Alþýðublaðið - 11.08.1960, Side 3
, Framhald a£ 1. siðu. i
aðamótin jan.—fébr. 1959 tek-j
ið í heimildarleysi úr frímerkja
birgðum . póststjórnarinnar 1
örk eða 100 stk. af 40 aura frí-
merkjum frá 1898, 1899 og 1904
og 1 örk eða 100 stk. af 50 aura
frímerkjum frá sömu árum svo
og fyrir að hafa tekið 150 ein-
stök merki af ýmsum tegund-
um.
í öðru lagi er Einar Pálsson
ákærður fyrir að fá Guðbjart
Heiðdal Eiríksson í janúar
1960 til að bera rangt fyrir rétti
hjá rannsóknarlögreglunni, er
haldinn var 15. janúar svo og
fyrir sakadómi Rvíkur 22. sama
mánaðar. En Guðbjartur hélt
því fram í þau skipti bæði, að
hann hefði fengið frímerki þau,
er málið snýst um hjá Sigurði
heitnum Baldvinssyni' fyrrv.
póstmeistara. Einnig skýrði
hann ranglega frá viðskiptum
sínum við Einar Pálsson og
reyndist það vera samkvæmt
ósk Einars gert.
Ennfremur er Einar Pálsson
ákærður fyrir það að hafa hinn
10. jan. s. 1. reynt árangurslaust
að fá Knud Hansen til þess að
bera það ranglega við yfir-
heyrslur, að hann hefði keypt
af Guðbjarti Heiðdal umrædd
40 aura og 50 aura frímerki en
frímerki þessi hafði Einar sjálf
ur selt Knud Hansen.
í þriðja lagi er Guðbjartur
Heiðdal ákærður fyrir rangan
framburð fyrir rétti. Og enn-
fremur er Knud Hansen ákærð
ur fyrir rangan framburð fyrir
rétti.
í ákæruskjalinu er þess kraf-
izt, að hinir ákærðu verði svipt
ir réttindum og þess krafizt, að
þeim verði gert að greiða skaða
bætur fyrir þau frímerki er
vantar.
MUHHMMtMMMMMMVMMv
Fyrsta fréttin
FYRSTA fréttin um frí-
merkjahneykslið, kom í
Alþýðublaðinu á forsíðu
19. janúar s, 1. Skýrði Al-
þýðublaðið þá frá því, að
rannsókn væri hafin á því
með hverjum hætti frí-
merki hefðu horfið úr
birgðum póststjórnar. AI-
þýðublaðið sagði í frétt-
inni, „einhverjir starfs-
menn póststjórnarinnar“
mundu hafa tekið frímerk
in ófrjálsri hendi-
tMMMIUMUmHWMtMWHW
26. júlí gaf dómsmálaráðð
neytið út frarohaldsákæruskjal
gegn Guðbjarti Heiðdal fyrir að
hafa hinn 9. janúar tekið við
að beiðni Einars Pálssonar til
varðveizlu 40 stk. af umrædd-
um 40 aura merkjum og 7 stk..
af 50 aura. merkjunum, enda
þótt Guðbjarti hafi þá verið
ljóst, að Einar Pálsson var ekki,i
vel að merkjunum kominn.
Þórður Björnsson er dómari
í máli þessu og las hann upp á-
kæruskjölin. Síðan tók til máls
sækjandi í málinu, Logi Ein- j
arsson en hann er skipað-
ur af hálfu ákæruvaldsins.
Rakti hann málið eins og það
liggur fyrir í dómsskjölum. Hef
ur það mikið komið fram áð-
ur hér í blaðinu en þó skal hér
stiklað á nokkrum atriðum:
Hinn 9. jan. sl. 1. ritaði Póst-
og símamálastjórnin sakadóm-
ara bréf og óskaði eftir rann-
sókn vegna hvarfs á frímerkj-
um úr birgðum póststjórnarinn
ar. Sagði í því bréfi, að föstu-
daginn 8. jan. hefðu þeir Magni
R. Magnússon bankastarfsmað- (
ur og Sigurður H. Þorsteinsson,
einnig bankastarfsmaður tjáð
póst- og símamálastjóra, að mik
ið magn væri á markaðnum af
40 og 50 aura merkjunum frá
1898, 1899 og 1904. Töldu þeir,
að merki þessi hlytu að vera
komin úr birgðum póststjórn-
arinnar. Póst- og símamála-
stjórnin snéri sér þegar til rík-
isendurskoðunarinnar og ósk-
aði eftir talningu á frímerkja-
birgðunum og reyndist þá
vanta 103 stk. af hvorri teg-
und af umræddum merkjum.
