Lögberg - 05.12.1957, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 5. DESEMBER 1957
5
WWWWWWWWWW WW yyf f iyf f f f yf y
r r
AHL6AMAL
■WENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
DROTTNINGIN
LÆGSTU FLUGGJÖLD TIL
ÍSLANDS
• A einni nðttu til Reykjavikur. j
Rúmgóðir og þægilegir farþega- |
klefar, 6 flugliðar, eem þjálfaðir
hafa verið í Bandarlkjunum, bjðða |
yður velkomin um borð.
• Fastar áætlunarflugferSir. Tvær j
ágætar máltíSir, koníak, náttverSur, |
allt án aukagreiðslu með IAL.
Frá New York meS
viSkomu á ÍSIiANDI
til NORKGS, DANMKRKUR, SVÍÞJÓÐAR, STÓRA-
BRKTIiANDS, ÞÝZKALANDS.
Upplýsingar 1 öllum ferSaskrifstofum
kelÆdÆiíÆimes
/ / / *77
15 West 47th Street, New York 36 PL 7-8585
New York . Chicago . San Francisco
Mörg ár eru liðin síðan ég
var stödd á Sherbrook stræti
hér í borg í hópi* fjölda fólks,
er beið eftir því að George
sjötti konungur brezku sam-
veldisþjóðanna og Elizabeth
drottning hans ækju þar fram
hjá. Eftir nokkura bið komu
gestirnir í ljós og varð mér
aðallega starsýnt á drottning-
una, svo fannst mér hún töfr-
andi; bláeygð, dökkhærð og
skipti fagurlega litum; en það
var aðallega hið hlýja bros
hennar sem náði til hjarta
fólksins; hún veifaði hendinni
til beggja hliða á sérlega
fallegan hátt eins og hún vildi
draga fólkið til sín; og það
síðasta sem ég sá um leið og
þau hurfu norður strætið var
þessi, næstum ósjálfráða
hreyfing handar hennar.
Allmörgum árum síðar
komu dóttir konungshjónanna
og maður hennar í heimsókn
hingað, Elizabeth prinsessa og
hertoginn af Edinburgh. Þeim
var einnig tekið með kostum
og kynjum, og urðu einnig að
heilsa upp á þúsundir manna
og lofa sem flestum að sjá sig.
Elizabeth var seinna spurð
hvers hún minntist helzt úr
Canada-ferð sinni, og svaraði
hún að hún myndi eftir þús-
undum andlita, sem liðu fram
hjá hugskotssjónum sínum
eins og í þoku.
Fáum mánuðum síðar lézt
faðir hennar og hún varð
drottning samveldisþjóðanna
— drottning Canada. Margir
munu hafa séð krýningar-
hátíðahöldin á kvikmyndum.
Athöfnin í Westminster
Abbey var tilkomumikil, en
þó fannst mér hápunktur
hennar fremur dapurlegur,
þegar þessi unga, fremur smá-
vaxna kona var umkringd af
gömlum embættismönnum
kirkjunnar, er skrýddu hana
krýningaryfirhöfninni — og
erkibiskupinn lét kórónuna á
höfuð hennar. Þetta var allt
svo mikið og þungt, táknrænt
þeirrar þungu byrðar marg-
víslegra skyldustarfa, sem
henni var lögð á herðar og
sem hún mun bera til ævi-
loka.
Daglega verður hún að
kynna sér ýms skjöl varðandi
rekstur ríkisins; allar nýjar
löggjafir verður hún að undir-
skrifa og það gerir hún aldrei
fyrr en hún hefir kynnt sér
þær rækilega. Hún er í ráð-
um með leyndarráði ríkisins
og fjallar um ýms mál, sem
hún má engum skýra frá, ekki
einu sinni manni sínum.
Aætlun um þátttöku hennar í
opinberum athöfnum er gerð
heilt ár fyrirfram, og það líður
varla sá dagur, að hún komi
ekki fram við einhverja at-
höfn. En svo hefir hún helgað
sig starfi sínu í þessi fimm ár,
að hún er orðin kunnasti og
vinsælasti þjóðhöfðingi í sögu
þjóðar sinnar. Enginn hefir
ferðast eins mikið um sam-
veldisríkin eins og hún, og nú
síðast heimsótti hún ásamt
manni sínum Canada i októ-
ber, setti sambandsþingið og
flutti stjórnarboðskapinn sem
drottning Canada; mun þess
sögulega atburðar lengi
minnst.
