Lögberg


Lögberg - 03.10.1957, Qupperneq 2

Lögberg - 03.10.1957, Qupperneq 2
2 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 3. OKTÓBER 1957 Hátíðarguðsþjónusta í Bessastaðadirkju á Hvítasunnudag — RÆÐA FORSETANS — ------------------ Fyrrverandi ríkisstjórn á- nafnaði mér fyrir 3 árum á sextugsafmæli mínu, 50 þús- und krónum til kirkjunnar, og gat hún ekki betur valið, og forsetar Alþingis á síðasta kjörtímabil gáfu aðrar 50 þús- und krónur í minningu Kristni tökunar á Alþingi, árið 1000. Þá hafa mér borizt 25 þúsund krónur frá Frímúrurum til minningar um Herra Svein Björnsson forseta íslands, 5 þús. krónur frá Þjóðræknisfé- lagi Vestur-fslendinga, 20 þúsund krónur frá Gretti Jó- hannssyni, ræðismanni íslands í Winnipeg, 20 þús. krónur frá Bessastaðasókn, 2 þúsund ikr. frá frú Bodil Koch, kirkju- málaráðherra Dana og 12 þús. krónur frá ónefndum gefanda. Nemur þetta samtals 184 þús. kr., og er mér kunnugt um fleiri áheit, sem menn eru ó- greidd. Þá gat forseti muna sem Bessastaðakirkja nú hefur fengið úr opinberum söfnum og þakkaði þjóðminjaverði og þeim aðilum sem hlut eiga þar að máli, en sérstaklega gat hann altaristöflunnar eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg, en menntamálaráð, undir forustu fyrrverandi for- manns Valtýs Stefánssonar, hefði samþykkt að altaristafl- an skyldi geymd í kirkjunni. Þá færði forseti Gunnlaugi Halldórssyni húsameistara þakkir, en hann hafði með höndum yfirumsjón með verk- inu og listamönnunum Finni Jónssyni og Guðm. Einars- syni, sem teiknuðu hinar steindu rúður og grátur og Mr. Fr. Cole, sem sá um gluggagerðina. Gat hann frú Sigrúnar Jóns- dóttur sem teiknaði altarisá- klæði og gerði ísauminn. Ennfremur færði forseti þakkir öllum þeim öðrum, er unnið hefðu að máli þessu og veitt fyrirgreiðslu. Síðan mælti for$etinn m.a. Altarið stendur nú frjálst frá vegg og fyllir vel út í hið mikla kórrúm. Altaristaflan og hinn ungi, hvíti Kristur, sem læknar og opnar augu mannanna, er nútímaverk og þó með kirkjulegum erfðablæ. Mér hefur fallið hún því bet- ur, þessi tafla sem eg hef séð hana oftar, og vona að svo verði fleirum. Hér nýtur hún sín fyrst til fulls. Milli spala í grátunum er fangamark Jesú Krists í umgerð sólarinnar og tólf geislar postulana út í frá. Til beggja handa eru hin f jög- ur sögutákn guðspjallamann- anna, engillinn, ljónið, nautið og örnin, sem í flestu svara til vorra eigi landvætta. Á altaris- klæði er Kriststáknið, endur- tekið, og á hliðarskápum tákn kvöldmáltíðarinnar annars veg ar og hins vegar tákn ríkis, máttar og dýrðar. Af hinum átta steindu rúð- um, þá eru tvær í kór úr guð- spjallasögunni, Mraía Guðs- móðir og Fjallræðan. En efni hinn^ sem er úr Kristnisögu vors eigin lands, þrjár úr ka- þólskum sið, landsýn hinna írsku munka, papanna, Þorgeir Ljósvetningagoði við Kristni- tökuna, og Jón Arason písla- vottur þjóðar sinnar og trúar. Úr lútherskum sið Guðbrand- ur Hólabiskup, hinn mikii at- orku- og siðbótamaður, með biblíu sína séra Hallgrímur, eitt mesta sálmaskáld kristn- innar, þótt fáir viti né skilji, sem ekki kunna íslenzku og meistari Jón með postillu sína, sem lesin var á flestum heim- ilum í tvær aldir, en nú er niður lögð vegna stóryrða, sem ekki viðgangast lengur í trú- arefnum, þó nothæf þykir á sumum öðrum sviðum. Það var afráðið að ein per- sóna skyldi vera höfuðatriði hvers glugga, og láta mikil- menni íslandssögu ganga fyrir Gamla testamenntinu. Tákn- mál myndanna er ekki tími til að rekja, en andlit eru mjög vel gerð, bæði þau sem byggð eru á söguheimild, og hin sem getið er til um. Litir eru sterk- ir og lýsandi, og fer vel í djúp- um gluggakistum, svo mér finnst