Alþýðublaðið - 28.08.1960, Side 4
y' í
Benedikt Gröndal skrifar
HEL
f MÖNNUM er tíðrætt um þá
•atburði, er gerzt hafa í bæj-
arstjórn Akraness. Það hefur
, komið fyrir oftar en einu
sinni, að bæjarstjórar hafi af
ýmsum ástæðum orðið að
víkja úr starfi á miðju kjör-
tímabili. Hitt er einstætt og
ótrúlegt, að bæjarstjóri neiti
, að víkja, þegar 7 af 9 bæjar-
fulltrúum samþykkja á hann
vantraust. Virðist svo sem
Danlel Ágústínusson telji, að
hann geti stjórnað Akranesi
:með! 7 af 9 bæjarfulltrúum
andstæða sér, og fara þá að
. veráa einkennilegar hugmynd
ir hans og þeirra framsóknar-
•manna um lýðræði.
Það er alít annað mál og
þessju óskylt, að eðlilegt er að
leita álits dómstólanna um
það, hvort Daníel á kröfu á
bótum fyrir það, sem eftir er
kjörtímabilsins, eða ekki. Al-
þýðuflokksmenn hafa íhugað
það mál vandlega og leggja
það'óhræddir fyrir dómstóla,
því Daníel hefur svo ótvírætt
gert ráðstafanir án samþykkt-
ar bæjarstjórnar og svikizt
um*eð framkvæma samþykkt-
ir, s^m gerðar hafa verið.
j
☆ LÖNG
FORSAGA.
} Þétta mál á sér langa for-
sögu, og er nauðsynlegt að
rifja upp nokkra kafla henn-
! ar til að menn geti áttað sig
á því, sem gerzt hefur. Er
íýrst til að taka, að fyrir rúm-
' lega áratug voru Sjálfstæðis-
:.nenn að missa meirihluta,
sem þeir höfðu lengi haft á
Akijanesi, en fyigi vinstri-
flokkanna að komast yfir helm
íng. Alþýðuflokkurinn var
stærsti vinstriflokkurinn og
hafði forustu um myndun
vinstrimeirihluta í bænum.
Tvisvar sinnum mistókst þetta
af því aó framsóknarmenn eða
kommar sviku samkomulag,
og kom einu sinni til auká-
kosninga, sem gáfu íhaldinu
á ný meiribluta.
Alþýðufíokkurinn reyndi þá
að negla vinstriflokkana sam-
■an með sameiginlegum lista
1954, og tókst þá loks að fá
hreinan meirihluta. Átti Al-
þýðuflokkurinn þá skýlausan
rétt á að tilnefna bæjarstjfira,
þar eð hann hafði 3 af 5 bæj-
arfulltrúum meirihlutans.
En nú komu önnur sjónar-
miðj til skjalanna. Alþýðu-
ílokksmenn höfðu hug á mikl-
um'framkvæmdum, fyrst og
ireipst í hafnarmálum og
gatnagerð, en vissu að erfitt
mundi verða um stórátök,
nenja með stuðningi ríkis-
stjórnarinnar. í þessa tíð sat
að völdum stjórn Sjálfstæðis-
maána og Framsóknar, og var
lítibvon þess, að alþýðuflokks-
bæjarstjóri frá vinstristjórn
fengi mikla áheyrn hjá slíkri
stjórn. Af þessari ástæðu var
framsóknarmönnum boðið að
íeggja til bæjarstjórann og
genlgið inn á Daníel Ágústín-
tissón. Þessi staðre.ynd svnir
einnig ljóslega, að síðasta
hálflt .annað ár hefur Daníel
verið gagnslaus í erindrekstri
við^þing og stjórn fyrir Akra-
■ 4 28. ágúst 1960
nesbæ, en Hálfdán Sveinsson,
Guðmundur Sveinbjörnsson
og þingmenn kjördæmisins
hafa fengið þær fjárveiting-
ar og þá fyrirgreiðslu, sem
fengizt hefur til málefna
Akraness á þessu tímabili.
KNATTSPYRNA
OG HAFNARGERÐ.
Nú víkur sögunni aftur til
1954, þegar Daniel tók við
bæjarstjórn. Hafa framsókn-
armenn hiklaust eignað hon-
um allan heiður af hafnar-
gerðinni á Akranesi (eins og
öllu öðru, sem vel hefur tek-
izt). Sannleikurinn er hins
vegar þessi:
Hinir víðfrægu knattspyrnu
menn á Akranesi hafa haft
gott samband við þýzka knatt-
spyrnumenn. Meðal annarra
tók Guðmundur Sveinbjörns-
son þátt í samningum um þá
hluti og hafði Gísli Sigur-
björnsson forstjóri þar nokkra
milligöngu. Barst þá tal þeirra
Gísla og Guðmundar að íram-
kvæmdum og hafnargerð, og
svo fór, að Gísli kannaði lík-
ur á hagstæðum lár.um í
Þýzkalandi, og gat nokkru síð-
ar gert þaðan mjög góð boð til
stórframkvæmda á Skaga.
