Lögberg - 15.12.1955, Blaðsíða 23

Lögberg - 15.12.1955, Blaðsíða 23
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 15. DESEMBER 1955 23 I E 1 Megi hátið Ijósanna vekja hvarvetna frið og fögnuð! Með þökk fyrir greið | og góð viðskipti. Phone 74-3518 SARGENT ELECTRIC & RADIO CO. LTD. m 609 Sargenl Avenue WINNIPEG C. G. ANDERSON — P. W. GOODMAN Heilhuga jóla og nýársóskir til íslendinga CHARLES RIESS & CO FUMIGATORS r 372 Colony Sl„ WINNIPEG PHONE 3-3529 | >»»»3»i»»»»»»»»»»»»»»»»»»ai»»»»»»»at»»»»»»»»*»»»»»»<iS NuMíbesi? When calling Long Distance you will save time if you tell the operator the NUMBER you want. Otherwise, she has to obtain it from “Information” in the distant city, with consequent delay. Keep a note of the out-of-town number when the operator gives it to you. NEXT TIME CALL BY NUMBER TELEPHONE SYSTEM MANITOBA Fjölsótt og yirðuleg hátíð í Ólafsdal Frá fréttaritara Tímans í Dölum. Á sunnudaginn, 28. ágúst, var afhjúpaður í Ólafsdal minnisvarði um þau Ólafs dalshjón, Guðlaugu Sak- aríasdóttur og Torfa Bjarnason. Var athöfn þessi mjög fjölmenn, sótti samkomuna full 400 manns, þrátt fyrir rign- ingu. Var athöfnin öll hin hátíðlegasta og til mikils sóma öllum forgöngu- mönnum þessa máls. Samkoman hófst kl. 3.30 síðdegis með því að blandað- ur kór söng Island ögrum skorið, og stjórnaði séra Pétur T. Oddsson í Hvammi söngn- um. Þá setti Ásgeir Bjarna- son, bóndi og alþingismaður í Ásgarði samkomuna með ávarpi, lýsti dagskrá og til- drögum hennar. Minnismerkið afhjúpað Síðan var minnismerkið af- hjúpað og gerði það Guðlaug Torfadóttir, ung dóttir Torfa cie<6tetctc<c!ctet6!e!cteict«tctctc<c!eteie!etctctctctctc!c«ctc!«t«<e« I Best « Christmas Wishes FROM The Gimli Medical Centre DR. A. B. INGIMUNDSON DR. C. R. SCRIBNER DR. G. JOHNSON DR. F. E. SCRIBNER Markússonar, og því sonar- sonardóttir Torfa í ólafsdal. Var síðan sungið, Blessuð sértu sveitin mín. Þá flutti Ríkharður Jónsson, mynd- höggvari, sem gert hefir minnismerkið, ávarp og lýsti gerð þess. Er minnismerkið fagurt listaverk og er vel staðsett í brekku vestan við skólahúsið. Horfa hjónin þar fram dalinn. Stallur, hlaðinn sem varða er undir eirmynd- inni, og er einn steinn hennar úr smiðju Torfa. Áletrun er á fótstallinum svo og mynd af sáðmanni. Eftir ávarpi Ríkharðs var sungið: Yfir voru ættarlandi. Síðan flutti Geir Sigurðsson bóndi á Skerðingsstöðum aðal ræðu dagsins, lýsti ýtarlega starfi og lífi ólafsdalshjón- anna. Var það afbragðsgóð ræða. Var síðan sungið lagið: Á sælu sumarkvöldi. Næst flutti Einar Kristjáns- son, kennari, kvæði ort í til- efni þessa atburðar, og að því loknu var sungið: Ó, dalur, hlíð og hólar. Ólafsdal haldið við Næst flutti Steingrímur Steinþórsson, landbúnaðar- ráðhera, ræðu. Ræddi hann fyrst hið merka brautryðj- endastarf Torfa í búnaði og skýrði síðan frá því, að ríkið, sem á nú ólafsdal, mundi sjá um að gamla skólahúsinu og öðrum húsum í Ólafsdal yrði við haldið, og síðan yrði reynt að safna þangað gömlum verk færum, sem Torfi hefði gert eða kent að nota og hotuð hefðu verið á þeim tíma, og þannig gæti skapazt búnaðar- safn. Á eftir ræðu landbúnað- arráðherra var sungið: Ætt- jörð allt. Ættmenn ólafsdalshjóna Á hátíð þessari voru stadd- ir allmargir ættmenn þeirra ólafsdalshjóna, enda var þeim öllum boðið. Fyrir hönd af- komenda þeirra flutti Markús Torfason, sem er eini sonur þeirra á lífi, ávarp. Friðjón Þórðarson, sýslumaður, flutti kveðju frá Breiðfirðingafé- laginu í Reykjavík og skýrði frá því, að félagið hefði safnað nokkru fé til stuðnings við gerð minnisvarðans. Um kvöldið var boð inni í Ólafsdal og sátu það um 150 manns. Voru þar ræður flutt- ar og góður fagnaður. 1 nefnd þeirri, sem séð hefir um framkvæmdir í minnisvarða- málinu og leyst hefir verk sitt af hendi með mikilli prýði áttu sæti, auk Ásgeirs Bjarnasonar alþingismanns, sem var formaður nefndar- innar, Halldór Sigurðsson, Staðarfelli, Geir Sigurðsson á Skerðingsstöðum, Þórólfur Guðjónsson í Fagradal og Kristinn Guðmundsson á Mosfelli. —TÍMINN, 30. ágúst jpeteteieietetetctetcteteietctetcteteieteieteietctcteictetetcteicieteictetctetetetctctcietctctc! I YFIR 1000 RED AND WHITE | MATVÖRUVERZLANIR ■ » til afnota fyrir fólk í Sléttufylkjunum Þér hafið Red and White matvörubúðir í yðar næsta umhverfi, þar sem á boðstólum eru fyrsta flokks matvörur við sanngjörnu verði — og það, sem meira er um vert, að sérhver kaupmaður á og starfrækir sjálfur búðina. Prófið Red and While kaffi. Það er óaðskiljanlegur skerfur góðra hlula, er menn leggja sér iil munns. Þér þurfið ekki að bíða eftir vikuloka kjörkaupum. Þér getið verzlað og sparað hjá hvaða Red and White búð, sem er, nær, sem vera vill. L gátetetctctctctcteietctetcictctctcictetctctctetctctctetetcteicictctctctctctetctctctctctctctctetet: w I f E | I Innilegustu óskir . . . um gleðileg jól, til allra okkar íslenzku viðskiftavina og allra I / íslendinga, og góðs, gæfuríks nýórs. RED and WHITE FOOD STORES NATIONAL GRAIN CO. CALGARY EDMONTON SASKATOON | WINNIPEG | REGINA I !—-------------------

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.