Alþýðublaðið - 13.08.1960, Page 2
•ttsjkórar: GIslI J. Ástþórsson (áb.) og Benedlkt Gröridal. — Fulltrúar rit-
•tjórin ar: Sigvaldl Hjálmarsson og IndriSi G. Þorsteínsson. — Fréttastjóri: :
®jörgvin GujBmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Augiýsingasiml:
"314906. — ASsetur: AlþýSuhúsið. — Frentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis- .
■Cata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasöiu kr. 3,00 ei&t.
□di: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Sverrir Kjartansson,
verður háð í Keflavík í október n.k.
Nánar auglýst síðar.
Björgvin Guðmun clss on
formaður
Sigurður Guðmundsson
ritari
Hannes
í Uppbygging iðnaðar
UN íiANFARIÐ hafa streymt til landsins ný
gl|esileg fiskiskip, sem eiga eftir að skapa mikla
atvinnu og afla þjóðarbúinu dýrmæts gjaldeyris.
Víssulega er það gott, að íslendingar skuli geta
erfdurnýjað fiskiskipaflota sinn, svo mjög sem þeir
eiga allt sitt undir sjávarútvegi. En þó mun mörg
um ofbjóða, hversu dýr hin nýju skip eru orðin.
Fiskibátarnir, sem komið hafa undanfarið, hafa yf
irfeit kostað 5 milljónir hver. Og hinir nýju togar
aá sem eru að koma til landsins kosta 40—50 mill
■3
jónir hver.
Það fer ekki hjá því, að menn hugleiði hversu
mkrgar verksmiðjur væri unnt að reisa fyrir þetta
fj^rmagn allt saman. Með því að benda á þetta. er
A-jþýðublaðið ekki að segja, að við hefðum ekki
áfct að kaupa hin nýju fiskiskip heldur reisa iðnaðar
verksmiðjur í staðinn. En Alþýðublaðið telur, að
bfiýna nauðsyn beri til, að auka fjárfestingu í iðn
aainum. Við þurfum ný atvinnufyrirtæki, sem skap
að geta vinnu og gjaldeyri. Við getum ekki stöðugt
treyst eingöngu á sjávarútveginn.
í sambandi við uppbyggingu iðnaðarins þarf
einnig að athuga möguleikana á því að fá erlent
fjármagn til stóriðju hér á landi. íslendingar mega
ekki láta hræðslu við erlent f jármagn standa í vegi
fyrir uppbygggingu stóriðju. í því efni getum við
tekið frændur okkar Norðmenn til fyrirmyndar.
Þeir hafa byggt upp stóriðjufyrirtæki með aðstoð
erlends fjármagns. En þeir hafa gætt þess að hafa
yfirráð fyrirtækjanna sjálfir og þess verða íslend
ingar einnig að gæta. En íslenzka þjóðin er svo’fá
menn, að ekki er við því að búast, að hún geti af
eigin rammleik ráðizt í byggingu stóriðjufyrir
táekja. í fallvötnum íslands býr hins vegar mikil
óþeizluð orka og að því ber vissulega að vinna, að
h|m verði hagnýtt.
a norniny
ýr Yndislegt veður.
ýý Sagt um Laúgarvatn og
bréf um það.
ýj- Helgalaug í megnustu
vanhirðu.
ÍZ Þjóðminjavörður á að
taka hana í sína um
sjá.
UNDANFARIÐ hefur veSur
verið svo gott að óvenjueg't er.
Alls staðar hefur fólkið reynt al
nota það eftir beztu getu Ég
hitti tvo menn, sem nýlega vorii
á Laugarvatnt í nokkra daga og
luku þeir upp einum munni um
það, að það væri mikill dá-
semdastaður. Þeir rómuðu fyrst
og fremst sumarblíðuna og ljúf-
lyndi náttúrunnar og bættu við,
að sjálfu hótelinu væri stjórnað
af mikilli alúð og myndarskap.
Út á það höfðu þeir ekkert að
setja.
HINS VEGAR kvörtuðu þeir
undan öðru. Þeir sögðu að utan
húss væri allt í niðurníðslu. Þeir
töluðu mest um strönd vatns-
ins: smásteinar, naglar, glerbrot,
járnarusl Hvers vegna ekki að
aka þangað ægisandi og hella
honum í fjöruna? Einnig fannst
þeim illa gengið frá heimreið-
inni og bílastæðum. Allt þetta
þyrfti nauðsynlega að laga. Þeir
sögðu að takmarkalausir mögu-
leikar væru á Laugarvatni — og
ég er sannfærður um það eins
og þeir.
FRÁ KUNNUM BORGARA,
P. S., fékk ég í fyrradag bréf
um þetta efnj og er það skrifað
af tilefni greinar um Laugar-
vatn, sem birtist nýlega hér í
blaðinu, en þar var einmitt
minnzt á sömu ágalla og menn-
irnir tveir, sem ég ræddi við,
voru að tala um Ég er sammála
sjónarmiðum bréfritarans. Hér
er bréf P.S.:
„ÉG LAS í Alþýðublaðinu um
daginn grein um Laugarvatn. Ég
held að margir hafi misskilið
margt í þeirri grein. Það sem er
Hótel Garður
geíur út ferða-
mannablað
ALÞÝÐUBLAÐINU hefur
borizt fyrsta eintakið af ný-|
stárlegu blaði. Er það blað er;
Hótel Garður gefur út fvrir er- í
lenda hótelgesti fyrst og fremst.
