Alþýðublaðið - 13.08.1960, Page 11
Olympíudagur
á jb icjudag
OLYMPÍUDAGURINN 1960
verður haldinn á Laugardals-
vellinum í Reykjavík n. k.
þriðjudag, 16. ágúst.
Það er Olympíunefnd íslands
sem gengst fyrir þessum í-
þróttaviðburði. Tilgangurinn
er fyrst og fremst sá að kynna
almenningi helztu keppnis-
greinar Ólyrapíuleikanna, með
sérstöku tilliti til þátttöku ís-
lendinga í þeim.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR,
KNATTSPYRNA OG
HANDKNATTLEIKUR.
Á Laugardalsvellinum hefst
dagurinn með handknattleik
stúlkna kl. korter fyrir átta.
Þar keppa stúlkurnar, sem
unnu 'Svíþjóð í nýafstöðnu
„Norðurlandamóti, við úrval
annarra handknattleikskvenna
úr Reykjavík og Hafnarfirði,
en kl. 20,20, strax á eftir hand-
knattleiknum, hefst knatt-
Vilhjálniur mcð á þriðjudag#
spyrnukappleikur í meistara-
flokki.
Samtímis handknattleiknum
hefst keppni í frjálsum íþrótt-
um. Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
100, 400 og 1500 m. hlaup
karla, 100 m. hlaup kvenna,
110 og '400 m. grindahlaup,
kúluvarp, þrístökk, stangar-
stökk og hástökk. 1500 metra
hlaupið verður í hálfleik knatt-
spyrnukappleiksins, en aðrar
frjálsíþróttakeppnirnar sam-
tímis flokkaíþróttunum.
ÓLYMPÍUFARARNIR
KEPPA.
Meðal keppenda eru allir
þeir, sem Olympíunefnd íslands
hefur valið til þátttöku í Róm,
eða þeir Vilhjálmur Einarsson,
Valbjörn Þorláksson, Svavar
Markússon, Hilmar Þorbjörns-
son og Jón Pétursson, en auk
þeirra flestir beztu frjálsíþrótta
menn Reykjavíkur, svo öruggt
er að um góða keppni verður
að ræða. Gert er ráð fyrir að
keppnisgreinum öllum verði
lokið kl. 22,00.
Sérstök áherzla verður lögð
á að láta mótið ganga greitt,
enda er mikil þörf á því, þar
sem svo margt skal ske á rúm-
um tveim tímum.
OLYMPÍUDAGSNEFND.
Olympíunefndin skipaði sér-
staka Olympíudagsnefnd, til að
sjá um framkvæmd dagsins, en
í henni eiga eftirtaldir menn
sæti: Guðmundur Sigurjónsson
form., Ragnar Lárusson, vara-
formaður, Gunnar Vagnsson,
ritari, Árni Árnason, gjaldkeri
og Þórður Guðmundsson, með-
stjórnandi.
Wáhlander
7,66 metra
WÁHLANDER setti sænskt
met í langstökki á sænska meist
aramótinu, stökk 7,66 m.
Hljóp á I
14,5 sek. I
Á innanfélagsmótt |
KR, sem fram fór á Laug- |
ardalsvellinum í gær hljóp N
Pétur Rögnvaldsson 110
m. grindahalup á 14,5 sek. jí
Með þessum tíma hefur |
Pétur náS þeim lágmarks- h
tíma, sem settur var til S
þátttöku > Olympíuleikun- S
um. €
T ugþraut
Þama björguðu Framarar naum lega marki,. (Ljósm.: J. Vilberg).
Bskarkeppnin
Fram (b) vann
R (b) með 2:1
FYRSTI leikur fyrstu bikar-
keppni í knattspyrnu, sem hald
in er á íslandi, fór fram á Mela-
vellinum í fyrra kvöld. Flestir
hinna fáu áhorfenda, sem sáu
leikinn, munu hafa komið í
þeirri góðu trú, að bikarkeppni
þessi' mundi hefjast með nokk-
urri viðhöfn.
En þar urðu menn fyrir mikl-
um vonbrigðum, því að í’orráða-
menn KSÍ sáu ekki ástæðu til
að hafa svo mikið við að setja
mótið formlega. Er slíkt virð-
ingarleysi við íslenzka knatt-
spyrnu vissulega ekki til þess
fallið að auka v-eg hennar og
virðingu, sem sízt er þó vanþörf
á. '
Það voru Fram (b) og KR (b)
sem léku þennan fyrsta leik í !
bikarkeppninni og fóru leikar
þannig, að Fram sigraði með 2
mörkum gegn 1. Framarar urðu
fyrri til að skora, þegar stutt
var liðið af leik _ Urðu mark-
manni KR þá mikil mistök á,
r hann hugðist grípe háa lang-
sendingu að marki', en 'hann
staðsetti sig of framarlega, —
þannig að knötturinn fór yfir
hann og í markið.
