lúterska kirkjan,
sem verið er að reisa í Ván-
couver verði tilbúin til afnota
um jólaleytið. Hún er ekki
stór í samanburði við margar
aðrar kirkjur, en er vönduð
og rúmar um 200 manns og
fundarsalurinn rúmar líka
200. Hún er vel sett hvað sam-
göngur snertir í allar áttir og
er í nýbyggingahverfi. Við
hlökkum til kirkjuþingsins í
kirkju okkar næstkomandi
júní.
☆
Gefin saman í hjónaband í
kirkju lúterska safnaðarins í
Selkirk, Man., þann 22. okt.,
Thomas Stefán Martin Part-
ridge og Mary Elizabeth
Joan, bæði til heimilis í
Selkirk. Svaramenn voru: —
Miss Sherry Fever, 84 Salter
St., Winnipeg, og Mr. Donald
Gordon, Selkirk, Man. Ungu
hjónin setjast að í Selkirk.
☆
Pétur Rögnvaldsson, ungur
Reykvíkingur, er nýkominn
til Winnipeg. Hefir hann í
hyggju að dvelja hér í vetur.
Pétur er meðal beztu og fjöl-
hæfustu íþróttamanna á ís-
landi um þessar mundir og
hefir þegar tekið þátt í mörg-
um íþróttakeppnum bæði
innan lands og utan. Hann er
aðeins 19 ára að aldri og mun
því eflaust eiga glæsilega
framtíð fyrir sér á sviði
íþróttanna.
☆
Sigurður J. Thorkelsson frá
Árnesi kom til borgarinnar í
fyrri viku. ☆
Sharon Johnson
hæst í þriðja sinn
Sharon, dóttir Dr. og Mrs.
A. V. Johnson, aðeins 11 ára,
hefir þrjú ár í röð hlotið
hæstu einkunn í sínum bekk
í prófum Royal Conservatory
of Music, Toronto. Þetta ár
auk hún prófi í grade 4
píanóprófi og hlaut silfur-
medalíu og Frederick Harris
Scholarship.
☆
Óskar eflir visi
Stúlka frá íslandi, 16 ára
gömul, sem hefir í hyggju að
dvelja hér þangað til í apríl,
æskir eftir vinnu á góðu
heimili. Hún hefir nokkra
æfingu í innanhússtörfum.
Upplýsingar í síma 23-1648.
Hefnd
— Loksins hef ég náð mér
niðri á símastúlkunni, sagði
skókaupmaðurinn. — Ég gaf
henni skakt númer í gær!
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands. Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 30. okt.:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
Islenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
Gimli Luiheran Church
Sunday October 30th
At 10.30 A.M. English
Service.
Rev. Bragi R. Fridriksson
At 7 P.M. Laymen’s Service.
Liturgist:
—Dr. F. E. Scribner
Scriptures:
—Dr. Geo. Johnson
Soloist:
—Miss Lorna Stefansson
Message: “You CAN’T take
it with you.”
—Neil O. Bardal
☆
Lundar Luiheran Church
At 2.30 P.M. Icelandic
Service.
Rev. Bragi R. Fridriksson
☆
Uniled Luiheran Mission
of Silver Heighis
Services in the St. James
Y.M.C.A. Ferry Road South,
(just off Portage Ave.)
Sunday, Oct. 30ih
(Reformation Sunday):
Sunday School 9:45 A.M.
Morning Service 11 A.M.
Sermon: — “Hero of the
Faith.” Eric H. Sigmar
☆
Church service in the
Geysir Lutheran Church on
Sunday, Oct. 30th, at 3:30 p.m.
Eric H. Sigmar
Dónarfregn
Árni H. Helgason, land-
námsmaður og bóndi 1 Islend-
ingabygðinni í grend við
Morden, Man., andaðist að
heimili sínu þar þann 9. okt.