Er blaðið gefið út í tilefni af.
norræna lögfræðingamótinu,'
sem hér er haldið. Blaðið er:
fjórar síður og prentað á
dönsku. í því eru erlendar
fréttir, svo ov innlendar fréttir,
einkum þær, er snerta þátttak-
endur í norræna lögfræðinga-
mótinu. Háskólastúdentar ann-
ast nú hótelreksturinn á Garði. ]
sagt um skúrana, gufubaðið,
vatnið og grasleysið, það er ör-
uggléga ekki 1 verkahring veit-
iiigamannsins að ráða bót á, þar
verður ríkið og sýslan að koma
með fjárveitingu
ÉG, SÉM ÞESSAR línur rita,
hef dvalið á Laugarvatni nokkra
daga með fjölskyldu minni í
sumar og fyrrasumar. Okkur
leið þar öllum prýðilega vel. Af
öllum veitingamönnum, sem ég
hef kynnzt, finnst mér hótel-
stjórinn þar, Eysteinn Jóhannes-
son, vera í fremsta flokki. Allan
daginn er hann á þönum til að
þóknast gestum sínum. Starfs-
fólkið er flest ungt fólk og er
merkilegt hvað honum tekst að
vinna úr því. Ég þakka þeim öll-
um fyrir vinsemdina og velvilj-
ann, sem þau sýndu okkur öllum
og tala ég þar örugglega fyrir
munn fjölda gesta, sem þar hafa
dvalizt."
ÞETTA ER OG reynsla mín.
Það er víst, að ríkið og sýslan,
einnig Laugardalshreppur, þurfa
að taka höndum saman um end-
urbætur á Laugarvatni. Hótel-
stjórinn þarf að leita til annarra
aðila um allar endurbætur, enda
er hann aðeins ráðinn forstöðu-
maður hótelsins, hann hvorki á
það né rekur það fyrir eigin
reikning. Það væri honum áreið-
anlega mikið gl'eðíefni ef bætt
yrði úr þvl, sem aflaga fer þarna
á þessum yndislega stað.
EN MIG LANGAR TIL við-
bötar að minnast á annað: ■—.
Helgalaug, eða Vígslulaug, er £
frámunalegri vanhirðu — og iþað
er fyrst og fremst til skammar
fyrir allt þetta mikla skólahérað
— og hreppsnefndina. Sögur
herma, að í þessari laug hafi ver
ið skírðir Sunnlendingar og Aust
firðingar eftir kristnitökuna árið
1000 Einnig að þar hafi Norð-
lendingar laugað lík Jóns Ara-
sonar og sona hans er þau voru
flutt frá Skálholti til Norður-
landsins. Hér er því um að ræða
einn merkasta sögustað landsins,
LAUGIN ER í algerri van-
hirðu. Það er nauðsynlegt að
breytt verði um í þessu máli. É@
legg til að laugin verði að öllu
leyti sett undir yfiráð hins á-
gæta þjóðminjavarðar, Kristjáns
Eldjárns, að hann gerj tillögur
um verndun laugarinnar, aðbún
að að henni og svo framvegis, en
einhverjum ágætum heima-
manni að Laugarvatni falið að
hafa eftirlit með henni. — Ég
hef minnzt á þetta áður, en ár-
angurslaust. Ég vona að nú verðl
um bætt.
Hannes á horninu.
. ..
í SAMBANDI við sumar-
fund Félags ísl. búfræðikan-
didata verða flutt tvö erindi
um landbúnað, laugardaginn
13. þ. m. í 1. kennslustofu há-
skólans og hefst hið fyrra kl.
16.00. Öllum er heimill að-
gangur.
Fyrra erindið flytur Dr. T.
S. Ronningen, frá Banda'dkj-
unurn, en hann er aðalsér-
íræðingur og eftirhtsmaður
með tilraunum þeim, sem
banda-ríska landbúnaðarráðu
neytið styrkir í einstckum
fylkjum. Mun hann ræða um
rannsóknir á fóðurjurtum á
norðlægum slóðum, en hann
er m. a. kunnugur búnaðar-
skilyrðum í Alaska.
Hingað kom Dr. Ronning-
en um síðustu helgi frá Norð-
urlöndum, en þangað fór hann
eftir að hafa sótt alþjóðagras
ræktarráðstefnu í Bretlandi,
sem haldin var í síðasta mán-
uði. Hér hefur Dr. Ronning-
en ferðast um Suðurland og
Borgarfjörð með starfsmönn-
um Búnaðardeildar Atvinnu-
deildar háskólans og kvnnt
sér jarðrækt og tilraunir, og
er hann nú á förum vestuF
um haf.
Síðasta erindið flytur H,
Land Jensen, tilraunastjóri á
tilraunastöðinni Ödum á Jót-
landi og fjallar það um rækt-
un íóðurjurta og geymslui
þeirra. H. Land Jensen eF
kunnur tilraunamaður á Norð
urlöndum, einkum íyrir til-
raunir og rannsóknir á vot-
heysverkuh, en 4 Ödum eru;
gerðar mjög víðtækar tilrautt
ir með fóðurverkun og þai?
eru aðal vothevsgerðartil-
raunir Dana. Hefur Land Jeia
sen ritað mikið um þetta efni.
H. Land Jensen hefur ferð-
ast hér á landi í hálfan mán-
uð að tilhlutan Ræktunarfé-
lags Norðurlanda til þess að
kynna sér heyverkun okkai’
og landbúnað yfirleitt.
Fréttatilkynning frá Fé-
lagi ísl. búfræðikandi-
data.
■IBB
13. ágúst 1960 — Alþýðublaðið