Þau hjónin heimsóttu einnig
Bandaríkin, og bæði þar sem
hér urðu þau að fara í gegn-
um hina venjulega myllu.
Er talið að þau hafi tekið í
hendur tíu þúsund manna
alls og að um fimm miljónir
manna hafi séð þau, þegar
þau óku um stræti borganna,
og um 56 miljónir séð þau á
T.V. Auk þess sem þau tóku
þátt í um 50 alls konar at-
höfnum og matveizlum. Það
má nærri geta hve þetta getur
orðið þreytandi, ekki sízt fyrir
drottninguna, því ætlast er til
að hún sé sífellt brosandi.
Hún er fremur ströng á svip,
ef hún ekki brosir, og þá held-
ur fólk að henni hafi mislíkað
eitthvað, svo hún verður að
reyna að brosa hvernig sem
henni líður. Hver sem reynir
að leika slíkt eftir finnur
fljótlega hve það er erfitt;
brosið stirðnar á andlitinu-
Þá eru hin sífelldu ræðu-
höld; hún semur vitanlega
ekki ræður sínar, hefir engan
tíma til þess, en hún verður
að kynna sér þær vel og flytja
þær svo vel fari og það gerir
hún. Hún bætti aðeins einu
sinni setningu inn í ræðu á
þessari ferð. Það var þegar
blaðamenn gengu á fund
hennar í Washington. Eftir að
hún hafði tekið í þúsund
hendur, flutti hún stutta ræðu
og sagði: „Mér er sagt að þetta
sé það stærsta blaðamannalið
í heiminum“ — horfði á þá og
bætti svo við: — „Þegar ég lít
í kringum mig, þá á ég ekki
bágt með að trúa að það sé
satt. Blaðamennirnir hlógu og
drottningin roðnaði af ánægju.
Maður hennar er góður ræðu-
maður, talar blaðalaust. Við
athöfn í háskólanum í Wil-
liamsburg töluðu þau bæði;
hún fyrst, fölleit og þreytuleg,
og svo hann, viss á sjálfum
sér, í léttum og spaugilegum
tón. Munurinn á þeim var svo
áberandi, að blaðamennirnir
sneru sér frá honum til að
Dánarfregn
August Einarsson, vistmað-
ur á Betel á Gimli varð bráð-
kvaddur þar fimtud. 14. nóv.
Hann var ættaður úr Þistil-
firði í Norður-Þingeyjarsýslu,
sonur Einars bónda Benja-
mínssonar og Ásu konu hans.
Sum af systkinum hans munu
hafa flutt vestur um haf, og
mun sumt af frændfólki hans
á lífi hér vestra. August kom
vestur um haf 1904, en hafði
þá um hríð stundað smíða-
vinnu á Akureyri. Hér vestra
nam hann land í Víðisbyggð,
Man., og bjó einbýlingsbúskap
á landi sínu- Hann þjónaði í
hinu fyrra heimsstríði um 3
ár eða lengur. Hann átti við
sjóndepru að stríða árum sam-
an. Um nokkur ár bjó hann á
eigin heimili sínu í Árborg,
var það um síðara skeið þjón-
ustu-ára minna þar, og hófst
nokkur kunningsskapur með
okkur. Hann var góðum gáf-
um gæddur, og átti einkar
hvassa athyglisgáfu, stað-
bundið og farsælt minni, og
var afar mannfróður. Árum
saman átti hann heimili hjá
Mr. og Mrs. S. M. Brandson í
Árborg, er reyndust honum
frábærlega hjálpsöm. Hann
átti einnig vináttu-ítök hjá
ýmsum öðrum í Árborg um-
hverfi, og Winnipeg og víðar.
Þannig dvaldi hann árlega um
hríð á heimili Mr. og Mrs. F.
Bárðarson í Winnipeg, í vinar-
dvöl með þeim, og heimsóttu
hann þá kunningjar, frændur
og vinir, er hann átti ekki kost
að heimsækja endranær.
