Kirkjublaðið - 01.11.1895, Page 1

Kirkjublaðið - 01.11.1895, Page 1
mánaöarrit handa íslenzkri alþýðu. V. RVÍK, NÓV. 1895. Golgatha. Grátlega gálgastæSiö! gistu þar liræfuglar, skuggaleg helstríðs hæðin, hásæti rotnunar; engin sást græn þar greinin, en gálgatimbrin há, skinin og bliknuS beinin, blóm var þar hvergi’ aS sjá, En — er á krossi Kristur kvala þar dauSann leið, ítur spratt aldin-kvistur óðar á hangameiS, angandi urta blómi alskryddi kalið svið, sungu þar sætum rómi söngfuglar morgunklið. Breyttist í bljúga lotning bölvun á feigðar hól, Grikkjalands gaf þar drotning* guðhræddum húsaskjól; þangað í þjettum sveitum þyrptist her trúaðra, hæst enn af helgum reitum heiðra menn Golgatha, Veglegu voru björgin vje goöa’ í fornum sið, Frelsarinn fjekk þar hörginn, fyrr er menn stugði við; tendraði trúin ljós, er tignina staðnum gaf, en — aska’ eru epli’ og rósir efans við Dauða haf. Gr. Þ. Messugjörðir og altarisgöngur á íslandi árin 1892—1894. Skýrsla sú, sera jeg sendi yður, herra ritsjóri, um messugjörðir og altarisgöngur hjer á landi um þriggia ára tímabilið 1892—94, er í töfluformi og að öllu leyti með sama fyrirkomulagi eins og samkyns skýrsla fyrir 3 árin næstu á undan, sem prentuð er í Kbl. 2. árg. bis. 162—163, og get jeg látið mjer nægja að skírskota hjer til hinna al- mennu athugasemda, sem fylgdu þeim töflum. ') Helena kona Konstantíns mikla.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.