nú þegar að þessir gluggar hljóti alltaf að hfaa verið í kirkjunni. En svo er og um altaristöfluna, það er líkt og örlög, að eiga völ á mynd, þar sem öll hlutföll falla svo vel við stóran, og erf- iðan bakgrunn. Eg ætla mér ekki að kveða upp neinn allsherjardóm, en vil aðeins láta í ljósi þakklæti og fögnuð yfir því, að fram- kvæmd er öll eins og vonir stóðu bezt til. Breyting á alt- ari fylgir það, að hið ágæta krossmark og Kristslikan Rík- arðs Jónssonar hefir verið flutt á miðjan lagvegg kirkj- unnar, og á, eins og áöur, rík- an þátt í að setja svip á þetta guðshús. Og það er ekki ó- heppileg röð, að byrja á suður- vegg, þar sem hin unga móðir María hampar barni sínu, og láta sjónina svífa til altarisins, þar sem Kristur læknir, — og hin illu öfl, til beggja handa, eru nánast á leið út úr ramm- anum, þar næst til Fjallræð- unnar, og síðast til Krossins á Golgata. Síra Hallgrímur sómir sér þar vel milli kross- ins og .kenningarinnar. Og að lokum nokkur orð. — Kirkjur virðast hafa verið vel búnar og skreyttar hér á landi fram á 16. öld, enda vegnaði þjóðinni þá betur en siðar varð Góðir gripir entust þá lila í raka og kulda, og kirkjur voru rúnar sumpart undir því yfir- skyni að skurðgoðadýrkun bæri að forðast. Margt góðra gripa mun hafa verið reitt hingað til Bessastaða, sem var kóngsgarður frá klaustrum og víðar að, en nú sér þess engan stað. Og skurðgoðahættan staf ar jafnvel síður frá góðum listaverkum en skrælnuðum kennisetningum, sem ekki ná lengur til þess, sem þær áttu að tjá. Það er margt í trúar- efnum sem betur næst í ljóði, litum og helgum táknum. Vér höfum verið orðsins menn, ís- lendingar og heimafenginn f jöðurstafur og kálfskinn beint gáfum og hæfileikum í eina átt. Kjörviður var hér fá- gætur, steinn ýmist of gljúp- ur eða harður, og litir fágæt- ir nema í landslagi. En nú eru nýir tímar mikilla möguleika og varanlegt byggingarefni leyfir góða geymd. Minnumst þess, að kristnin hetur verið oss þess umkomin á. undan- förnum öldum, að skapa göf- uga list í litum, tónum og föstu efni. Vér erum arfsmáir í þessu tilliti, en nú er komið að oss, og efnamenn og “hið opinbera”, sem kallað er, á að sjá fyrir stórum viðfangsefn- um í húsasmíð, höggmyndum, litmyndum, og hverskonar menning, sem hæfileikar eru til að skapa. Mér þykir vænt um að við getum nú opnað kirkjuna aft- ur á sumarhátíð kristninnar, og hún mun standa öllum opin, sem hingað leggja leið sína — ekki sízt á messutíma. Við löfum náð áfanga, sem við gleðjumst yfir—en verkinu mun haldið áfram, —þó minn- ugir þess sem Salomon sagði PISTLAR Úligönguf ólldð í illviðrahamnum á Suður- landi eftir miðjan janúar, varð ekki varizt, að maður minnist þess, að til er í höfuð- staðnum nokkur hópur fólks, sem vart verður sagt að eigi fastan samastað, eða jafnvel hirði um það. Þetta eru meiri og minni drykkjusjúklingar, sem þannig eru komnir út á kaldan klakann. Gott er að minnast þess, sem hefir verið gert hér fyrr, að meira er unnið til úrbóta þessum mál- um en áður. Bláa bandiS heldur uppi lofsverðri hjálp- arstarfsemi, drykkjumanna- hæli er rekið í Gunnarsholti, og lögreglan ljær mörgu af þessu fólki húsaskjól ýmist viljugu eða nauðugu. En því miður munu vera þess ófá dæmi, að nokkrir þessara vesalinga liggi úti sumar næt- ur en aðrir hýrast í fremur lélegu skjóli, köldum kjöllur- um, jafnvel húsum, sem eru í smíðum. Kona, sem sakir vinnu sinnar er mjög snemma á ferli á morgnana, sagði mér nýlega frá því, að oftar en einu sinni hefði hún komið að sofandi drykkjumönnum á ekki verulega /jölfarinni götu. Hér er því brýn þörf frekari framkvæmda og virðist vart unnt að bíða þess, að fullkom- in hæli