Kirkjublaðið - 01.11.1895, Side 4

Kirkjublaðið - 01.11.1895, Side 4
Skýrslur þær, sem lagðar eru til grundvallar fyrir töflunum, eru fyrir 3 siðastliðin ár töluvert fullkomnari og með færri eyðum heldur en í fyrra skiptið, en þó engan veginn svo fullkomnar og nákvæmar, sem þær ættu að vera og gætu verið, ef allír prestar færu strang- lega eptir þvi, sem fyrir þá er lagt. En á þessu er þvi miður enn nokkur misbrestur, og ber mest á því þar sem prestaskipti verða í einhverju prestakalli; það kem- ur mjög opt fyrir, að messuskýrsla prestakallsins nær ekki nema yflr siðari hluta ársins, sökum þess, að hinn fráfallni eða burt flutti prestur heflr ekki skilið eptir nein- ar upplýsingar til að fylla út eyðublaðið fyrir messu- skýrsluna, þótt svo hafi verið fyrirskipað, og verður hinum viðtakanda presti þá nauðugur einn kostur, að láta skýrsiuna byrja með komu sinni til prestakallsins. En í veg fyrir þessar eyður mætti koma, ef prestarnir rituðu jafnótt hjá sjer messur og messuföll, annaðhvort í brjefabók prestakallsins, þar sem ætlað væri hæfilegt rúm fyrir eitt ár í senn, eða á laust blað, sem geymt væri á vissum stað, t. d. í brjefabókinni, ministerialbók- inni eða sálnaregistrinu, og nota jeg tækifærið hjer til þess að minna presta á þetta. En þegar presturinn er fallinn frá eða farinn í burtu, er optast nær eigi unnt að bæta úr, hafl þetta verið vanrækt. — Sú skekkja í töfl- unum, sem af þessum göllum stafa, verður eðlilega það, að allar hinar fluttu messur koma ekki til greina, og að tala altarisgöngufólks verður í töflunum nokkru lægri heldur en hún heflr verið i raun og veru. Þá er og önnur orsök, sem veldur því, að æðimörg messuföll verða, sem hvorki presti eða sóknarmönnum verður gefin sök á, og það er þegar almennar sóttir ganga yfirlandið, sem opt vikum saman gjöra almenningi ómögu- legt að sækja kirkju. Inflúenzuveikin, sem gekk yfir landið 1890, olli þá fjölda af messulöllum, og hið sama hefir átt sjer stað á því tímabill, sem hjer er um að ræða, einkum árið 1894, þegar veikin varð æði almenn og lagðist þungt á marga. Þriðja orsök til messufalla er það, þegar prestaJcöll eru prestslaus heil ár eða langa kafla úr árum, því að

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.