Lögberg - 22.08.1957, Side 1
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson útnefndur
aðalræðismaður Kanada á íslandi
Ferjuvígslan við
The Narrows
Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá kanadíska utanríkis-
ráðuneytinu hefur Hallgrímur
Fr. Hallgrímsson, C. B. E.,
forstjóri Olíufélagsins Skelj-
ungs h.f. verið útnefndur aðal-
ræðismaður fyrir Kanada hér
á landi með aðsetri í Reykja-
vík. Var honum veitt viður-
kenning af forseta íslands
hinn 5. þ. m.
Kanadíski sendiherrann á
Islandi hefur, eins og kunnugt
er, aðsetur í Osló. Hefur því
verið talið nauðsynlegt að út-
nefna aðalræðismann hér á
landi til þess að auka og efla
samband þessara tveggja ná-
granna- og vinaþjóða, svo og
að tengja Vestur-íslendinga er
búsettir eru í Kanada traust-
ari böndum bið ættland sitt.
Hallgrímur Fr. Hallgríms-
son er löngu þjóðkunnur mað-
ur fyrir störf sín á sviði við-
skipta og aukinna menningar-
tengsla við enskumælandi
þjóðir. ann er fæddur í
Kanada, en fluttist ungur að
aldri hingað til lands með
foreldrum sínum, þeim séra
Friðrik allgrímssyni, fyrrv.
dómprófasti, og frú Bentínu
Hallgrímsson, konu hans.
Síðan 1935 hefur Hall-
Ung kennslukona
fró Winnipeg
heimsækir ísland
Ungfrú Valdine Guðrún
Johnson, dóttir þeirra Mr. og
Mrs. Jón Johnson, 735 Home
Street, Winnipeg, hefir áunn-
ið sér merkilegan orðstír
vegna frábærra k^nnsluhæfi-
leika; hún hefir stundað
kennslu í Winnipeg og norð-
ur við Churchill, og nú síðast
árlangt á vegum Nato á Frakk
landi.
í nýkomnu bréfi til foreldra
sinna segist hún hafa heim-
sótt Island í sumarfríi sínu,
og heimsótt ættaróðul for-
eldra sinna í Hörgárdal og
Akureyri og notið þar ó-
gleymanlegrar ástúðar af
hálfu ættmenna og annara
vina bæði þar og í Reykjavík.
Fagurt þótti henni um að lit-
ast á íslandi, fögur hin bjarta
Jónsmessunótt, en eftirminni-
legast af öllu var henni fólkið
sjálft, íslenzka menningar-
þjóðin eins og hún er í dag.
Valdine hefir notfært sér
þetta tækifæri til að heim-
sækja átta Evrópulönd og
var hún mjög hrifin af Noregi.
Hún kennir annað ár á
Frakklandi.
grímur verið forstjóri Hluta-
félagsins „Shell“ á íslandi og
setið jafnframt í stjórn þess.
Er Olíufélagið Skeljungur h.f.
yfirtók nokkuð af starfsem-
inni í ársbyrjun 1956 varð
hann einnig forstjóri þess
félags-
Á síðastliðnu ári var Hall-
grímur sæmdur virðulegustu
orðu, sem brezka samveldið
veitir þegnum annarra ríkja,
er hennar hátign Elizabeth II.
Bretadrottning sæmdi hann
orðunni “Commander of the
most Exellent Order of The
British Empire,” fyrir marg-
vísleg störf til eflingar vin-
áttu og gagnkváems skilnings
milli íslendinga og þeirra
þjóða, er samveldið byggja.
Hallgrímur hefur látið fé-
lagsmál mjög mikið til sín
taka, verið m. a. forseti
Angelía, félags enskumæl-
andi manna, formaður Olym-
píunefndar, er sá um för á
leikana . í London 1949, for-
maður Golfklúbbs Reykja-
víkur 1943—1948 og meðlimur
Rotarysamtakanna síðan 1936.
Hann á einnig sæti í Verzlun-
arráði íslands og stjórn Vinnu
veitendasambands Islands.
Kona Hallgríms er Margrét,
dóttir Margrétar og Thors
Jensen, hins kunna athafna-
manns, og eiga þau tvær
dætur barna.