verði reist, sem þó eru nauðsynleg. Því aðeins með langri hælisvist og sér- stakri umönnun verður mönn- um bjargað úr helsi Bakkusar. Manni virðist, að unnt mundi vera að koma upp bráða- birgðaskýli á hentugum stað fyrir útigöngufólkið, eins konar byrgi, þar sem það ætti alltaf kost á hlýju, hollri nær- ingu og hvílurúmi, hvenær sem það leitaði þangað, eða miskunnsamir menn kæmu með það. Ég hefi átt 'tal við menn, sem þessum málum eru kunnugir og teldu slíkt til mikilla bóta. Og vér sem finn- um til með fuglum loftsins í harðindum, getum ekki hugs að til nokkurs manns í bjarg- leysu. Athyglisvert lagafrumvarp Hafið hefir verið starf til geðverndar hérlendis, eins og kunnugt er. Enda virðist þörf þess fara æ vaxandi víða um heim á síðari árum. Nú ber frú Ragnhildur Helgadóttir fram frumvarp þess efnis, að stofnsett sé hæli fyrir þá, sem eru meiri og minni öryrkjar sakir geðsýki eða taugabilun- ar. Ætlunin er, að þetta sé hliðstætt Reykjahæli SÍBS, sem víðkunnugt er og komið við musterisvígsluna: “Sjá himininn og himnana, himnar taka þig ekki, hve miklu síður }á þetta hús.” Að svo mæltu býð eg yður — og öllum landslýð gleði- lega hátíð! —Eining hefir þegar að ómetanlegu liði. Er hér um mjög athyglis- vert og gott mannúðarmál að ræða. En hér er ekki úr vegi að minna á, að í umræðum um þessi mál er oft að því vikið erlendis, að mótmælendum hafi orðið skyssa á, þegar þeir báru kaþólskum skriftum svo illa söguna, að skriftir mega kallast úr sögunni innan lút- ersku kirkjunnar víðast hvar. Margir læknar telja, að allt of margir prestar, og einnig allur almenningur, vanmeti og vanræki þá andlegu heilsu- vernd, sem einlæg skriftamál geta oft verið mörgum þeim, er liggur margt of þungt á hjarta. Unesco Menningarsamtök Samein- uðu þjóðanna, sem svo eru nefnd, eru nú tíu ára, stofnuð af fulltrúum 20 ríkja í París 4. nóv- 1946. Ári áður höfðu þau verið rædd á fundi í Lun- dúnum, sem setinn var af 44 fulltrúum. Nú eru 77 ríki að- ilar þessarar stofnunar. Hefir hún orðið sístærri og umfangs meiri og er að reisa mikið stórhýsi fyrir starfsemi sína í París. Tilgangur Unesco er sá, að miðla þekkingunni um all- ar jarðir og mennta allt mann- kynið sem bezt. Muni það þá mest geta notið lífsins og náð æskilegum þroska, og síðast en ekki sízt lifað í friði á jörð- unni. Þetta er alþjóðlegt starf, sem unnið skal í þeim anda og skilningi, að engin þjóð sé í raun réttri annarri rétthærri, né leyfilegt að lofa afrek eins á kostnað annars. öll sagn- ritun, sem gerð er frá þjóð- ernislegu sjónarmiði, er for- dæmd, og allar uppgötvanir taldar eiga að vera alþjóða- eign.. Beri vestrinu og austr- inu að hafa friðsamleg menn- ingarsamskipti á öllum svið- um. Öll kennsla og uppeldi sé laust við pólitíska hleypidóma og þjóðernislegan hroka, og hvers konar yfirráðastefnu. Bókmenntir, listir og trúar- brögð séu kynnt á hlutlausan hátt um víða veröld. Og þar fram eftir götunum. Fjöldi færustu manna á f 1 e s t u m menningarsviðum starfa nú í þágu samtakanna og hefir líka víða náðst ágæt- ur árangur í mörgum grein- um. M. a. færist lestrar- og skriftarkunnátta sífellt í auk- ana um heim allan sakir á- hrifa og hjálpar Unesco. Er ekki vafasamt, að hér er unnið að góðu markmiði og fylgt réttum leiðum. Vér Is- lendingar getum sem aðrir fagnað þessari merku og víðtæku menningarstarfsemi, sem oss ber ekki aðeins að færa okkur í nyt, heldur styðja eftir getu. Þegnar þagnarinnar í sambandi við hinar miklu alþjóðlegu stofnanir nútímans vekst það upp, að þótt „sagan“ geymi aðeins nöfn hinna „stóru,“ þá er gildi hvers ein- Framhald á bls. 3 ! J ( j A I

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.