Kirkjublaðið - 02.09.1892, Page 9

Kirkjublaðið - 02.09.1892, Page 9
169 fjelagsins voru þessir kosnir í nefnd: sr. Jón, sr. Friðrik, sr. Hafsteinn, hr. Friðjón Friðriksson og hr. Magnús Páls- son. Allar þessar kosningar gilda til næsta kirkjuþings. Meðan á kirkjuþinginu stóð — sd. 26. júní — var vígð kirkjan á Garðar. Sr. Steingrímur flutti vígsluræð- una og var mesti mannfjöldi viðstaddur. Kirkjan er eink- ar stórt og vandað hús. Hún er hin einasta íslenzka kirkja vestan hafs, sem er í alla staði fullgerð. Hún hefir bæði altari og kirkjuklukkur, en það hafa aðrar íslenzk- ar kirkjur eigi getað útvegað sjer enn sem komið er, Meðan á kirkjuþinginu stóð, var fluttur einn fyrir- lestur af sr.Steingrimi. Fyrirlesturinn hjet: »Hvað viljum vjer?«. Hann var einkar vel saminn og skipulegur, eins og við mátti búast af jafnalvörugefnum gáfumanni og sr. Steingrímur er. Almennur málfundur var og haldinn á kirkjuþinginu til að ræða um skólamál kirkjufjelagsins. I þeim um- ræðum máttu allir taka þátt, þótt þeir stæðu fyrir utan kirkjufjelagið. Herra Vilhelm Pálsson hóf þær umræður með snjallri og langri ræðu. Umræðurnar um þetta mál urðu all-langar. Nokkrir ungir menntamenn mæltu á móti skólahugmyndinni. En að mótmaflum þeirra kvað mjög lítið, einkum þar sem þeir voru svo gjörsamlega ókunn- ugir íslenzkum bókmenntum og íslenzkri tungu, að einn þeirra skoraðist jafnvel undan að tala íslenzku á málfundi þessum. Það er ákveðið í lögum kirkjufjelagsins, að tvo fyrir- lestra skuli halda á hverju kirkjuþingi. Til þess að full- nægja þessu lagaákvæði, flutti sr. Hafsteinn all-langa tölu á seinasta degi kirkjuþingsins um hinn heimsfræga mælsku- mann, sr. Charles Haddon Spurgeon fl9. júní 1834—31. jan. 1892). Meðal annars sýndi hann fram á, í hverju mælska Spurgeons er fólgin. Sr. Hafsteinn bar og Spur- geon saman við tvo mælskustu presta samtíðarinnar: Henry Ward Beecher og T. de Witt Talmage, og sýndi fram á það, sem sjerstaklega einkonnir mælsku hvers þeirra fyrir sig. Tala þeirra safnaða, sem tilheyra kirkjufjelaginu, er lík því, sem hún var í fyrra. Erindsrekar voru mættir

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.