Guðmundur lagði mál þetta
fyrir hina bæjarfulitrúa Al-
þýðuflokksins, og þeir Hálf-
dán Sveinsson, sem hefur öll
þessi ár verið forseti bæjar-
stjórnar, settust að Daníel.
Hann var mjög vantrúaður og
sá á þessu alla annmarka. Þó
ýttu þeir Guðmundur og Hálf-
dán honum áfram, og hann fór
að tala við Eystein. Þaðan
kom hann með þau boð, að
Gísli væri ævintýramaður og
ekkert mark á þessu takandi.
Alþýðuflokksmenn leituðu þá
fulltingis Emils Jónssonar, þá
vitamálastjóra, sem kannaði
málið og taldi þýzka tilboðið
hagstætt. Hann lagði málið á
ný fyrir Evstein, sem þá end-
urskoðaði afstöðu sína og
veitti málinu stuðning, En
hefði hann gert það, ef ekki
hefði setið framsóknarmaður
í bæjarstjórastólnum?
Þannig hófst þessi mikla og
myndarlega framkvæmd, og
áttu að sjálfsögðu margir hlut
að henni, áður en yfir lauk.
Hitt er fádæma ósvífni að
eigna Daníel einum stórmál,
sem Guðmundur og Hálfdán
ráku hann nauðugan til að
hrinda af stað.
# í BLÍÐU
OG STRÍÐU
Vinstrasamstarfið gekk að
flestu leyti vel fyrsta kjör-
tímabilið, enda þótt ýmsir
persónulegir erfiðleikar sköp-
uðust umhverfis bæjarstjór-
ann, sem ekki er ástæða til að
rekja á bessum vettvangi.
Slík mál slivldu vissulega. eft-
ir sár, en Alþýðuflokksmenn,
sérstaklega Hálfdán, revndu
að friða og sætta til að sam-
starfið ekki eyðilegðist, og
tókst það. Þó kom fyrir, að
Daníel var á meirihlutafundi
minntur á, að það váatru til
fleiri persónufornöfn en ÉG,
og bæri að nota þau, þegar
rætt væri um gerðir fimm
bæjarfulltrúa frá þrem flokk-
um.
Nú er skemmzt frá að segja,
að með árunum færði Daníel
sig upp á skaftið og tók að
misnota aðstöðu sína sem bæj
arstjóri í stórvaxandi mæli í
pólitískum tilgangi. Síðustu
mánuðina hafa hrúgazt upp
atvik, sem sönnuðu Alþýðu-
flokksmönnum, að Daníel lét
ekkert tækifæri, í embætti og
utan þess. ónotað til að skaða
samstarfsflokka sína, minnka
áhrif þeirra og rægja forustu-
menn þeirra á Akranesi.
Síðasta dæmið um þetta er
að finna í Kaupfélagi Suður-
Borgfirðinga. Þar hefur árum
saman verið pólitískur friður,
en bæjarmenn og bændur úr
öllum flokkum setið í stjórn.
Þar hefur Hálfdán Sveinsson
um skeið verið formaður, en
hagur félagsins farið bátn-
andi, enda hafa Alþýðuflokks-
menn mikið fyrir það gert. í
vor gerðust þau tíðindi ó-
vænt, að framsóknarmenn
fengu kommúnista til liðs við
sig, smöluðu á fund og tókst
að fella Hálfdán úr stjórn.
Nú skulum við vera raun-
sýn og viðurkenna, að það
tíðkast hér á landi, að menn í
pólitískum stöðum eins og
bæjarstjórastöðum starfi
meira eða minna pólitískt. En
það óvenjulega við Daníel
Ágústínusson er það, hversu
heiftarlega hann hefur unnið
gegn sínum eigin stuðnings-
mönnum! Það er með þessari
framkomu sinni, sem Daníel
hefur eyðilagt vinstra.sam-
starfið, því ómögulegt er með
nokkurri sanngirni að ætlast
til þess, að forustumenn Al-
þýðuflokksins á Akranesi
styðji mann, sem eyðir öllum
kröftum sínum til að koma Al-
þýðuflokknum á Skaga fyrir
kattarnef. Daníel settist á
sterkan þrífót, en valdi bann
kost að höggva beittri öxi á
einn fótinn, og var því óhjá-
kvæmilegt að stóllinn ylti!
' SÝNDU
ÞOLINMÆÐI.