—Mbl., 17. júlí
Vígsla Narrows ferjunnar
við Manitobavatn, fór fram
hinn 11. þ- m., að viðstöddu
afarm'klu fjölmenni í veður-
blíðu þar, sem allir voru í há-
tíðarskapi.
Meðal ræðumanna voru
Campbell forsætisráðherra,
Elman Guttormson þingmað-
ur St. George kjördæmis,
James Anderson þingmaður
Fairford kjördæmis, J. Ragnar
Johnson póstmeistari. Barney
Jónasson oddviti Sigluness-
héraðs setti hátíðina og bauð
gesti velkomna.
Mrs. Chris Halldorson sneið
sundur vígsluborðann, og kom
hún alla leið frá Calgary til
að framkvæma athöfnina. —
Ræða Elmans Guttormsonar
laut mestmegnis að fyrirrenn-
ara hans á þingi, Chris Hall-
dorson, er hann réttilega taldi
í röð hinna mestu ágætis-
manna, er borið hefði velferð
St. George kjördæmis sýknt
og heilagt fyrir brjósti; var
ræðu Elmans, að því er Lög-
berg hefir frétt, fagnað hið
bezta.
Ræðurnar yfir höfuð báru
vitni þeirri virðingu, er ís-
lenzkir frumherjar við Mani-
tobavatn nutu, en meðal
þeirra var Helgi Einarsson,
er þar var einna fyrstur braut-
ryðjandi, og nú er 87 ára að
aldri. .
Eisenhower vill að reykingamenn
hætti að vorkenna sjúlfum sér
Washington, 31. júlí.
Frá Reuter-NTB.
EISENHOWER forseti átti
fund við blaðamenn í dag og
var þá m. a. spurður, hvernig
væri bezt að hætta að reykja
vindlinga. Forsetinn kvaðst
hafa reykt mikið á sínum
tíma, þegar hann var liðsfor-
ingi, en svo hefði læknir hans
ráðlagt honum að draga úr
tóbaksnotkun sinni sem fyrst,
og það hefði hann gert. Það
bezta er að hugsa um eitthvað
annað og hætta að kenna í
brjósti um sjálfan sig, sagði
forsetinn.
Þá var forsetinn spurður
um greinar, sem eitt blaðanna
í Washington hefir verið að
birta undanfarið um auðæfi
forsetans, en þar kemst blaða-
maðurinn að þeirri niður-
stöðu, að Eisenhower eigi um
milljón dollara. — Forsetinn
svaraði því'til, að hann væri
fús til að selja allar eigur
sínar, ef umræddur blaða-
maður treysti sér til að fá
milljón dollara fyrir þær-
Bann á kjarnorkuvopnum
Á fundinum í dag var einn-
ig rætt um alvarlegri efni, og
sagði forsetinn, að ekki væri
hægt að finna eða hafa eftir-
lit með þeim kjornorkuvopn-
um, sem þegar hefðu verið
framleidd og því væri það fá-
sinna að setja á algert bann
við kjarnorkuvopnum þegar í
stað, þótt slíkt bann ætti raun-
ar að vera lokatakmarkið. —
Hann sagði ennfremur, að
hann og Dulles utanríkisráð-
herra væru í öllum meginat-
riðum sammála um stefnuna í
afvopnunarmálum.
—Mbl. 1. ágúst
Hálfníræður stórhöfðingi
Á laugardaginn var átti
glæsimaðurinn, mælskumað-
urinn og ritsnillingurinn
Gunnar B. Bjornson í Min-
neapolis, Minn., 85 ára af-
mæli; hann hefir um langan
aldur komið mjög við sögu
Islendinga vestan hafs sakir
glæsimensku og fjölþættra
hæfileika sinna; hann var um
langt skeið eigandi og ritstjóri
vikublaðsins Minneota Mascot,
er svo var snildarlegá ritað,
að geisimikla athygli vakti
vítt um þetta mikla megin-
„Informat’ionen"
boðar tíðindi
í handritamólinu
Kaupmannahöfn, 31. júlí.
Einkaskeyti til Mbl.
