Kirkjublaðið - 01.01.1897, Side 2

Kirkjublaðið - 01.01.1897, Side 2
2 sem einka gafst oss son. Þú gafst oss soninn sæta, vor syndamein að bæta :,:og Jesú nafn í öllu er Það athvarfbezt, er þekkj um vjer:,: við ljóssins helgu tjöld. Sú er vor bænin blíðust, vor bænin fyrst og síðust; :,:I Jesú nafni, Jesú trú oss, Jesú faðir, blessa þú:,: L. H. Prjedikun á nýársdag 1897. Þegar liðnir voru átta dagar, þá er hann skyldi um- skerast, var hans nafn hallað Jesús, eins og hann var Jcall- aður af englinum. áður en hann var getinn í móðurlifi. Lúk. 2, 21. Guðspjall vort í dag hefir alls eigi fyrir augum áraskiptin, eða þá minningu dagsins, sem efst er í huga vorum. Texti dagsins í dag er valinn á undan þeim tíma, er kristnir menn hjeldu nokkra nýárshelgi. Árið hefir verið látið byrja mjög misjafnlega hjá ýmsum þjóð um á ýmsum tímum. Þó var komið fast skipulag á það í Rómaveldi skömmu fyrir fæðingu Krists, að árið var hafið með 1. degi janúarmánaðar og það var engin ástæða fyrir kristilega kirkju að fara að breyta því. En kirkj- an tók eigi upp neina sjerstaka nýárshelgi. Heiðnir menn höfðu um áramótin svallveizlur, slíkum dögum breytti kristin kirkja í yfirbótar og föstudaga, en gjörði eigi nýjar fagnaðarhátiðir úr þeim. Það var því alls eigi nein nýársminning, sem í fyrstu gjörði þennan dag helgan i kristinni kirlcju; helgi dagsins er af allt öðrum rótum runnið. Dagurinn í dag helgast af jólahátíðinni. Þegar jólahátíðin nokkrum hundruð árum eptir Krists burð fær hefð og festu í kirkjunni, þá telst þessi dagur með til helgarinnar, umskurnardagur Krists. Helgi stór- hátiðanna hjá Gyðingum stóð yfir í 8 daga, og jafnlöng helgi skyldi fylgja stórhátiðum kristinna manna. Þessi áttundi dagur jólanna,ýokadagur hátiðarinnar, fjekk þá eðlilega sína minningu frá umskurn Krists, og í þá minningu var valinn guðspjallstexti vor í dag. En þessi minning trúarbræðra vorra á löngu liðn-

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.