Kirkjublaðið - 02.09.1892, Síða 13

Kirkjublaðið - 02.09.1892, Síða 13
l7á ínnar, getiif með Drottins hjálp mjög míklu tíí íeíðarkomið í þessu sem öðrum meðal safnaða sinna. Samkvæmt fagurri siðvenju kirkjuvorrar ganga ung- menni safnaðanna í fyrsta skipti til Drottins borðs um leið og þau eru fermd. Þá er presturinn þeim handgenginn; þau eru þá eins og börnin hans og ætíð síðan er eitthvert einingarinnar band milli prestsins og þeirra ungmenna, sem hann hefir fermt. Sjerhver prestur ætti því að einsetja sjer að veita því nákvæma eptirtekt, hvort ungmennin, sem hann hefir sjálfur fermt, halda áfram að ganga til Gmðs borðs. Og þegar hann verður þess var, að þau koma ekki, þarf hann að tala við þau og áminna þau um að gleyma ekki sinni góðu játning. Þar sem safnaðarlífið er lengst á leið komið í landi þessu, er það álitið skylda prestsins, að tala viðallaþá safnaðarlimi, sem ekkineyta kvöldmáltíðarinnar, og hætta ekki fyrr en hann hefir vak- ið þörfina í hjarta þeirra. Þar er það nefnilega kornið inn í meðvitund manna, að það sje hin brýnasta skylda hvers safnaðarlims að ganga til altaris. Sálusorgarhug- myndin kemur þá fyrst fullkomlega í ljós, þegar prestur- inn ber þannig lagaða umhyggju fyrir hverjum safnaðar- lim. Opt verða ungmenni safnaðarins hinum eldri til fyr- irmyndar í þessu efni. Foreldrar, sem ekki hafa gengið árum saman til altaris, fylgja elzta barninu sínu, þegar það neytir kvöldmáltíðarinnar i fyrsta sinni eptir ferm- inguna. Það þarf sí og æ að takast fram við hina yngri, að það er engin afsökun fyrir þá, þótt foreldrar þeirra eða aðrir aðstandendur vanræki þessa skyldu sína. Þeg- ar börnin eru nógu staðföst til að koma til Drottins borðs i hvert skipti, sem þau eiga þess kost, verður það opt til þess, að foreldrarnir fara að fylgja hinu lofsverða dæmi þeirra. 0, hve dýrðlegt fyrir hitia yngri, að geta orðið fyrir- mynd hinnaeldri! Hve dýrlegt fyrir börnin, að vitna um frelsarann fyrir foreldrum sínum. —------------— ' Vantrúin. 1. Þótt sýnist vantrú svörtum skuggum tjalda um sólárátt, þars ljósið kemur frá,

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.