Það var á þessu sumri að
Mr. Einarsson kenndi mein-
semdar í hálsi, og var á Al-
menna sjúkrahúsinu í Winni-
peg að læknisráði og undir
læknishöndum um hríð án ár-
angurs. Eftir að ég vissi um
dvöl hans þar, heimsótti ég
hann nokkrum sinnum. Varð
ég þá var við hversu sárt að
hann þráði að komast sem
fyrst „HEIM“ til Betel. Það
voru Mr. og Mrs. Felix Bárð-
arson, sem urðu milligöngu-
menn að því að hann fékk
heimfararleyfi eins fljótt og
auðið var, og tóku hann til
Betel í bíl sínum og glöddu
hinn blinda og sjúka mann
með því að flýta för hans
þangað- Votta ég þeim inni-
lega þökk látins vinar fyrir
heimsóknirnar til hans á
sjúkrahúsið og alla vináttu
honum auðsýnda, en starfs-,
umsjónar- og vistfólki þökk
fyrir ljúfa móttöku á eina
jarðneska heimilið er hann
átti. S. Ólafsson
lesa úr andliti hennar hvernig
henni yrði við. Elizabeth
ljómaði og var fjörlegri en
nokkur hafði áður séð hana.
Það var auðSéð að hún var
mjög stolt af manni sínum.
Niðurlag í næsta blaði
KAUPIÐ og LESIÐ
—LÖGBERG
Hitt og þetta
Atómknúnar járnbrautir
Árið 1960 munu járnbrautir
verða knúnar atómorku, var
upplýst á ráðstefnu einni ný-
lega, — The American Rail-
road Congress. Fyrstu tilraun-
irnar með atómknúnar járn-
brautir munu þó ekki gefa
þann árangur að þær geti tek-
ið upp samkeppni við hinar
eldri gerðir, en hins vegar er
talið öruggt, að búið verði að
fullkomna þær svo árið 1960
að atómknúnar járnbrautir
geti keppt við hinar eldri á
fjárhagslegum grundvelli, auk
þess sem þær verði búnar
meri þægindum og fari hrað-
ar yfir.
----0----
70% sterkari föí
Ný gerð nylonþráðar, mun
samkvæmt tilraunum, sem ný
lega voru gerðar, auka slitþol
karlmannafata um 70%, með
því að vefa í klæðaefnið þess-
um nylon-þræði, ásamt bóm-
ull eða rayoni. Nylon-þráður-
inn er búinn til hjá Du Pont
Company og hafa tilraunir
með hann staðið yfir í fjögur
ár.
----0----
Barnabar
— Aðgangur bannaður fyrir
alla yfir 12 ára aldur, stendur
yfir dyrum bars nokkurs í
Los Angeles, en bar þessi er
sérstaklega útbúinn við barna
hæfi. Þar er framreidd mjólk,
ískrem og annað góðgæti-
----0----
Ný ratsjá
Amerískt firma er um þess-
ar mundir að hefja fram-
leiðslu á nýrri gerð ratsjár
fyrir verzlunarskip. Þessi
nýja og endurbætta ratsjá
sýnir ekki aðeins stefnu skipa,
sem nálgast á siglingu, heldur
hreyfingu þeirra og hraða —
og ýmsar aðrar upplýsingar
gefur ratsjáin.
----0----
Mikill Jazzáhugi
Jazzhátíðin í Newport,
Rhode Island 1957, var fjöl-
sóttari nú en þrjú undanfarin
ár. Alls urðu áheyrendur
50,000 á sjö hljómleikum.
Meðal hljóðfæraleikara, sem
komu þar fram var Louis
Armstrong — og hélt hann
upp á 57 ára afmæli sitt við
eina hljómleikana á músik-
hátíð þessari.
----0----
Nýtt flugvéla-benzín
Ný tegund flugvéla-benzíns
er um það leyti að koma á
markaðinn, og hafa tilraunir
með það verið gerðar við The
Ethyl Corporation. — Talið er,
að nýting orku flugvélahreyfl-
anna aukist um 20 af hundraði
við tilkomu þessarar nýju
benzíntegundar.
----0----
Ný stáltegund
Amerísku firma einu hefur
tekizt að framleiða nýja teg-
und af ryðfríu stáli. Flugvélar
og eldflaugar úr þessu stáli
eiga að þola það mikinn hraða,
að stálið hitni upp í 533 gráður
á Celsíus, en til þess þarf 4352
kílómetra hraða á klukku-
stund, en sá hraði er fjórum
sinnum hraði hljóðsins.
----0----
Hættuleg siglingaleið
Á vissum stöðum meðfram
strönd Kóreu er mjög hættu-
leg siglingaleið. Eftir Kóreu-
styrjöldina var um helmingur
sökkt, og borgir og þorp með-
fram ströndinni lagðar í
rústir.
—Sunnudagsblaðið
HAVE 4=
Y0U |
ANSWERED
Y0UR
FIGHT
TUBERCULOSIS