Kirkjublaðið - 01.01.1897, Side 3

Kirkjublaðið - 01.01.1897, Side 3
3 ura öldum, er nú fjarlæg huga flestra eða allra yðar, kristnu tilheyrendur, sem komið saman í Guðs húsi í dag. Dagurinn er yður nýársdagur, þjer komið hingað með nýárshugsanir yðar, með endurminningar yðar frá liðna árinu og viðbúnað yðar í huganum til hins nýja ársins. þjer komið með sorg yðar og kvíða, von yðar og gleði, og hver er þá nýársboðskapurinn, sem kristin kirkja hetir yður að flytja í dag? Hann er þetta eina vers, setn þjer heyrðuð, stytzta guðspjallið á öllum helgidögum ársins, guðspjallið um umskurn og nafngjöf frelsarans. Þjer heyrið þegar í fyrsta orði guðspjallsins að þetta er framhald jólaboðskaparins. »Þegar liðnir voru átta dagar«, liðnir frá því er vjer sáum hinn nýfædda svein í jötunni f Betlehem. Þegar sá tími var liðinn átti sveinn inn, að boði Gfuðs til forföðurins Abrahams og að sið feðranna að fá inntöku í sáttmálans heilögu þjóð, og hlýtur þá jafnframt nafnið, sem engillinn hafði boðað Jósepfyr- ir fæðingu hans. Nýársboðskapurinn er þá þessi að barnið, sem fæddist f Betlehem á jólunum, heitir Jesús, og þjer vitið hvers vegna hann var kallaður svo. Þjer hafið fyrir yður orð engilsins við Jósep: »Hann skaltu láta heita Jesús, því hann mun frelsa sitt fólk frá þess syndum«. (Matth. 1, 21). Nafnið þýðir það. Þetta stytzta guðspjall allra ársins guðspjalla færir oss þá að gjöf í byrjun ársins, á þessari fyrstu guðsþjónustusam- komu vorri, nafnið frelsarans, nafaið sem postulinn Pjet- ur talar um, í einni af sínum fyrstu kristniboðsræðum, með þeim orðum: »Af engum öðrum er hjálpræðis að vænta, því meðal manna gefst ekki nokkurtannað nafn* undir himninum, fyrir hvers fulltingi oss sje ætlað hólpn- um að verða«. (Post.s. 4, 12). Og getum vjer þá, kristnir vinir, kosið nokkurn dýrðlegri texta fyrir nýárshátíð vora, en þetta guðspall hins áttunda jóladags, guðspjallið um Jesú nafn, nafnið frelsarans. Hinn fyrsti sem kemur á móti oss hjer í *) Þvi orSi er sleppt í biflíuþ/ðing vorri, sem er eitt af ótal dæm- um ónákvæmi hennar.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.