Við yfirheyrslur I málinu
kom það í ljós, að Pétur Eggerz
póstmálafulltrúi hafði opnað
frímerkjageymslu póststjórnar
innar og afhent Einari Páls-
syni samkv. hans ósk frímerki
úr geymslunni. Einar Pálsson
bar það fyrir rétti, að hann
hefði safnað frímerkjum og
haft samband við Karl Hjálm-
arsson símstöðvarstjóra í Borg
arnesi til þess að biðja hann
að útvega sér sjaldgæf frímerki
en Karl hafði áður starfað í
við endurskoðun hjá póstinum.
Hefði Karl tjáð sér að oft áður
hefðu frímerki úr birgðum póst
stjórnarinnar verið gefin er-
lendum mönnum og væri rétt ’
íyrir hann (þ. e. Einar) að at-
huga hvort hann gæti ekki feng
ið frímerki úr þessum birgðum.
Snéri Einar sér síðan til Pét-
urs Eggerz póstmálafulltrúa, er
hafði lykla að geymslum frí-
Framliald á bls. 10.
★ í BYRJUN janúar þessa árs varð þess vart,
að í umferð voru 40 og 50 aura merki frá 1898,
1899 og 1904, sem áttu að vera í birgðum póst-
stjórnarinnar.
★ í ljós kom, að 103 merki vantaði af hvorri teg
und í birgðir póststjórnarinnar.
★ 9. jan. þessa árs hófust yfirheyrslur í málinu.
★ Yfirheyrslurnar leiddu í ljós, að Einar Páls-
son skrifstofustjóri hjá Póst- og síma hefði tekið
merki þessi úr birgðum póststjórnarinnar.
★ Fyrir rétti bar Einar Pálsson í fyrstu, að hann
hefði fengið merkin hjá Guðbjarti Heiðdal stöðv
arstjóra á Vatnsenda, en hann hefði fengið þau
hjá Sigurði heitnum Baldvinssyni fyrrv. póst-
meistara.
★ Einar viðurkenndi síðar, að þessi framburður
væri rangur. Viðurkenndi hann, að hafa greitt
Guðbjarti 30 þús. kr. fyrir að bera ljúgvitni með
sér.
★ Dómsmálaráðherra ákvað 15. júní s-1. að höfða
mál á hendur Einari Pálssyni, Pétri Eggerz, Guð
bjarti Heiðdal og Knud Hansen.
»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»M»»»»»W»»»»»»»»W»»»»»»»WW»W»»I i
ACCRA, 10. ág. (NTB/Reuter).
— Þing Ghana gaf í dag stjórn-
inni leyfi til að beita her Ghana
til árásar gegn belgíska hern-
um í Kongó og til að bjóða út
öllu herliði landsins, ef það
kynni að reynast nauðsynlegt.
I
Bonn, 10. ágúst.
(NTB-Reuter).
MACMILLAN, forsætisráð-
herra Breta, og Home, lávarður,
utanríkisráðherra, áttu í dag 3ja
tíma fund með Adenauer kanzl
ara og von Brentano, utanríkis-
ráðherra í Bonn. Talsmaður V-
þýzku stjórnarinnar sagði eftir
fundinn, að rætt hefði verið á-
standið í stjórnmálum almennt
og sambúð austurs og vesturs
sérstaklega. Ágætur andi hefði
ríkt í fundarsalnum,. Samkomu-
lag ríkti um skilning á stefnu
Sovétríkjanna upp á síðkastir.
MOSKVA, 10. ág. (NTB/Reut-
er). — Rússar endurtóku enn
í dag þá staðhæfingu sína, að
Norðmenn væru samsekir um
meint brot Bandaríkjamanna á
rússneskri lofthelgi 1. júlí s. I.,
segir Tass í kvöld. Ásökunin
er endurtekin í nýrri, rúss-
neskri orðsendingu, sem afhent
var norska sendiráðinu í
Moskva í dag.
FRÁ GAMALLI tíð hefur ríkt
hin megnasta óreiða á stjórn
póstmálefna, bæði á póstmála-
skrifstofunni sjálfri og póstaf-
greiðslum víða um land, sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson hdl.
verjandi Pétur Eggerz í ræðu
sinni í gær.
Eyjólfur hélt áfram á þessa
leið:
„Er ekki ofsögum sagt, að al-
gjör skortur hafi verið á eðli-
legu aðhaldi og eftirliti. Átti
skjólstæðingur minn þátt í því
að kippa ýmsu í betra lag, sem
miður hafði farið í þessum efn-
um þótt hann ætti í þeim til-
raunum sínum oft á tíðum við
skilningsleysi æðstu stjórnenda
Framliald á 10. síðu.
Alþýðublaðið — 11. ágúst 1960 J