Þrátt fyrir þessa þróun
mála, sem Akurnesingar hafa
vitað um lengi, hafa Alþýðu-
flokksmenn ekki rasað um
ráð fram. Þeir hafa ekki lýst
vantrausti á Daníel sem bæj-
arstjóra af þessum pólitísku
ástæðum, eins og fram kom í
vantrauststi.llögunni, sem Tím
inn ekki birti. Daníel er þann-
ig maður, að hann hefur sjálf-
ur gefið ærin tilefni til brott-
vísunar með framkomu sinni
í starfi.
Það er óumdeilanlegt, að
bæjarstjóri er skyldur að
framkvæma samþykktir bæj-
arstjórnar eða bæjarráðs, og
PAPPÍRSVÖRUR
Reikningsbækur, þrjár tegundir
Stílabækur, fjórar tegundir
Glósubækur, þrjár tegundir
Teikniblokkir, fjórar stærðir
Skrifblokkir, fimm stærðir
Spíralblokkir, fimm stærðir
Rissblokkir, þrjár stærðir
Kvartbækur, línustr. og reikn. str.
Kladdabækur, línustr. og reikn. str.
Frumbækur, tvær stærðir
Reikningseyðublöð, tvær stærðir
Sellofanpappír,
Smjörpappír,
Gestabækur o. m. fl.
Heildsölubirgðir :
kipkttlf Vr
Sími 2-3737.
ennfremur að hann getur ekkl
gert stórframkvæmdir á eigin
ábyrgð án bess að fá til þeirra
samþykki sömu aðila.
'Vantraustið á Daníel er rök
stut.t með tilgreindum dæm-
um, þar sem augljóslega ev
brotið gegn þessum höfuð-
reglum. Daníel hefur komið
fram gagnvart gamalmennum,
á Elliheimili Akraness eins og
hreppstjóri á 19. öld við
hreppsómaga. Hann hefur tek
ið traustataki viðbótar elli-
laun, sem Tryggingastofnunim
hefur veitt þessu fólki, svik-
izt um að greiða fólkinu laun-
in og haldið þeim eftir í bæj-
arsjóði. Þar að auki hefur
hann látið elliheimilið greiða
húsaleigu og skrifstofukostn-
að, sem mun vera fátítt eða
einsdæmi. Slík framkoma í
tryggingarmálum er svo furðui
leg,- að Alþýðuflokksmenni
geta ekki haldið áfram að
styðja mann, sem þannig
hegðar sér.
Þessu til viðbótar eru skýr
tilfelli, þar sem Daníel hefur
ráðizt f fjárfestingu án sam-
þykkis bæjarstjórnar og bein-
línis svikizt um að fram-
kvæma nýlegar samþykktir
bæjarráðs. Alþýðuflokkurinn
er allsendis óhræddur við úr-
skurð dómstóla um þessi at-
riði.
Eins og hér hefur komið
fram, hefur Daníel Ágústínus
son sjálfur eyðilagt samstarf
vinstri flokkanna á Akranesi.
Hins vegar er ástæðulaust að
láta samstarf flokka um bsej-
armálefni standa og falla með
einum starfsmanni bæjarins,
Þess vegna skrifuðu bæjarfúíl
trúar Alþýðuflokksins hinum
flokkunum og buðu áframhald
andi samstarf með nýjum bæj
arstjóra, sem Alþýðuflokkur-
inn tilnefndi, þar eð hann
hefur 3 af 5 bæjarfulltrúum
meirihlutans. Þessi breyting
gat orðið bví léttari, sem ætl-
unin var að fá Hálfdán Sveins
son fyrir bæjarstjóra. Hann
hefur allra manna mesta þekk
ingu á bæjarmálum Akraness,
og vinstra samstarfið hefði
aldrei staðið eins lengi og það
þó gerði, ef Hálfdán hefði ekki
af festu og hógværð lægt allar
öldur. Tilboðið um áframhald
andi vinstrasamstarf var end-
urtekið á hinum sögulega bæj
arstjórnarfundi.
Framsókn og kommar sinntu
ekki þessu tilboði. Þeir sýndu
þarmeð algert áhugaleysi á á-
framhaldandi samstarfi, og
sagði bæjarfulltrúi framsókn-
ar þau orð, sem fræg eru orð-
in; Mér er andskotans sama
um allt vinstrasamstarf,
Afstaða kommúnista er
þarna merkileg. Þeir hafa ver-
ið mjög sárir og vonsviknir
með Daníel og vegna rógstarf-
semi hans gegn þeim. Síðast-
liðið vor báðu beir Alþýðu-
flokksmenn um samstarf til
að víkja Daníel frá. en þá lágu
ekki fyrir þaú málefni, sem
skýrust eru flutt gegn honum
nú. Má mikið vera, ef Inga R.
Helgasyni þykir hann ekki
færa tækifærissinnaðri póli-
tík stóra fórn, er hann gerist
aðal forsvarsmaður Daníejs
Ágústínussonar!
Alþýðublaðið