INFORMATIONEN skrifar í
dag, að búizt sé við því, að
íslenzka ríkisstjórnin feli Sig-
urði Nordal sendiherra ein-
hvern næstu daga að afhenda
dönsku stjórninni orðsend-
ingu, sem felur í sér ósk um
að handritamálið verði tekið
upp að nýju.
1 viðtali við ,Informationen‘
segir Nordal, að hann viti
ekkert um það hvenær slík
orðsending kunni að berast
frá íslandi. Segir blaðið og, að
sennilegt sé, að íslendingar
fari þess einungis á leit, að
viðræður verði hafnar um
málið, en tiltaki engan ákveð-
inn tíma. Ekki sé ólíklegt, að
íslenzka stjórnin stingi upp á
því að þingnefndir beggja
landanna taki málið að sér.
Danski menntamálaráð-
herrann Jörgensen, vildi ekk-
ert láta uppi, er blaðið sneri
sér til hans, en sagði þó, að
ljóst væri að allir hefðu mik-
inn áhuga á því að málið
leystist.
Kvöldútgáfa „Berlingske
Tidende" ræðir málið einnig
og segir, að nú sitji önnur
stjórn að völdum en árið 1954,
er íslendingar höfnuðu danska
tilboðinu — og lætur í það
skína, að ef til vill megi
vænta breyttrar afstöðu. Þá
segir blaðið að margt bendi til
þess, að íslendingar vilji nú
málamiðlun til þess að ein-
hver árangur náist — og ís-
lendingar séu þeirrar skoðun-
ar, að ekki sé loku skotið fyrir
það, að breyta megi fyrri á-
kvörðunum með viðræðum
þingnefnda landanna. Þó má
reikna með því, að Danir séu
enn andvígir því að láta hand-
ritin af hendi — segir blaðið —
og minnir á ummæli Starckers
í byrjun júní. —Mbl. 31. júlí
land, enda voru ritstjórnar-
greinarnar, margar hverjar,
ekki þó hvað sízt þær um
um látna samferðamenn,
meitlaðar perlur. sem höfðu
varanlegt, bókmentalegt gildi-
Gunnar B. Bjornson er ætt-
aður úr Jökulsárhlíð í Norð-
urmúlasýslu, kom barn að
aldri til Vesturheims og ólst
upp í Minneotabygðinni í
Minnesotaríkinu; hann hefir
jafnan látið opinber mál til
sín taka, átti sæti á ríkisþingi,
gegndi um langt skeið skatt-
málastjórnarembætti í St.
Paul, og var tíðum skipaður í
margar mikilvægar nefndir;
þá hafa afskipti afmælisbarns-
ins af menningarmálum Vest-
ur-íslendinga heldur ekki
verið neitt smáræðisatriði.
Gunnar B. Bjornson hefir
verið gæfumaður frá upphafi
vega sinna, hann hefir notið
óskipts traust samferðasveit-
ar sinnar, átt langa sambúð
við fyrirmyndarkonu og eign-
aðist með henni úrvals börn,
sem sett hafa styrkan menn-
ingarsvip á samfélag sitt sakir
hæfileika sinna og mannkosta.
Lögberg flytur Gunnari B.
Björnssyni hugheilar árnaðar-
kveðjur í tilefni afmælisins.
Loftleiðir fluttu
10,330 farþega
—á fyrir árshelmingi
Á fyrstu 6 mánuðum þessa
árs ferðuðust 10,330 farþegar
með flugvélum Loftleiða h.f.
og hafa farþegaflutningar fé-
lagsins þá aukizt um 20,3%
miðað við sama tíma í fyrra,
en þá voru farþegar 8,590.
Vöruflutningar jukust lítið
eitt minna eða um 16,4%.
Mikil eftirspurn er eftir
fari með flugvélum félagsins
og hefir talsvert verið pantað,
allt fram í októbermánuð-
—VISIR, 2. ágúst
Rauðliðar fó
yfirhönd
Þær fréttir hafa nú borizt
út um heim, að stjórnarbylt-
ing hafi farið fram í Syríu, og
að herforingjastjórn, skipuð
einvörðungu rauðliðum, hafi
sezt að völdum í landinu;
þykja vestrænum þjóðum
þetta óhugnanleg tíðindi, sem
vonlegt er, en einkum sýnist
Bandaríkjunum þungt fyrir
brjósti.