Hann var fæddur að Botni í
Hrafnagilssókn við Eyjafjörð
25. júlí 1870, sonur Hallgríms
Helgasonar Hallgrímssonar
og konu hans Kristbjargar
Árnadóttur. Hann fluttist
vestur um haf með móðurafa
sínum og ömmu, Árna Þor-
leifssyni og Elísabetu Jóns-
dóttur árið 1878, settust þau
fyrst að á Gimli, en fluttu á
næsta ári til Norður-Dakota,
og þar ólst hann upp. Árið
1892 kvæntist hann Elízabetu
Sigfúsdóttur Jónassonar Berg-
mann. Þau fluttu vestur á
Kyrrahafsströnd árið 1895, en
fluttu eftir 2 ár til Garðar-
bygðar og dvöldu þar til árs-
ins 1900, að þau fluttu til
Brown-bygðar í grend við
Morden, Man., og gerðist
hann landnámsmaður og
bóndi þar, og átti þar heima
til dauðadags. Konu sína
misti hann 14. apríl 1930. —
Börn þeirra eru: Leonard og
Helgi, er búa á föðurleifð
sinni, hinn síðarnefndi kvænt-
ur konu af hérlendum ættum;
Jón Sigfús, kvæntur konu af
þýzkum ættum, búsettur í
Winnipeg, Inspector of School
programs í skólum borgarinn-
ar; Þórunn, Mrs. O. H.
Hibbert, Sylvan, Man.; og
Kristbjörg, Mrs. H. B. Olaf-
son, er býr í hinni fornu
Brown-bygð við Morden. —
Elis sonur þeirra Helgason-
hjóna féll á Frakklandi 1918.
Einn bróðir hins látna, Jón,
er á lífi, búsettur í North
Dakota. Sjö barnabörn og 1
barnabarn eru á lífi.
Árni var mikill fjör- og
atorkumaður og entust hon-
um kraftar, fjör og lífsgleði
til enda ævidagsins. Hann
var gildur og góður bóndi,
félagslyndur og tók þátt í vel-
ferðarmálum héraðs síns;
einkar bókhneigður og fylgd-
ist með framvindu félagslegra
mála. Útför hans, er var fjöl-
menn, fór fram frá samkomu-
húsi bygðarinnar. S. Ólafsson
Vesíur-Þjóðverjar brosa
Af hverju var svo erfitt að
komast að samkomulagi um
vestur-þýzkan her? Það var
eingöngu tæknisspursmál. —
Hinn nýi her varð að vera
veikari en franski herinn, en
aftur á móti sterkari en sá
rússneski.
TIR TOR TAILORS
Vér tilkynnum
hér með margvís-
legan og töfrandi
innfluttan varn-
ing óviðjafnan-
legan í sniði
“CI/l’B'
FÖT
49
50
MóBur mjög góSur og gerS
nákvæmlega eftir sniði.
Veljið úr hinu ágæta
brezka efni
Tip Top.
Ábyrgst a8 þér verðið
ánægðar eCa peningunum
skiiaC.
Það eru Tip Top verkstæði
alls staðar. TF-55-5
Ég er eins og ég á að mér af tur
Fyrir fáum mánuðum var ég slök að heilsu, en mig
grunaði samt. að það vairi ekkert það að mér, sem
gott og hressandi lyf ekki myndi lækna.
Ná er ég eins og ég áður var, fæ aldrei kvef, hefi
góða matarlyst, er.kát og frísk. Allt á ég þetta að
þakka hinu bragðgóða Wampole’s Extract of Cod
IJver! I0f þá þarft einhvers með, sem hressir og
fjörgar, þá reyndu það!
UiflmPOLE’S
Fæsf hjá öllum lyfsölum — AÐEINS $1.35
EXTRACT
OF
COD LIVER
3-W-55
IWIÆ-XMIDI Ve,t,ð athv>?li öinum nýjn Wampole’s VI-CAh-FER 12 málmbætiefna
IVl/ttMJK: inntökum — einkum gerðar fyrir vaxandi börn — gott handa fullorðnu
fólki l£ka. — 60 daga birgðir $1.95.
"IN THE WAKE OF THE STORM"
BY LAUGA GEIR, EDINBURG, N. DAKOTA, U.S.A.
A Three Act Play, Based on Icelandic Pioneer Life in
North America.
Will be presented by The Jon Sigurdson Chapter, I.O.D.E.
Ofi Monday and Tuesday Evenings,
November 14th and 15lh
Concert Auditorium of the Federated Church
Banning St. and Sargent Ave.
This is the prize winning play ln the competltlon sponsored by the
Chapter.
ADMISSION $1.00