Skömmu fyri'r lok hálfleiksins
jöfnuðu KR-ingar næsta óverj-
andi með allgóðu skoti eftir"
hornspyrnu og stóðu leikar 1:1
í hálfleik. Snemma í síðari hálf
leik var dæmd vítaspyrna á KR
og mark skorað úr henni (2:1).
Eftir það voru KR-ingar mun
meira í sókn, þó að ekki' tækist
að jafna- Ýmis tæki'færi gáfust
— þó öllu fleiri við Fram-
markið, og má segja að heppn-
in hafi fremur veri'ð hliðhoU
1 Austurbæingum í þetta skipti.
Dómari var Baldur Þórðarson.
Um leikinn og liðin er annars
fátt að segja. B-lið Fram og KR
sem eru hin skárstu í höfuð-
staðnum, standa A-liðunum
langt að baki í hvívetn;a og er
óhugsandi, að þau mundu stand
ast neinu 1. deildarliði eða hin
um betri II. deildarliðum snún-
ing á leikvelli. Þ. e. a. s. stærstu
knattspyrnufélög landsins eiga
aðeins á að skipa einu fram-
bærilegu liði fullorðinna manna
— sem út af fyri'r sig segir sína
sögu.
Næstu leikir bikarkeppninn-
ar fara fram í dag. Þá leika Val-
ur (b) og ÍBÍ á Melavellinum og
ÍA (b) og Víkingur á Akranesi.
Það er spá vor ,að ísfirðingar
velgi b-liði' Vals undir uggum
og b-Akurnesingar reynist Vík
ingum þungir í skauti — x9.
Stökk 2,17 *
á grasbraut
FRANSKA fréttastofan
AP skýrir fr áþví nýlega,
ag frábær hástökkvari
hafi komið fram á Fiji-eyj
unum. Stökkvari þessi,
sem heitir Satawati og er
kornungur, á að hafa
stokkið 2,17 m á grasbraut
í borginni Suva, sem er
höfuðborg eyjanna. Ekki
er vitað hvort Salawati
tekur þátt í Ólympíuleik-
unum, en sannarlcga ætti
hann erindi þangað. |
I
/ / dag
MEISTARAMÓTI ísiands í
frjálsum íþróttum lýkur um
helgina. — Keppni hefst í tug-
þraut á Laugardalsvellinum: kl.
16 í dag og eru fjórir keppendur
skráðir, en búizt við að fleiri
mæti. Meðal keppenda í tug-
þrautinni' er Björgvin Hólm.
Hann keppti í tugþraut á innan-
félagsmóti ÍR nýlega og náði þar
míög góðum árangri, en hljóp
ekki 1500 m vegna þeirrar
keppni', sem er að heí jast í dag.
Þess má geta að Björgvin hefði
aðeins þurft að hlaupa 1500 m
á 4:52,0 til að ná 6500 stigum,
en það er Ólympíulágmark FRÍ.
Eru mjög miklar líkur til að
Björgvin nái' tilskildum ár-
angri, en hann er nú loks að ná
sér á strik eftir margt mótlætið
í sumar.
í dag verður auk þess keppt
í 4X800 m boðhlaupi, en á
morgun kl. 14 lýkur tugþraut-
inni og þá verður etonig keppt
í 10 km hlaupi og 1500 m hindr
unarhlaupi unglingameistara-
mótsins, en þeirri grein var
frestað, þegar mótið fór fram á
Akureyri.
ÞAÐ er kominn olympínsvjp-
ur á Rómaborg. — Á öllum
keppnisstöðum XVII. Olympíu-
leikj'anna blakta nú fánar hinna
87 þátttökuþjóða. Fyrir þrem
dögum var íþróttafólk 12 þjóða
komið til Rómar og af þeim eru
Japanir með fölmennatsa hóp-
inn eða 59.
Sjúkarhús leikjanna hefur
þegar fengið sína fyrstu sjábl-
inga, hjólreiðamaður frá £nd
landi, körfuknattleiksmaðiir írá
Súdan og hnefaleikári frá
Ghana h'afa meitt sig á æfing-
um.
íþróttafólkið streymir til
Rómar, síðast komu sjö £rá Lib
eríu. Fararstjóri þeirra er Banda
ríkj'amaðurinn Whitfield, sem
var Olympíumeistari í 800 m.
halupi, bæði í London 1948 og
í Helsingfors 1952. Mest verður
ösin þó ekki fyrr en um 20.
águst.
Alþýðublaðið — 13. ágúst 1960 J